Morgunblaðið - 29.10.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022
Snorrabraut 56, 105 Reykjavík feldur.is info@feldur.is 588-0488
Morgunblaðið hafði í gær eftir
framkvæmdastjóra Samtaka
atvinnulífsins að kjaraviðræður
væru komnar á fleygiferð, og að
hafin væri „alvöruatlaga að gerð
kjarasamnings“.
Þetta þarf ekki að
koma á óvart þar
sem núverandi
samningar renna út
næstkomandi
þriðjudag og því full
ástæða til að þeir
sem hafa tekið að
sér að semja sitji við
samningaborðið og geri sitt besta
til að ljúka samningum.
Viðsemjendur SA að þessu sinni
eru með yfir eitt hundrað þúsund
launþega innan félaga sinna og því
er mikið í húfi að vel takist til.
Gangi þessir samningar eftir má
ætla að þeir verði grundvöllur allra
annarra samninga á íslenskum
vinnumarkaði í þessari lotu.
- - -
Um leið og allir hljóta að gleðj-
ast yfir því að stórir aðilar á
vinnumarkaði sitji yfir samninga-
gerð vekur athygli að eitt stórt
stéttarfélag er algerlega undan-
skilið. Stéttarfélagið Efling stendur
utan við þær kjaraviðræður sem nú
standa yfir, og ekki nóg með það,
stéttarfélagið Efling er ekki einu
sinni búið að móta kröfugerð sína
eða hefur fundað með SA vegna
komandi kjarasamninga.
- - -
Sólveig Anna Jónsdóttir greindi
frá því í gær að verið væri að
„leggja lokahönd á kröfugerð fé-
lagsins“ og að stefnt væri að því að
afhenda hana viðsemjendunum á
mánudag, degi áður en samningar
renna út.
- - -
Forystan hefur gefið sér drjúgan
tíma til að standa í valdabar-
áttu innan verkalýðshreyfing-
arinnar, en að sinna kjaramálum fé-
lagsmanna er bersýnilega ekki
forgangsmál.
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Valdabaráttan
fékk forgang
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Töluverður munur er á fjölda og
lengd skólafría barna og ungmenna í
Evrópulöndum samkvæmt nýbirtum
samanburði milli landa í Eurydice-
skýrslu um lengd og fyrirkomulag
skólastarfs í grunn- og framhalds-
skólum í 37 löndum Evrópu á skóla-
árinu 2022 til 2023.
Einnig er nokkuð misjafnt hvenær
skólaárið byrjar síðsumars eða á
haustin í löndunum. Þannig byrja
t.d. skólarnir 1. september í 15
löndum en í átta löndum, þar á
meðal á Íslandi, mæta börnin í
skólann í ágúst.
Samanlagður fjöldi skólafrídaga
í grunnskólum yfir skólaárið
(sumarfrí, jólafrí o.fl.) er mismun-
andi en í meirihluta landanna sem
samanburðurinn nær til ná fríin yf-
ir 100 til 120 daga eða 14 til 17 vikur.
Algengast er að sumarfrí í skólum
séu níu til tólf vikna löng. Ísland er í
hópi landa þar sem sumarfríin í
grunnskólum eru á bilinu tíu til tólf
vikna löng en sumarfrídagarnir eru
nokkru færri hjá öðrum Norður-
landaþjóðum.
Skólabörn á Möltu, Ítalíu og í
Lettlandi fá aftur á móti nokkru
lengra sumarfrí, eða í 13 vikur, en
sumarfríin í Danmörku eru á hinn
bóginn styst eða að hámarki í sex
vikur samkvæmt samanburðinum.
Skólar í Evrópu með mislöng frí
- Frídagar í grunn- og framhaldsskól-
um 14-17 vikur í flestum Evrópulöndum
Morgunblaðið/Ernir
Hjólað úr skólanum Sumarfrí
barna eru mislöng í löndum Evrópu.
Það var mikil stemning meðal
krakkanna í Þorlákshöfn í gær þeg-
ar hátíðin Þollóween náði hámarki.
Hátíðin hefur staðið alla vikuna og í
gær var búningadagur bæði í
grunn- og leikskólanum. Það var
ágætisupphitun fyrir kvöldið þegar
krakkarnir gengu á milli húsa og
kröfðust þess að fá grikk eða gott.
Eins og sjá má á myndinni að ofan
voru búningar krakkanna afar fjöl-
breyttir að þessu sinni.
Í vikunni hefur verið boðið upp á
ýmsa viðburði, svo sem skelfilega
skrautsmiðju, draugagarð og köku-
keppni.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Hrekkjavaka Krakkarnir í skólanum í Þorlákshöfn tóku þátt í Þolloween.
Hrikalegar fígúrur á
ferðinni í Þorlákshöfn
Skelfileg Meira að segja kökurnar í
bænum vekja skelfingu hjá fólki.