Morgunblaðið - 29.10.2022, Qupperneq 14
ég líka alltaf
verið upptekinn
af allskonar smá-
atriðum, sem
merkilegt nokk
geta léð lengri
þáttum trúverð-
ugleika þó login
séu,“ segir Þór-
arinn um sagna-
gerð sína. Rit-
höfundarferill hans spannar
bráðum hálfa öld og verkin eru
fjölbreytt; ljóð handa börnum og
fullorðnum, smásögur, skáldsögur
og ótal þýðingar af ýmsu tagi.
Þannig mætti áfram telja. Sumir
tættu þáttanna gætu jafnvel kall-
ast örsögur en aðrir nálgast þjóð-
legan fróðleiksstíl.
Með gömlum gripum
og beinagrindum
Blaðamaður settist niður með
Þórarni í vikunni á kaffistofunni í
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Uppvaxtarár á Þjóðminjasafninu,
brosleg atvik á Bessastöðum, und-
arlegar húsvitjanir sendifulltrúa
Norður-Kóreu í Svíþjóð, guðlast í
húsi biskupsins yfir Íslandi, leikur
á sviði Þjóðleikhússins eða í sjón-
varpsmynd um Snorra Sturluson.
Willys-jeppi keyptur fyrir texta-
skýringar í útgáfu á Sturlungu,
drápur fluttar í norrænum kon-
ungshöllum og kattakyn í háskóla-
hverfi.
Margra grasa kennir í bókinni
Tættir þættir eftir Þórarin Eld-
járn, sem nú er að koma út. Þar er
að finna ýmsar mislangar sögur og
frásagnir af því sem höfundinn
hefur hent, atvik sem hann hefur
skráð og sum hver fært í stílinn
frá bláköldum veruleika.
„Mér getur orðið nánast allt að
söguefni. Í því sem ég skrifa hef
aldri og fram undir tvítugt. Faðir
hans, Kristján Eldján, síðar forseti
Íslands, var þjóðminjavörður og
því tilheyrði að búa í safnhúsinu,
vörðurinn skyldi að sjálfsögðu
verja gripina.
„Börn líta gjarnan á sitt daglega
umhverfi sem eðlilegan veruleika
en svona eftir á að hyggja var
safnið, þar sem við systkinin vor-
um oft á ferli, vissulega æv-
intýraleg veröld að alast upp í með
öllum sínum salarkynnum og göml-
um gripum og beinagrindum,“ seg-
ir Þórarinn. Í bókinni vitjar hans
æskuheimilisins; íbúðar í safnhús-
inu þar sem Kristján og Halldóra
Eldjárn bjuggu með börnunum
sínum fjórum. Vistarverum þess-
um var síðar umbylt og plássið
meðal annars nýtt undir fyrir-
lestrasal. Íbúðin er þó enn til í
huga Þórarins sem í Tættum þátt-
um segir:
„Ég stíg inn fyrir í huganum og
er nú staddur í forstofunni. Ég
heyri rúðurnar í hurðinni glamra
dálítið þegar ég loka á eftir mér.
Beint framundan eru innri dyrnar
og yfir þeim hreindýrshorn sem
pabbi kom með frá Grænlandi
1937. Upp við vegginn hægra meg-
in standa Mövehjólin okkar Ólaf-
ar.“
Íslensk fyndni er sælgæti
Í tímans rás segist Þórarinn
gjarnan hafa skrifað hjá sér minn-
ispunkta úr daglegu lífi, efni sem
síðan megi moða úr og setja í sam-
hengi. Þannig hafi Tættir þættir
orðið til. „Kaflarnir eru kannski
ekki neitt sérstaklega samhang-
andi – og þó. Þegar að er gáð
skapa smáatriði í einum þætti
stundum tengingar og þræði – eig-
inlega nánast óvart – við aðra
kafla,“ segir Þórarinn.
„Í bókinni eru 37 þættir, sama
tala og eðlilegur líkamshiti. Sumir
þættirnir geta kallast minninga-
brot. Engin heildstæð lína er samt
til staðar svo úr verði eitthvað sem
kalla mætti ævisögu. Flest af
þessu eru bara sjálfstæðir þættir,“
segir Þórarinn sem oft spinnur
eitthvað í kringum smáatriði og
setur í spaugsamt ljós. Slíkt segir
hann að sé raunar bráðnauðsyn-
legt fyrir framvindu frásagna. Í
sumum smærri þáttanna segist
hann vera undir talsverðum áhrif-
um frá Íslenskri fyndni, riti sem út
kom um árabil og naut vinsælda.
„Margir tala um að húmorinn í
Íslenskri fyndni sé oft svo furðu-
legur að iðulega sé erfitt að ráða
fram úr því hvað í sumum sagn-
anna átti að vera fyndið. En svona
hefur tíðarandinn breyst enda þótt
Íslensk fyndni standi enn fyrir
sínu, rit yfirfullt til dæmis af per-
sónufróðleik og kveðskap og fleiru
sem fyrir mér er hreint sælgæti.“
Kúlukertin og Nixon
Kristján Eldjárn var kjörinn for-
seti Íslands árið 1968 og flutti þá
með fjölskyldu sinni að Bessastöð-
um. Þar með varð Þórarinn Álft-
nesingur fyrsta árið þar, áður en
hann hélt utan til náms. Bjó þar
einnig 1972-73 með Unni Ólafs-
dóttur konu sinni og syni þeirra,
Kristjáni. Vorið 1973 komu þeir
Nixon Bandaríkjaforseti og Pom-
pidou Frakklandsforseti til fundar
á Íslandi og því fylgdi að sjálf-
sögðu móttaka á Bessastöðum. Og
þannig vildi til að þegar Banda-
ríkjaforseti kom í húsið voru Þór-
arinn, Unnur og Kristján yngri,
jafnan kallaður Eldjárn, stödd á
efri hæð Bessastaðastofu þar sem
eins árs drengurinn hafði hand-
samað kúlukerti og næstum tekist
að smeygja þeim yfir stigahandrið.
„Það má reyna að ímynda sér
hver viðbrögð lífvarðanna í mor-
móna-frökkunum hefðu orðið ef
tvær rauðar kúlur með kveik út
úr, ekkert ósvipaðar sprengjum í
Andrésblöðum, hefðu komið svíf-
andi niður í holið í sömu andrá og
Nixon gekk í bæinn. Kannski hefði
hann fengið þau í hausinn meðan
hann skrifaði í gestabókina,“ segir
í kaflanum Nokkrar Bessastaða-
sögur í bókinni Tættir þættir sem
vert er að gefa gaum.
Mér verður nánast allt að söguefni
- Ný bók eftir Þórarin Eldjárn - Und-
ir áhrifum Íslenskrar fyndni - Kúlu-
kerti á Bessastöðum í heimsókn Nixons
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Höfundur Ævintýraleg veröld, segir Þórarinn um æskuárin á Þjóðminjasafninu þar sem myndin er tekin.
Þjóðminjasafninu, húsi sem tekið
hefur miklum breytingum frá því
að hann átti þar heima frá eins árs
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022
Bókin Tættir þættir er gefin út af
Gullbringu, forlagi sem Þórarinn
Eldjárn og fjölskylda hans standa
að. Þótt Forlagið, undir ýmsum
merkjum, hafi gefið út margar
bækur Þórarins í gegnum tíðina
segist hann kunna því vel að vera
sjálfur forleggjari. Í þessari útgáfu
segist hann líka njóta liðsinnis
margra sem kunna til verka.
„Unnur Ólafsdóttir, konan mín,
sér um flestar praktísku hliðarnar
og Halldór sonur okkar er fílefldur
hönnuður og umbrotsmaður. Með
því að standa sjálfur að útgáfunni
kemst maður á margan hátt miklu
nær lesandanum en ella,“ tiltekur
Þórarinn sem áfram er með mörg
járn í eldinum. Ritstörfin segir
hann að séu rauði þráðurinn í líf-
inu en á næstu mánuðum ætli
hann að gefa sig að yrkingum.
Þess má geta að fjölskyldufor-
lagið heitir eftir Gullbringu í Svarf-
aðardal, sumardvalarstað Þórarins
og hans fólks, upphaflega hjáleigu
frá Tjörn þaðan sem Kristján Eld-
járn forseti var ættaður.
Gullbringa gefur bókina út
RITSTÖRFIN RAUÐUR ÞRÁÐUR Í LÍFINU
Hönnunarperla
á besta stað
í Fossvogi
Einstakt 286 fm einbýlishús í Fossvogsdal
auk alrýmis í kjallara sem býður upp á
mikla möguleika.
Stórar stofur með fallegum arni,
sjónvarpsherbergi.
Fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi.
Mjög gott skipulag.
Granít og teppi á gólfum.
Stór og gróinn garður, hiti í stétt.
TILBOÐ
Nóatún 17 | 105 Reykjavík | valborg@valborgfs.is | Sími 419 7900
Skoðumogverðmetum
eignir samdægurs
Allar upplýsingar veita:
EINBÝLI - FOSSVOGUR
Elvar Guðjónsson
Viðskiptafræðingur
Lögg. fasteignasali
Sími 895 4000
elvar@valborgfs.is
María Sigurðardóttir
Viðskiptafræðingur
Lögg. fasteignasali
Sími 820 1780
maria@valborgfs.is
valborgfs.is