Morgunblaðið - 29.10.2022, Page 16

Morgunblaðið - 29.10.2022, Page 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 25 ára reynsla JEPPABREYTINGAR VERKSTÆÐI VARAHLUTIR SÉRPANTANIR RYÐVÖRN merki Jafnvægisvogarinnar. Jafn- vægisvogin veitti viðurkenningar til fimmtíu og níu fyrirtækja, sex sveit- arfélaga og ellefu opinberra aðila úr hópi þeirra 209 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafn- vægisvogarinnar hafa náð góðum ár- angri á þessu sviði og fjölgaði þeim þátttakendum, sem hafa náð mark- miðunum, um 23 á milli ára. - - - Þjótandi ehf. er nú að byggja gríðarstórt aðstöðuhús fyrir starf- semi sína austan við veginn að Gadd- staðaflötum. Húsið er um 1.800 fm að stærð og kemur til með að kosta nokkur hundruð milljónir króna. Þjótandi er stórt verktakafyrirtæki ÚR BÆJARLÍFINU Óli Már Aronsson Hellu Framkvæmdir standa nú yfir við fyrsta áfanga stækkunar grunnskól- ans á Hellu. Grunnflötur stækkunar- innar er 520m² og hljóðaði kostn- aðaráætlun upp á 390 millj. króna. Reiknað er með að stækkunin kom- ist í notkun haustið 2023. Ekki veitir af að styrkja innviðina því íbúafjölg- un nam 3.5% á síðasta ári og er orðin sú sama á þessu ári. Aukin eftir- spurn er eftir byggingarlóðum og stendur til að bjóða út nýjar gatna- framkvæmdir á næsta ári til að mæta henni. - - - Fulltrúar Á-lista í sveitarstjórn Rangárþings ytra leggja til að komið verði á fót hverfaráðum í Rangár- þingi ytra. Í greinargerð með tillög- unni segir að eitt meginverkefni sveitarstjórnar sé að vinna að gagn- særri og opinni stjórnsýslu. Einnig að tryggja skilvirkni í þjónustu við íbúa og atvinnufyrirtæki í sveitarfé- laginu og gefa íbúum möguleika á að koma að stefnumótun og ákvörð- unum sveitarstjórnar. Hverfaráðin verði samráðsvett- vangur íbúa en hafi ekki endanlegt vald til ákvarðana eða fjárúthlutana. Það er skoðun flytjenda tillögunnar að með stofnun hverfaráða í sveitar- félaginu skapist mikilvægur vett- vangur fyrir íbúa til að hafa meiri áhrif á sitt nánasta umhverfi auk þess að þau skapi gott tækifæri til þess að efla og styrkja samskipti íbúa og sveitarstjórnar. - - - Frystihólf í Þykkvabæ hafa nú verið rekin í fjölda ára með útleigu til einstaklinga. Ljóst er að búnaður í frystigeymslum í Þykkvabæ er úr sér genginn og fer að kalla á verulegt viðhald eða endurbætur. Byggðaráð leggur til að frystigeymslan verði rekin áfram út ágúst 2023 með þeim fyrirvara að ekki þurfi að ráðast í kostnaðarsamar aðgerðir á bún- aðinum, komi til þess að hann bili. Frystihólfin hafa alltaf verið rekin með tapi og ekki er hægt að treysta á að þeim verði haldið gangandi mikið lengur. Notendur þurfa því að vera viðbúnir því að tæma frystihólfin, komi til bilunar. - - - Rangárþing ytra hlýtur gull- með heimilisfang á Hellu. Á sama svæði er Þjótandi að koma fyrir olíu- tönkum í jörð og byggja púða undir nýja bensínstöð Orkunnar. Þar verð- ur einnig rafhleðslustöð og sjálfvirk þvottastöð. - - - Kaldbakur er sauðfjárrækt- unarbú ársins 2021 í Rangár- vallasýslu. Í upphafi mánaðarins var mikil stemning á Hellu þegar Dagur sauð- kindarinnar var haldinn hátíðlegur í Rangárhöllinni. Mikill drifkraftur er í sauðfjárrækt í Rangárvallasýslu og mikill metingur á meðal bænda um það hver ræktar besta féð. Það var múgur og margmenni í Rangárhöll- inni að skoða fallegt sauðfé úr Rangárvallasýslu, auk þess sem keppt var í nokkrum flokkum. M.a. var ræktunarbú ársins verðlaunað en það er búið á Kaldbak á Rangár- völlum hjá þeim Sigríði Heiðmunds- dóttur og Viðari Steinarssyni. Þess má geta að þau hlutu landgræðslu- verðlaunin fyrr í sumar. - - - Nýtt hesthúsahverfi er farið að byggjast upp á Hellu. Það liggur austan við Rangárhöllina og eru nokkuð margar lóðir tilbúnar þar. Áður var komið eitt hesthús og a.m.k. þrjú önnur eru nú í byggingu. Nokkrum fjölda lóða hefur verið út- hlutað. - - - Hótel Rangá er besta hótelið á Íslandi að mati lesenda bandaríska ferðatímaritsins Travel Leisure, Blue Lagoon Retreat er í öðru sæti en Fosshótel við Jökulsárlón er í því þriðja. Travel Leisure er eitt virtasta ferðatímarit heims og er með yfir 9,2 milljónir lesenda í hverjum mánuði. Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Gaddstaðaflatir Aðstöðuhús fyrir starfsemi verktakafyrirtækisins Þjótanda rýkur upp þessa dagana. Húsið er um 1.800 fermetrar að flatarmáli. Þjótandi rýkur upp á Gaddstaðaflötum Eigandi hússins er Íþaka fast- eignafélag, en Eykt byggir húsið. FSRE undirritaði samning um leigu á húsinu öllu fyrir stofnan- irnar tvær í júní 2021. Hann var til 30 ára með framlengingarákvæði. Byggingin er alls um 11.705 fer- metrar. Skatturinn mun hafa yfir í 9.705 fermetrum að ráða, en Fjár- sýslan 2.000 fermetrum. Jarðhæð byggingarinnar verður helguð móttökurými og sameig- inlegu mötuneyti stofnananna þriggja auk þess sem þar er 70 manna ráðstefnusalur, ætlaður notendum byggingarinnar. Á 2. hæð verður aðstaða Fjársýslunnar og á öðrum hæðum mun Skatt- urinn (áður embætti ríkisskatt- stjóra og tollstjóra) og skattrann- sóknarstjóri hafa sínar höfuð- Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Verulega er farið að styttast í af- hendingu skrifstofubyggingarinnar í Katrínartúni 6 við Höfðatorg. Þar verða Skatturinn og Fjársýsla rík- isins til húsa næstu áratugina hið minnsta. Í tilkynningu á heimasíðu Framkvæmdasýslunnar-ríkiskaupa (FSRE) er byggingin kölluð Hús íslenskra ríkisfjármála. Uppsteypu hússins lauk fyrr á þessu ári og nú er unnið að raf- lögnum, tæknikerfum og uppsetn- ingu léttra veggja á hæðunum níu sem húsið telur, að því er fram kemur á heimasíðu FSRE. Húsið verður tilbúið til notkunar fljótlega á nýju ári. Undir húsinu er tveggja hæða bílakjallari. stöðvar. Starfsmenn Skattsins eru u.þ.b. 480 á 16 starfsstöðvum víðs vegar um landið, langflestir í Reykjavík. Höfuðstöðvar Skattsins hafa um árabil verið að Laugavegi 166. Starfsmenn Fjársýslu ríkisins eru tæplega 90 talsins. Starfsemi Fjár- sýslunnar er nú á fjórum hæðum í Vegmúla 3. „Leiga á nýju húsnæði fyrir Skattinn og Fjársýslu ríkisins hef- ur í för með sér aukið hagræði og minni áhættu fyrir ríkissjóð. Með flutningunum verður unnt að reka starfsemina í um þriðjungi minna húsnæði en nú er, og tækifæri skapast til að selja óhagkvæmt húsnæði á dýru markaðssvæði,“ segir m.a. á heimasíðu fjármála- ráðuneytisins. Hús íslenskra ríkisfjármála tekið í notkun á nýju ári Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Katrínartún Nýja húsið (t.v.) er alls um 11.705 fermetrar á níu hæðum. Eftir er að koma fyrir klæðningu utanhúss.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.