Morgunblaðið - 29.10.2022, Side 25

Morgunblaðið - 29.10.2022, Side 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! BMW X5 45E M SPORT Nýskráður 01/2021, ekinn 21 þ.km, bensín/rafmagn (plug in hibryd með 87km drægni), sjálfskiptur (8 gíra). Hlaðinn búnaði og alveg eins og nýr! 20“ aukafelgur og dekk. Raðnúmer 252335 0 Þessir síungu strákar eru klárir í að selja bílinn þinn Eigum laus sölustæði fyrir bílinn þinn! Hlökkum til! Indriði Jónsson og Árni Sveinsson M.BENZ EQA 250 POWER Nýskráður 03/2022, ekinn 3 þ.km,100% rafmagn (429 km drægni), sjálfskiptur. AMG line innan og utan, 19“ AMG álfelgur. Einstakur litur! Raðnúmer 255128 0 AUDI E-TRON 50 SPORTBACK S-LINE Nýskráður 12/2021, ekinn 16 þ.km, 100 % rafmagn, sjálfskiptur. 21“ felgur, S-line innan og utan. Stórglæsilegur bíll! Raðnúmer 255127 Ó frávíkjanleg regla sem varðar röðun taflmanna í Fischer-random, sem líka hefur fengið nafnið Chess 960 eða Chess 9LX, varðar stöðu kóngsins. Hann skal vera stað- settur milli hrókanna svo hróker- ing geti átt sér stað á „drottning- arvæng“ eða „kóngsvæng“ þ.e.a.s. svæðinu sem við skilgreinum út frá hefðbundnu upphafsstöðunni. Á tæknifundi fyrir heimsmeist- aramótið var lögð áhersla á að allar venjulegar skákreglur væru í gildi; vilji menn hrókera má kóngurinn t.d. ekki fara yfir valdaðan reit og það má heldur ekki hrókera úr skák. Nú skyldi maður halda að heimsmeistari í greininni væri með þetta á hreinu. En þá gerðist ein- kennilegt atvik: HM í Fischer-random 2022: Nepomniachtchi – So Þessi staða kom upp eftir 18. leik Nepo, Da2-a8+. Riddari Rúss- ans hafði ógnað drottningu So sem vék henni frá c8 til e6, en ekki til c6 sem var betra. En hann taldi sig geta svarað drottningarskákinni með því að hrókera. Það myndi þá gerast þannig að kóngurinn stykki yfir hrókinn og beint í skjólið á g8. Nepo benti mótherja sínum á að slíkt samræmdist ekki reglunum. Nú var kallaður til dómari sem úr- skurðaði þegar í stað að „hróker- ing“ væri ólöglegur leikur og svart- ur gat því aðeins borið fyrir skákina sem þýddi liðstap og von- lausa stöðu. So gafst upp en áskildi sér rétt til að áfrýja dómnum til æðra dómstigs. En hann tók samt úrskurðinum með brosi á vör. Miklir erfiðleikar strax í byrjun tafls Ég ræddi örlítið um þessa nýju keppnisgrein við Peter Heine Nielsen sem verið hefur aðstoð- armaður Magnúsar Carlsen til margra ára. Hann kvað skjólstæð- ing sinn hrifinn af þessu keppnis- formi en taldi að menn þyrftu miklu meiri tíma til að átta sig á stöðunum en þær 25 mínútur + 5 mínútur og 5 sekúndna viðbót eft- ir 30 leiki sem eru tímamörkin á mótinu. Sumar byrjunarstöður eru afar krefjandi og furðu algengt að menn séu komnir með óteflandi tafl eða tapað eftir 5-10 leiki! Úsbekinn Abdusattorov tefldi á 1. borði fyrir lið Úsbekistans sem vann til gullverðlauna á síðasta ól- ympíumóti. Það er ekki ólíklegt að þessi ungi piltur eigi eftir að ná langt en hann var nú samt með tapað tafl í tveimur skáka sinna gegn Hjörvari Steini sl. fimmtu- dag. Lítum á fyrri skákina: HM í – Fischer-random 2022: Hjörvar – Abdusattorov Í þessari skák var hvítur kom- inn með unnið tafl eftir 10 leiki! Ekkert lagaðist staðan í næstu leikjum en það er athyglisvert hvernig „vélarnar“ meta þessa stöðu. Hjörvar lék 13. Rc5 og hélt vinningssstöðu en „Stockfish“ hrópaði á 13. Re4! sem „vél“ greinarhöfundar telur lakari leik. Þá getur svartur ekki leikið 13. … axb3 því að svarta staðan er alveg vonlaus eftir 14. Rxf6 ásamt 15. dxe5 og peðaflaumur hvíts gerir út um taflið. Framhaldið varð 13. … Bxc5 14. dxc5 Hxd5 15. Re4 Dg7 og nú vildi Hjörvar koma kónginum í skjól og hrókeraði langt, 16. O-O-O. Slíkan leik má kalla vanviðbrögð og þau voru stærstu mistök Hjörvars í þessari skák. Svartur lék 16. … Hxd1+ 17. Hxd1 O-O-O! og staðan er í jafnvægi. Eftir 16. b4! eða fyrst 16. Bf2 og síðan b2-b4 er svarta staðan strategískt töpuð því allir menn svarts eru bundnir í báða skó. Hrókeringar – löglegar eða ólöglegar – voru því miklir örlaga- valdar sl. fimmtudag! Það má ekki hrókera úr skák Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Hákon Pálsson. Fyrsti leikurinn Guðni Ágústsson hefur taflið fyrir Wesley So á fimmtudaginn. Sigurjón Árni Ólafsson fæddist 29. október 1884 á Hvallátrum, vestustu byggð á landinu, rétt við Látrabjarg. Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson, f. 1853, d. 1947, síðar bóndi í Króki á Rauðasandi, og Guðbjörg Árnadóttir, f. 1858, d. 1892, húsmóðir. Sigurjón lauk stýrimanna- prófi 1906 og var háseti og stýrimaður í siglingum og á fiskveiðum 1900-1917 og skip- stjóri 1918-1919. Hann var af- greiðslumaður Alþýðublaðsins í Reykjavík 1919-1927, fá- tækrafulltrúi 1922-1927 og af- greiðslumaður og verkstjóri hjá Skipaútgerð ríkisins 1930- 1942. Hann var formaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur 1920-1951 og alþingismaður fyrir Alþýðuflokkinn 1928-31, 1934-42 og 1946-48. Hann var einnig forseti ASÍ 1940-42, átti sæti í félagsdómi 1938-1944 og í sjó- og verzlunardómi Reykjavíkur frá 1930 til ævi- loka, var yfirskoðunarmaður ríkisreikninganna 1938-1943 og frá 1947 til dauðadags, og sat í Landsbankanefnd 1936- 1953. Eiginkona Sigurjóns var Guðlaug Gísladóttir, f. 1892, d. 1951, húsmóðir. Þau eignuðust tólf börn. Sigurjón lést 15.4. 1954. Merkir Íslendingar Sigurjón A. Ólafsson Unglingadeildin Trölli á Sauðárkróki var stofnuð árið 1992 og hefur því verið starf- rækt í þrjátíu ár. Á þeim tíma hafa hundruð unglinga tekið þátt í starfi deild- arinnar; fengið þjálfun í fyrstu hjálp, leitar- tækni og samvinnu, eflst í félagslegum þroska, öðlast þekkingu á ábyrgari ferða- og útivistarhegðun og svo mætti lengi telja. Ungling- arnir öðlast heilmikla þekkingu sem skilar sér út í samfélagið. Þekkingu sem aldrei verður tekin af þeim og mun ávallt nýtast þeim á einhvern hátt í lífinu. Að hafa rúllað hundruðum ung- linga í gegnum unglingastarfið þýðir líka að tugir félaga í björgunar- sveitum hafa sinnt starfinu; gefið af sínum tíma til þess að efla ung- lingana, til þess að efla björgunar- sveitarstarfið til framtíðar og leggja til samfélagsins. Sá tími er ómetan- legur og sér í lagi vegna þess að allir stunda þeir einnig æfingar, fjárafl- anir og útköll með sveitinni. Þegar rýnt er í þann hóp sem er á útkallslista í dag má ljóst vera að stærstur hluti þeirra sem þar eru hóf störf sín í unglingadeildinni Trölla. Mikilvægi unglingadeildar er því mikið og eru félagar fullkomlega meðvitaðir um það. Í dag eru fimm félagar Skagfirðingasveitar sem hafa skipað teymi sem heldur utan um starfið hjá unglingadeildinni. Þar að auki koma aðrir félagar inn og að- stoða á æfingum og öðrum við- burðum. Unglingadeildin æfir einu sinni í viku, mætir á tvo stærri viðburði á vegum félagsins ár hvert; miðnæt- urmót í Vatnaskógi og Landsmót unglingadeilda, auk annarra smærri við- burða. Starfið telur fleiri hundruð klukku- stunda á ári hverju. Þar að auki fá þeir félagar unglingadeildarinnar sem eru komnir á fram- haldsskólaaldur að mæta á æfingar hjá eldri deildinni. Þar tengjast ungir og aldn- ir; þeir ungu fá aukna ábyrgðartilfinningu og erfiðari æfingar og þeir eldri fá tækifæri til að miðla sinni þekkingu, allir eflast. En hver ætli sé mikilvægasti þátt- ur unglingastarfsins? Að mínu mati er það sú þekking sem við skilum til samfélagsins og tilfinning unglings- ins varðandi það að tilheyra ein- hverjum. Í björgunarsveit eru allir velkomn- ir og styrkleikar hvers og eins njóta sín í mismunandi verkefnum. Það eina sem einstaklingur þarf til að til- heyra björgunarsveit er félagslegur þroski til að tilheyra hópi, virða aðra og geta unnið með öðrum og það æf- um við í unglingadeildinni. Við stöndum í þakkarskuld við þá sem starfa með unga fólkinu okkar og leggja tíma sinn að veði – ungling- arnir eru framtíðin. Hafdís Einarsdóttir »Unglingadeildin Trölli hefur starfað í 30 ár. Fjallað er um mikilvægi unglinga- starfsins og framlag björgunarsveitarfólks til þess. Hafdís Einarsdóttir Höfundur er formaður björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar. hafdiseinarsdottir@hotmail.com Unglingadeildin Trölli ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.