Morgunblaðið - 29.10.2022, Page 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022
✝
Árni Gunn-
arson frá
Reykjum á Reykja-
strönd fæddist í
Reykjavík 9. sept-
ember 1936. Hann
lést á Landspítalan-
um 11. október
2022.
Foreldrar Árna
voru Gunnar Guð-
mundsson, rafiðn-
fræðingur, f. 27.6.
1898, d. 30.7. 1976, og Ingibjörg
Guðrún Árnadóttir frá Stóra-
Hrauni, húsmóðir, f. 20.7. 1908,
d. 19.2. 1999. Bróðir Árna sam-
mæðra var Gísli Geir Hafliðason
rafvirkjameistari, f. 27.9. 1931,
d. 26.5. 2012, maki Ólöf Jóns-
dóttir, f. 24.12. 1931, d. 19.4.
2016. Bróðir Árna samfeðra var
Helgi Guðmundur Gunnarsson,
f. 2.12. 1921, d. 28.2. 2011, maki
Guðríður Guðjónsdóttir, f. 7.10.
1931, d. 20.9. 2002.
Árni kvæntist Elísabetu Beck,
f. 9.3. 1941, þann 17.6. 1960. For-
eldrar Elísabetar voru Svafar
Steindórsson, skipstjóri, og El-
ísabet Beck, saumakona og hús-
móðir.
Árni átti eina dóttur fyrir með
Marsibil Agnarsdóttur, Helgu
Sigríði, f. 26.9. 1956. Börn henn-
ar og Jóns Pálma Gíslasonar eru:
Jóhannes Gísli (látinn), eignaðist
þrjú börn með Helgu Jónsdóttur.
Sveinbjörg Sigrún, Eva Hrönn,
sambýlismaður hennar er Ársæll
Örn Heiðberg og eiga þau tvö
börn. Marsibil Sara, maki henn-
ar er Jens Kristinn Elíasson og
eiga þau tvö börn. Eiginmaður
Helgu Sigríðar er Þórður Grétar
Gauti Hauksson, f. 17.6. 1972, og
á hann dæturnar Ólöfu Sunnu,
Filippíu Svövu og Jóhönnu Lilju.
Jón Gauti, f. 29.5. 1973.
Árni ólst upp á Reykjum á
Reykjaströnd. 17 ára gamall út-
skrifaðist hann sem búfræðingur
frá Bændaskólanum á Hólum og
stundaði hefðbundna búfjárrækt
á Reykjum auk árstíðabundinnar
sigmennsku, eggjatöku og fleka-
veiða í og við Drangey. Meðfram
því kenndi hann um skeið börn-
um í Skarðshreppi. Haustið 1967
flutti Árni ásamt fjölskyldu sinni
inn á Sauðárkrók eftir að íbúðar-
húsið að Reykjum brann. Þar
stundaði hann ýmis störf til sjós
og lands. Hann rak um tíma
skreiðarverkun og saltfiskverk-
un á Sauðárkróki og í Hafn-
arfirði. Hann sótti sér réttindi
sem ferskfisksmatsmaður og síð-
ar saltfisksmatsmaður og starf-
aði við það víða um land um all-
langt skeið. Árni var mikill
félagsmaður og var m.a. aðal-
hvatamaður að stofnun Ung-
mennafélagsins Grettis í Skarðs-
hreppi og fyrsti formaður þess.
Hann kom einnig að stofnun
tveggja karlakóra á Sauðárkróki
og söng í kórum fram á efri ár.
Árni var mikill hestamaður og
áhugamaður um hrossarækt og
náði þar eftirtektarverðum ár-
angri á landsvísu. Seinustu árum
ævinnar eyddi Árni að mestu við
skriftir, meðal annars fyrir
Sögufélag Skagfirðinga, Eiðfaxa
o.fl. Einnig liggja eftir hann tvær
ævisögur. Árni var einn af stofn-
félögum Strandveiðifélags Ís-
lands en hann var mikill bar-
áttumaður fyrir breyttu fisk-
veiðistjórnunarkerfi og eflingu
strandveiða við Ísland.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Andrésson.
Börn Árna og El-
ísabetar eru: Gunn-
ar Ingi, f. 21.11.
1960. Dóttir hans
og Ingu Láru Sigur-
jónsdóttur, f. 21.2.
1968, er Tara
Björk, maki Sigurð-
ur Smári Fossdal og
eiga þau tvö börn.
Börn Ingu Láru og
stjúpbörn Gunnars
eru Karen Ösp, maki Ragnar
Heiðar Ragnarsson, og á hún
einn son, Daniel Þór og Patrick
Örn, maki Sólveig Heiða Foss og
eiga þau einn son. Steindór, f.
20.12. 1961, maki Jóna Björk
Sigurðardóttir, f. 27.6. 1963, og
eiga þau einn son, Árna Ragnar.
Sambýliskona hans er Dagbjört
Vestmann og eiga þau einn son.
Pála María, f. 25.7. 1964, maki
Kristján Theodórsson, f. 19.8.
1963. Sonur Pálu og Jóhanns
Freys Aðalsteinssonar er Orri
Freyr. Börn Kristjáns og Pálu
eru Bríet Ósk og Theódór. Sam-
býliskona Theódórs er Sian
Bliss. Gyða, f. 15.10. 1966, börn
hennar og Tómasar Hallgríms-
sonar, f. 1.10. 1963, eru Valgeir,
sambýliskona Íris Hrefna Haf-
steinsdóttir. Styrmir, sambýlis-
kona Ásdís Stella Löve. Styrmir
á eina dóttur með Guðrúnu Sif
Gunnarsdóttur. Vala, f. 19.4.
1969. Börn hennar og Þorbergs
Auðuns Viðarssonar eru Óttar
Ingi, sambýliskona Eva Þor-
steinsdóttir og eiga þau tvær
dætur. Elísabet Huld, sambýlis-
maður Pétur Örn Jónsson. Sam-
býlismaður Völu er Sigurður
Elsku pabbi. Nú þegar þú ert
skyndilega ekki lengur við borð-
ið í Stórholtinu er orðið tómlegt
hjá mömmu og kisunni Monsu.
Síðastliðið ár reiddi maðurinn
með ljáinn oft hátt til höggs en
þú sást jafnan við honum, líkt og
Sæmundur sá við Kölska forð-
um. Þú valdir þinn tíma og lagðir
í þína hinstu ferð þegar þú sjálf-
ur varst tilbúinn. Þetta varst
bara þú. Hvatvís og þrjóskur
gáfumaður sem fórst þínar eigin
leiðir og gast rökrætt flesta í
þrot allt fram í andlátið.
Það er ekkert einfalt að setj-
ast niður og ætla að minnast þín
í fáum orðum. Mér líður líka svo-
lítið eins og séra Hjálmar komst
að orði um ykkar hittinga; „Nú
þarf ég að vanda mál mitt.“ Þú
varst engum líkur og fórst þínar
eigin leiðir að þínum markmið-
um. Ég minnist þess þegar þú
færðir mér fyrstu bókina sem
tækifærisgjöf eftir að ég hafði
náð þeim áfanga að teljast flug-
læs. Bókin var myndskreytt saga
um Robinson Crusoe. Svolítið
þung lesning við hlið Enid Bly-
ton-bókanna sem voru í uppá-
haldi. Ég stautaði mig þó í gegn-
um hana einhverjum sinnum og
ræddum við hana okkar á milli
öðru hverju. Seinna færðirðu
mér Sjómannslíf eftir Rudyard
Kipling. Þú hafðir þá verið á ver-
tíðum hér og þar og taldi ég að
bókin ætti að fræða mig um sjó-
mennsku og vertíðalíf, sem var
þó ekki raunin. Bókin sú var ekki
síðri áskorun í lestri þar sem ég
beið eftir næstu bók um Frank
og Jóa. Síðan þegar ég var 16
ára og lá á spítalanum eftir botn-
langaaðgerð færðirðu mér bæk-
ur af bókasafninu og þeirra á
meðal var bókin Sjóari á hest-
baki, ævisaga Jacks London. Ég
hélt þú hefðir skilið hana eftir
fyrir slysni þar sem ævisögur, í
mínum huga, voru dægradvöl
fyrir afa og ömmur en ekki boð-
leg lesning fyrir ungmenni. Ég
hóf þó lesturinn en gat svo ekki
hætt. Þegar spítalavistinni lauk,
skilaði ég bókinni á safnið og fór
og keypti mitt eigið eintak sem
ég gluggaði í öðru hverju í mörg
ár á eftir. Ástæðan var líkindin
sem mér fannst oft með harð-
neskjulegu lífshlaupi ykkar J.L.
Auk þess fannst mér þú alltaf
vera úti á sjó eða í einhverju
hestastússi. Það andaði stundum
köldu í okkar samskiptum fram-
an af, meðan gelgjan var brött,
en þarna laumaðirðu uppeldinu
aftan að mér í gegnum bók-
menntir genginna meistara og
sagðir mér þína sögu af mann-
raunum og hetjudáðum. Af harð-
neskjulegu lífi í óvæginni nátt-
úru og átökum við innri djöfla í
gegnum aðrar sögupersónur.
Sögur um karlmennsku, mann-
dóm og þor þar sem uppgjöf var
aldrei valkostur. Þannig tókstu á
þig mynd Crusoes í huga ung-
lingsins. Þú varst Manuel hans
Kiplings og þú varst Jack Lond-
on. Það er sú mynd sem ég dró
upp af þér á þessum árum og
hefur fylgt mér síðan. Þannig
varst þú, elsku pabbi. Þrátt fyrir
að hafa vindinn í fangið lengi
framan af þá var uppgjöf aldrei
inni í myndinni og þú stóðst
keikur, sama hve baráttan var
hörð. Hvort sem skilaboðin voru
meðvitað uppeldi eða einföld
væntumþykja þá hafa þau fylgt
mér og verið mitt akkeri og minn
styrkur. Takk fyrir allt og allt.
Góða ferð.
Gunnar Ingi.
Það voru sorgartíðindi að
heyra að fyrrverandi tengdafaðir
minn, Árni Gunnarsson, væri lát-
inn. Ég kynntist Árna fyrir hart-
nær 37 árum þegar ég kom fyrst
á heimili hans á Víðigrund á
Sauðárkróki sem verðandi
tengdasonur. Mér er það afar
minnisstætt hversu vel mér var
tekið og hvað í raun það var
framandi fyrir borgarpiltinn að
koma inn á heimili í hjarta lands-
byggðarinnar á Sauðárkróki.
Þar var greinilega annar taktur í
heimilishaldinu en ég hafði van-
ist á mínu heimili, heimilisfólkið
kom saman í hádegismat alla
daga og lét amstur dagsins ekki
trufla nærandi samveru.
Ferðirnar á Krókinn urðu fjöl-
margar öll árin þar á eftir og það
var auðvelt að kunna að meta
gestrisnina og væntumþykjuna
sem ávallt mætti manni. Árni og
Elísabet kunnu svo sannarlega
að taka á móti gestum og það var
oft þröng á þingi. Oftar en ekki
gistum við fjölskyldan hjá Ingi-
björgu Árnadóttur í Borgarey,
ömmu Imbu, móður Árna, í
heimsóknum okkar þangað. Þar
draup smjör af hverju strái í
bókstaflegri merkingu og alltaf
matur á borðum. Ógleymanlegur
tími.
Árni var hreykinn af uppruna
sínum og flestir sem tengdust
Skagafirði með einhverjum hætti
vissu deili á Árna á Reykjum,
eins og hann var gjarnan kall-
aður. Hann var félagslyndur og
hafði gaman af mönnum og mál-
efnum. Hann var góður penni og
skrifaði m.a. tvær bækur,
„Glymja járn við jörðu“, sem var
ævisaga hins landsþekkta hesta-
manns Sveins Guðmundssonar á
Sauðárkróki, og „Háspenna lífs-
hætta“, æviminningar Sigurfinns
Jónssonar skotveiðimanns á
Sauðárkróki. Auk annarra rit-
starfa var Árni iðinn við skriftir í
Skagfirskar æviskrár. Hann var
söngmaður góður, hagyrtur með
eindæmum og vel lesinn. Hann
var góður sagnamaður og hafði
einstaka kímnigáfu sem litaði
sögur hans oft á tíðum. Árni var
alla tíð mikill áhugamaður um
hesta og sótti hestamannamót
um land allt, þar sem hann sinnti
dómarastörfum og gleðimennsku
ýmiss konar. Fyrr á árum átti
hann sjálfur glæsilega gæðinga
en í seinni tíð lét hann sér nægja
hafa þá sem áhugamál. Hann
ólst upp við mikinn söng og tón-
list á æskuheimili sínu. Sjálfur
var hann söngmaður góður og
söng í allmörgum kórum um æv-
ina.
Árni starfaði lengst af sem
fiskmatsmaður á Sauðárkróki,
en var allt í senn bóndi, hesta-
maður og rithöfundur í huga
þeirra sem hann þekktu. Árni
bjó í Reykjavík undanfarna tvo
áratugi, en æskustöðvar hans í
Skagafirði voru honum alltaf
hugleiknar og umfram allt annað
var hann Skagfirðingur.
Árni var vinmargur enda bæði
skemmtilegur og gamansamur.
Hann var hændur að börnum
sínum og gladdist alltaf þegar
barnabörnin og fjölskyldan kom
í heimsókn.
Það verður mikill söknuður að
Árna og með honum er farinn
mikill sómamaður. Um leið og ég
þakka honum samfylgdina sendi
ég Betu, Gyðu minni, fjölskyldu
hans og vinum innilegar samúð-
arkveðjur.
Tómas Hall-
grímsson.
Árni Gunnarsson
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd
þér. Hinn bágstaddi
felur þér málefni
sitt, þér sem hjálpar
munaðarlausum.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN ÓLAFSSON
Lágengi 12
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
fimmtudaginn 20. október.
Útför hans verður frá Selfosskirkju, mánudaginn 31. október
klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja Einstök börn.
www.einstokborn.is
Gunnþórunn Hallgrímsdóttir
Þóra Bjarney Jónsdóttir Elías Þór Baldursson
Anna Dóra Jónsdóttir Hilmar Þór Pálsson
Margrét Jónsdóttir
og fjölskyldur
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
bróður míns og mágs,
HELGA ÞORKELSSONAR
frá Laugarbrekku, Hellnum,
síðar Bogahlíð 9, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunar- og dvalarheimilisins
Brákarhlíðar í Borgarnesi og annarra sem veittu honum aðstoð
í veikindum hans.
Reynir Bragason Jónasína Oddsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞÓR ÞORBERGSSON
búfræðikandídat,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 3. nóvember klukkan 13.
Arnfríður Margrét Hallvarðsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
INGIBJÖRG AUÐUR INGVADÓTTIR,
Álakvísl 106, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
miðvikudaginn 12. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Dagrún Dagbjartsdóttir Halldór Jónsson
Viktoría Dagbjartsdóttir Júlíus Þór Júlíusson
Inga Hanna Dagbjartsdóttir Jónas Jón Hallsson
Þóra Jóna Dagbjartsdóttir Hlynur Hjörleifsson
Dagbjartur V. Dagbjartsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
MAGNÚS KR. GUÐMUNDSSON,
Þórshamri, Tálknafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða,
Patreksfirði, þriðjudaginn 26. október.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum ykkur öllum innilega, sem hjálpuðu
okkur að kveðja og minnast sonar okkar,
SVEINS INGA GARÐARSSONAR,
Osló.
Kærar þakkir fyrir allar samúðarkveðjurnar
og stuðninginn.
Dagný Ellingsen Garðar Sigurgeirsson
Benedikt Garðarsson
Amma okkar, tengdamóðir og langamma,
ÁSTA MAGNÚSDÓTTIR,
áður til heimilis á Sléttuvegi 15,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli, sunnu-
daginn 23. október.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 7. nóvember
klukkan 13.
Ásta Ottey Bolladóttir
Magnús Bollason
Bolli Magnússon
og barnabarnabörn