Morgunblaðið - 29.10.2022, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022
Það er komið
haust með öllum
sínum fallegu lit-
brigðum náttúr-
unnar.
Við í Úthlíðinni viljum minn-
ast fallegrar manneskju sem
fallin er nú allt of fljótt frá.
Fjölskyldan mín fékk að
verða samferða þeim sómahjón-
um, Kaju og Kjartani, og
krökkunum þeirra á uppvaxt-
arárum krakkanna okkar sam-
an í Úthlíð 12. Það var mikil
gæfa að kynnast þeirri fjöl-
skyldu á neðri hæðinni í húsinu
okkar frá 1997, en þá fluttu þau
inn.
Kaja og Kjartan urðu okkar
bestu nágrannar og góðir vinir
á þessum skemmtilegu og gef-
Karitas H.
Gunnarsdóttir
✝
Karitas H.
Gunnarsdóttir
fæddist 27. júní
1960. Hún lést 16.
október 2022.
Útför Karitasar
fór fram 25. októ-
ber 2022.
andi árum í lífi
okkar allra, í okkar
kæra hverfi Hlíð-
unum.
Krakkarnir voru
í sama árgangi í
Háteigsskóla. Oft
var mikið fjör og
skemmtun á milli
hæða og í stiga-
ganginum sjálfum
eftir skólatímann,
en við áttum hann
sameiginlegan. Gaukur átti
marga góða bekkjarfélaga sem
oft komu heim eftir skóla og
mikið líf og fjör var í æskunni í
þeim stigagangi! Yndislegir
krakkar og vináttan mikil milli
þeirra. Þau voru öll í einstak-
lega góðum árgangi saman.
Kaja var yndisleg manneskja
með stórt hjarta, mikla mann-
kosti, sýndi nærveru og um-
hyggju þegar á þurfti að halda
sem allir tóku eftir sem kynnt-
ust henni. Alltaf sýndi hún
krökkunum mínum, Kristínu og
Stefáni Ara, mikinn áhuga og
vildi ávallt fylgjast með unga
fólkinu sem nú var orðið full-
orðið og flutt að heiman. Hafði
áhuga á öllu mannlífi kringum
sig og gaf frá sér mikla hlýju og
sýndi umhverfi sínu áhuga.
Betri nágranna var ekki hægt
að hugsa sér en þau sómahjón.
Heimili þeirra var alltaf opið
og allir velkomnir hvenær sem
var. Við minnumst örugglega
öll árlegrar og glæsilegrar
skötuveislu á Þorlák á heimili
þeirra. Þá buðu þau nágrönn-
um, fjölskyldu sinni og vinum
til glæsilegrar veislu ár hvert.
Stundum komu um og yfir 100
manns allan daginn á opið hús,
kræsingar og skötulyktin frá
eldhúsinu um og yfir allt! Sýnir
það einstaklega mikla gestrisni
og hve vinamörg þau voru sam-
an. Alltaf voru krakkarnir okk-
ar heldur ekki langt undan í
þeirri veislu.
Við sendum nú Kjartani,
Gauki og Guðmari og fjölskyld-
um þeirra allra okkar dýpstu
samúðarkveðjur við fráfall Kaju
okkar. Finnum styrkinn í lif-
andi minningum um hana og
megi hún nú hvíla í friði í fal-
legu haustlitum náttúrunnar.
Ragna, Stefán Ari
og Kristín.
Mér er ljúft að minnast Kar-
itasar Gunnarsdóttur við ótíma-
bært fráfall hennar eftir
skammvinn en erfið veikindi.
Minningarnar ber allar að sama
brunni. Þær eru minningar um
glaðværð, hugulsemi og heilindi
sem einkenndu Karitas í leik og
starfi. Frískleiki hennar hreif
fólk með sér og gaman var að
eiga við hana samtöl um lífið og
tilveruna.
Að sama skapi var Karitas
samviskusöm í störfum sínum.
Hún hafði mikinn metnað fyrir
framgangi menningarmála sem
hún sinnti af alúð. Í mennta-
málaráðuneytinu áttum við
Karitas gott samstarf frá því að
hún hóf störf árið 1995 þar til
ég hvarf til annarra starfa
skömmu eftir síðustu aldamót.
Við starfslok í febrúar sl.
hugðist Karitas njóta samvista
sinna nánustu og hugsaði sér að
sinna ýmsu sem ekki hafði gef-
ist tóm til. Það er sárt að henni
auðnaðist ekki lengri tími.
Á sorgarstundu er það hugg-
un að Karitas átti góðu gengi að
fagna í lífinu og sjálf var hún
gleðigjafi fjölskyldu sinnar og
vina.
Við missi Karitasar votta ég
Kjartani, eiginmanni hennar, og
allri fjölskyldunni innilega sam-
úð.
Guðríður Sigurðardóttir.
✝
Ásdís Sím-
onardóttir
fæddist í Hafnar-
firði 28. mars
1944. Hún lést á
líknardeild Landa-
kots 11. október
2022.
Foreldrar henn-
ar voru Símon
Nikulásson, f.
1898, d. 1960, og
Sigurlaug Sigurð-
ardóttir, f. 1914, d. 2000.
Bróðir Ásdísar var Jónas Sím-
onarson, f. 1935, d. 2015. Eft-
irlifandi eiginmaður Ásdísar
er Bjarni Garðarsson, f. 1943.
Börn þeirra eru: 1) Hrefna,
Barnabarnabörn Ásdísar og
Bjarna eru fjögur; Ásdís Alba,
Hrafntinna Malín, Hrefna Lív
og Sylvía Mist.
Ásdís ólst upp í Hafnarfirði
og gekk þar í skóla en flutti
til Ísafjarðar árið 1962 til að
starfa á sjúkrahúsinu þar. Á
Ísafirði kynntist hún manni
sínum Bjarna og giftu þau sig
árið 1965. Ásdís var mikil
húsmóðir og naut þess að
sinna heimili og fjölskyldu. Þá
starfaði hún lengi í Nið-
ursuðuverksmiðjunni á Ísa-
firði.
Hún hafði ómælda ánægju
af handavinnu og prjónaði
mörg listaverkin í gegnum tíð-
ina. Árið 2000 fluttust þau
hjón í Arnarás 1 í Garðabæ.
Ásdís starfaði á Hótel Holti og
í Fjarðarkaupum þar sem hún
lauk starfsferli sínum.
Útför Ásdísar fór fram 20.
október 2022.
f. 30.10. 1964, d.
31.12. 2020. Eig-
inmaður Hrefnu
var Gunnar Helgi
Guðmundsson og
dætur þeirra eru
Ásdís og Katrín. 2)
Þröstur, f. 23.5.
1969. Sambýlis-
kona Þrastar er
Áslaug Þórðar-
dóttir og dætur
þeirra eru Hólm-
fríður og Margrét. 3) Sigur-
laug María, f. 28.9. 1974. Eig-
inmaður Sigurlaugar er
Halldór Eraclides og börn
þeirra eru Lovísa Ósk, Sophia
Kristín, Bjarni og Símon.
Elsku amma. Ég veit varla
hvar ég á að byrja. Þótt ég muni
lítið eftir búsetu ykkar á Ísafirði
þá man ég eftir öllum flugferðum
sem ég kom til ykkar í Hafnar-
fjörðinn og þaðan í Garðabæinn.
Öll sumrin sem þú komst vest-
ur til að vera með systkini mín.
Bakarísferðirnar og frönsku
vöfflurnar sem þér þótti svo góð-
ar.
Allar andvökunæturnar með
þér að horfa á sakamálaþætti
langt fram eftir nóttu og spjalla
um lífið og tilveruna.
En allra best eru síðustu ár. Þú
varðst mér svo ótrúlega náin og
þótt þú hafir alltaf verið mér kær
þá varðstu mitt leiðarljós. Þú
gekkst í gegnum erfiða kafla í líf-
inu með mér og varst alltaf til
staðar. Ég gat alltaf leitað til þín
og sagt þér allt. Þegar ég bjó fyrir
sunnan elskaði ég ekkert meir en
að kíkja til ykkar afa og sitja við
eldhúsborðið í marga tíma og
spjalla við þig. Reyna að svara
spurningunum þínum eftir bestu
getu þar sem þú vissir alltaf allt
betur en ég og ef ég sagðist ekki
vita kom glott á þig sem ég gleymi
aldrei eins og ég ætti að vita það.
Þú komst alltaf hreint fram við
mig og ég gerði það sama.
Allar kaffihúsaferðir og stað-
irnir sem við þræddum til að
smakka fisk á mismunandi veit-
ingastöðum þó að enginn hafi
toppað fiskinn þinn í raspi. Öll
símtölin okkar sem voru aldrei
styttri en klukkutími í senn. Þetta
er tími sem ég mun ætíð minnast
og geyma. Og munu börnin mín fá
að vita hversu ótrúlega sterk og
flott kona þú varst með sterkan
karakter.
Orð fá ekki lýst hvað ég er
þakklát fyrir að hafa átt þig að
sem ömmu.
Það verður skrítið að sjá þig
ekki lengur í glugganum vinka
bless þegar við keyrum úr heim-
keyrslunni þinni. Sama hvað var,
þá varstu alltaf þar þegar við fór-
um þótt ég trúi því að þú verðir
enn þar að vinka okkur og fylgjast
með okkur.
Lovísa Ósk E.
Halldórsdóttir.
Ásdís
Símonardóttir
Missir okkar er
sár, en menn eins
og Sæmundur
finnast ekki á
hverju strái. Við tvíburarnir
sögðum alltaf við mömmu að
hún fengi sko ekki að ná sér í
nýjan mann eftir að pabbi féll
frá nema hann væri eiginlega
alveg eins og hann. Svo kom
dagurinn sem hún sagðist vera
búin að eignast vin sem vildi fá
að hitta okkur. Við vorum ekk-
ert að fara að samþykkja það
og spurðum og spurðum, en
hann stóðst öll próf og hundur
í kaupbæti. Betri föðurímynd
✝
Sæmundur
Guðlaugur
Friðriksson fæddist
24. október 1949.
Hann lést 9. októ-
ber 2022. Útför
hans fór fram 24.
október 2022.
hefðum við ekki
getað eignast.
Einn með öllu eins
og ég hef oft sagt.
Sæmi var alltaf
sanngjarn. Hann
hlustaði ekki á
neitt bull og ef við
vorum ekki sam-
mála þá var hann
alltaf til í að rök-
ræða við okkur.
Oftast hafði hann
rétt fyrir sér. Í þau fáu skipti
sem maður gerði hann kjaft-
stopp varð maður voða rogginn
því það var ekki oft sem hann
Sæmundur Friðriksson varð
kjaftstopp. Hann hafði gaman
að því að espa mann upp í ein-
hvern fíflagang. Honum þótti
fátt eins skemmtilegt og að ná
að hrekkja mann eða bregða.
Eins þegar við vorum að velta
puttanum hans fyrir okkur sem
hann sprengdi af sér þegar
hann var átta ára. Við fengum
að pota í puttann og þá kom oft
úr honum „búmm“. Puttinn á
fleygiferð og hjartað í okkur í
keng. Alltaf féllum við fyrir
sama djókinu.
Svo voru misjöfn ráðin sem
hann notaði til að kenna okkur
að vakna á morgnana, en við
systur höfum ekki verið þær
fljótustu fram úr á morgnana.
Hann fékk Spauga með sér í
lið og lét hann bíta í sæng-
urnar og hlaupa með þær í
burtu. Þá var ekki hægt að
snúa sér á hina hliðina og
halda áfram að sofa því hund-
urinn var farinn upp stigann
með sængina og Sæmi uppi
hlæjandi.
Þegar kom að því að taka
bílpróf var Sæmi ekki nógu
sáttur með ökukennarann og
fannst við ekkert vera að læra
af viti. Hann ákvað því að
kenna okkur sjálfur að keyra
og hugsa um bíl. Þegar fáir
dagar voru í prófið valdi hann
ískalt haustkvöld til loka-
kennslu. Allt í einu heyrist:
„Beygðu hérna og stoppaðu
bílinn.“ Ég geri það og þá
heyrist: „Jæja, nú er sprungið
á bílnum, þú þarft að skipta
um dekk.“ Ég fer út og kem til
baka alveg með það á tæru að
hann hefði sko aldeilis rangt
fyrir sér. Fæ þá svarið: „Nei
það veit ég allt um, en þú átt
samt að ímynda þér það og
skipta um dekk því þú segist
kunna það og það vil ég sjá.“
Ég reyndi að mótmæla sökum
veðurs og svarið var: „Já það
getur sprungið í hvaða veðri
sem er.“ Í mígandi rigningu
skipti ég um á heilu dekki bara
til að sanna að ég kynni að
skipta um dekk. Svo sest ég
rennandi blaut inn í bíl, þá
heyrist: „Ég hélt nú að þú
myndir mótmæla aðeins meira
en fyrst þú varst svona til í
þetta þá bara fínt.“ Svo
skellihló hann alla leiðina heim.
Ég gæti skrifað heila bók
um minningar okkar um
Sæma. Hann var ótrúlega góð-
ur afi dætra okkar systra. Allt-
af til staðar og fyrstur ef eitt-
hvað var. Hvort sem var að
sækja á æfingar, skutla í skóla
eða græja og gera fyrir afa-
prinsessurnar hvað sem var.
Alltaf var hægt að leita til hans
og treysta a hann.
Elsku Sæmi okkar, þín verð-
ur sárt saknað og munum við
varðveita þig í hjarta okkar.
Góða ferð.
Ágústa Óskarsdóttir
og fjölskylda.
Sæmundur
Guðlaugur
Friðriksson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BYLGJA BJÖRK GUÐJÓNSDÓTTIR,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
mánudaginn 10. október.
Útförin fór fram í kyrrþey 28. október.
Þeir sem vilja minnast Bylgju geta lagt inn á styrktarreikning
Laufs, Félags flogaveikra, 0334-26-008237, kt. 610884-0679.
Árni Þór Steinarsson Þóra Kristín Þórhallsdóttir
Daníel Örn Steinarsson Ásdís Björk Jóhannsdóttir
Dóra Björk Steinarsdóttir Björn Ingi Björnsson
barnabörn og barnabarnabarn
Okkar ástkæra
KATRÍN GERÐUR JÚLÍUSDÓTTIR
lést á Spáni 9. september.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Birgir H. Pétursson
Sigrún Kristjana Gylfadóttir
Júlíus Gylfason
Katrín Katrínardóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR MÁS SIGURÐSSONAR.
Ragnhildur G. Karlsdóttir
Brynhildur Guðmundsdóttir Ivica Gregoric
Inga Hanna Guðmundsdóttir Þorvaldur Henningsson
Gunnlaug Guðmundsdóttir Michael Tran
Þórir, Bríet, Gabríela, Rebekka, Hrafnkell Ivan,
Eva og Katla
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SNORRI S. ÓLAFSSON VESTMANN
frá Vestmannaeyjum,
til heimilis á Ási, Hveragerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á
Selfossi miðvikudaginn 19. október.
Útförin verður gerð frá Akraneskirkju þriðjudaginn 1. nóvember
klukkan 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elínborg Einarsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
JÓHANNES V. ODDSSON
Hamraborg og Grenjum,
lést sunnudaginn 23. október.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 2. nóvember klukkan 13.
Hlekk á streymi má nálgst á mbl.is/andlat
Þóra A. Sigmundsdóttir
Ragnheiður Jóhannesdóttir Sigurjón Gunnlaugsson
Hrafnhildur Jóhannesdóttir Jógvan Hansen
Þóra María, Sindri, Jóhannes Ari og Ása María
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN JÓNASSON,
Akurhvarfi 12, Kópavogi,
varð bráðkvaddur í Orlando, Flórída,
laugardaginn 1. október.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 1. nóvember
klukkan 13.
Kristín Brynjólfsdóttir
Kristín H. Kristjánsdóttir Sigurður Gestsson
Bryndís Björk Kristjánsdóttir Júlíus Smári
Elmar Freyr Kristjánsson Karin Erna Elmarsdóttir
og afagullin tíu