Morgunblaðið - 29.10.2022, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 29.10.2022, Qupperneq 34
DÆGRADVÖL34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022 Guðjón Guðmundsson, fyrrverandi alþingismaður – 80 ára Aldrei leiðst í vinnunni G uðjón Guðmundsson fæddist á Akranesi 29. október 1942 og hefur búið þar alla ævi. Fjögurra ára gamall fékk hann mænuveiki og lamaðist á fótum. Þetta háði honum öll uppvaxtarárin, en ökklar voru festir þegar hann var uppkominn og breytti það miklu. „Hugurinn stefndi á sjóinn og á að verða skipstjóri eins og pabbi minn en fljótlega kom í ljós að fæturnir leyfðu það ekki. Mín sjómennska var því að skreppa á sjó á trillu sem við bræður áttum í áratugi.“ Árið 1962 réð Þorgeir Jósefsson hann á skrifstofu Þorgeirs og Ellerts hf. Starfaði hann þar í 29 ár, fyrst sem gjaldkeri en síðan skrifstofustjóri og staðgengill fram- kvæmdastjóra. „Þorgeir Jósefsson var einstakur maður, víðsýnt góðmenni sem ég lærði meira af en nokkrum öðrum. Hann hafði aldrei einkaskrifstofu en hafði aðsetur á minni skrifstofu milli þess sem hann fór um fyrirtækið og ræddi við starfsmenn. Það var oft gestkvæmt á skrifstofunni því Þorgeir hafði gaman af að spjalla við útgerðarmenn og skipverja á bátum sem komu til viðgerða.“ Guðjón starfaði hjá Þ&E þar til hann var kosinn á Alþingi árið 1991. Þar sat hann í 12 ár sem þingmaður Vesturlandskjördæmis og eftir kjör- dæmabreytinguna í 4 ár sem vara- þingmaður NV-kjördæmis og kom oft inn á þing á þeim tíma. Hann starfaði rúmt ár á Hagstofunni en var ráðinn framkvæmdastjóri hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða 2005 og lauk þar starfsferlin- um 2013. „Ég er svo heppinn að mér hefur aldrei leiðst í vinnunni. Þegar ég var hjá Þ&E hófst mikil uppbygging, keypt var skipalyfta, reist skipa- smíðastöð og þar voru byggð 20 stálskip; fiskibátar, togarar, sem- entsferja og bílaferja auk skemmti- snekkju úr áli. Starfsmönnum fjölgaði úr 50 í 130. Þ&E var mikil uppeldismiðstöð iðnaðarmanna. Þorgeir útskrifaði yfir 600 iðn- nema á ferli sínum sem trúlega er Íslandsmet. Starfið á Höfða var einnig mjög skemmtilegt. Þar voru 78 íbúar og um 80 starfsmenn, úrvalsfólk og starfsandi frábær. Ég hafði mikla ánægju af að spjalla við heimil- isfólkið sem hafði frá mörgu að segja. Á þessum árum réðumst við í miklar framkvæmdir við stækkun og endurbætur húsnæðisins, m.a. til að allir gætu búið í einbýli. Ég hef verið mjög félagslynd- ur síðan ég man eftir mér, var í Taflfélagi Akraness frá 10 ára aldri og tefldi mikið árum saman. Þaðan lá svo leiðin í bridge og stundaði ég keppnisbridge í aldarfjórðung. Spilafélagi minn í 20 ár var Ólafur Grétar Ólafsson, afbragðsfélagi og góður vinur minn. Ég varð að hætta þegar ég fór á þing, vinnutíminn þar fór ekki saman við bridgefundi á Akranesi.“ Guðjón hóf ungur að starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var formaður fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna á Akranesi árum saman, hefur setið í flokksráði Sjálfstæðis- flokksins frá 1984 og á sæti í stjórn sambands eldri sjálfstæðismanna. Hann var vara- og aðalfulltrúi í bæjarstjórn Akraness 1970-1990, forseti bæjarstjórnar 1984-1986, sat í bæjarráði 1984-1990, í stjórn Rafveitu Akraness 1970-1994, í raforkunefnd Vesturlands 1976- 1978, í Orkuráði 1991-2014, í stjórn RARIK 2003-2006, formaður stjórnar Vélbátaábyrgðafélags Akurnesinga, var í stjórn Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness, hraðfrystihússins Heimaskaga og útgerðarfélagsins Hafbjargar um árabil, í stjórn Sementsverksmiðju ríkisins í 10 ár, formaður stjórnar Skallagríms (útgerðar Akraborgar) í 3 ár og sat í stjórn Byggðastofnun- ar 1995-2009. Sat í Knattspyrnuráði Akraness í 11 ár, í stjórn Bridge- sambands Íslands í 2 ár, formaður Íþróttanefndar ríkisins í 8 ár, í stjórn Afreksmannasjóðs í 5 ár og stjórnum Taflfélags Akraness og Bridgefélags Akraness árum saman. Hann sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1991, 1994 og 2001. „Þau 12 ár sem ég sat á þingi var Sjálfstæðisflokkurinn í ríkisstjórn undir forystu þess öfluga leiðtoga, Davíðs Oddssonar. Þetta var mikill uppgangstími. Það var gott að vera þingmaður Vestlendinga. Þar kynntist ég fjölmörgu afbragðsfólki. Við Sturla Böðvarsson áttum þar farsælt samstarf í 3 kjörtímabil og fylgi Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu jókst verulega í öllum þessum þrennum kosningum ´91, ´95 og ´99. Ég var andvígur kjör- dæmabreytingunni og einn þriggja þingmanna sem greiddu atkvæði á móti henni. Ég tel að þessi breyting hafi verið mistök og kjördæmin séu orðin allt of stór og erfitt fyrir þingmenn að sinna þeim.“ Guðjón var 2. varaforseti Alþingis 1999-2003 og sat þá í forsætis- nefnd undir forystu Halldórs Blöndal. Á þingferlinum sat hann einnig í iðnaðarnefnd öll árin, félagsmálanefnd, efnahags- og viðskiptanefnd, landbúnaðarnefnd undir forystu Guðna Ágústsson- ar, en þeir eru systkinasynir, og í sérnefnd um stjórnarskrármál. Þá sat hann í 8 ár í Íslandsdeild ÖSE og var formaður 2000-2001. „Ég hef verið hamingjumaður í mínu lífi. Ég kvæntist seint en biðin borgaði sig því ég eignaðist einstak- lega vel gerða konu sem hefur stutt við bakið á mér í öllu sem ég hef fengist við og er minn besti vinur. Við eigum góð börn, tengdabörn og barnabörn og fjölskyldan er mjög samheldin. Einnig eigum við góða og trausta vini. Stundum kemur Stórfjölskyldan Guðjón og Guðný ásamt börnum, tengdabörnum og barna- börnum árið 2015. Á myndina vantar Ísak Kára sem fæddist 2017. Í forsetastól Alþingis Guðjón með góðum vinum, Guðmundi Hallvarðssyni og Halldóri Blöndal. Til hamingju með daginn Stjörnuspá Haraldur Þór Egilsson 50 ÁRA Haraldur Þór, safn- stjóri Minjasafnsins á Akureyri, er borinn og barnfæddur Reyk- víkingur sem ólst upp í Lang- holtshverfi og Hlíðunum. „Ég er ekki lengur viss hvort ég er meiri Akureyringur eða Reyk- víkingur.“ segir Haraldur. „Við hjónin fluttum frá Englandi til Akureyrar árið 2002 og ætluð- um að vera á Akureyri í eitt ár. Hér var bara svo gott að vera með stelpurnar og verkefnin skemmtileg.“ Haraldur hefur starfað á Minjasafninu á Akureyri í 19 ár, þar af sem safnstjóri Minjasafns- ins sl. 14 ár. Hann er menntaður sagnfræðingur og með framhaldspróf í ríkiserindrekstri. Aðspurður segir hann að þessi blanda nýtist vel í stjórnun safnsins, ekki síður en reynslan af því að kenna grunnskólabörnum. „Ég er forvitinn að eðlisfari og hef alltaf haft áhuga á fortíðinni.“ Þegar Haraldur er ekki með augun á fortíðinni nýtur hann þess að hlusta á tónlist og elda góðan mat. „Ég þarf að taka mig á í bakstrinum, því ég hef ekki sinnt honum eins og áður. Ég var svo heppinn að vera lyklabarn þegar skólarnir voru tvísetnir. Þá fékk maður að spreyta sig í eldhúsinu, ekki síst í bakstrinum.“ Það hefur alltaf verið mikil tónlist á heimilinu í gegnum báðar dæturnar og eiginkonuna. Sjálfur segist Haraldur vera atvinnuhlustandi og hafi mik- inn áhuga á hvers konar tónlist. „Ef ég er ekki að hlusta á tónlist er ég með bækur í eyrunum, oftast eitthvað tengt sagnfræði eða alþjóðastjórnmálum. Þannig verða brauðin og kökurnar yfirleitt betri.“ Með árunum hefur áhugi á ljóðlist farið vaxandi hjá Haraldi, sem er kannski óhjákvæmileg afleiðing þess að vera reglulega í Davíðshúsi, sem er eitt safnanna sem hann hefur umsjón með. FJÖLSKYLDA Eiginkona Haraldar Þórs er Sædís Gunnarsdóttir, f. 1973, minjavörður Norðurlands eystra. Börn þeirra eru háskólanemarnir Una, f. 1999, og Eik, f. 2002. Foreldrar Haraldar eru Jónína Guðrún Haraldsdóttir, f. 1949, og Egill J. Sigurðarson, f. 1953. 21. mars - 19. apríl A Hrútur Þú munt að öllum líkindum rifja upp eitthvað úr fortíðinni í dag. Farðu þér hægar í framkvæmdunum og þá gengur dæmið upp að lokum. 20. apríl - 20. maí B Naut Einhver er tilbúinn til að lána þér peninga eða hjálpa þér með öðrum hætti. Margt glepur hugann og þér finnst freistandi að loka bara augunum og halda áframmeð þitt. 21. maí - 20. júní C Tvíburar Það er löngu tímabært að þú sýnir ástvinum þínum hvern hug þú berð til þeirra. Þú kemst á sporið þegar þú ferð að gramsa í gömlu leyndarmáli. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Það er afar brýnt að þú standist allar freistingar í dag. Það dregur ský fyrir sólu í stuttan tíma hjá þér en svo fer sólin að skína aftur. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Það eru ýmsar breytingar sem þig langar til að ná fram. Sumt af því sem þú tekur þér fyrir hendur mætir mótstöðu makans. 23. ágúst - 22. september F Meyja Þótt þú hafir margt á þinni könnu skaltu gæta þess að ofgera þér ekki. Breyttu því sem þú getur, aðrir verða að sjá um sig. 23. september - 22. október G VogAfslöppun er lykilorð dagsins. Vinur leitar til þín og þú skalt gera allt sem þú getur til að hjálpa honum. 23. október - 21. nóvember H Sporðdreki Hugleiddu hvar þú vilt vera stödd/staddur í starfi að fimm árum liðnum og settu síðan stefnuna þangað. Þú munt ferðast mikið á næsta ári. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Láttu ekki hugfallast þótt samskipti þín og vinnufélaga þinna gangi ekki snurðulaust með öllu. Þú hefur mikla kímnigáfu, notaðu hana þegar þér finnst allt ganga á afturfótunum. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Þú þarft að læra betur að láta allt slúður sem vind um eyru þjóta. Settu þér mörk og neitaðu að láta draga þig inn í einhverja vitleysu. 20. janúar - 18. Febrúar K Vatnsberi Þú vekur athygli annarra. Þér hefur gengið vel að safna fyrir því sem þig langar að kaupa, nú er lag. 19. febrúar - 20. mars L Fiskar Þú stendur frammi fyrir svo mörgummöguleikum að það er úr vöndu að ráða. Vertu fyrri til að rétta fram sátta- hönd, því sjaldan veldur einn þá tveir deila. Nýjar og Spennandi lausnir í umbúðum Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is | www.litlaprent.is Skemmuvegi 4, 200 Kópavogi Sími 540 1818 | midaprent@midaprent.is | www.midaprent.is Skemmuvegi 4, 200 Kópavogi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.