Morgunblaðið - 29.10.2022, Síða 37

Morgunblaðið - 29.10.2022, Síða 37
ÍÞRÓTTIR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022 Ég fagna komu skemmtikraft- anna frá Suður-Ameríku, Darwin Núnez og Antony, í enska bolt- ann. Báðir hafa þeir sætt nokk- urri gagnrýni en af misjöfnum ástæðum þó. Núnez, úrúgvæskur sóknar- maður Liverpool, hefur verið gagnrýndur fyrir að vera klunna- legur með boltann og taka oft vondar ákvarðanir. Antony, brasilískur vængmað- ur Manchester United, hefur ver- ið gagnrýndur fyrir tilgangslaus trikk og að vinna ekki nægilega vel til baka. Báðir hafa þeir, þrátt fyrir gagnrýnina, farið vel af stað. Hinn 23 ára gamli Núnez hef- ur skorað sex mörk og lagt upp annað í 13 leikjum í öllum keppn- um fyrir Liverpool, þar sem hann hefur byrjað um helming þeirra. Hinn 22 ára gamli Antony hefur skorað þrjú mörk í sex deildarleikjum og byrjað alla leiki í Evrópudeildinni, þar sem hann hefur þó ekki komist á blað. Núnez er eldfljótur, stór og sterkur og einfaldlega stór- hættulegur. Þrátt fyrir að taka oft vondar ákvarðanir er hann frábær í að koma sér í færi og með aukinni ró fyrir framan markið ætti mörkunum að fjölga enn frekar. Antony er sömuleiðis eldfljót- ur, einstaklega leikinn með knöttinn og býr sér sjálfur til stórhættuleg skotfæri í hvívetna. Ekki kæmi það mér á óvart ef mörkunum fari sömuleiðis að fjölga enn frekar hjá honum. Þá er Antony spyrnumaður góður og bara tímaspursmál hvenær hann fer að bæta stoðsending- um við í rauðu treyjunni. Spilamennska þeirra beggja einkennist af einskærri leikgleði. Þeir eru skemmtikraft- ar sem lífga upp á leiki liða sinna í ensku úrvalsdeildinni og Evrópukeppnum. Persónulega er ég hæst- ánægður með að fá að horfa á leikmenn sem njóta þess þetta mikið að spila íþróttina sem manni þykir svo vænt um. Ég vona í það minnsta að þeir haldi áfram um ókomna tíð að gera kaótíska og skrítna hluti, sem stundum enda sem tærasta snilld. BAKVÖRÐUR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is KNATTSPYRNA Besta deild karla, lokaumferð: Kópavogur: Breiðablik – Víkingur........ L13 Akureyri: KA – Valur............................. L13 Meistaravellir: KR – Stjarnan .............. L13 Kaplakriki: FH – ÍA............................... L13 Hásteinsvöllur: ÍBV – Leiknir R .......... L13 Keflavík: Keflavík – Fram ..................... L13 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Eyjar: ÍBV – FH ................................ S13.30 Ísafjörður: Hörður – Afturelding.......... S16 Skógarsel: ÍR – Selfoss ..................... S19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR VÍS-bikar karla, 16-liða úrslit: Hlíðarendi: Valur – Hrunamenn ........... S16 Stykkish.: Snæfell – Skallagrímur ... S16.30 Keflavík: Keflavík – Fjölnir .............. S19.15 Ásgarður: Stjarnan – ÍR ........................ S20 VÍS-bikar kvenna, 16-liða úrslit: Dalhús: Fjölnir – Valur ..................... L16.15 Skógarsel: ÍR – Ármann........................ L18 Meistaravellir: KR – Grindavík........ L19.15 Stykkish.: Snæfell – Breiðablik ............. S14 Keflavík: Keflavík – Tindastóll .............. S16 Ásgarður: Stjarnan – Þór Ak................. S17 Austurberg: Aþena/LU – Njarðvík....... S18 Ásvellir: Haukar – Hamar/Þór .............. S18 UM HELGINA! en Thelma og Valgarð, sem eru mun reyndari, eiga góða möguleika á að vera vel fyrir ofan miðjan hópinn og það er okkar markmið. Annars er aðalmarkmiðið okkar að sýna góðu frammistöðu og flotta fimleika. Það er ekki aðalatriði að ná ákveðnu sæti eða neitt slíkt, bara að við gerum ekki stór mistök og sýn- um hvað við getum á stóra sviðinu.“ Aðspurður frekar út í möguleika okkar fólks til þess að komast upp úr undanúrslitum og inn í úrslitin sjálf sagði Róbert að hann minntist þess ekki að Ísland hafi nokkurn tímann átt keppanda meðal þeirra 24 bestu á HM. „Það yrði þá helst á tíma Rúnars Alexanderssonar en ég er alls ekki viss. Maður verður að horfa til þess hvernig við höfum staðið sem fim- leikaþjóð í alþjóðlegum samanburði. Við erum alltaf að færast nær þeim allra bestu og á meðan þróunin er í þá átt munum við ná takmarkinu einn daginn.“ Ekki hleypa efanum að Róbert var sjálfur fimleikamaður í fremstu röð og hefur reynslu af al- þjóðlegri keppni. Hann segist að- spurður geta miðlað reynslu sinni til keppendanna en hann segir mik- ilvægast að þau hafi trú á eigin getu. „Þetta eru allt saman flottir fim- leikakrakkar og þau eru orðin virki- lega góð. Þau þurfa að mæta og taka sitt pláss og hafa trú á sér sjálfum og verkefninu. Þau mega ekki láta hausinn trufla sig og ekki hleypa ef- anum að,“ sagði Róbert Kristmanns- son, annar landsliðsþjálfara Íslands á heimsmeistaramótinu í áhaldafim- leikum í Liverpool. Þær Hildur Maja og Thelma keppa í undanúrslitum í kvenna- flokki í kvöld en þeir Jónas Ingi og Valgarð í undanúrslitum karlamegin á mánudag. Úrslitin í kvennaflokki fara fram á fimmtudag en í karla- flokki á föstudag. Fjórir eru framar vonum - Góð frammistaða og flottir fimleikar markmið íslensku keppendanna á HM í Liverpool, segir Róbert - Hildur og Thelma keppa í undanúrslitunum í kvöld Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands Liverpool Róbert Kristmannsson þjálfari, Valgarð Reinhardsson, Hildur Maja Guðmundsdóttir, Thelma Aðalsteins- dóttir, Jónas Ingi Þórisson og Ferenc Kováts þjálfari í keppnishöllinni í Liverpool þar sem mótið fer fram. FIMLEIKAR Ólafur Pálsson oap@mbl.is Heimsmeistaramótið í áhaldafim- leikum hefst í Liverpool á Englandi í dag. Ísland sendir fjóra keppendur til leiks. Fulltrúar Íslands hlutu fjöl- þrautarsæti eftir góðan árangur á Evrópumótinu í áhaldafimleikum í ágúst síðastliðnum. Í kvennaflokki verða Hildur Maja Guðmundsdóttir og Thelma Að- alsteinsdóttir fulltrúar Íslands. Í karlaflokki verða þeir Jónas Ingi Þórisson og Valgarð Reinhardsson okkar fulltrúar. Öll koma þau úr Fimleikafélaginu Gerplu. Landsliðsþjálfararnir Ferenc Ko- váts og Róbert Kristmannsson eru með okkar fólki í Liverpool. Róbert sagði í samtali við Morgunblaðið að það færi vel um hópinn. „Við erum á stað þar sem breska meistaramótið hefur verið haldið síðan árið 2011. Keppnishöllin er í næsta húsi við hótelið en hér eru hótel allt í kring og keppnissvæðið er sett upp þannig að öll umgjörð er fyrsta flokks. Þau eru með allt upp á tíu hér í Liverpool,“ sagði Róbert. Róbert sagði Alþjóðafimleika- sambandið í fyrsta sinn í ár hafa sett upp strangt úrtökuferli fyrir heims- meistaramótið. „Hingað til hefur Fimleika- samband Íslands og landsliðsþjálf- arar hverju sinni ákveðið hver lág- mörkin eru inn á HM fyrir okkar fólk. Það er því stórt að ná inn kepp- endum í ár og hvað þá fjórum tals- ins. Það má segja að það eitt og sér sé framar vonum.“ Mikið afrek að komast áfram „Auðvitað er markmið okkar að komast upp úr undanúrslitunum en það yrði engu að síður mikið afrek. Hildur Maja og Jónas Ingi eru mjög ung og nýstigin upp í fullorðinsflokk Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Guðmundur Magnússon er sá leik- maður sem verður mest í sviðsljós- inu í dag þegar lokaumferð Bestu deildar karla er öll leikin frá og með klukkan 13. Guðmundur freistar þess að ná markakóngstitli deildarinnar úr höndum Nökkva Þeys Þórissonar en Nökkvi lauk keppni í lok ágúst með 17 mörk í 20 leikjum fyrir KA þegar Akureyrarfélagið seldi hann til Beerschot í Belgíu. Guðmundur er kominn með 17 mörk í 25 leikj- um með Fram, sem sækir Kefla- vík heim í við- ureign tveggja efstu liðanna í neðri hluta deild- arinnar. Ef ein- hvers staðar verða skoruð mörg mörk í dag þá er Keflavík- urvöllur líklegur vettvangur. Bæði lið hafa skorað ríflega 50 mörk á Ís- landsmótinu í ár og þau mættust í tólf marka leik í Úlfarsárdal í haust þegar Keflavík vann ótrúlegan sig- ur, 8:4. Guðmundur þarf eitt mark til að fara upp fyrir Nökkva. Skori hann tvö jafnar hann markametið sem fimm leikmenn deila, en takist Guð- mundi að skora þrennu í dag verð- ur hann fyrstur í sögunni til að skora 20 mörk á einu tímabili í efstu deild karla. Íslandsbikarinn fer á loft á Kópa- vogsvelli um klukkan 15, eftir við- ureign Breiðabliks og Víkings. Blikar eru löngu orðnir meistarar og gætu unnið deildina með allt að þrettán stiga mun. Víkingar eru í baráttu við KA um silfurverðlaunin, og þeir verða að leggja Blikana að velli og treysta á að Valur taki stig af KA-mönnum á Akureyri á meðan. Fallbaráttan verður endanlega útkljáð þegar FH mætir ÍA í Kapla- krika. Þar þurfa þó undur og stór- merki að gerast því Skagamenn verða að vinna leikinn með tíu marka mun til að bjarga sér frá falli og senda FH niður í 1. deild. Verður Guðmundur markakóngur? - Þarf eitt mark til að skáka Nökkva - Þrennu til að verða fyrstur í 20 mörk Guðmundur Magnússon Þóra Kristín Jónsdóttir lék sem fyrr vel með liði sínu Falcon í dönsku úrvalsdeildinni í körfu- knattleik kvenna og var stigahæst þegar liðið vann nauman 77:72- sigur á Herlev í toppslag deild- arinnar í gær. Þóra Kristín skoraði 23 stig, tók fjögur fráköst og gaf þrjár stoð- sendingar á 30 leiknum mínútum. Falcon er áfram á toppi deild- arinnar þar sem liðið er með fullt hús stiga, 10 stig eftir fimm leiki. Herlev er í öðru sæti með 6 stig og á leik til góða á Falcon. Stigahæst í topp- slag í Danmörku Morgunblaðið/Óttar Geirsson 23 Þóra Kristín Jónsdóttir fór fyrir Falcon í naumum sigri í gær. Fjórir leikmenn Breiðabliks koma til greina í valinu á besta leik- manni Bestu deildar karla í fót- bolta en Íslenskur Toppfótbolti kynnti í gær hvaða fimm leikmenn hefðu orðið efstir. Sigurvegarinn verður tilkynntur eftir loka- umferðina í dag. Þetta eru Dagur Dan Þórhallsson, Höskuldur Gunn- laugsson, Ísak Snær Þorvaldsson, Jason Daði Svanþórsson, en sá fimmti er Nökkvi Þeyr Þórisson úr KA. Fimm eru tilnefndir sem efnilegasti leikmaðurinn, Ísak Snær er líka einn þeirra en hinir eru Ari Sigurpálsson, Danijel Dej- an Djuric og Kristall Máni Ingason úr Víkingi og Ísak Andri Sigur- geirsson úr Stjörnunni. Fjórir Blikar koma til greina Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bestir Fjórir Blikar eru tilnefndir og Ísak Snær í báðum flokkum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.