Morgunblaðið - 29.10.2022, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
Indie wire
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
88%
Listasmiðjan Skafl
haldin á Siglufirði
Listasmiðjan
Skafl fer nú
fram í fjórða
sinn á Siglu-
firði. Þáttak-
endur hafa
ólíkan bak-
grunn í listum
og hafa unnið
saman þvert á
listgreinar. Í
dag, laugardag,
er kl. 14 uppákoma í Ráðhúsinu
með þátttakendum. Kl. 16 verður
opnuð sýning Helgu Páleyjar
Friðþjófsdóttur í Kompunni. Á
morgun, sunnudag kl. 12, flytur
svo Jaouad Hbib erindi í Alþýðu-
húsinu um heimspeki, list og
marókkóska matargerð.
Helga Páley
Friðþjófsdóttir
Helena Margrét
í Ásmundarsal
Þú getur ekki fest þig í þínum
eigin vef er heiti sýningar á
verkum myndlistarkonunnar
Helenu Margrétar Jónsdóttur
sem verður opnuð í Ásmundarsal
við Freyjugötu í dag, laugar-
dag, kl. 16. „Á sýningunni eru
olíumálverk sem sýna togstreitu
girnilegra hversdagslegra hluta
og ógeðfelldra kóngulóa,“ er haft
eftir Helenu í tilkynningu. „Þær
leynast inni á milli og vekja hjá
manni óhug. Hugmyndin um
hvar þær mögulega gætu haldið
sig og óþægindin sem fylgja
óvissunni er inntak sýningar-
innar. „Þær eru alls staðar þar
sem maður sér ekki til þeirra. Ég
væri bara til í að sjá þær. Vita af
þeim.“
Helena Margrét útskrifaðist
með BA-gráðu frá LHÍ árið 2019.
Listakonan Helena Margrét sýnir
olíumálverk mótuð af togstreitu.
Ég kynntist Kjass í gegnum fyrstu plötu
hennar, Rætur, sem út kom 2018. Sú plata
er dásemd, nærgætin og umlykjandi tónlist
í djassmóti og íslensk þjóðlög til grundvallar. Ég
var forvitinn, hvaðan kom þetta eiginlega, og
fékk þær upplýsingar að Fanney ræki ættir til
Mývatnssveitar, þess töfrastaðar. Hún fluttist
síðan til Akureyrar 2015 og var fyrsti nemandinn
til að klára framhaldspróf í djass- og dægurlaga-
söng frá Tónlistarskóla Akureyrar. Þar á undan
hafði hún m.a. numið við FÍH. Kjassverkefnið
fæddist þar en í skólanum lærði Fanney að
útsetja og semja lög og í raun „allt sem þarf að
kunna til að geta stjórnað
eigin tónlistarverkefnum“,
eins og hún lýsir sjálf.
Ég heillaðist af frumburðin-
um og hef haft augu og eyru
með Kjass síðan. Gaman
því að finna að Fanney er
engan veginn að endurtaka
sig á nýju plötunni heldur eltir greinilega það
sem blæs henni í brjóst. Nýja platan fer þannig
í aðrar áttir en fyrirrennarinn, nú „kveður við
nýjan litríkan tón í tónlistinni sem tekur snarpa
beygju í átt að poppi og rokki“, eins og höfundur
segir sjálfur og þetta er rétt lýsing. Grunnurinn
er þannig lagað djass eins og áður, hvar Fanney
á sínar námslegu rætur, en áherslan allt önnur.
Hljóðfæraleikarar í þetta sinnið eru þau Mikael
Máni Ásmundsson (gítar), Anna Gréta Sigurðar-
dóttir (píanó), Rodrigo Lopes (trommur) og
Stefán Gunnarsson (bassi). Einnig koma Tómas
Jónsson (hammond), Ásdís Arnardóttir (selló)
og Daníel Starrason (gítar) að plötunni. Hljóð-
upptökur voru gerðar hjá Sigfúsi Jónssyni hjá
Hljómbræðrum og svo var það Kjartan Kjartans-
son sem hljóðhannaði og batt alla enda saman að
því leytinu til.
Rætur batt sig við grundaða nálgun, varfærinn
hljóðheim og nánast melankólískan. Eða eins og
ég reit á sínum tíma: „Þagnir eru t.a.m. notaðar
á áhrifaríkan hátt, gítarstrokurnar koma eftir
tveggja sekúndna bið, píanósláttur varfærnis-
legur og mjúkur og upptaka virkilega innileg,
þar sem maður heyrir skrjáfið þegar tónlistar-
mennirnir færa sig til í sætunum.“ Bleed n’ Blend
er hins vegar sprúðlandi verk, gáskafullt og glatt.
Titillagið opnar plötuna og er eins og yfirlýsing,
sumarlegt og í léttum reggítakti, ansi fjarri því
sem við upplifðum á Rótum. Þá koma lög eins
og „Running“, grallarasmíð og ansi skemmtilegt
verður að segjast. Flottur kór á bak við, það er
andað hratt (enda er hún að hlaupa!) og lagið
allt viss stíllegur bjúgverpill. Hressandi og ég sé
Fanneyju glotta við tönn þegar þetta var útsett.
En hér eru líka „eðlileg“ lög, fallegar og næmar
ballöður eins og undurblíða „Round and round“.
Fanney fylgdi plötunni úr hlaði í sumar með
tónleikum í Reykjavík og á Akureyri. Hvað næst,
það enginn veit, en ég hrífst af nálgun hennar,
bæði tónlistarlega og viðhorfslega. Þetta sagði
hún t.d. í viðtali við Egil Pál Egilsson í Viku-
blaðinu í sumar: „Ég held að það skipti mjög
miklu máli fyrir samfélagið í heild að fjölbreyttur
hópur fólks taki sér rými í listsköpun. Ég upplifi
það a.m.k. alltaf sem mjög valdeflandi að sjá
flotta vandaða list sem aðrar konur eru að gera,
sama hvaða listgrein er um að ræða, konur sem
stíga inn í kvenleikann og skapa … Kvenleikinn
er með tímanum að fá meira rými til að vera
alls konar, ekki bara penn, og það er magnað að
fá að upplifa það innra með sér og utan við sig í
samfélaginu.“
Djasstilraunir að norðan
Opin Fanney Kristjáns
Snjólaugardóttir
stendur að Kjass.
Gaman því að finna að
Fanney er engan veginn að
endurtaka sig á nýju plötunni
heldur eltir greinilega það
sem blæs henni í brjóst.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Hljómplatan Bleed n’ Blend er
eftir tónlistarkonuna Fanneyju
Kristjáns Snjólaugardóttur en
hún kallar sig Kjass. Þetta er
önnur breiðskífa hennar.