Morgunblaðið - 29.10.2022, Síða 39

Morgunblaðið - 29.10.2022, Síða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Indie wire SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 88% Listasmiðjan Skafl haldin á Siglufirði Listasmiðjan Skafl fer nú fram í fjórða sinn á Siglu- firði. Þáttak- endur hafa ólíkan bak- grunn í listum og hafa unnið saman þvert á listgreinar. Í dag, laugardag, er kl. 14 uppákoma í Ráðhúsinu með þátttakendum. Kl. 16 verður opnuð sýning Helgu Páleyjar Friðþjófsdóttur í Kompunni. Á morgun, sunnudag kl. 12, flytur svo Jaouad Hbib erindi í Alþýðu- húsinu um heimspeki, list og marókkóska matargerð. Helga Páley Friðþjófsdóttir Helena Margrét í Ásmundarsal Þú getur ekki fest þig í þínum eigin vef er heiti sýningar á verkum myndlistarkonunnar Helenu Margrétar Jónsdóttur sem verður opnuð í Ásmundarsal við Freyjugötu í dag, laugar- dag, kl. 16. „Á sýningunni eru olíumálverk sem sýna togstreitu girnilegra hversdagslegra hluta og ógeðfelldra kóngulóa,“ er haft eftir Helenu í tilkynningu. „Þær leynast inni á milli og vekja hjá manni óhug. Hugmyndin um hvar þær mögulega gætu haldið sig og óþægindin sem fylgja óvissunni er inntak sýningar- innar. „Þær eru alls staðar þar sem maður sér ekki til þeirra. Ég væri bara til í að sjá þær. Vita af þeim.“ Helena Margrét útskrifaðist með BA-gráðu frá LHÍ árið 2019. Listakonan Helena Margrét sýnir olíumálverk mótuð af togstreitu. Ég kynntist Kjass í gegnum fyrstu plötu hennar, Rætur, sem út kom 2018. Sú plata er dásemd, nærgætin og umlykjandi tónlist í djassmóti og íslensk þjóðlög til grundvallar. Ég var forvitinn, hvaðan kom þetta eiginlega, og fékk þær upplýsingar að Fanney ræki ættir til Mývatnssveitar, þess töfrastaðar. Hún fluttist síðan til Akureyrar 2015 og var fyrsti nemandinn til að klára framhaldspróf í djass- og dægurlaga- söng frá Tónlistarskóla Akureyrar. Þar á undan hafði hún m.a. numið við FÍH. Kjassverkefnið fæddist þar en í skólanum lærði Fanney að útsetja og semja lög og í raun „allt sem þarf að kunna til að geta stjórnað eigin tónlistarverkefnum“, eins og hún lýsir sjálf. Ég heillaðist af frumburðin- um og hef haft augu og eyru með Kjass síðan. Gaman því að finna að Fanney er engan veginn að endurtaka sig á nýju plötunni heldur eltir greinilega það sem blæs henni í brjóst. Nýja platan fer þannig í aðrar áttir en fyrirrennarinn, nú „kveður við nýjan litríkan tón í tónlistinni sem tekur snarpa beygju í átt að poppi og rokki“, eins og höfundur segir sjálfur og þetta er rétt lýsing. Grunnurinn er þannig lagað djass eins og áður, hvar Fanney á sínar námslegu rætur, en áherslan allt önnur. Hljóðfæraleikarar í þetta sinnið eru þau Mikael Máni Ásmundsson (gítar), Anna Gréta Sigurðar- dóttir (píanó), Rodrigo Lopes (trommur) og Stefán Gunnarsson (bassi). Einnig koma Tómas Jónsson (hammond), Ásdís Arnardóttir (selló) og Daníel Starrason (gítar) að plötunni. Hljóð- upptökur voru gerðar hjá Sigfúsi Jónssyni hjá Hljómbræðrum og svo var það Kjartan Kjartans- son sem hljóðhannaði og batt alla enda saman að því leytinu til. Rætur batt sig við grundaða nálgun, varfærinn hljóðheim og nánast melankólískan. Eða eins og ég reit á sínum tíma: „Þagnir eru t.a.m. notaðar á áhrifaríkan hátt, gítarstrokurnar koma eftir tveggja sekúndna bið, píanósláttur varfærnis- legur og mjúkur og upptaka virkilega innileg, þar sem maður heyrir skrjáfið þegar tónlistar- mennirnir færa sig til í sætunum.“ Bleed n’ Blend er hins vegar sprúðlandi verk, gáskafullt og glatt. Titillagið opnar plötuna og er eins og yfirlýsing, sumarlegt og í léttum reggítakti, ansi fjarri því sem við upplifðum á Rótum. Þá koma lög eins og „Running“, grallarasmíð og ansi skemmtilegt verður að segjast. Flottur kór á bak við, það er andað hratt (enda er hún að hlaupa!) og lagið allt viss stíllegur bjúgverpill. Hressandi og ég sé Fanneyju glotta við tönn þegar þetta var útsett. En hér eru líka „eðlileg“ lög, fallegar og næmar ballöður eins og undurblíða „Round and round“. Fanney fylgdi plötunni úr hlaði í sumar með tónleikum í Reykjavík og á Akureyri. Hvað næst, það enginn veit, en ég hrífst af nálgun hennar, bæði tónlistarlega og viðhorfslega. Þetta sagði hún t.d. í viðtali við Egil Pál Egilsson í Viku- blaðinu í sumar: „Ég held að það skipti mjög miklu máli fyrir samfélagið í heild að fjölbreyttur hópur fólks taki sér rými í listsköpun. Ég upplifi það a.m.k. alltaf sem mjög valdeflandi að sjá flotta vandaða list sem aðrar konur eru að gera, sama hvaða listgrein er um að ræða, konur sem stíga inn í kvenleikann og skapa … Kvenleikinn er með tímanum að fá meira rými til að vera alls konar, ekki bara penn, og það er magnað að fá að upplifa það innra með sér og utan við sig í samfélaginu.“ Djasstilraunir að norðan Opin Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir stendur að Kjass. Gaman því að finna að Fanney er engan veginn að endurtaka sig á nýju plötunni heldur eltir greinilega það sem blæs henni í brjóst. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Hljómplatan Bleed n’ Blend er eftir tónlistarkonuna Fanneyju Kristjáns Snjólaugardóttur en hún kallar sig Kjass. Þetta er önnur breiðskífa hennar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.