Morgunblaðið - 29.10.2022, Side 40

Morgunblaðið - 29.10.2022, Side 40
MENNING40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Túnikur, buxur og vesti Vinsælu velúrgallarnir í haust litunum komnir í verslunina Stærð XS - 4XL Stakar velúrbuxur svartar, bláar og gráar Úrval af fallegum vetrarpeysum Þ að er bara einn Hörður Grímsson rannsóknarlög- reglumaður. Í gegnum tíðina hefur hann orðið fyrir mörgum áföllum, en hann reynir að halda áfram, hvað sem á dynur. Stundum bugast hann, en jafnoft rís hann upp aftur. Hrylling- ur eins hann gerist verstur er langt því frá allra en rauðhærði risinn kallar ekki allt ömmu sína. Samt getur hann fengið upp í kok og of mikið blóð getur reynst honum ofviða. Stefán Máni kynnti Hörð Grímsson til sögunnar fyrir rúmum áratug og síðan hefur rannsóknarlög- reglumaðurinn leitt lesendahóp sinn í gegnum súrt og sætt. Hrjúfur rumur, sem fer sín- ar eigin leiðir, þrjóskur og ákveðinn en umhyggjusamur, þegar á reynir, í raun sanngjarn laganna vörður, sem gerir allt sem hann getur til að stöðva glæpamenn; berdreyminn og vinnusamur einfari, sem þrífst illa í margmenni og á auðvelt með að ganga fram af fólki, fá það upp á móti sér, en trúr réttlætinu og það getur kostað fórnir. Þegar Hörður bjó einn var hann þunglyndur og leiður á lífinu en eftir að hann kynntist Bíbí og fór að búa með henni virðist hann hafa öðlast einhvern sálarfrið. Þriggja ára sonur þeirra veitir honum auk þess ákveðna lífsfyllingu, en heimilislífið heldur honum ekki, þó hann þrái það. Auðvelt er að leita í áfengið og tóbakið en þá kemur samviskan til sögunnar. Það getur verið vandlifað, ekki síst fyrir þá sem vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Í Hungri, nýjustu spennusögu Stefáns Mána, reynir heldur betur á Hörð. Honum leiðist ekki að borða en er stöðugt truflaður, þegar hann nærir sig, og það fer ekki vel í hann. Hungur er aldrei af hinu góða. Hörður sýnir á sér nýja hlið, gerir svokallaðan prófíl um morðingja að bandarískri fyrirmynd, stjórn- ar rannsóknarteymi í kjölfarið og þrengir hringinn jafnt og þétt. Birkir er langt frá því sáttur við Hörð og aðferðir hans og gerir honum lífið leitt. Er auðvitað rauð- ur, leiðinlegi maðurinn í bókinni, sjálfviti, sem allir kannast við í raunheimum en fáir eða engir þola. Góð mannlýsing og eftirminnileg, en Hörður hefur ekki sagt sitt síð- asta orð, þó að honum sé sótt. Rauður litur er alltumlykjandi í bókinni. Hann getur verið fullkom- inn, þegar eldurinn logar glatt fjarri mannabyggð norður á Ströndum, sólin sest blóðrauð, himinninn er dimmrauður og blóðbergið er kryddið besta hjá rauðhærðum risa. En blóðlitaður raunveruleiki mann- lífsins í austurhluta Reykjavíkur á nýliðnum áratug er ekki dans á rós- um heldur hryllingurinn uppmálað- ur, brjálæði að hætti vampíra. Í aukum mæli ganga glæpasögur út á það að stuða lesendur, hneyksla þá, ganga fram af þeim. Stefán Máni veit hvað hann syngur og Hungur er vel skrifuð og úthugsuð bók. Hörður veit hvernig er að ótt- ast um líf barns og það er ekki bara illa gert gagnvart honum heldur líka þeim, sem hugnast ekki að blanda börnum í glæpi fullorðinna, að bera dráp barna á borð í eins góðri og spennandi og vel uppbyggðri sögu og Hungur er. Dýraníðið er yfrið nóg til þess að koma réttum skilaboðum á framfæri, að ekki sé minnst á aðrar blóðsúthellingar. Andspænis brjálæði að hætti vampíra Morgunblaðið/Eggert Stefán Máni „Hungur er vel skrifuð og úthugsuð bók,“ segir rýnir. BÆKUR STEINÞÓR GUÐBJARTSSON Spennusaga Hungur Eftir Stefán Mána. Sögur útgáfa 2022. Innbundin, 302 bls. É g hef beðið með mikilli eftirvæntingu eftir nýrri bók frá Bergþóru Snæ- björnsdóttur – og er ábyggilega ekki ein um það. Fyrsta bók hennar, Svínshöfuð, sem kom út árið 2019 hlaut verðskuldað lof og var meðal annars tilnefnd bæði til Fjöruverðlaunanna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Ljóðabók hennar, Flórída, sem kom út árið 2017, vakti einnig og réttilega mikla athygli. En að mati gagnrýnanda hefur Bergþóra Snæbjörnsdóttir nú toppað sig. Jólabókaflóðið hefst með pompi og prakt í prósaverki Bergþóru sem ber titilinn Allt sem rennur. Um er að ræða kaflaskipta bók í prósastíl, en lesendur óvanir prósa eða ljóðum þurfa ekkert að óttast þar sem textinn flæðir, eða öllu heldur rennur, einstaklega vel. Frásögnin og persónur hennar eru grípandi og nístandi sársauki skín í gegn. Við fyrstu sýn virðast kaflarnir ekki tengjast beint. En líkt og í Svínshöfði tekst höfundi að flétta saman ólík sjónarhorn og upplif- anir svo úr verður meistaraleg frásagnarflétta. Höfundur tekst á við alvarlegar hliðar hversdagslegra viðfangsefna – allt frá móður- hlutverkinu og raunum þess yfir í vímuefnaneyslu, heimilisofbeldi, erfið áföll og börn með morð á heilanum. Textinn er án nokkurs konar fylliorða og hvert orð þrungið merkingu. Prósinn rennur fyrirstöðulaust og raunar svo vel að ég átti erfitt með að slíta mig frá lestrinum. Orðaval höfundar endurspeglar trúverðugan sársauka og angist persóna á slíkan hátt að ég fann hreinlega fyrir líkamlegum viðbrögðum. Hún notar forklifun og endurtekningar á ýmsum stöðum til að skapa spennu sem lesandi finnur vel fyrir í gegnum verkið. Auk þess leikur höfundur sér með myndmál vatns og náttúru ásamt innra og ytra rými kvenlíkamans, svo vel tekst til. Táknmyndir þessar auðga verkið og dýpka merkingu þess svo úr verður heildarmynd þar sem manneskjan verður ekki svo auðskilin náttúrunni og skepnum hennar. Í þessu sambandi má benda á textabrot á blaðsíðu 136, þar sem höfundur stillir upp frábæru dæmi um óljós mörk mannsins og náttúrunnar: Deildarstjórinnmeð bleika hárið sem sápar á henni hárið er búin að gleyma að stelpan sé manneskja. Röddin í henni breytist þegar hún talar við stelpuna, verður skrækari, tilgerðarleg, eins og þegar fullorðnir tala við lítil börn eða dýr. Stelpan svarar auðvitað engu, ekki frekar en bleytan ímýri svarar skrækjum í fuglum.Stelpan er landslag, náttúruafl, hvaðamáli skiptir lítið fólk með litlar hendur, litlar hugmyndir, lítið pláss? Þó bókin sé ef til vill fljótlesin er ofgnótt af augnablikum sem vert er að skoða nánar og ég velkist ekki í vafa um að persónur hennar og einstakar senur muni sitja eftir hjá mér um ókomna tíð. Umfjöllunin um sambýlið og atburðina sem þar fara fram standa upp úr hjá mér – ég mun aldrei líta bleikt hár eða dúkkubörn sömu augum aftur. Frásögnin er hrá, hröð og falleg og endurspeglar raunverulega hryllinginn í samböndum okkur við annað fólk og í hversdagsleikanum. Þegar kaflinn „Stelpan sem breytti sér í fjall“ hófst fór ég að efast um flæði sögunnar, en ég mátti vita betur. Því í lok verksins renna allir þræðirnir saman í óvæntum hápunkti frásagnarinnar sem erfitt var að sjá fyrir. Þetta er raunar slík kúvending, og það vel heppnuð, að hún gerir gott verk að framúrskar- andi verki sem hefur skipað sér sess í hillu minna uppáhaldsbóka. Líkt og áður segir þurfa aðdáend- ur Bergþóru því ekki að örvænta þótt verkið sé ef til vill smærra í sniðum en Svínshöfuð, hún hefur jafnmikil – ef ekki meiri – áhrif á lesandann. Með þessu verki kveður Bergþóra Snæbjörnsdóttir, ef hún var ekki búin að því nú þegar, sér hljóðs sem eitt af okkur fremstu samtímaskáldum – og það er tímabært að við hlustum. Hún er einstakur rithöfundur og við sem þjóð njótum góðs af skrifum hennar. Allt sem rennur er að mínu mati nánast fullkomin bók og það kæmi mér skemmtilega á óvart ef nokkur önnur bók jólabókaflóðsins stæðist samanburðinn. Nánast fullkomin bókmennt Morgunblaðið/Eggert Höfundurinn „Með þessu verki kveður Bergþóra Snæbjörnsdóttir [...] sér hljóðs sem eitt af okkur fremstu samtímaskáldum,“ skrifar rýnir. BÆKUR INGIBJÖRG IÐA AUÐUNARDÓTTIR Ljóðsaga Allt sem rennur Eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur. Benedikt, 2022, 158 bls., innbundin. y = a(x-h)2 + k Heklu Daggar í Y gallery Listamaðurinn Hekla Dögg Jóns- dóttir mun í dag, laugardag, kl. 15 opna sýninguna y = a(x-h)2 + k í Y gallery í Hamraborg 12, í húsnæði gömlu Olís bensínstöðvarinnar. Á sýningunni vinnur Hekla Dögg með sjónrænt samspil tveggja rýma. Í tilkynningu segir: „Y gallery er í glerbyggingu frá áttunda áratugnum með tilheyr- andi brúnum flísum á gólfinu sem kallast á við hvítar flísar úr heitum potti í Laugardalslaug. Þar er horft í gegnum iðandi vatnið á flísarnar á botninum og fylgst því með þegar parabóla byrjar smám saman að myndast í hringiðu þegar potturinn yfir- fyllist. Parabólan er á stöðugri hreyfingu og á einhvern hvers- dagslegan hátt stærðfræðinnar beygir hún veruleikann svo að við sjáum tífalt meira rými.“ Hekla Dögg stundaði nám við MHÍ og framhaldsnám í Þýska- landi og Bandaríkjunum. Síðan hún lauk MFA-námi árið 1999 hefur Hekla verið virk í sýningar- haldi og sýningar á verkum henn- ar verið settar upp víða um lönd. Morgunblaðið/Einar Falur Hekla Dögg Á sýningunni vinnur hún með sjónrænt samspil tveggja rýma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.