Morgunblaðið - 29.10.2022, Síða 41

Morgunblaðið - 29.10.2022, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022 N ýjabrumið er ekki farið af heilgrímulistinni, þó Hríma sé þriðja sýningin þar sem Aldís Davíðsdótt- ir og Ágústa Skúladóttir rannsaka tjáningarmögleika hinna frosnu andlita, að þessu sinni með Orra Hugin Ágústsson sem meðleik- stjóra. Enn vekur þessi sérkennilegi angi leiklistarinnar furðu. Hvað verður sagt án orða og svipbrigða? Hvað leggja áhorfendur með sér í túlkun þess sem fram fer? Enn horfum við ekki síst eftir því sem formið sjálft gengur út á, stundum á kostnað þess að láta viðfangsefnið eða söguna gagntaka okkur. Við vitum þó, eftir reynsluna af Hjartaspöðum og Hetju, að gaman og harmur liggja álíka vel fyrir heilgrímum Aldísar. Þar hjálpar vitaskuld hin ljóðræna nákvæmni í hreyfingum og umgengni við leikmuni, sem einkennir gjarnan sýningar Ágústu, og Aldís sjálf nær sífellt þéttari en um leið mýkri tökum á, og mótleikarar hennar oftast líka. Tímasetning viðbragða og óvænt uppbrot endurtekningar- innar skilar hlátri, jafnvel þegar viðfangsefnið er jafnmyrkt og það er að þessu sinni. Einbúinn Hríma hefur búið um sig fjarri mannheimum til að bæla eftirköstin af ofbeldi í fortíðinni. Um leið nærir hún og viðheldur skaðanum – getur ekki annað. Allt í lífi hennar er í föstum skorðum allt þar til óvæntur gestur birtist, sest að og hristir stoðirnar þannig að draugar fortíðarinnar sleppa úr fjötrum sínum. Dásamleg leikmynd – réttnefnd leiktjöld – Auðar Aspar Guðmundsdóttur og Högna Sigurþórssonar mynda skjólið sem Hríma hefur. Varnarvirki en jafn- framt fangelsi. Veikburða himnur, og um leið og almennilega gustar í tilfinningarótinu halda þau auðvitað hvorki veðri né vindum. Sagan er dramatísk, en um leið dæmigerð. Hefur oft verið sögð áður. Þögult leikhús á borð við þetta ræður betur við hið almenna en hið einstaka. Dýpri skoðun kallar á smáatriði og sérstöðu í aðstæðum og atvikum, samhengi samfélags og menningar, sem illa komast til skila í þessu formi. Á móti kemur hið skáldlega afl tákna og líkinga sem skorður grímuleiksins kveikja hjá áhorfandanum. Það hættir ekki að vekja gleðiblandna lotningu hve lifandi grímurnar verða í gangi leiksins. Maður getur næstum svar- ið að víst sýni þær svipbrigði! Að þessu sinni leiddi atburða- rásin athyglina að því hvað þessi svipbrigðasjónhverfing magnast mikið frá því að Hríma stendur ein á sviðinu með engan annan mótleik en frá kaffikönnu og þvotti á snúru, til þess sem gerist þegar hrakinn bréfberinn álpast inn í híði hennar. Þá fyrst byrja grímurnar að tala fyrir alvöru – sem endurspeglar auðvitað hvernig Hríma endur- heimtir líf sitt í rótinu sem kemst á líf hennar við heimsóknina, við samneyti við annað fólk. Aldís sjálf nær sífellt traustari tökum á að kveikja líf í grímunum, auk þess að vera sjálf hönnuður þeirra og höfundur. Að þessu sinni er Þórey Birgisdóttir mótleikarinn og skilar sínu með miklum sóma. Persónuleiki gestsins verður aldrei fyllilega heilsteyptur, en þetta er heldur ekki sagan af honum. Tónlist Sævars Helga Jóhanns- sonar er sérlega falleg og vel hugsuð, gegnir mikilvægu hlutverki í framvindu og mótun andrúms- loftsins. Lýsing Ólafs Ágústs Stefánssonar skilar einnig sínu til að magna heildaráhrifin. Það er ástæða til að hvetja áhugafólk um tjáningarmöguleika sviðslistanna til að sækja Hrímu heim í Tjarnarbíó og verða vitni að galdri sem er sér á parti í flórunni. Vonandi heldur vegferð Aldísar Davíðsdóttur í rannsókn á lífinu sem leynist í föstum andlitsdráttum heilgrímunnar áfram lengi enn. Einveran Ljósmynd/Eva Ágústa Aradóttir Galdur „Það er ástæða til að hvetja áhugafólk um tjáningarmöguleika sviðslistanna til að sækja Hrímu heim í Tjarnarbíó og verða vitni að galdri sem er sér á parti í flórunni,“ skrifar rýnir meðal annars um leiksýninguna. LEIKLIST ÞORGEIR TRYGGVASON Tjarnarbíó Hríma Eftir Aldísi Davíðsdóttur, Ágústu Skúladóttur, Orra Hugin Ágústsson og Þóreyju Birgisdóttur. Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir og Orri Huginn Ágústsson. Tónlist: Sævar Helgi Jóhannsson. Grímugerð: Aldís Davíðsdóttir. Leikmynd: Auður Ösp Guðmundsdóttir og Högni Sigurþórs- son. Búningar: Auður Ösp Guðmunds- dóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Leikendur: Aldís Davíðsdóttir og Þórey Birgisdóttir. Frumsýnt í Tjarnarbíói sunnudaginn 16. október 2022. Fagna útgáfu Land- vættanna fjögurra Steinalda heldur útgáfu- tónleika í kvöld kl. 21 í Mengi vegna hljóm- plötunnar Landvættirnar fjórar sem kom út í gær en Steinalda er tónlistarhópur sem sérhæfir sig í tónsmíðum Guðmundar Steins Gunnarssonar. Leikin verða verk af nýju plötunni auk eldri og nýrri verka. Það er bandaríska útgáfan Carrier Records sem gefur plötuna út. Guðmundur Steinn Gunnarsson Staður sem er listamanninum kær Soffía Sæmundsdóttir mynd- listarmaður opnar í dag kl. 16 sýningunaUm stað/ About a Place í Grafíksalnum í Hafnar- húsi. Viðfangsefnið er staður á Suðurlandi sem er henni persónulega kær og hefur verið innblástur að ýmsum verkum gegnum tíðina. „Hvað er þar, kannski einhver óljós þráður? Glitofin perla upplifana og skynj- unar í fylgsnum hugans sem hún finnur þörf fyrir að koma frá sér í ýmsamiðla. Með því að kortleggja svæði minninga og færa í orð er dregin fram breytt landnotkun sem opnar á nýja nálgun. Skrá- setning lita og upplifana í gróðri og náttúrufari er ómarkviss en rétt. Niðurstaðan tilviljunum háð og alls ekki ígrunduð,“ segir í til- kynningu. Samhliða sýningunni gefur Soffía út bókverkið Sveitin mín – Leiðarvísir í 100 tölusettum og árituðum eintökum. Í Grafíksal Soffía Sæmundsdóttir. Bresk og íslensk tónverk á kórtónleikum Kór Hallgrímskirkju heldur hausttónleika sína á morgun, sunnudag, kl. 17. Mun kórinn flytja bresk tónverk eftir Britten, Howells, Carter ogMacmillan fyrir kór og orgel auk glænýrra íslenskra kórverka sem samin voru sérstaklega fyrir kórinn. Höfundar þeirra eru Hjálmar H. Ragnarsson, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Þorvaldur Örn Davíðsson og Sigurður Sævarsson. Stjórnandi kórsins er Steinar Logi Helgason og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel. Einsöngv- arar á tónleikunum eru úr röðum kórfélaga. Miðasala fer fram við innganginn og einnig á miðasöluvefnum tix.is. Miðaverð er 3.500 kr. Björn Steinar Sólbergsson Mattheus ungi í Grafarvogskirkju SýninginMattheus ungi verður sýnd í Grafarvogs- kirkju í dag, 29. október, kl. 16 og í Eldborgarsal Hörpu 5. nóvember kl. 15. Er hún eitt stærsta verkefni hátíðar- innar Óperudaga að þessu sinni og lýst sem leikrænni aðlögun sem unnin er upp úr upprunalega verkinu, þ.e. Mattheusarpassíu eftir J.S. Bach. Segir í tilkynningu að markmiðið sé að kynna verk- ið fyrir nýjum áheyrenda- hópum frá 8-9 ára aldri og leyfa þeim sem til þekkja að uppgötva verkið upp á nýtt. Texti passíunnar er tekinn úr 26. og 27. kapítula Mattheusarguðspjalls og ofinn við hugleiðingar um píslarsögu Jesú Krists eftir þýska skáldið Picander og þekkta lúterska sálma. ÍMattheusi unga flytja fimm einsöngvarar, þrír hljóðfæraleikarar, kór og kórstjóri brot úr passíunni um leið og söguþráðurinn og leikarar kynna verkið á aðgengilegan hátt. Leikgerðina gerði hollenski leikstjórinn Albert Hoex og íslenska þýð- ingu á henni þær Anna Vala Ólafsdóttir og Salka Guðmundsdóttir. Á Óperudögum Kynningarmynd fyrir Mattheus unga í Grafarvogskirkju.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.