Morgunblaðið - 01.11.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.11.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022 BEYONDAIR Bylting í loftgæðum með ActivePure Air® ;1 3(&2'.%4 %"$1 - *%)68(+:6,0+%#! 55/ 779 ;<1 Kíktu á beyondair.is • Vörn gegn ofnæmi og asma vegna mengunar í lofti. • Eykur framleiðni vegna heilnæmara og hreinna lofts í rýminu. • Vörn gegn sjúkdómum af völdum vírusa og baktería. • Færri veikindadagar hjá starfsfólki. • Hentar heimilum, fyrirtækjum og stofnunum. • Hannað fyrir Nasa og Alþjóða Geimvísindastöðina. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Tímalína verður að standast - Bæjarstjórinn í Hafnarfirði ánægður með áform Landsnets um færslu á línum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það eru mjög góðar fréttir að þeir hyggist setja Hamraneslínur í jörð á þessum hluta, gott fyrir okkur. Það liggur á að koma þeim frá vegna frekari uppbyggingar í þessum ný- byggingahverfum okkar,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Landsnet hefur tilkynnt að það muni fresta lagningu nýrra há- spennulína fjarri byggð á höfuðborg- arsvæðinu. Í staðinn verði ráðist í viðhald Hamraneslína og þær lagðar að hluta í jörðu. Þá verði Ísallínur færðar lengra frá atvinnusvæðinu. Einnig verði hluti af Suðurnesjalínu 1 lagður í jörð, næst tengivirkinu. Rósa segir að bærinn sé búinn að bíða í 13 ár eftir að þessar línur verði færðar endanlegum flutningi. Hamraneslína hafi verið flutt til bráðabirgða á kafla en núna verði hún flutt varanlega og sett í jörð að hluta. Það komi sér vel vegna áforma um frekari uppbyggingu í Hamra- nes- og Áslandshverfum. Einnig sé gott að ætlunin sé að færa Ísallín- urnar, þannig að þær verði fjær at- vinnusvæðinu á Hellnahrauni. Þar sé mikil eftirspurn eftir atvinnulóðum og hafi verið síðustu tvö til þrjú árin. Ekki sjái fyrir endann á því. Þarf að komast á áætlun Rósa segir að bærinn muni vinna að því að Ísallínurnar verði tengdar við nýtt tengivirki í Hrauntungu, í stað Hamraness. Það þurfi að kom- ast á áætlun hjá Landsneti. Skipti það miklu máli varðandi hljóðvist og ásýnd fyrir íbúa í nágrenninu og veg- farendur. „Við leggjum mikla áhersla á að tímalína Landsnets haldi varðandi færslu á línum í jörð og fjær byggðinni,“ segir Rósa. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hamranes Mikið er byggt í nýjum íbúðahverfum í Hafnarfirði. Þing Norður- landaráðs var sett í gær í Helsinki í 74. sinn. „Þingið er haldið í skugga stríðsins og því eru öryggis- og varnarmál mjög ofarlega á baugi hjá þingmönnum,“ segir Bryndís Haraldsdóttir, for- maður Íslandsdeildar Norðurlanda- ráðs, og bætir við að stríðið í Úkraínu liti eðlilega alla umræðu. Þar af leið- andi verði norrænt samstarf einnig mikið til umræðu, sérstaklega í ljósi væntanlegrar inngöngu Svía og Finna í Atlantshafsbandalagið. Bryndís nefnir einnig að orkumálin verði ofarlega á baugi. Innt eftir því hvað Ísland muni leggja til málanna á þinginu, er kem- ur að málefnum Úkraínu, segir Bryndís samstöðu með úkraínsku þjóðinni gríðarlega mikilvæga. „Það er ofboðslega mikilvægt að við styðj- um Úkraínu áfram. Við sjáum það núna að um leið og augu heimsins leiða okkur eitthvert annað, það ger- ist eitthvað annað í heiminum, þá notar Pútín tækifærið og sendir sprengjur yfir Úkraínu.“ Þinginu lýkur 3. nóvember, en verðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í kvöld. Samstaðan skiptir gríð- arlegu máli Bryndís Haraldsdóttir - Þing Norður- landaráðs hófst í gær Þrír jarðskjálftar urðu um þrjúleyt- ið síðdegis í gær með nokkurra mínútna millibili, en nokkuð hefur verið um jarðskjálfta undanfarna tvo sólarhringa. Kl. 14:56 mældist skjálfti í Bárð- arbungu sem var 2,7 að stærð. Inn- an við mínútu síðar skalf aftur, nán- ast á sama stað, og var sá 4,2 sam- kvæmt mælingum Veðurstofunnar. Fylgdu nokkrir eftirskjálftar í kjöl- farið. Þremur mínútum síðar, eða kl. 15:00, mældist svo þriðji skjálftinn, að þessu sinni við Herðubreið, og var hann 3,2 að stærð. Fjöldi minni skjálfta varð einnig í gær, bæði við Grímsey og á Reykja- nesskaga. Skjálftar við Herðu- breið og Bárðarbungu Hverasvæðið við Kleifarvatn, hjá Seltúni, er vin- sælt meðal ferðamanna. Skemmtilegir skuggar myndast þegar sólin er jafnlágt á lofti og hún er fyrstu vetrardagana. Vissara er að halda sig við útsýnispalla og göngustíga, enda stórhættulegt að stinga niður fæti við sjóðheita hverina. Hver er hver og hvers við hverinn? Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sjúkratryggingar Íslands hafa gert nýjan rammasamning um sál- fræðiþjónustu sjálfstætt starfandi sálfræðinga. Nýjung í samningnum er að við bætist þjónusta við ein- staklinga á öllum aldri vegna gruns um eða staðfestrar greiningar á vægum eða meðalalvarlegum kvíða eða þunglyndi. Í öllum tilvikum er þjónustan veitt á grundvelli tilvís- ana. Í tilkynningu segir að samning- urinn hafi verið uppfærður með það að leiðarljósi að auka aðgengi að sálfræðiþjónustu. Þá standa vonir til þess að fleiri sálfræðingar sjái sér fært að starfa samkvæmt nýjum samningi, þar sem viðmiðum um starfsreynslu hefur verið breytt. Áfram tekur samningurinn til þjónustu sem verið hefur samnings- bundin um árabil og tekur til sál- fræðimeðferða fyrir börn og ung- linga sem eru með alvarlegar geð-, hegðunar- og þroskaraskanir. Heil- brigðisráðherra hefur staðfest samninginn og hefur hann þegar tekið gildi. Auka aðgengi að sálfræðiþjónustu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.