Morgunblaðið - 01.11.2022, Page 8

Morgunblaðið - 01.11.2022, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022 Á andriki.is hefur á síðustu dögum verið gerður samanburður á árangri Íslands og Svíþjóðar í gegn- um kórónuveirufaraldurinn. Þar segir að komið sé á daginn að um- framdauðsföll í far- aldrinum hafi verið svipuð í þessum tveimur löndum þegar horft er frá árinu 2020 þegar faraldurinn hófst og til okkar tíma. Af þessum sökum gagnrýnir Andríki hve langt var geng- ið hér á landi þegar faraldurinn gekk yfir, að landinu hafi verið „nánast skellt í lás“, að ým- is borgaraleg réttindi hafi verið skert og fólk lokað inni á „veikum grunni hömlulausra fjöldaskimana“. - - - Sænsk yfirvöld hafi farið aðra og vægari leið og það hafi orðið til þess að áhrifin á skuldasöfnun hins opinbera hafi verið mun minni: „Í stuttu máli safnaði hið opinbera á Ís- landi sexfalt hærri skuldum en hið sænska í faraldrinum. Við skuldir Svía bættust 1,8% af vergri lands- framleiðslu en 10,9% prósentustig við sameiginlegar skuldir Íslendinga. Danir bættu við 3,1% og Finnar 6,2%.“ - - - Andríki segir skuldasöfnun Ís- lands í faraldrinum hina sömu hlutfallslega og meðaltal Evrópu- sambandsríkjanna 27. „Svíþjóð er með lágan umframdauða í saman- burði við flest ríki Evrópu og safnaði minni skuldum en öll nema eitt. Svíar beittu vægustu aðgerðum Evrópuríkja gegn veirunni,“ segir Andríki. - - - Þetta eru áhugaverðar ábend- ingar og hljóta að þurfa að vera meðal þess sem kemur til skoðunar við mat á því sem gert var en ekki síður til lærdóms fyrir næsta far- aldur. Árangur í faraldrinum STAKSTEINAR Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is Komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegri verslun Það skiptirmáli hvað ernæst húðinniog viðheldurraka hennar HÓTELREKSTUR OG HEIMILI Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Rjúpnaveiðitímabilið hefst í dag og stendur til 4. desember. Óvissa er um ástand rjúpnastofnsins og líklega er hann lélegur á NA-landi, að sögn Áka Ármanns Jónssonar formanns Skotvís. Hann segir að ástandið ætti að vera betra annars staðar en samt óvíst hvað hretið sem olli viðkomu- bresti hjá rjúpum á NA-landi náði víða. „Við hvetjum rjúpnaveiðimenn til að gæta hófs við veiðar, eins og alltaf, og að passa sig sérstaklega vel á Norðausturlandi,“ segir Áki. Ekki má veiða á miðvikudögum og fimmtudögum og segir Áki að ástandið verði orðið ljósara eftir næstu helgi þegar hann reiknar með að flestir fari til veiða. Fjöldi félags- manna í Skotvís hefur nær þrefald- ast á fjórum árum. „Það stefnir í að það rofi til og víð- ast hvar ætti að vera bjartviðri og góð fjallasýn,“ segir Einar Svein- björnsson veðurfræðingur um veðrið í dag. Úrkoma verður óvíða og mjög óveruleg og vindur hægur. Útlit var fyrir að fryst gæti til fjalla í nótt, einkum N- og NV-lands. Leyft er að veiða frá föstudegi til þriðjudags en veiðar bannaðar á miðvikudögum og fimmtudögum. Veiðitíminn hvern dag hefst kl. 12.00 á hádegi og stendur á meðan birtu nýtur. gudni@mbl.is Rjúpnaveiðitímabilið hefst í dag - Veiðimenn hvattir til að gæta hófs - Góðar veðurhorfur í dag á landinu Morgunblaðið/Ingó Rjúpnaveiði Veiðimenn eru hvattir til að gæta hófs við rjúpnaveiðarnar. Nýliðinn októbermánuður var hæg- viðrasamur á landinu en ekkert af- brigðilega samt, segir Trausti Jóns- son veðurfræðingur. Margir hafa eflaust haldið annað. Október í fyrra var ámóta og fyrir fimm árum var enn hægviðrasam- ara, bætir Trausti við. Á tíðarfars- yfirliti Veðurstofunnar má lesa að október 2017 var einkar hægviðra- samur. Vindhraði á landsvísu var 0,9 m/s undir meðallagi síðustu tíu ára á sjálfvirku stöðvunum. Sumarið er jafnan hægviðrasam- ast hér á landi og þar af er júlí hæg- viðrasamastur. „En það einkennir hins vegar október að þá er mjög farið að draga úr dægursveiflu vind- hraða. Þannig eru dagar þegar nán- ast er logn dag og nótt jafnvel al- gengari þá en að sumarlagi – þótt meðalvindhraði þeirra mánaða sé minni,“ segir Trausti. En október er oft illviðrasamur eins og dæmin sanna. Þótt mánuðurinn hafi ekki verið illviðralaus er tilfinningin samt sú að fremur vel hafi farið með veður lengst af – sérstaklega um landið sunnan- og vestanvert, en úrkoma norðanlands aftur á móti með allra mesta móti. Þetta kom fram á bloggi Trausta Jónssonar þegar hann gerði upp 20 fyrstu daga október. Það eigi ekki aðeins við Eyjafjörð, heldur einnig Húnavatnssýslur og Skagafjörð. Úrkoma í Reykjavík mældist 65,7 millimetrar fyrstu 20 daga október og er það í rétt rúmu meðallagi. Á Akureyri mældist úrkoman 138,1 millimetri. Hefur hún aldrei mælst jafnmikil sömu daga, meira en þre- föld meðalúrkoma, segir Trausti. sisi@mbl.is Hægviðrasamur október kveður - Metúrkoma mæld- ist á Akureyri fyrri hluta mánaðarins Morgunblaðið/Ásdís Í Slippnum Vel viðraði til útiverka í hinum hægviðrasama október.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.