Morgunblaðið - 01.11.2022, Side 11

Morgunblaðið - 01.11.2022, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022 allt að falla til jarðar. Þetta er líka sú nótt þar sem tjaldið á milli heima hinna lifandi og dauðu opnast. Það kemur glufa og inn stökkva verur sem búa í andaheimum og þess vegna klæðum við okkur upp, svo þær átti sig ekki á að erum ekki eins og þær og geri okkur fyrir vikið ekki mein.“ Hún segir að hátíðin marki jafn- framt hin fornu áramót Kelta sem bjuggu á Írlandi, Skotlandi og í Norð- ur-Frakklandi. „Þegar Keltar héldu áramót sín slökktu allir heimaeldana og komu að aðalbálinu og náðu sér í nýjan eld fyrir nýtt ár og nýja byrjun. Losuðu sig um leið við eitthvað and- legt og eitthvað veraldlegt á bálið.“ Og svo er það sjálft einkennismerki hrekkjavökunnar, graskerið. Það á sér langa sögu. „Lugtar-Jakob var ill- ur járnsmiður á Írlandi. Hann hafði gert samkomulag við djöfulinn um að djöfullinn tæki ekki við sér þegar hann dæi. Þegar Jakob dó ákveður hann að arka upp í himnaríki en guð vildi ekki sjá hann. Því bankaði hann upp á hjá djöflinum sem stóð við lof- orð sitt og neitaði að taka við honum. Í kveðjuskyni henti hann logandi kolamola í Jakob. Fyrir einhverja slysni var Jakob með rófu á sér og skar út úr henni lugt sem hann setti kolamolann ofan í. Síðan hefur hann alla tíð arkað um jörðina með lugtina sína,“ segir Björk. Þessi siður hefur fylgt mörgum síð- an. „Írar skáru alltaf út í rófur og settu á dyraþrepið sitt svo hinir illu andar kæmu ekki. Þegar hungurs- neyðin gekk yfir Írland og þeir fóru til Bandaríkjanna rákust þeir á gras- kerin sem auðveldara var að skera út. Við höfum nú verið að ýta undir að fólk hér á Íslandi noti rófurnar sem vaxa hér. Það er upprunalega græn- metið sem skorið var út í,“ segir Björk sem meðal annars starfar á Árbæjarsafni. Þar var mikil hrekkja- vökuhátíð í gær og þar voru vitaskuld eingöngu notaðar rófur. Hrekkjavakan nýtur orðið mikilla vinsælda hér á landi og það fer vart fram hjá mörgum þegar fer að líða að hátíðahöldunum. Verslanir auglýsa grasker og ýmsar skreytingar auk sælgætis. Biðraðir eru í búninga- verslunum. Það er þó ekki langt síðan hátíðin ruddi sér til rúms á Íslandi. „Hrekkjavakan kemur líklega hing- að á níunda áratugnum í gegnum stúdenta í enskudeild Háskóla Ís- lands. Hátíðin hefur mögulega verið aðeins fyrr að skjóta rótum í Njarðvík og Keflavík af því Kaninn var á vell- inum. Svo verður sprenging fyrir um 15 árum. Búningabúðir taka þátt í þessu, bakaríin, Krónan, söfnin og öll litlu samfélögin um allt land. Nú er þetta skipulagt á netinu, hvert fólk getur farið og beðið um grikk eða gott. Hluti af þessari hátíð er kaupæðið, því miður. Það kemur frá Bandaríkj- unum. Við reynum hins vegar að hvetja fólk til að taka ekki þátt í því, frekar lesa þjóðsögurnar okkar og búa sér sjálft til búninga sem tengjast okkur. Við eigum Djáknann á Myrká, Miklabæjar-Solveigu, við eigum skottur sem eru með húfuna öfugt á hausnum, íslensku mórana sem eru í alltof síðum mórauðum ullarpeysum með ermarnar langt niður á hné og barðastóra hatta með ljót andlit og grimm, við eigum drauga með rauð augu og margt fleira. Við þurfum ekkert fleira. Heimagerðir búningar eru flottastir.“ Nammi, börn og hryllingur - Hrekkjavökuhátíðin nýtur sívaxandi vinsælda hér á landi - Hátíðin snýst um fleira en sælgæti, grasker og skreytingar að sögn þjóðfræðings því ræturnar eru fornar - Nota rófur í stað graskera Morgunblaðið/Árni Sæberg Hátíðarhöld Hrekkjavökunni var fagnað á Árbæjarsafni í gær. Þar voru útskornar rófur í stað graskerja. Stemning Björk Bjarnadóttir þjóðfræðingur við störf á Árbæjarsafni í gær. „Aðgengi fyrir alla er ekki aðeins mannréttindi. Það er einnig við- skiptatækifæri fyrir áfangastaði og fyrirtæki að geta tekið vel á móti öll- um gestum,“ segir Elías Bj. Gísla- son, forstöðumaður hjá Ferðamála- stofu. Síðastliðinn föstudag var ýtt úr vör nýju fræðslu- og hvatningar- verkefni, Gott aðgengi í ferðaþjón- ustu. Því er ætlað að hjálpa ferða- þjónustuaðilum að taka á móti fötluðum einstaklingum á öruggan og ábyrgan hátt, þannig að þjónust- an sé í sem bestu samræmi við þarfir þessa stóra markhóps. Þau fyrirtæki sem telja sig uppfylla settar kröfur um aðgengismál verða auðkennd sérstaklega í gagnagrunni Ferða- málastofu. Til að byrja með eru í boði þrjú mismunandi merki; eitt sem táknar aðgengi fyrir fatlaða (hreyfi- hamlaða), annað fyrir sjónskerta og blinda og það þriðja fyrir heyrnar- skerta og heyrnarlausa. Birting merkjanna, t.d. á vef fyrir- tækisins, er yfirlýsing eða loforð til viðskiptavina um að aðgengi fyrir fatlaða sé fullnægjandi hjá fyrir- tækinu. Ljósmynd/Bjarney Lúðvíksdóttir Ferðalög Bæta á aðgengi fyrir fatlaða ferðamenn um allt land á næstunni. Sérstök merki sem staðfesta aðgengi - Úrbætur fyrir fatlaða ferðamenn Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Túnikur • Kjólar • Pils Töskur • Hanskar • Húfur Náttsloppar • Náttkjólar Vinsælu velúrgallarnir í haust litunum komnir í verslunina Stærð XS - 4XL Stakar velúrbuxur svartar, bláar og gráar Ný sending SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég segi bara eins og vinur minn, Jón Jónsson þjóðfræðingur norður á Ströndum, segir: „Því fleiri hátíðir, því meira fjör!“ Hrekkjavakan er stórmerkileg hátíð og það besta er að hún er fyrir alla,“ segir Björk Bjarna- dóttir, umhverfis- og þjóðfræðingur. Björk hefur kynnt sér vel sögu hrekkjavökunnar sem haldin var há- tíðleg víða um land í gær. Sums stað- ar var reyndar tekið forskot á sæluna í síðustu viku og um helgina en víðast hvar klæddu börn sig í grímubúninga síðdegis í gær og gengu milli húsa. Þar báðu þau um grikk eða gott og margir komu klyfjaðir heim af sæl- gæti. Hrekkjavakan er þó meira en bara sælgætishátíð, graskersluktir og skreytingar að sögn Bjarkar. „Ræturnar eru afar fornar og margslungnar. Það er alveg skiljan- legt að fólk fussi yfir þessum amer- íska sið og ýti honum út af borðinu. Ég gerði það sjálf og hafði engan áhuga á þessari hátíð fyrr en ég kynnti mér hana vegna fyrirlesturs sem ég flutti 2018. Þá kemur í ljós að þetta er stórmerkileg hátíð sem þjóð- fræðingar og sagnfræðingar eru ný- farnir að skoða.“ Björk segir að ástæðan fyrir vin- sældum og útbreiðslu hrekkjavök- unnar sé margþætt en aðallega beri þó að horfa til þess að allir geti tekið þátt í henni. Sama hvaða trúarbrögð fólk aðhyllist, af hvaða kyni það er eða hvaðan það kemur. „Hátíðin tengist uppskerunni, myrkrinu, haustinu, dauðanum og endurnýjun. En hún snýst um að skemmta sér og þess vegna er þetta svona vinsælt hjá börnum. Þegar kemur saman nammi, börn og hryllingur þá verður spreng- ing.“ Björk rekur að einkennislitir hrekkjavökunnar séu appelsínugulur og svartur, haustið og myrkrið. „Þau eru að takast á og nú erum við að fara aftur inn í myrkrið. Við erum búin að taka inn uppskeruna okkar og það er

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.