Morgunblaðið - 01.11.2022, Page 24

Morgunblaðið - 01.11.2022, Page 24
DÆGRADVÖL24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022 vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum hafðu það notalegt Unnur Anna Halldórsdóttir, djákni og leikskólakennari – 80 ára Kristin gildi og mannúð U nnur Anna Hall- dórsdóttir fæddist 1. nóvember 1942 í Þing- holtunum í Reykjavík í miðri heimsstyrj- öldinni, langyngst 5 systkina. „Það hefur oft verið þungt að framfleyta stóru heimili með umtalsverðum gestagangi og stopulli vinnu. Því fann ég aldrei fyrir og naut alúðar og ástríkis í hvívetna. Sumrin voru löng og hlý í minn- ingunni, það voru nokkuð mörg börn í hverfinu og næsti róluvöllur var Freyjugöturóló. Þangað var aðeins of langt að jafnaði. Það voru því malargöturnar, stígarn- ir og sundin sem voru leiksvæði krakkanna. Það voru afar fáir bílar á ferð, góðar girðingar að klifra yfir og fljótgert að safna í hóp til að fara í brennó, hlaupa sto og fleira þannig háttar. Eini gallinn var þegar rauða- mölin var borin á götuna, það var svo skelfilega vont að detta í hana.“ Á barnsaldri kynntist Unnur starfsemi K.F.U.K. m.a. í gegnum sumardvalir í Vindáshlíð. „Í þessu umhverfi naut ég líka félagslífs ung- lingsáranna. Það var bæði gefandi og þroskandi félagsskapur.“ Skólaganga Unnar byrjaði í Ísaksskóla og síðar í Miðbæjarskól- anum. Hún hóf svo nám í Gaggó Aust árið 1957. „Þegar því lauk þótti sjálfsagt að verða sér úti um menntun til þess starfs, sem maður vildi leggja stund á til framtíðar. Þar var Fóstruskóli Sumargjafar fyrir valinu, sem þá var til húsa þar sem ég byrjaði í skóla, þ.e.a.s. í Grænuborg sem þá var á núverandi lóð Landspítalans. Þar kynntist ég skemmtilegum konum og naut góðs og gagnlegs náms undir styrkri stjórn Valborgar Sigurðardóttur.“ Strax að loknu námi í Fóstruskól- anum veitti Unnur forstöðu barna- heimili Ríkisspítalanna á Kleppi. Eftir nokkra veru þar fór Unnur til náms við Samariterhemmet í Upp- sölum í Svíþjóð í í djáknafræðum. „Ég vildi gjarna bæta við þekk- ingu mína, þar sem kristin gildi og mannúð voru höfð í hávegum, þar sem mér finnst þau skipta megin- máli í samskiptum manna á milli og í uppeldi og daglegri umgengni við börn. Það var einkar gefandi og dýrmætur tími. Að því loknu tók við starf í Þjóðkirkjunni þar sem ég hef síðan átt margar innihaldsríkar og ánægjulegar stundir með góðu fólki.“ Unnur vígðist til starfa hjá Hallgrímssöfnuði og Æskulýðs- starfi kirkjunnar fyrsta sunnudag í aðventu árið 1965. Hallgrímskirkja var þá í byggingu og töluvert af börnum í sókninni sem sóttu vel barna- og unglingastarfið sem þar fór fram í hálfkláruðu húsnæði. Sumarbúðastarf Æskulýðsstarfs- ins, sem Unnur undirbjó, skipulagði og starfaði við, stóð á þessum árum í miklum blóma og var rekið á sjö stöðum sumarlangt. Árið 1969 gekk Unnur í hjóna- band með Tómasi Sveinssyni, sem þá var prestur á Norðfirði og flutt- ist hún þangað og kynntist þá fyrst búsetu utan höfuðborgarinnar. „Það var afar lærdómsríkt, jók skilning á mismunandi högum og þörfum fólks sem öllum er hollt.“ Árið 1971 fluttu þau hjónin í Skagafjörðinn á Sauðárkrók. „Á Króknum var líka lærdómsríkt og skemmtilegt að búa en á allt annan hátt en fyrir austan. Við erum svo rík að eiga svona mis- munandi byggðir í landinu okkar þar sem við erum þó eitt. Deilum því með okkur og öðrum.“ Til Reykjavíkur fluttu hjónin árið 1976, þegar Tómas tók við prests- embætti í Háteigssókn. Þá fékk Unnur tækifæri til að taka öðruvísi þátt í fjölbreyttu starfi kirkjunnar. Hún var formaður Djáknanefndar kirkjunnar sem undirbjó nám í djáknafræðum fyrir þá sem starfa vilja í Þjóðkirkjunni. Í nefndinni voru einnig þau dr. Einar Sigur- björnsson, prófessor og Ragnheiður Sverrisdóttir djákni. Valdist Unnur síðar til formanns í Djáknafélagi Íslands, sat í stjórn hjúkrunarheim- ilisins Skjóls og um árabil í Æsku- lýðsnefnd kirkjunnar. „Við Háteigskirkju starfaði öflugt kvenfélag sem bar umhyggju fyrir kirkjunni og lagði margar góðar gjafir til byggingarinnar, t.d. kór- myndina eftir Benedikt Gunnarsson listmálara, sem er mikil prýði í kirkjunni. Einnig lagði félagið vel til góðra verka úti í samfélaginu. Þar lögðu margar frábærar konur hug og hönd að verki.“ Unnur var formaður Kvenfélags Háteigssókn- ar árin 1981-1997. „Árið 1991 var mikil vöntun á samastað fyrir 6-9 ára börn eftir eða fyrir skóla, enda stóð frístunda- starf í tengslum við skólann ekki til boða á þeim tíma. Háteigskirkja brást við því með því að opna skjól fyrir þau börn í sókninni sem þurftu.“ Það var rekið til ársins 1995 að frumkvæði og undir stjórn Unnar. Eftir það starfaði hún við Hlíðaskóla og síðustu árin fyrir starfslok á leikskólanum Sólborg. „Það var yndislegur vinnustaður. Svo kemur eftirlaunaaldurinn, það er góður aldur, þegar heilsan er góð og maður fær að vera með sínu kærasta fólki. Ég þakka Guði fyrir góða ævidaga, gott samferðafólk og umhyggjusama fjölskyldu.“ Fjölskylda Eiginmaður Unnar er Tómas Sveinsson f. 18.8. 1943, fyrrverandi sóknarprestur. Þau eru búsett í 105, Reykjavík. Foreldrar Tómasar voru hjónin Sveinn Jónsson, f. 10.7. 1899, Stórfjölskyldan Frisbímót haldið í Laugardalnum. Allir mættir nema dótturdóttirin Unnur Balaka. DjákninnUnnur Anna. Til hamingju með daginn Stjörnuspá Ólafur Þór Jóelsson 50 ÁRA Ólafur Þór ólst upp mestan part á tveimur stöðum, fyrst í Breiðholtinu og svo frá 11 ára aldri í Garðabæ, en hann á ættir sínar að rekja til Akranes og Hafnarfjarðar. „Ég er ótrúlega þakklátur að hafa fengið að alast upp á þessum tveimur stöðum, en fólk- ið sem ég kynntist þar og ég ólst upp með, á mikinn þátt í hvernig ég mótaðist og er í dag. Ég gekk í Ölduselsskóla og Seljaskóla í Breiðholtinu og fór svo yfir í Flataskóla og Garðaskóla þegar ég flutti í Garðabæinn. Árið 1992 útskrifaðist ég svo úr Verzló.” Ólafur er framkvæmdastjóri heildsölu- sviðs hjá Senu, en hann hefur unnið hjá fyr- irtækinu frá árinu 1995, en auk starfa sinna þar hefur hann haldið utan um tölvuleikjamiðilinn GameTíví sem hann stofnaði árið 1999. „Ég byrjaði að vinna hjá Senu sama dag og PlayStation 1 kom út og var það mitt fyrsta verkefni að koma henni á markað. Hjá Senu hef ég fengið ótal mörg tækifæri til að reyna mig við fjölmarga hluti og er ég þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt þar. Auk starfa minna á heildsölusviði fékk ég tækifæri á að koma að rekstri Smárabíós og upp- byggingu á skemmtisvæðinu þar. Mitt aðalstarf í gegnum tíðina hefur þó alltaf verið að að sjá um PlayStation á Íslandi og er ég þar núna á fimmtu kynslóð leikjatölvunnar. Annað verkefni sem ég er einstaklega stoltur af er GameTíví-verkefnið sem hefur tekið mikið stökk síðustu tvö ár og er í raun orðið að streymis- sjónvarpsstöð með dagskrá flesta daga vikunnar og fimm mismunandi viku- lega þætti. Ég er einstaklega heppinn að fá að vinna þar með stórum hópi hæfileikaríks fólks sem leggur sig 100% fram og hefur kennt mér margt.” Spurður út í áhugamál þá segist Ólafur vera mikill Tottenham maður og fylgist stíft með sínu liði hvenær sem tækifæri gefst til, auk þess spilar hann golf og tölvuleiki af miklum móð. FJÖLSKYLDA Eiginkona Ólafs er Margrét Sif Hákonardóttir, f. 1968. Börn þeirra eru Friðrik Þór, f. 2001, Jón Hákon, f. 2001 og Thelma Hlíf, f. 1995. Foreldrar Ólafs eru Þóra Ólafsdóttir, f. 1951, d. 2019, og Jóel Friðrik Jónsson, f. 1952. 21. mars – 19. apríl A Hrútur Einhver gæti sakað þig um eigingirni og sjálfselsku í dag. Láttu þér ekki bregða þótt gamall vinur verði þér til einhverra leiðinda. 20. apríl – 20. maí B Naut Nú er komið að því að þú fram- kvæmir það sem þú hefur lengi látið þig dreyma um. Ef þú leitar svara þarftu að fara á réttar slóðir til að fá svör. 21. maí – 20. júní C Tvíburar Það er ekki þitt hlutverk að hafa alla ánægða og þú átt að hrista af þér kröfur um slíkt. Maður getur látið drauma sína rætast – ef maður á sér drauma. 21. júní – 22. júlí D Krabbi Þú hefur sæst við hlutina sem þú ræður ekkert við. Vertu opinn fyrir tillög- um um hvernig þú getur kyrrt hugann og aukið samúð með náunganum. 23. júlí – 22. ágúst E Ljón Það er létt yfir þér og þig langar til að leika þér og stríða fólkinu í kringum þig. Þér kann að þykja framkoma einhverra vinnufélaga skrýtin. 23. ágúst – 22. september F Meyja Þér getur orðið vel ágengt við vinnu í dag þar sem aðrir sýna þér skilning og stuðning. Vertu glaðbeittur því þú hefur byrinn með þér. 23. september – 22. október G Vog Þú átt í innri baráttu og veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga. Gakktu úr skugga um að þú sért að tala um sömu hlutina og viðmælendur þínir. 23. október – 21. nóvember H Sporðdreki Ákveðni þín í að leiða hlutina til lykta vekur athygli yfirmanna þinna og þú munt hljóta umbun erfiðis þíns. Vertu lítillátur, ljúfur og kátur. 22. nóvember – 21. desember I Bogmaður Þú þarft að gefa þér betri tíma til að sinna þeim hlutum sem raunveru- lega skipta máli. Allt annað mun hafa neikvæð áhrif á stöðu þína. 22. desember – 19. janúar J Steingeit Ómöguleg vandamál leysast þegar þú leitar til vina eða eignast nýja. Hlustaðu á góðar ábendingar um viðskipti. 20. janúar – 18. Febrúar K Vatnsberi Óraunsæi svífur yfir vötnunum í dag. Bráðlætið kemur þér ekkert fyrr á leiðarenda, þú getur alveg eins hallað þér aftur og notið útsýnisins. 19. febrúar – 20. mars L Fiskar Þig langar til að kaupa þér einhvern munað í dag eða til að láta fé af hendi rakna til einhvers sem biður þig um aðstoð. Vertu á varðbergi, en gefðu öllu sinn séns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.