Morgunblaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022 d. 27.5. 1980, verkstjóri hjá Vita- og hafnarmálastofnun, bjó lengst í Kópavogi og Jónasína Tómasdóttir, f. 5.6. 1913, d. 20.10. 1994, húsfreyja, bjó lengst í Reykjavík. Þau skildu. Börn Unnar og Tómasar eru 1) Kristín Þórunn Tómasdóttir, f. 16.11. 1970, prestur á Egilsstöðum, maki: Árni Svanur Daníelsson, framkvæmdastjóri upplýsingasviðs Lúterska Heimssambandsins; 2) Dagný Halla Tómasdóttir, f. 23.3. 1972, skrifstofustjóri með- ferðarsviðs Landspítalans, búsett í Reykjavík, maki: Gunnar Páll Jónsson, deildarstjóri Coripharma; 3) Sveinn Bjarki Tómasson, f. 19.11. 1975, kennari/verkefnastjóri í Melaskóla, búsettur í Reykjavík, maki: Unnur Helgadóttir hár- greiðslumeistari; 4) Gunnfríður Katrín Tómasdóttir, f. 15.11. 1983, fræðslufulltrúi Múlaprófastsdæm- is, búsett á Egilsstöðum, maki: Ólafur Bjartmar Jónsson, vélstjóri hjá Eimskip; 5) Jóhannes Þorkell Tómasson, f. 5.2. 1986, tölvunar- fræðingur hjá Advania, búsettur í Reykjavík. Barnabörnin eru 12. Systkini Unnar voru 1) Þorleif Kristín Halldórsdóttir, f. 1.2. 1924, d. 14.10. 2002, húsfreyja í Reykjavík; 2) Jón Kristinn Halldórsson, f. 9.12. 1925, d. 9.7. 1978, vélstjóri í Hafnar- firði; 3) Sigríður Finna Auður Halldórsdóttir, f. 5.11. 1927, d. 6.3. 2021, kennari og framkvæmdastjóri í Reykjavík; 4) Halldór Geir Hall- dórsson, f. 28.7. 1929, d. 30.8. 2017, raf- og bifvélavirki í Reykjavík. Foreldrar Unnar voru hjónin Kristólína Þorleifsdóttir, f. 12.9. 1898, d. 21.3. 1962, húsfreyja í Reykjavík, og Halldór Bjarni Sig- urðsson, f. 27.8. 1893, d. 30.11. 1981, beykir í Reykjavík. Unnur Anna Halldórsdóttir Styrgerður Gunnarsdóttir ráðskona í Kvíarholti Friðfinnur Friðfinnsson bóndi í Kvíarholti í Holtum Friðgerður Friðfinnsdóttir húsfreyja á Þverlæk Þorleifur Kristinn Oddsson bóndi á Þverlæk í Holtum, Rang. Kristólína Þorleifsdóttir húsfreyja í Reykjavík Kristín Eyjólfsdóttir húsfreyja í Hvammi Oddur Guðmundsson bóndi í Hvammi í Holtum Elín Gottskálksdóttir húsfreyja á Völlum 2 Friðbjörn Þorláksson bóndi á Völlum 2 í Saurbæjarsókn,Eyjafjarðarsveit Friðfinna Friðbjarnardóttir húsfreyja á Pétursborg Sigurður Jónsson bóndi og sjómaður á Pétursborg í Kræklingahlíð, Eyjafirði Björg Þorgeirsdóttir húsfreyja á Pétursborg Jón Halldórsson bóndi á Hofi II í Svarfaðardal Ætt Unnar Önnu Halldórsdóttur Halldór Bjarni Sigurðsson beykir í Reykjavík Vísnahorn Úr fórum Þórðar í Skógum Ég var að blaða í gömlum pappírum og fann þá bréf frá Þórði heitnum Tómassyni í Skógum, dagsett 22. ágúst 2021. Mér finnst það eiga erindi í Vísnahorn. Þar segir: „Þau kvöddu dyra hjá mér hjónin á Fáskrúðarbakka vestra, Björn Konráðsson og Sigurlaug Brynjólfsdóttir, og báðu mig að geta sín. Björn var bróð- ursonur Gísla Konráðssonar sagnaritara, stórvel gefinn og skáldmæltur. Sama máli gegndi um Sigurlaugu. Hún var at- kvæðakona til munns og handa. Sr. Árni Þórarinsson hefur uppi alþekkta vísu Björns. Bóndi hafði úthýst þungaðri stúlku, svo að af hlaust, að hún varð að ala barn sitt milli bæja (Hjá vondu fólki bls. 115). Björn kvað þá til bóndans: Orðið laka: að úthýsa, er á baki þínu. En aldrei rak ég aumingja undan þaki mínu. Björn bjó við fátækt og var á köflum bitur og bölsýnn. Í heimanbúnaði komst hann eitt sinn svo að orði: Ef ég dauður félli frá í ferða nauða svakki mikill auður yrði þá á þér, snauði Bakki. Sigurlaug var nærstödd, svaraði að bragði og geri aðrir betur: Vertu í tali viðfelldinn, víl það eykur trega. Böl þótt ali bágindin berðu ei kala tilsvörin.“ Niðurlag bréfs Þórðar bíður næsta Vísnahorns. Sturla Friðriksson sótti á brattann í Eistlandi í sept. 2002: Með víkingum suður ég sendur var og síðan austur um lendurnar. Og er hélt ég á brattann upp brekku-skrattann þá beit ég í skjaldarrendurnar. „Ærin þörf“ heitir þessi limra eftir Davíð Hjálmar Haralds- son: Hún Malín þarf mikið að tala um menntun og útgerð og Scala og vorfrost og hest og Viðfjörð og prest en veit ekki rassgat í bala. Anna S. Snorradóttir yrkir um „matarkúr“: Ég bið yður barasta um eitt: að borða aldrei neitt sem er feitt. Þá línurnar endast og endast og endast og á endanum verða’ ekki neitt. „VIÐ VITUM MEIRA ÞEGAR VIÐ FÁUM RISA- STÓRA BLAÐIÐ MEÐ NIÐURSTÖÐUNUM FRÁ ÖRSMÁU RANNSÓKNARSTOFUNNI.“ „EKKI ÞINN TÓNLISTARSMEKKUR?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá hana til að skellihlæja. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Æ, Æ! ÞAÐ FLAUG FUGL Á RÚÐUNA! GREYIÐ LITLA ÉG SKAL FARA OG HUGA AÐ HONUM EIGUM VIÐ FRAM- LENGINGAR- SNÚRU? SKILAÐU BLAND- ARANUM ÉG HATA ÞESSAR HUNDLEIÐINLEGU FJÁRÖFLUNAR- SAMKOMUR! HÆTTU ÞESSU KVARTI! REYNDU AÐ FINNA EITTHVAÐ JÁKVÆTT VIÐ ÞETTA! ÞETTA LASAGNA ER BETRA EN ÞITT! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.