Morgunblaðið - 15.11.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.11.2022, Blaðsíða 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Stórverkefni í samgöngumálum austur við Hornafjörð er komið í startholurnar Trukkar og tæki eru nú komin á svæðið Námutrukkar, hjólaskóflur, jarðýtur og fleiri tæki voru í flutningaskipinu Hvítanesi sem kom til Hafnar í Hornafirði fyrir helgina. Þetta eru vélar sem Ístak hf. hefur tekið á leigu frá Noregi og verða notaðar til vegagerðar við Hornafjörð. Þær framkvæmd- ir eru nú að hefjast, það er að leggja vegi sem verða alls 25 kílómetrar auk þess sem byggja þarf fjórar býr. Sú lengsta er yfir Hornafjarðarfljót og verður alls 250 m löng. Með framkvæmdum þessum styttist hringvegurinn um 12 kílómetra. Fulltrúar Vegagerðar og Ístaks undirrituðu samninga í júní síðastliðnum um byggingu og fjármögnun í samvinnuverkefni. Þannig annast einkaaðili fjár- mögnun framkvæmda við mann- virki sem vegfarendur greiða fyrir afnotin á. Undirverktakar Ístaks hófust handa fyrir nokkru við að leggja framkvæmdavegi að verkstað við Hornafjarðarfljót. Þar á þurru verður ný brú reist en þegar hún er fullbúin verður farveg- ur fljótsins færður að. „Þetta er ofboðslegt vatnsfall og þeim aðstæðum þurfum þurfum við að aðlagast og vinna samkvæmt,“ segir Guðmundur Sigurðsson, verkefnissstjóri hjá Ístaki, í sam- tali við Morgunblaðið. Þessa dagana er Ístak að láta reisa vinnubúðir við Horna- fjarðarfljót, en stóran hóp verk- og tækjamanna þarf í verkefni sem þetta. Áætluð verklok eru eftir þrjú ár, undir lok ársins 2025. Þá er nú verið að færa vinnuvélarnar sem komu að utan, auk fleiri tækja, á svæðið og fram- kvæmdir fara því á fullt á allra næstu dögum. sbs@mbl.is Ljósmynd/Sverrir Aðalsteinsson sem innheimt er í mörgum Evrópuríkjum. Lilja telur að rétt sé að sækja frekari tekjur til erlendra streymisveitna en nú þegar eru erlend fyrirtæki, sem selja raf- ræna þjónustu, fjarskiptaþjónustu eða útvarps- og sjónvarpsþjónustu til neytenda hér á landi, skyldug til þess að innheimta og standa skil á virðis- aukaskatti á Íslandi. Fjölmargir Íslendingar greiða fyrir notkun á erlendum streymis- veitum á borð við Netflix, Disney, Hulu, Amazon Prime og HBO Max. Fyrr á árinu kom til að mynda fram að 78% Íslendinga væru með áskrift að Netflix. Upplýsingar um það hversu hátt framlag streymisveitur greiða í formi virðisaukaskatts hér á landi eru ekki tiltækar. Í svari frá fjármálaráðuneytinu við fyrirspurn Morgunblaðsins kemur fram að ekki liggi fyrir „upplýsingar um sundurliðun á veltu erlendra aðila sem selja rafræna þjónustu til landsins þar sem um þá veltu gildir hið sama og um aðra VSK-skylda veltu, að ekki er krafist upplýsinga á skilagrein um hvaða tegund þjón- ustu er að baki veltunni“. Hins vegar liggja fyrir upplýs- ingar um heildartekjur ríkissjóðs í formi VSK vegna sölu erlendra fyrirtækja á rafrænni þjónustu til landsins. „Þær námu 11,4 mö.kr. á tímabilinu 2011-2021 og er búist við að tekjurnar á árinu 2022 verði á bilinu 3-4 ma.kr.,“ segir í svari fjár- málaráðuneytisins en þar er jafn- framt tekið fram að ekki sé hægt að slá því föstu að tekjurnar séu alfarið tilkomnar vegna kaupa heimila og annarra aðila utan VSK-kerfisins á rafrænni þjónustu að utan. Óhætt virðist þó að fullyrða að VSK-tekjur af streymisveitum séu að aukast miðað við áðurnefndar tölur. Lilja segir að hún ætli að funda með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra á næstu dög- um um hugmyndir sínar um að innheimta menningarframlag af streymisveitum. „Það er að mínu viti komið að ögurstundu hjá fjölmiðlunum og það væri skynsamlegt að sækja pen- inga til streymisveitna sem yrði svo beint til íslenskra fjölmiðla sem er ritstýrt,“ segir ráðherra sem kveðst horfa á tölur um það hversu margir starfi í þeim atvinnugreinum sem heyri undir ráðuneyti hennar. Út- litið sé gott í öllum greinum nema fjölmiðlum þar sem starfsfólki fækki óðum. „Kannski ættu þær VSK-tekjur sem við höfum nú af streymisveit- um að renna beint til fjölmiðla hér.“ AFP/Chris Delmas Tekjur Íslendingar greiða háar fjár- hæðir til erlendra streymisveitna. Greiðslur streymisveitna renni til fjölmiðla lVísbendingar um hærri VSK-greiðslur erlendra streymisveitnal3-4 milljarðar í tekjur af raf- rænni þjónustulLilja Alfreðsdóttir viðrar hugmyndir um að féð verði nýtt til að styrkja fjölmiðla „Fjölmiðlar þurfa að huga að sínum tekjustofnum því ástandið í dag er ekki boðlegt. Við fáum VSK-tekjur frá streymisveitum en það er ekki nóg. Ég tel að það sé að koma að öðrum krísutíma hjá íslenskum fjölmiðlum,“ segir Lilja Alfreðsdótt- ir menningar- og viðskiptaráðherra sem vill nýta VSK-greiðslur frá erlendum streymisveitum til að styðja við íslenska fjölmiðla auk þess sem hugmyndir eru á lofti um að innheimt verði frekari gjöld af veitunum. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu lagði Lilja nýverið fram minnisblað á fundi ríkisstjórnar- innar um svokallað menningar- framlag erlendra streymisveitna Lilja Alfreðsdóttir Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Förumofan í saumanaáþessu“ lFjallar um ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherralSegir að betra hefði verið að skipa nefnd strax í upphafilLjóst að það eru annmarkar á framkvæmdinni Ríkisendurskoðun kynnti niðurstöður skýrslu um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka fyrir stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis síðdegis í gær. Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður nefndarinnar segir að kynningin hafi verið vönduð og góð og vandlega hafi verið farið yfir skýrsluna. Þó sé enn mörgum spurningum ósvarað. „Það er þannig að í stjórnsýsluúttekt sem þessari er Ríkisendurskoðun – eðli málsins samkvæmt – ekki að skoða allar hliðar málsins. Þó að það sé verið að rýna fylgni við lög og það hvernig tókst að afla ríkinu tekna verður ekki hjá því litið að við þurfum einnig að fjalla um ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra á þessu ferli, lögum samkvæmt. Spyrja spurninga um það,“ segir hún og bætir við að Bjarni Benediktsson ráðherra verði kallaður fyrir nefndina á næstunni, ásamt öðrum sem skýrslan fjallar um. Nánar er fjallað um innihald skýrslunnar á blaðsíðu 12 í Morgun- blaði dagsins. „Nú hefst umfjöllun nefndarinnar um skýrsluna, við köllum til okkar fleiri gesti og förum ofan í saum- ana á þessumáli öllu,“ segir Þórunn en nefndinmun aftur funda í fyrramálið. Hún segir koma til greina að rannsóknarnefnd Alþingis verði sett á fót. „Ég vil þó gjarnan að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sinni starfi sínu og svo verði farið yfir þá stöðu. Ég verð að viðurkenna að við fyrstu sýn finnst mér ýmislegt benda til þess að það hefði verið betra að taka þá ákvörðun strax í upphafi að skipa rannsóknarnefnd með öllum þeim heimildum sem hún hefur.“ Bratt að draga þá ályktun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það hafa komið sér á óvart hversu fljótt sé kallað eft- ir að sett verði á fót rannsóknarnefnd, þar sem skýrslan var einungis birt í gær. „Mér finnst allt of bratt að draga þá ályktun að þarna sé mörgum spurningum ósvarað. Ég held að það þurfi að fara yfir þetta en fyrir mér er þessi skýrsla ansi vönd- uð, enda hefur hún tekið sinn tíma,“ segir hún og bætir við að það liggi fyrir að einhverjum spurn- ingum sé enn ósvarað sem séu til skoðunar hjá Seðlabankanum. Katrín segir skýrsluna vandaða og svaramjögmörgum spurningum sem komu upp við meðferð málsins í vor. „Það er alveg ljóst að mati Ríkisendurskoðunar að það eru annmarkar á framkvæmdinni,“ segir hún og bætir við að það sé þörf á að fara ofan í saumana á þeim annmörkum. „Það er farið hér yfir upplýsingagjöfina sem hefði getað verið skýrari. Þó að einhverjar upplýsingar hefðu legið fyrir þá virðist sem umræðan hafi ekki verið nægjanleg í aðdraganda til þess að kafa betur ofan í þessa tilboðsaðferð.“ Ekki áfellisdómur Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráð- herra segir að heilt yfir sé skýrslan ekki áfellisdóm- ur yfir sölunni. „Ég horfi á heildarsamhengið og sé ekki betur en skýrslan staðfesti að við höfum gætt ágætlega að fjárhagslegum hagsmunum ríkisins.“ Segir hann að skýrslan sé að mestu leyti í takt við það sem hann og ríkisstjórnin hafi átt von á og þegar komið inn á í vor. Komið hafi í ljós ákveðnir ágallar á kynningu og undirbúningi semmenn hafi áttað sig á eftir útboð- ið. Því segir hann að niðurstaðan núna komi sér ekki mikið á óvart. Bjarni segist jafnframt ánægður í heildina litið þegar horft sé til sölunnar á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka. „Það sem stendur enn upp úr í mínum huga er að við tókum rétta ákvörðun um að skrá Íslandsbanka, fara í almenna útboðið og þetta útboð var aðmörgu leyti mjög vel heppnað þó að það megi koma eftir á og segja að eitt og annað hafi mátt betur fara,“ segir Bjarni. » 12 Urður Egilsdóttir Karítas Ríkharðsdóttir Þorsteinn Ásgrímsson Morgunblaðið/Árni Sæberg Ríkisendurskoðun Skýrslan var kynnt stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í gær. Lekinn úr þinginu skoðaður Leki bankasöluskýrslu ríkisendur- skoðanda var ræddur sérstaklega á kynningarfundi hans með stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd Alþingis (SEN) í gær, en allt bendir til þess að einhver þingmannanna í nefndinni hafi rofið trúnað og komið henni til fjölmiðla. „Ríkisendurskoðun ræddi við nefndina um trúnaðinn og samskipt- in,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir í samtali við Morgunblaðið og kveðst sammála því að málið þarfnist frekari athugunar. Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi virtist ekki í miklum vafa um hvað gerst hefði. Að mati hans er gríðarlega óheppilegt að trúnaður skuli ekki hafa verið virtur og telur hann nokkuð öruggt að henni hafi verið lekið af nefndarmanni SEN. Ríkisendurskoðun hafi unnið að skýrslunni mánuðum saman án þess að hún rataði til fjölmiðla. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir að það sé í verkahring SEN að rannsaka lekann, sem hún sagði einkar bagalegan. lRíkisendurskoð- andi viss um orsök

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.