Morgunblaðið - 15.11.2022, Side 15

Morgunblaðið - 15.11.2022, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022 Framkvæmdir Enn viðrar vel til framkvæmda utan dyra þótt komið sé fram í miðjan nóvember. Eggert Jóhannesson Fyrirsögnin vísar til fundar í Háskóla Íslands nú nýverið. Það var fróð- legur fundur að sitja. Ekki síst vegna þess að fund- arstjórinn, Eva Bjarna- dóttir, og þeir fjórir sér- fræðingar sem höfðu verið fengnir til að fjalla um mál- ið, voru allir hjartanlega sammála. Einn fundar- manna spurði spurningar sem ekki féll í kramið. Hann var fljótlega stöðvaður af fund- arstjóra þegar hann rakti aðdraganda spurningar sem fjallaði um kostnað: „Ertu með spurningu?“ Allir aðrir fengu að láta gamminn geisa án þess að spyrja. Ungur lagakennari við Háskóla Íslands, Kári Hólmar Ragnarsson, taldi rétt ríkja til að takmarka fjölda umsækjenda um vernd (hérlendis jafnan nefndir flótta- menn) vegna óbærilegs kostnaðar ekki vera fyrir hendi. Enginn sérfræðinganna var, að því er virtist, kunnugur þeirri reglu að umsækjandi skuli sækja um vernd í því landi sem hann kemur fyrst til. Kári hefði svei mér verið fínn sér- fræðingur í stjórnarskrá Ráðstjórn- arríkjanna. Þar voru víst öll heimsins mannréttindi tryggð. Afstaða Rauða krossins Silja Bára R. Ómarsdóttir, formaður Rauða krossins og prófessor við stjórn- málafræðideild Háskóla Íslands, var mjög treg til að svara spurningum um fjölda umsækjenda og kostnað. Að lokum svaraði hún þó. Að hennar mati er núver- andi fjöldi lágmark (um fimm þúsund á ári). Og framreiknið þið nú! Ekkert þessa vinstrafólks virtist hafa nokkurn áhuga á kostnaði sem Ísland hefur burði til að taka á sig. Hvað þá hvernig það getur komið fátækum löndum best að Evrópuríkin einbeiti sér að viðtöku brotabrots íbúa frá fátækum löndum með tiltækum fjármunum í stað þess að aðstoða sem flesta. Engin rök; bara til- finningar einkenndu málflutninginn. Já, fé fært Rauða krossinum er núorðið kastað á glæ; því miður. Bretland er að grípa til harðra ráðstaf- ana gegn ólöglegum innflytjendum sem þar eru næstum 40.000 í ár. Það sam- svarar ca 250 á Íslandi. Þeir virðast 10 sinnum fleiri sem hingað flykkjast og notfæra sér verndarreglur sem bara eiga við ofsótta og stríðshrjáða. Hvað fær vinstrafólk til að mæla því bót? Ekki réttlætiskennd, svo mikið er víst. Stefna Evrópusam- bandsins Á vef ríkisstjórnar Hol- lands er stefnu Evrópusam- bandsins lýst í fáum orðum. Sameiginleg nálgun ESB er að takmarka og stjórna straumi „flóttamanna“ til Evrópu. Taka ber á rótum vandans. Mót- taka „flóttamanna“ fari fram sem næst upprunalandinu. Berjast skal gegn smygli á fólki [líkt og öðrum glæpum]. Styrkja ber ytri landamæri Schengen- svæðisins. Hælisleitendur sem ekki þarfnast verndar verða að snúa aftur til heimalands síns eða til öruggs þriðja lands. Evrópusambandssinnar á Íslandi eru, hér sem endranær, mótfallnir sínu heittelskaða ríkjasambandi. – Hvernig skýrir Viðreisn það? Fróðleg ummæli fundarmanna (og rasistastimpillinn á lofti) Ummæli fundarmanna voru af ýmsum toga. Pírataþingmaðurinn Arndís Anna taldi mega spara sex milljarða með því að leggja rekstur sjálfs hælisleitendakerf- isins niður. Þá fögnuðu fundarmenn sem voru flestir konur. Það er út af fyrir sig rétt að með opnun landamæra þarf enga Útlendingastofnun o.s.frv. Bróðurpart þeirra þúsund milljarða sem skattpínd- asta þjóð heimsins hefur til ráðstöfunar til mun þá brátt þurfa til þessa líka göf- uga málefnis svonefndra flóttamanna. Kona með grátstafinn í kverkunum tók til máls. Þannig var að lögreglan leit- aði glæpamanns og var með mynd í far- teskinu. Myndin bar með sér að forfeður glæpamannsins voru, að öllum líkindum, ekki af íslenskum uppruna. Þetta taldi konan til marks um rasismann í lögregl- unni. Svona gekk nú hinn akademíski fund- ur fyrir sig. En ég læt staðar numið. Einar S. Hálfdánarson » Fé fært Rauða krossinum er núorðið kastað á glæ. Einar S. Hálfdánarson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Er Ísland að drukkna í flóttafólki? Farþega- og vöru- flug tók afar djúpa dýfu snemma árs 2020 vegna heimsfaraldurs- ins en hefur upplifað hraðan bata frá vor- mánuðum 2022. Víða náðu umferð og verð fyrri hæðum, eða fóru jafnvel yfir það sem ríkti fyrir faraldurinn. Sérstaklega varð um- talsverður vöxtur í skemmtiferðum, tómstundaferðum, viðskiptaferðum og fraktflutningum. Þrátt fyrir þetta stendur flug- rekstur/iðnaðurinn frammi fyrir verulegum áskorunum m.a. vegna vaxtar í farþega- og fraktflugi, við- varandi óstöðugleika vegna farald- ursins, þeirrar staðreyndar að eft- irspurn eftir flugvélum og flugmönnum er meiri en framboð og að lokum vegna vaxandi óhag- kvæmni sökum árstíðabundinnar umferðar. Sveigjanlegri lausna er þörf. Í farþegaflugi er gert ráð fyrir því að árlegur vöxtur í nýmarkaðs- ríkjum verði rúmlega 5% næstu tvo áratugina á meðan þróaðir markaðir muni sjá u.þ.b. 3% vöxt á ári, sem er í samræmi við þróunina fyrir heims- faraldur. Ef þetta raungerist mun floti flugfélaga stækka úr u.þ.b. 25.300 flug- vélum í dag í 41.000 ár- ið 2041. Þar að auki mun þurfa að skipta út um 80% af núverandi flota á þessu tímabili fyrir flugvélar sem eru mun umhverfisvænni, brenna 20-40% minna af eldsneyti og styðja við markmið fluggeir- ans um að ná kolefnis- hlutleysi. Umskipti í fraktflugi Fraktflugsflotinn stendur frammi fyrir jafn umfangsmiklum breyt- ingum. Vinnuhesturinn Boeing 747- 400 nálgast nú eftirlaunaaldurinn og verður skipt út fyrir Boeing 777-300- fraktflugvélar, bæði nýjum og breyttum farþegaflugvélum. Þetta hljómar allt mjög vel, en staðreyndin er sú að flugvélaframleiðendur eru langt á eftir áætlun varðandi afhend- ingu og ekki er líklegt að alþjóðleg birgðakeðjuvandamál verði leyst í bráð. Bætið við þetta skorti á flug- mönnum og þá verður ljóst hvers vegna þörf er á nýjum hugmyndum og sveigjanlegum lausnum. Ein slík lausn verður sífellt mik- ilvægari, það er notkun fyrirtækja sem veita flugfélögum ACMI þjón- ustu. ACMI er flugvélaleiga þar sem áhöfn, viðhald og tryggingar eru innifalin í leigu flugvélar. Flugfélög nota ACMI-þjónustu ýmist til að mæta árstíðabundinni eða í sumum tilfellum langvarandi eftirspurn, án þess að þurfa að taka á sig kostnað vegna stækkunar flugflota eða fjölg- unar starfsfólks. Sögulega séð var þessi þjónusta mest nýtt í Evrópu þar sem 31% fleiri Evrópubúar fljúga á sumrin en á veturna. Flugfélög standa frammi fyrir tveimur ólíkum kostum; að stækka flugflotann til að mæta há- markseftirspurn, sem þýðir mikið fjárhagslegt tap utan háannatíma, eða að missa af viðskiptum yfir sum- artímann. ACMI gerir flugfélögum kleift að fanga þá farþega á háanna- tíma án kostnaðar á heilu ári. Sá sem veitir ACMI þjónustuna hagnast á því að láta nokkra viðskiptavini deila sömu flugvélum yfir árið. Þar má nefna markaði sem sveiflast til móts við Evrópumarkaðinn, eins og Suð- ur-Ameríku, Ástralíu, Kanada og Nýja-Sjáland. Árstíðabundnar og aðrar sveigjanlegar ACMI-lausnir hjálpa í auknum mæli til við að ýta undir vöxt og arðsemi í farþega- og farmgeiranum. Avia Solutions Group og Ísland Á Íslandi er til mikil reynsla og þekking af rekstri flugfélaga sem veita slíka þjónustu með íslenskt flugrekstrarskírteini. Avia Solutions Group (Avia), með aðsetur í Litháen, er stærsti veitandi ACMI-þjónustu í farþegaflugi í heiminum. Fyrir nokkrum árum keypti Avia íslenska fyrirtækið Bluebird sem einbeitti sér fyrst og fremst að ACMI- farmmarkaðinum. Frá því kaupin áttu sér stað hefur fyrirtækið vaxið þrefalt og er nú eitt af leiðandi flug- félögum í í ACMI-þjónustu í frakt- flugi í Evrópu. Hagstæð landafræði Íslands og rík saga í flugi bendir til þess að hægt sé að gera frekari vöxt þessara sveigjanlegu iðnaðarlausna mögulegan á íslenskum markaði. Í starfi mínu hjá Certares Hold- ings, fjárfestingafélagi í New York, sem fjárfestir fyrst og fremst í ferða- og ferðaþjónustu, fékk ég tækifæri til að stýra fjárfestingu í Avia Solutions Group síðla árs 2021. Fyrirtækið veitir meira en ACMI- þjónustu (þau sinna viðhaldi og end- urskoðun flugvéla, flugmannaþjálf- un, flugvallarafgreiðslu og fleiru), en aðdráttaraflið var sú hugmynd að það væri mikil röskun á framboði og eftirspurn sem krefðist sveigjan- legra lausna sem fyrirtækið var að bjóða í auknum mæli. Áhugaverðara var að þessi þjónusta er hagkvæm á svo marga vegu – flugfélög geta auk- ið arðsemi, sameiginleg og sveigj- anleg afkastageta dregur úr eftir- spurnarþrýstingi á flugvélamarkaði. Nýjar sparneytnar flugvélar geta sinnt árstíðabundnum verkefnum þvert á heimssvæði. Það sem er e.t.v. mest spennandi er þó að það sem áður var lítil viðbótarlausn í flugrekstri væri nú hægt að stækka í að verða almennur hluti af rekstr- aráætlun hvaða flugfélags sem er. Ég hef lengi fylgst með og tekið þátt í fluggeiranum og er þess full- viss að greinin mun halda áfram að finna og auka notkun á nýrri og sveigjanlegri þjónustu sem fyrirtæki eins og Avia og keppinautar þess veita. Ég trúi því líka að markaðir eins og Ísland muni hagnast á því að taka þátt í þessum nýja og spenn- andi kafla í flugsögu heimsins, nú þegar heimurinn heldur áfram að jafna sig á áhrifum heimsfaraldurs- ins. Tom Klein » Staðreyndin er sú að flugvélaframleið- endur eru langt á eftir áætlun varðandi afhend- ingu og ekki er líklegt að birgðakeðjuvanda- mál verði leyst í bráð. Tom Klein Höfundur er framkvæmdastjóri hjá Certares Holdings. Mikilvægi sveigjanleikans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.