Morgunblaðið - 15.11.2022, Side 28
MENNING28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022
Góð heyrn glæðir samskipti
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Pantaðu tíma í
HEYRNAR
GREININGU
Nánari upplýsingar í síma 534 9600 eða á heyrn.is
Allar helstu rekstrarvörur og
aukahlutir fyrir heyrnartæki
fást í vefverslun heyrn.is
Kristín sýnir vatnslitamyndir í Gjábakka
Kristín Þorkelsdóttir opnar sýningu á vatnslita-
myndum í Gjábakka, félagsheimili eldri borgara í
Kópavogi, í dag, 15. nóvember, kl. 14 og verður sýn-
ingin opin virka daga frá kl. 8.30 til 16 og um helgar
kl. 14 til 16. Henni lýkur 2. desember 2022. Sýningin
ber titilinn Ljós, ljós, ljós.
Kristín er myndlistarkona og grafískur hönnuður,
fædd 1936 og í fyrra var Hönnunarsafn Íslands með
sýningu á verkumKristínar af hönnunarsviðinu. „Nú
finnst Kristínu mál til komið að sýna vatnslita- og
pastelmyndir, sem eru afrakstur daglegra göngu-
ferða umAusturbæ Kópavogs en oftast settist hún út
í garð þegar heim var komið og hugurinn var þá tilbúinn í eina eða tvær
myndir,“ segir í tilkynningu og að árið 2017 hafi Kristín verið heiðruð af
Kópavogsbæmeð titlinumHeiðurslistamaður Kópavogs.
Kristín
Þorkelsdóttir
Fjallar um dánarbú frá 19. öld
Már Jónsson, prófessor við
sagnfræðideild Háskóla Íslands,
flytur erindi í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafnsins í dag kl. 12 um
dánarbú frá 19. öld og hvað hafi
verið skráð og hvað ekki. „Til eru
gögn um eftirlátnar eigur nærri
þrjátíu þúsund Íslendinga frá
miðri 18. öld til loka 19. aldar. Þar
er hafsjór upplýsinga um það
sem fólk af öllum stigum nýtti
í daglegu amstri og á heildina
litið mætti ætla að að unnt sé
að endurskapa efnislegar eigur
landsmanna eftir aldri, kyni og
stétt,“ segir í tilkynningu en í
skjölum geti verið gloppur eða
eyður um t.d. búsmuni. Þá sé
spurning hvað sé til ráða. Tilefni
erindisins er sýninginHeimsins
hnoss: Lúinn kistill, silfurskeið
og nærbuxur (með gati) sem nú
stendur yfir í Bogasal safns-
ins en á henni er teflt saman
upplýsingum um dánarbú sem
varðveittar eru í Þjóðskjalasafni
Íslands og gripum úr munasafni
Þjóðminjasafnsins til að varpa
ljósi á efnisheim fólks á 18. og 19.
öld.
Fyrirlesari Már Jónsson, prófessor við
sagnfræðideild Háskóla Íslands.
rich Seidl, Rimini, og degi síðar, 30.
nóvember, hin spænska Alcarráz.
Hrönn nefnir einnig Holy Spider
eftir Ali Abbasi sem gerði hina
ógleymanlegu Border (Mæri) frá
árinu 2018. Abbasi er af írönskum
uppruna og fjallar myndin um
raðmorðingja í Íran sem myrðir
konur í borginni Mashad. „Þetta
er svo hrollvekjandi mynd, byggð
á sönnum atburðum,“ segir Hrönn
en morðin áttu sér stað í upphafi
þessarar aldar. „Lögreglan tók
þessu ekki alvarlega af því þetta
voru bara konur,“ segir Hrönn og
bendir á það sem er að gerast í Íran
í dag. „Myndin fjallar svo mikið
um það, hvernig konur verða fyrir
ofbeldi á öllum stigum kerfisins í
Íran og þessi morðingi getur verið
táknmynd fyrir svo margt í því sam-
félagi,“ segir Hrönn og að myndin
sé rosaleg.
Góðvinur bíósins
Rimini fjallar um fyrrum popp-
stjörnu og alkóhólista sem býr
á Rimini á Ítalíu. „Hann er þar
einkum að skemmta eldri borgurum
og lifir frekar sorglegu lífi en svo
dúkkar dóttir hans upp sem hann
hefur aldrei kynnst og aldrei sinnt,“
segir Hrönn. Seidl er einn af góð-
vinum Bíós Paradísar og í sérstöku
dálæti hjá þeim sem þar starfa.
„Hann er stórskrítinn og gerir dá-
samlega kvikmyndir,“ segir Hrönn
og að þegar Bíó Paradís hafi verið
að stíga sín fyrstu skref í útgáfu
kvikmynda hafi fyrsta myndin sem
sló í gegn verið mynd eftir Seidl,
Paradís: Ást, gefin út 2013. „Paradís:
Ást kveikti eldinn hjá alþýðunni, að
koma í Bíó Paradís og sjá mynd sem
var ekki frá Hollywood og ekki á
ensku,“ segir Hrönn. Seidl sé meist-
ari óþægindanna og samhverfu í
myndmáli.
Hrönn segir Bíó Paradís líka
standa fyrir kosningu á vinsælustu
evrópsku kvikmyndinni sem kvik-
myndahúsið hefur gefið út frá því
það hóf starfsemi og fer hún fram
á fésbókasíðu bíósins. Myndin sem
verður hlutskörpust verður sýnd í
bíóinu 2. desember.
Verðlaunahafar með sýningar
Hrönn segir hápunktinn á
Evrópskum kvikmyndamánuði
vissulega verða verðlaunahátíðina
sjálfa. Heiðursverðlaunahafarn-
ir Margarethe Von Trotta, Elia
Suleiman og Marco Bellocchio
muni standa fyrir sýningum á
sínum helstu kvikmyndum í Bíó
Paradís. Von Trotta mun sitja fyrir
svörum eftir sýningu á Marianne &
Juliane, Suleiman sýnir mynd sína
Guðlega íhlutun 10. desember og
11. desember verður sýnd Exterior
Night, Ytri nótt, sjónvarpssería
sem Bellocchio leikstýrði. „Við
verðum líka með fleiri viðburði sem
tengjast gestum verðlaunanna og
verða betur auglýstir síðar,“ segir
Hrönn og nefnir að líklega muni
Wim Wenders, leikstjóri og forseti
Evrópsku kvikmyndaakademíunn-
ar, koma til landsins og Bíó Paradís
muni þá sýna eina af hans þekktstu
kvikmyndum, Paris, Texas.
„Allar þessar sýningar, með
þessum heiðursverðlaunahöfum og
þessum langfrægustu kvikmynda-
gerðarmönnum Evrópu, verða
opnar almenningi,“ bendir Hrönn
á en allar upplýsingar má finna á
bioparadis.is. Hrönn hvetur fólk
líka til að mæta í Bíó Paradís og
fylgjast með verðlaunahátíðinni þar
10. desember. „Hjá okkur er þetta
eins og þreföld jól og áramót, eins
og uppskeruhátíð síðustu tíu ára
fyrir okkur sem höfum verið að gefa
út þessar myndir og halda þeim á
lofti fyrir íslenska áhorfendur,“ seg-
ir Hrönn um kvikmyndaverðlaunin.
lKvikmyndir tilnefndar til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna og fleiri evrópskar verða sýndar
í Evrópskumkvikmyndamánuði í Bíó Paradís framað afhendingu verðlaunanna 10. desember
Evrópskar kvikmyndir hylltar
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
19 á sérstakri Spurt og svarað sýn-
ingu með leikurum sem framhalds-
skólanemendum hefur verið boðið
á og verður rætt um efni myndar-
innar, þ.e. ofbeldisfulla hegðun
ungmenna og einelti. 16. nóvember
verður frumsýnd spænska myndin
El buen patrón sem er með Javier
Bardem í aðalhlutverki og tilnefnd
sem besta gamanmyndin á EFA,
líkt og hin íslenska Leynilögga. Close
er eftir sama leikstjóra og gerði
Girl (Stúlka) sem hlaut mikið lof á
sínum tíma og segir Hrönn Sveins-
dóttir, framkvæmdastjóri Evrópsks
kvikmyndamánaðar og Bíós
Paradísar, að hún fari í almenn-
ar sýningar á næsta ári en verði
sýnd einu sinni í Bíó Paradís, 28.
nóvember. Degi síðar, 29. nóvember,
verður sýnd nýjasta kvikmynd Ul-
Hrollvekjandi Leikkonan Zar Amir-Ebrahimi í kvikmyndinni Holy Spider sem segir af kvennamorðingja í Íran.
Evrópskur kvikmyndamánuður
hófst um helgina í Bíó Paradís og
lýkur með afhendingu Evrópsku
kvikmyndaverðlaunanna (EFA) í
Hörpu 10. desember. Kvikmynda-
hús í 35 löndum Evrópu taka þátt
í þessum umfangsmikla viðburði,
í samstarfi við samtökin Europa
Cinemas sem Bíó Paradís á aðild
að, og er til-
gangurinn að
hylla evrópskar
kvikmyndir.
Dagskráin
hófst í fyrradag,
sunnudaginn
13. nóvember,
með Evrópska
listabíódegin-
um og á næstu
vikum býður Bíó
Paradís upp á
sýningar á þeim fimm kvikmynd-
um sem tilnefndar eru sem besta
evrópska kvikmyndin. Einnig
verður boðið upp á sérsýningar
með heiðursgestum Evrópsku
kvikmyndaverðlaunanna sem sitja
munu fyrir svörum, auk annarra
sérviðburða. Verðlaunaafhendingin
10. desember verðursvo sýnd í
beinni útsendingu í bíóinu.
Hrollvekjandi Holy Spider
Opnunarmyndin 13. nóvember,
Le otto montagne eða Fjöllin átta,
er ekki ein þeirra sem tilnefndar
eru til EFA en það eru hins vegar
kvikmyndirnar Alcarrás, Close
eða Nærri, Corsage, Holy Spider,
þ.e. Heilög kónguló og Triangle of
Sadness, Þríhyrningur sorgarinnar,
sem allar verða sýndar á næstu
vikum en sú síðastnefnda hefur
verið í sýningum í nokkrar vikur og
hefur notið afar góðrar aðsóknar.
Auk þeirra verða sýndar Berdreymi,
El buen patrón (Góði yfirmaðurinn),
Rimini, Marianne & Juliane og Ya-
don ilaheyya (Guðleg íhlutun). Það
er því evrópsk veisla fram undan í
Bíó Paradís.
Berdreymi verður sýnd í kvöld kl.
Hrönn
Sveinsdóttir