Morgunblaðið - 15.11.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 15.11.2022, Síða 4
FRÉTTIR Innlent4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022 Veruleg aukning er á notkun lyfja til uppbótarmeðferðar vegna ópíóðafíknar á Íslandi, að því er kemur fram í svari heilbrigð- isráðherrra við fyrirspurn á Alþingi. Gögn lyfjanefndar Landspítala sýna að árið 2019 var fjöldi einstaklinga á þessari lyf- jameðferð 276 en árið 2021 voru þeir orðnir 438. Eru þeir aðallega í þjónustu SÁÁ, Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri og hafa ávísanirnar aðallega verið á höndum sérfræðinga í geðlækningum. Einnig hafa aðrir sérfræðilæknar með þekkingu á ópíatafíkn ávísað þeim. Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins spurði Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hvort hann hygðist veita læknum heimild til að ávísa ópíóðum eða sambæri- legum efnum til einstaklinga með vímuefnavanda með skaðaminnk- un að markmiði eins og tíðkaðist í Danmörku. Í svari ráðherra kemur fram að hér á landi sé veitt uppbótarmeðferð við ópíatafíkn með lyfinu buprenorfín sem er bæði til í töfluformi og sem stungulyf. Umrædd lyf séu flokk- uð sem leyfisskyld, sem þýðir að þau eru kostnaðarsöm og/eða vandmeðfarin. Í svarinu segir að Sjúkra- tryggingar Íslands og SÁÁ hafi gert með sér samning um viðhaldsmeðferð gegn ópíumfíkn sem starfrækt er á göngudeild á Sjúkrahúsinu Vogi. SÁÁ hafi því sinnt meginhluta þessarar með- ferðar. Nokkur hluti sjúklinga í göngudeildarþjónustu SÁÁ eða undir eftirliti geðlækna sæki lyfin sín í töfluformi í apótek. Hvað varði heimildir lækna til að ávísa þessum lyfjum sé ferlið almennt þannig að í umsókn ummark- aðsleyfi komi fram takmarkanir við ávísun lyfs og það sé síðan ákvörðun Lyfjastofnunar að út- færa það með tilliti til sérgreina og afgreiðslumerkinga. Töflu- formið verði að vera skrifað út af læknummeð þekkingu og reynslu af fíknisjúkdómum. Eingöngu sér- fræðingar í tilteknum sjúkdóm- um eða undirgrein læknisfræði mega ávísa lyfinu. Geta því fleiri sérgreinalæknar en geðlæknar skrifað upp á lyfið ef sýnt er fram á þekkingu og fengið hefur verið til þess leyfi. lNærri tvöföldun frá árinu 2019 Margir fá skaða- minnkandi lyf „Það er gaman að geta opnað dyr skólans fyrir fleirum en bara nemendunum. Margir eru nefnilega með ranghugmyndir um starfið hér, halda að við séum bara að taka slátur alla daga eða þrífa í horn- um. Námið hefur þróast í takt við tímann,“ segir Marta María Arn- arsdóttir, skólameistari Hússtjórn- arskólans í Reykjavík. Marta og nemendur skólans fögnuðu 80 ára starfsafmæli Hússtjórnarskólans í gær. Opið hús var í skólanum, sem er sá eini sinnar tegundar á landinu í dag, og máttu gestir og gangandi líta inn. Þeir gátu fylgst með kennslunni auk þess að þiggja kaffi og afmælisköku að hætti hússins. Afmæli skólans var reyndar fyrr á árinu því fyrsti kennsludagurinn var 7. febrúar árið 1942. Það bar hins vegar upp í miðri kórónuveirubylgju og því urðu veisluhöldin að bíða. Gestir í skólanum gátu fylgst með hefðbundinni stundaskrá á mánudegi. Nemendur voru meðal annars í matreiðslu og fatasaumi fyrir hádegi og vefnaði eftir hádegi. Í hádeginu var plokkfiskur í matinn. Marta María tók við starfinu í sumar en hún er yngsti skóla- meistari landsins, nýorðin 26 ára. „Ég lofa því ekki að ég verði 24 ár í starfi eins og Margrét forveri minn en það er aldrei að vita. Ég kann alla vega mjög vel við mig hérna.“ lStórafmæliHússtjórnarskólans í Reykjavík fagnað Fengu plokkfisk og köku í tilefni 80 ára afmælisins Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is TímamótMartaMaría skólameistari tók glöð á móti gestum í skólanum. Morgunblaðið/Árni Sæberg GleðiMikið líf var í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík í gær. Opið hús var í tilefni 80 ára afmælis skólans. Landsnet hefur breytt áformum sín- umum leguBlöndulínu 3 fráBægisá að Akureyri frá því sem gert var ráð fyrir í aðalvalkosti umhverfismatsskýrslu. Með nýju legunni færist línan lengra upp í fjallshlíðarnar og fjær býlunum á línuleiðinni ogmunar þar frá 100metr- um til eins kílómetra. Landsnet hefur kynnt greinargerðum þessa breyttu legu línunnar. Skipulags- stofnun er að fjalla um umsagnir og athugasemdir sem borist hafa við um- hverfismatsskýrsluna og mun á næst- unni segja álit sitt ámálinu. Framkemur í greinargerðinni að Landsnet hafi talið rétt að kynna þessa breytingu áður en álit Skipulagsstofnunar kæmi fram. Jarðrask eykst Færslan er frá bænumSyðri-Bægisá í mynni Öxnadals um Hörgárdal, Moldhaugnaháls og Kræklingahlíð að spennistöð Landsnets á Rangárvöllum við Akureyri. Línan er færð á 17 kíló- metra kafla. Með færslunni styttist línan um rúman kílómetra og möstrum fækk- ar. Vegna þess að línan færist frá eldri byggðalínunni þarf að brjóta nýtt land undirmöstur og slóða og eykst því jarð- rask vegna framkvæmdarinnar.Minna votlendi raskast á nýja línustæðinu en því sem áður var áformað. Vegnaþess að línanmun liggja hærra á umræddum kafla verður hún útsett- ari fyrir ísingu en upphaflegur aðalval- kostur. Í greinargerð Landsnets kemur fram að tekið verður tillit til þess við endanlega hönnun mastra þannig að rekstraröryggi verður það samaoggert var ráð fyrir. Umræðahefur skapast ummöguleika þess að breyta legu línunnar annars staðar á línuleiðinni. Landsnet hefur ákveðið aðbíða eftir áliti Skipulagsstofn- unar áður en haldið verður lengra í um- ræðuummögulegar frekari breytingar. Varmahlíð Aðalvalkostur Blöndulínu 3 Akureyri Blöndu- stöð Leiðin liggur um Kiðaskarð niður Mælifellsdal, um Efribyggð og síðan meðfram núverandi línu um Norðurárdal, Öxnadalsheiði, Öxnadal og til Akureyrar Blöndulína 3: Svæði A B C Jarðstrengur til Varmahlíðar Hö rg ár da lu r Akureyri Rangárvellir1 1 Breytt lega aðalvalkosts Stækkað svæði Breyting á legu aðalvalkosts Lo ft m yn di re hf . Línanverðurfærð lengrafrábæjum lBlöndulína 3 færð upp í hlíðina Helgi Bjarnason helgi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.