Morgunblaðið - 15.11.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.11.2022, Qupperneq 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma að fullyrða með hvaða farfuglum smit barst til Íslands. Veiran hafi verið hér í fyrra, en greinilega ekki verið skæð enda fátt um dauða villta fugla og öll sýni voru neikvæð, fyrir utan haförninn. Miðað við forsöguna hafa farfuglar af tegundum andfugla, máfa og vaðfugla aðallega dreift svona sjúkdómum milli landa og þykja lík- legastir til að bera fuglaflensuveirur. „Þetta getur verið breytilegt á milli ára og nú 2022 smitaðist mik- ið af sjófuglum hér og margar súlur drápust. Það er erfitt að segja hvað sjófuglar hafa haft mikið að segja við útbreiðslu faraldursins milli landa,“ segir Brigitte. Mikið var t.d. af sýkt- um skúmum í Bretlandi í fyrravetur. Margir skúmar drápust hér í vor og sumar en hvaðan þeir fengu smitið er ekki vitað. „Við vitum að þetta er allt sami veirustofninn, H5N1, og að hann hefur náð góðri fótfestu í villtu fuglunum,“ segir Brigitte. Hún segir að fuglaflensusmitið sem greindist í Kanada í fyrra hafi komið svolítið í bakið á vísindamönnum vestanhafs. Yfirleitt hefur verið góð vöktun á vest- urströnd N-Ameríku því smit hafa áður borist frá Asíu um Alaska. „Það er ný sviðsmynd í faraldsfræðinni að fuglaflensa berist frá Evrópu, líklega um Ísland og Grænland, til Norð- ur-Ameríku,“ segir Brigitte. Fuglaflensa hefur greinst í 13 fuglategundum á Íslandi, samkvæmt heimasíðu MAST. Fjöldi jákvæðra sýna er innan sviga. Tegundirnar eru súla (13), skúmur (5), svartbakur (4), hrafn (3), fálki (2), grágæs (2), haförn (2), heiðagæs (2), kría (2), helsingi (1), hettumáfur (1), sílamáfur (1) og silfurmáfur (1). Alls hafa verið tekin 163 sýni úr fuglum af 28 tegundum. Athyglisvert er að tegundir sem éta hræ annarra fugla hafa verið útsettar fyrir smiti, eins fjórar máfategundir og þrjár tegundir gæsa. Enginn vað- fugl hefur fundist með fuglaflens- usmit hér en þeir hafa margir smitast erlendis. Talið er að það megi rekja til sambýlis við andfugla. Fuglaflensa hefur hingað til ver- ið vetrarsjúkdómur, en síðustu tvö ár hefur smit viðhaldist allan ársins hring og fundist í villtum fuglum sem veiran virðist hafa aðlagast vel. Ísland var stikla á leið skæðu asísku fuglaflensuveirunnar yfir Norður-Atl- antshaf, að því er fram kemur í grein í vísindatímaritinu Emerging Infectious Diseases. Talið er að smit hafi borist með farfuglum frá Norður Evrópu til Norður-Ameríku um Ísland. Á meðal höfunda vísindagreinar- innar eru Íslendingarnir Vilhjálmur Svansson, Gunnar Þór Hallgrímsson, Heiða Sigurðardóttir og Stefán Ragn- ar Jónsson við Háskóla Íslands, Krist- inn Haukur Skarphéðinsson hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands og Brigitte Brugger hjá MAST. Aðrir höfundar eru þýskir vísindamenn. Ungur haförn drapst hér af völd- um fuglaflensuveiru af gerðinni H5N1 hinn 8. október 2021 og var það fyrsta staðfesta dauðsfallið í yfirstandandi faraldri fuglaflensunnar hér á landi. Haförninn er staðbundinn fugl á Ís- landi og er talið að sá sem drapst hafi étið hræ af smituðum fugli og smitast þannig. Fuglaflensuveira af sömu gerð fannst í tveimur svartbökum í Kanada síðla ársins 2021. Skömmu síðar kom upp smit í fuglum í haldi í Kanada. Þaðan breiddist smitið niður með austurströnd Bandaríkjanna. Grein- ing benti til náins skyldleika á milli arfgerða þessara fuglaflensuveira í Norður-Ameríku og veirunnar i Evrópu úr faraldrinum frá vetri og vori 2020-2021. Líklegast er talið að smitið hafi borist með farfuglum frá Evrópu um Ísland og Grænland til Kanada. Eftirlit með sýktum fuglum Eftirlit með smituðum fuglum var aukið hér á landi í byrjun þessa árs þegar von var á farfuglum til landsins. Brigitte Brugger, sérgreinadýralækn- ir alifugla og einn greinarhöfunda, hefur haldið utan um eftirlitið af hálfu MAST. Hún segir ekki hægt lFuglaflensusmit í Kanada talið hafa borist með smituðum farfuglum frá Evrópu um Ísland og Græn- landlFuglaflensa hefur greinst í 13 fuglategundum hér á landilFlest sýnin tekin úr dauðum súlum Fuglaflensuveiran fór um Ísland Guðni Einarsson gudni@mbl.is Morgunblaðið/RAX Súlur Margar súlur hafa fundist dauðar af völdum fuglaflensunnar. Farice hefur tekið við Írisi, sæstrengnum sem lagður var í sumar á milli Þorlákshafnar og Galway á Írlandi og þaðan áfram til Dyflinnar. Bandaríski kapalframleiðandinn SubCom lagði strenginn en áður en hann var afhentur þurftu að fara fram prófanir. Þeim er nú lokið og Farice tók við honum við athöfn sem fram fór í Galway. Framundan er vinna við að tengja fjarskiptanet á Íslandi sem og Írlandi og þaðan áfram til meginlands Evrópu. Áætlað er að Íris verði formlega tekin í notkun á fyrsta fjórðungi næsta árs. Íris er þriðji sæstrengurinn sem Farice á og rekur með tengingu til Evrópu. Sturla Sigurjónsson, sendi- herra Íslands, var viðstaddur athöfnina ásamt tveimur írskum ráðherrum, þeim Eamon Ryan, ráðherra umhverfis, samgangna, loftslags og fjarskipta, og Ossian Smyth, ráðherra stafrænnar stjórnsýslu og sjálfbærni. Sendi- herrann las orðsendingu Ás- laugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar. Hún sagði að fjar- skiptasæstengurinn yki stórlega fjarskiptaöryggi íslensks samfé- lags við erlend ríki, til hagsbóta og framfara fyrir bæði almenning og atvinnulíf. Ásamt grænni endurnýjanlegri orku muni Íris auka verulega samkeppnishæfni Íslands fyrir þjónustu gagnavera, skýjaþjónustuaðila og háhraða tölvuvinnslu. „Með tengingu Ís- lands og Írlands skapast ný tæki- færi fyrir bæði lönd til aukins samstarfs í hinum sístækkandi stafræna heimi,“ sagði þar. lSæstrengurinn afhentur formlega Íris kemst í gagnið í byrjun nýs árs Lykill Bill Meiners færir Þorvarði Sveinssyni lyklavöldin. Fáðu meira út úr eigninni Greenkay sjálfvirknivæðir og hagræðir alla þætti í rekstri gististaða • Hótel og gistiheimili • Íbúðaklasar • Íbúðir • Sumarhús • Síma- þjónustuver og bakvakt • Þrif og þvottur Ármúli 21, Reykjavik • Sími 519 8989 • greenkey.is Alhliða rekstrarþjónusta fyrir gististaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.