Morgunblaðið - 15.11.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.11.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR Erlent 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022 Vorum að fá nýjar vörur www.rumfot.is Nýbýlavegur 28 - sími 565 1025 - rumfot@rumfot.is - Opið frá 12-17.30 alla virka daga og 11-15 laugardaga Landsins mesta úrval af hágæða rúmfötum. Einnig sængur og koddar. 300tc - 600tc - 900tc - 1400tc Endurheimt Kerson „gæti verið byrj- unin á enda stríðsins“, sagði Volod- imír Selenskí forseti Úkraínu í gær í óvæntri heimsókn til borgarinnar þar sem hann fagnaði með heimamönn- um, en Rússar yfirgáfu borgina á föstudaginn var. „Þetta er erfið ganga, því stríðið hefur tekið okkar mestu hetjur. Við erum tilbúin fyrir frið, en það þýðir frið fyrir allt okkar land,“ sagði hann. Vladimír Pútín forseti Rússlands neit- aði því í gær að heimsókn Selenskís hefði nokkur áhrif á stöðu Kerson-hér- aðsins, þrátt fyrir að úkraínskir fánar væru þar dregnir að húni. Hann sagði að héraðið væri enn hluti af Rússlandi. Kaldur og dimmur vetur Selenskí sagði að fórnarkostnað- ur stríðsins væri gífurlegur. „Fólk er sært, og margir hafa látið lífið. Við erum búin að berjast og við erum að sjá árangur hér. Í dag erum við í Kerson-héraði.“ Ástandið er þó ekki beysið í borginni og héraðinu eftir her- setu Rússa og segja yfirvöld í Úkraínu fjölda vísbendinga um stríðsglæpi í héraðinu eftir hersetuna, auk þess sem orkuinnviðir hafi verið eyðilagðir. Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri NATO varar við því að Úkraínumenn fagni of snemma og sagði hættulegt að vanmeta hernaðargetu Rússa. „Pútín stefnir að því að Úkraína verði köld og dimm í vetur,“ sagði hann á blaðamannafundi í Haag í Hollandi. Kerson var fyrsta héraðið sem féll í hendur Rússa eftir innrásina 24. febrúar og Pútín hefur hótað því að nota allar leiðir mögulegar til að verja svæðið og ýjað að mögulegri kjarn- orkuógn. Á fundi G20-þjóðanna í gær ræddu Xi Jinping forseti Kína og Joe Biden Bandaríkjaforseti saman um heimsmálin og gáfu út þá tilkynningu að þeir væru sammála um að aldrei skyldi nota kjarnavopn í stríði, þar með talið í Úkraínu. Þetta er í fyrsta skipti sem for- setarnir hittast eftir að Biden tók við embætti sínu. Ekki var búist við mikl- um árangri af fundi forsetanna fyrir fram, heldur væri fundurinn mest- megnis til þess að minnka spennu milli ríkjanna. Þó virðist hafa farið betur ámeð Biden og Xi en á horfðist, alla vega á yfirborðinu. Undirliggjandi spenna Auk þess að sammælast um að for- dæma kjarnorkuvopnanotkun í stríði ákváðu þjóðirnar að hefja aftur sam- ræður um loftslagsmál. Kína hafði slitið þeim viðræðum vegna stuðnings Bandaríkjanna við Taívan, og þótt það hafi ekki breyst og í reynd verið eina atriðið þar sem leið- togarnir voru algjörlega á öndverðum meiði, þá sagði Xi að heimurinn stæði frammi fyrir mikilli loftslagsógn og heimurinn horfði til þess að þessar tvær stórþjóðir gætu starfað saman. Það er þó ljóst að málefni Taívans eru orsök mikillar spennu milli þjóð- anna þrátt fyrir kurteislegt tal. Ekk- ert hefur breyst í afstöðu hvorugs ríkisins og Xi hefur sagt að málefni eyríkisins sé eitt af grundvallarmál- efnumKína. Á sama tíma sagði Biden að Bandaríkin væru staðráðin í að viðhalda friði og stöðugleika í Taív- an, sem þýðir að þau muni ekki sam- þykkja neinar aðgerðir Kínverja gegn Taívan. Fréttastofan Xinhua sagði að málefni Taívans væru „fyrsta rauða línan sem ekki mætti fara yfir í sam- skiptumKína og Bandaríkjanna“, svo það þarf ekki mikið til að samskipti ríkjanna versni. Talið er að Emmanuel Macron for- seti Frakklandsmuni reyna að þrýsta á Kínaforseta í málefnum Úkraínu á fundi þeirra í dag. Þar muni hann höfða til sameiginlegra hagsmuna um að stríðið endi, vegna efnahags-, matvæla- og orkumála heimsins. Macron heldur einnig samskipta- línunni opinni til Kremlar og hyggst hringja í Pútín eftir fundinn. Fjarvera Pútíns á G20-fundinum segir talsvert um stöðu Rússlands í alþjóðasam- félaginu. lFagna endurheimt KersonlSlæmt ástand í borginnilSegja Kerson enn tilheyra RússlandilG20: Engin samstaða umTaívan, en færast nær í málumÚkraínulMacron vill að Kína beiti Pútín þrýstingi Fórnarkostnaðurinngífurlegur AFP/Forsetaembætti Úkraínu KersonVolodimír Selenskí með hönd á hjartastað syngur úkraínska þjóðsönginn í borginni Kerson í gær eftir að Rússar hörfuðu frá borginni. Bretland Karl III. varð 74 ára í gær Hleypt var af fallbyssum í Tower of London og lystigörðum borgarinnar í gær, í tilefni 74 ára afmælis Karls III. Bretakonungs, og afmælissöngurinn leikinn af herlúðrasveit í tilefni dagsins. Karl III. hefur nú gegnt embætti konungs í tvo mánuði, en engin opinber störf voru skipulögð á afmælisdaginn. Hann fór þó í myndatöku við gamalt eikartré í tilefni þess að hann var skipaður verndari Windsor Great Park, sem er staða sem faðir hans Fil- ippus prins gegndi áður en hann lést árið 2021. Karl hefur ákveðið að skipta sér ekki af stjórnmálum í embætti sínu sem konungur og til marks um það fór hann ekki á COP27-umhverfisráðstefnuna í Egyptalandi, þótt honum sé mjög umhugað ummálaflokkinn. Þrátt fyrir stutta setu á valda- stóli hefur hann haft tvo forsætis- ráðherra í Downingstræti. Karl III. þykir vinnusamur og hafa Bretar almennt tekið honum vel sem nýjum þjóðhöfðingja. AFP/Chris Jackson/Buckinghamhöll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.