Morgunblaðið - 15.11.2022, Síða 21

Morgunblaðið - 15.11.2022, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022 ✝ Eymundur Þór Runólfsson fæddist 24. júní 1940 á Stöðv- arfirði. Hann lést 2. nóvember 2022 á líknardeild Landa- kots. Foreldrar hans voru Runólfur Ein- arsson, kennari og skólastjóri á Stöðv- arfirði, f. 10. júní 1902 á Litla-Sandfelli í Skrið- dal, d. 17. júní 1966, og kona hans Guðbjörg Helga Elimund- ardóttir ljósmóðir, f. 1. nóv- ember 1909 á Stakkabergi á Skarðsströnd, d. 24. ágúst 1966. Systkini: Erlingur Ingi, maki Jóna Halldórsdóttir, og Sigríð- ur Þórunn, maki Kristján Fr. Oddsson. Eymundur kvæntist 30. des- ember 1967 Álfhildi Erlends- dóttur leikskólakennara, f. 30. maí 1946 á Seyðisfirði. For- eldrar hennar voru Erlendur Sigmundsson, prestur og pró- fastur á Seyðisfirði, f. 5. nóv- ember 1916, d. 1. apríl 2005, og kona hans Margrét Sigríður Tómasdóttir, f. 21. maí 1915, d. 23. mars 1964. Börn Eymundar og Álfhildar: 1) Runólfur, f. 1969, maki Jintana Chareo- kallaður til starfa hjá Vega- gerðinni. Fyrst var hann um- dæmisverkfræðingur á Austur- landi, frá 1966-1972, þá vann hann á vegadeild og síðar áætl- anadeild. Frá 1992 og til starfs- loka árið 2010 var hann yf- irmaður áætlanadeildar. Eymundur kom víða við enda áhugamálin mörg. Hann var í Umferðarráði 1975-1978 og sat í orðanefnd byggingarverk- fræðinga frá 1985-2007. Þar fékkst hann við nýorðasmíði ásamt öðrum nefndarmönnum. Einnig tók hann þátt í vísna- og gátusmíð sem um tíma var fjöl- skylduíþrótt, einkum meðan tengdafaðir hans Erlendur Sig- mundsson lifði. Í starfi sínu við gerð vegnúm- erakerfis, sem Eymundur telst vera höfundur að, kynntist hann landinu vel og þekkti hverja lækjarsprænu, sér- staklega á Austurlandi. Hann ferðaðist mikið um landið, bæði akandi og fótgangandi. Um árabil og allt fram á síð- asta dag sinnti Eymundur sókn- arnefndarstörfum fyrir Selja- kirkju. Í fyrstu sá hann um fjármál kirkjunnar en síðar varð hann meðhjálpari ásamt fleirum í sóknarnefndinni sem skiptust á um að inna það starf af hendi. Útförin fer fram frá Selja- kirkju í dag, 15. nóvember 2022, klukkan 13. Athöfninni verður streymt á seljakirkja.is. Hlekkur á streymi: www.mbl.is/ andlat wong. 2) Margrét Sigríður, f. 1971, maki Hafsteinn Einarsson. Börn a) Hugi Þeyr, f. 1992, kærasta Hafrún Birna Björnsdóttir. Faðir Huga er Gunnar Grímsson. b) Hávar, f. 2000, kærasta Ragnheið- ur Helga Guðjóns- dóttir. c) Eyrún Úa, f. 2002, sambýlismaður Bene- dikt Ingi Ingólfsson. Faðir Háv- ars og Eyrúnar Úu er Þorbjörn Magnússon. Eymundur ólst upp á Stöðv- arfirði og gekk í barnaskóla þar undir handleiðslu föður síns. Þrettán ára fór hann að Eiðum í gagnfræðaskóla og var mikið að heiman eftir það. Síðan lá leiðin í Menntaskólann á Ak- ureyri. Hann útskrifaðist úr MA 1960 og innritaðist um haustið í verkfræðinám við Háskóla Ís- lands. Seinni hluta námsins sótti hann til Þrándheims í NTH og brautskráðist þaðan sem bygg- ingarverkfræðingur árið 1965. Eymundur vann ýmis störf meðfram námi, m.a. við vega- gerð. Eftir námið hóf hann störf á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen en var fljótlega Það er gott að eiga stóran og sterkan pabba. Það get ég stað- fest vegna þess að ég hef átt hann pabba minn að alla ævi. Hann hafði sterka nærveru, hljóm- mikla rödd og gerði jafnan grín. Hann hafði tilfinningar sem spönnuðu allt litrófið og var al- gjörlega heiðarlegur með þær. Hann skilur eftir sig stórt tóm sem ég stari á furðu lostin og get ekkert gert nema horfa til baka. Ég sé hann fyrir mér fjögurra ára gamlan, fjölskyldan er að flytja úr Kaupfélagshúsinu í Ás- garð, nýja húsið sem foreldrar hans höfðu byggt. Eldavélin er svo stór að hún kemst ekki út um dyrnar nema skrúfa lappirnar undan henni. Það finnst litlum strák svo merkilegt að hann man það alla ævi. Ég sé lítinn orku- mikinn dreng sem þarf að hafa mikið fyrir stafni. Oft sat hann undir eldhúsborði með spil og lærði að leggja saman og draga frá. Áhuginn á tölum kviknaði snemma og hann var farinn að hjálpa pabba sínum að kenna stærðfræði á Stöðvarfirði áður en hann fór að Eiðum. Já, hann fór snemma að heiman og eftir á að hyggja fannst honum hann hafa verið helst til ungur. Hann var mjög hændur að mömmu sinni sem hafði komið alla leið úr Dala- sýslu til ljósmóðurstarfa á Stöðv- arfirði. Hún var kærleiksrík og sýndi það í störfum sínum. Þegar Hekla gaus 1947 dreif hún börnin sín þrjú upp á eldhúsborð og út- skýrði fyrir þeim hvað um væri að vera. Hún horfði í augun á þeim eins og hann gerði sjálfur þegar hann talaði við fólk. Opnu ljósbláu augun sem ég sé svo greinilega fyrir mér. Ég sé litla stelpu sem er hænd að pabba sínum og horfir á hann vinna. Hann smíðar mikið í nýja húsinu og er alltaf með gamla tréútvarpið sitt og stundum pípu í munninum. Stundirnar eru margar og góðar. Hann setur nið- ur kartöflur og leyfir henni að hjálpa með ákveðnum stuttum leiðbeiningum. Helst vill hann gera allt sjálfur og skapa eitthvað úr því sem hann á til. En stund- um sest hann niður og spjallar og hjálpar til við að gera dúkkurúm eða eitthvað lítið. Við pápi föndr- uðum margt saman, steyptum kerti, bjuggum til pappamassa, spreyjuðum baðvigtina rauða og bökuðum. Ég hannaði hillur og rúm í herbergið mitt og hann smíðaði. Einu sinni málaði hann skóna mína græna á mettíma því ég var að fara á skemmtun. Hann hjálpaði og hjálpaði. Það var hon- um í blóð borið. Ég kveð hann pabba minn sem elskaði lífið svo mikið að hann ætlaði aldrei að láta í minni pok- ann fyrir veikindunum. Ég trúi því að hann lifi áfram, að ég eigi ennþá stóran og sterkan pabba. Margrét Eymundardóttir. Það hlýtur að skilja margt eft- ir í vitund minni eftir hálfrar ald- ar kynni og náin fjölskyldutengsl. Mágur minn til hálfrar aldar, Eymundur Runólfsson, er fallinn frá eftir erfið veikindi. Samskipti okkar voru góð alveg frá fyrstu tíð þó að ólíkir værum. Hann bar þess merki að vera frá traustu og góðu heimili þar sem kappkostað var að þau systkinin þrjú fengju gott vega- nesti út í lífið. Í skóla alveg frá upphafi lagði hann sig fram, eink- um var það stærðfræðin sem lá vel fyrir honum þótt aðrar náms- greinar gengju einnig vel. Nemandi með þennan árangur hlaut þegar fram í sótti að velja grein þar sem stærðfræði kom mjög við sögu. Beinast lá við að verkfræði yrði fyrir valinu. Enda varð svo. Áratuga starf hjá Vegagerð ríkisins við nýbyggingu vega og brúa krafðist bæði nákvæmni og yfirsýnar. Þar var hann réttur maður á réttum stað. Eitt helsta einkenni hans hvað viðkom vinnu og öðru sem hann tók að sér var samviskusemi og vandvirkni, láta það aldrei spyrjast að hann hefði kastað til höndum við það sem hann tók að sér. Vinna við vega- gerð og brúarbyggingar krafðist mikillar nákvæmni og yfirvegun- ar. Síkar framkvæmdir, sem lengi skulu standa, krefjast þess að vandað sé til verka frá upp- hafi. Sá sem lítur yfir farinn veg og hefur skilað góðu starfi getur glaðst þegar horft er til baka. Vonandi hefur þú farið sáttur héðan eftir gott og árangursríkt ævistarf. Þökk fyrir fimmtíu ára samfylgd. Við kveðjum þig með virðingu og þökk og vottum eft- irlifandi eiginkonu og öðrum ná- komnum samúð okkar. Kristján F. Oddsson og fjölskylda. Í dag verður borinn til grafar afar kær frændi minn, Eymund- ur föðurbróðir minn. Eymundur hefur alltaf verið einn af uppá- halds hjá mér. Það hefur alltaf verið mjög mikill samgangur á milli þeirra bræðra í gengum árin og þeir bræður hafa lengst af bú- ið nálægt hvor öðrum. Eymundur var alveg yndisleg- ur maður. Rólegur að eðlisfari en samt afar virkur, þurfti alltaf að vera að gera eitthvað. Hann hef- ur örugglega alla tíð verið með mikla hreyfiþörf. Hann var að hjóla í vinnunna, langt á undan sinni samtíð, hjóla frá Stuðlasel- inu niður í Borgartún, sem er ágætis vegalengd. Hann var líka mikið á gönguskíðum, langt á undan þeirri tískubylgju. Þau systkini fóru stundum saman á gönguskíði á sínum tíma með fjöl- skyldurnar. Ég á alveg frábærar minningar frá svona dögum, næstum því týnd uppi í Bláfjöll- um, það var allt snjóhvítt, sást hvergi til byggða, sól og hiti. Ey- mundur elskaði svona daga. Í raun elskaði hann líka að fá sól í kroppinn og var eiginlega með fallegan brúnan húðlit fram á síð- asta dag. Hann var iðinn við að vera úti í garði og dytta að hon- um. Eymundur var líka virkur fé- lagi í gönguhópum og badminton, hann var með skemmtilega mikla hreyfiþörf eins og áður sagði, og hugaði vel að líkama og sál. Árið 1995 gengum við Lauga- veginn, löngu áður en það komst í tísku. Eymundur, pabbi, Sigga frænka, Kristján og fjögur af næstu kynslóð. Við gengum Laugaveginn á fjórum dögum með allt á bakinu. Þeir bræður voru alveg kostulegir þarna, ekk- ert að kvarta yfir því að borða hálfmyglað flatbrauð í morgun- mat. Að hafa farið með þeim Laugaveginn er alveg ótrúlega dýrmæt minning og við kynnt- umst líka bara öðruvísi og nú í ljósi þess að þau systkini pabba eru bæði dáin þá er gott að ylja sér við svona minningar. Á seinni árum höfum við oft verið saman á Stakkabergi. Í nokkur ár hittumst við stórfjöl- skyldan um verslunarmanna- helgina þar og þá var farið í göng- ur, grillað lambalæri og setið við varðeld. Þessar minningar eru líka dýrmætar. Eymundur var líka rosalega klár, stundum eins og alfræði- orðabók. Hann hafði einstakan áhuga á ættfræði og bara al- mennt á náunganum. Alltaf er ég hitti hann þá spurði hann um hagi mína, mannsins míns og strák- anna okkar. Alltaf með allt á hreinu, meira að segja í síðustu heimsókninni minni til hans hafði hann orku til að ræða mína hagi, þó hann væri orðinn afar veikur. Ólöf Huld, frænka Álfhildar og vinkona mín, segir að ég líkist frænda, húðin sé eins, hreyfiþörf- in sú sama og sumt eins í fasi. Mér þykir afar vænt um að heyra það, enda ekki leiðum að líkjast og ég vona að ég haldi áfram á sömu vegferð og hann gerði. Allra síðustu ár hefur sam- gangur verið minni, fyrst og fremst út af Covid og hans veik- indum. En alltaf fengum við fréttir af þeim hjónum. Álfhildur hefur staðið sig ótrúlega vel í hans veikindum og hún passaði vel upp á frænda. Missir hennar er afar mikill. Minning um ynd- islegan mann lifir. Álfhildur, Runólfur, Jintana, Magga, Hafsteinn, Hugi Þeyr, Hávar og Eyrún Úa, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúð- arkveðjur og vona að Guð veiti ykkur styrk í sorg ykkar. Ingveldur. Fallinn er frá fyrrverandi vinnufélagi, badmintonfélagi, göngufélagi og vinur, Eymundur Runólfsson, verkfræðingur. Þeg- ar ég hóf störf hjá Vegagerðinni í janúar 1973 var Eymundur þar fyrir og hafði starfað þar sem fastráðinn starfsmaður frá 1966. Áður hafði hann starfað sem sumarmaður frá 1959 við vega- vinnu og mælingar. Vann hann því nánast allan sinn starfsaldur hjá Vegagerðinni, fyrst sem um- dæmisverkfræðingur á Austur- landi og síðast sem forstöðumað- ur áætlana- og umhverfisdeildar. Vorum við samtíða hjá Vegagerð- inni í tæp 40 ár eða þar til Ey- mundur lét af störfum fyrir ald- urs sakir. Eymundur var ákaflega sam- viskusamur starfsmaður og voru honum falin vandasöm verkefni. Hann var, ásamt Jóni Birgi Jóns- syni, höfundur að vegnúmera- kerfi Vegagerðarinnar og hélt ut- an um það kerfi alla tíð. Get ég fullyrt, að Eymundur þekkti vegnúmer og vegheiti allra vega á landinu betur en nokkur annar. Vegnúmerakerfið auðveldaði mjög vinnu við gerð vegáætlunar og var Eymundur þar lykilmaður og kom alltaf þar að. Vegáætlun var samin í samvinnu við þing- menn kjördæma og veit ég, að Eymundur var vel liðinn. Fyrir utan vinnu voru sam- skipti vegagerðarmanna nokkur. Við Eymundur lékum saman badminton í mörg ár og lítill hóp- ur vegagerðarmanna fór árlega í stuttar sumarferðir, gjarnan ut- an alfaraleiða. Eymundur var grillmeistari í þessum ferðum og var ávallt orðinn ókyrr upp úr miðjum degi, ef honum þótti langt í náttstað. Inngróin sam- viskusemi sagði til sín. Það yrði að byrja að grilla á réttum tíma. Eftir vinnulok hafa nokkrir vega- gerðarmenn myndað gönguhóp, sem gengur alltaf á þriðjudags- morgnum og hefur síðan sest nið- ur á eftir á kaffihús í spjall um allt og ekkert. Eymundur mætti alltaf vel og kom í kaffið þótt hann hefði ekki lengur þrek til að ganga. Síðast drakk hann með okkur kaffi 20. september síðast- liðinn og var að venju léttur í lund. Eymundur átti ekki von á að verða gamall. Foreldrar hans, sem og systir, dóu fyrir aldur fram. Hann gaf í skyn við mig, er ég heimsótti hann á sjúkrahús skömmu fyrir andlátið, að það væri nokkuð gott að vera búinn að ná því að verða 82 ára gamall. Hann brosti lítillega, þegar ég benti honum á, að margir yrðu að verða eldri til að halda uppi með- alaldrinum. Eymundur var glaðsinna mað- ur og hafði góða nærveru. Var ég aldrei var við annað, en að hann væri vel liðinn af samstarfsmönn- um. Blessuð sé minning hans. Við Þórdís færum Álfhildi og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveður við fráfall góðs drengs. Gunnar Gunnarsson. Við fráfall ævivinar er margs að minnast en við stöldrum fyrst við jólin 1963 þegar við vorum komin til Þrándheims þar sem fá- einir Íslendingar höfðu dvalið við nám árin á undan. Þetta haust fjölgaði í hópnum þegar stúdent- ar komu á seinni hluta verkfræði- náms eftir að hafa lokið fyrri hluta við HÍ. Nokkra þeirra þekktum við frá MA og í þeim hópi var Eymundur. Þegar leið að jólum létum við það boð út ganga að ef einhverjir byggjust við að sitja einir á aðfangadags- kvöld væru þeir velkomnir til okkar. Tilviljun réði að Eymund- ur var jólagesturinn þessi fyrstu jól í búskap okkar. Ekki hvarflaði að okkur þá að síðar mætti líta á þetta kvöld sem upphaf að ára- tuga fjölskyldutengslum og margri jólaveislunni. Nokkrum árum síðar kynntist Álfhildur, systir og mágkona, Eymundi og voru þau fljót að ákveða að ganga æviveginn saman. Upphófst nú langur ferill samskipta og vin- áttu. Við vorum tíðir gestir hvert hjá öðru, skiptumst á jólaboðum og öðrum boðum, deildum gleði og sorgum og studdum hvert annað í raun. Börnin fæddust og hafist var handa við húsbygging- ar. Við fengum tvær samliggj- andi lóðir í Seljahverfi, verkið hófst og þokaðist áfram á nokkr- um árum og var þá gott að hafa sameiginlega aðstöðu í vinnuskúr þar sem einnig var hægt að ræða og leysa vandamál sem upp komu. Börnin höfðu einnig sínar hugmyndir um hvað betur mætti fara og lögðu nokkuð fast að okk- ur að grafa jarðgöng milli húsanna til þæginda þegar vetr- arveður geisuðu. Enda þótt göngin yrðu ekki að veruleika þá nutum við kostanna við nábýlið í ríkum mæli en ókostina höfum við enn ekki fundið þessi tæpu 50 ár. Gaman var að fylgjast með Eymundi þegar hann var að vinna við húsið, hann setti sér markmið og vann skipulega að því að ná þeim og lét fátt tefja sig nema þá ef hann þurfti að leita að pípunni sinni sem hann hafði lagt frá sér í miðju verki. Eymundur var traustur maður og sterkgreindur, mjög góður stærðfræðingur, hagorður og smekkmaður á íslenskt mál, áhugasamur um sögur og sagnir fyrri tíma og naut sín vel í Orða- nefnd Verkfræðingafélagsins og einnig fyrir Vegagerðina. Á menntaskólaárunum þegar illa gekk að skilja námsefnið í stærðfræðinni var stundum stofnað til neyðarfundar í heima- vistinni til þess að fá botn í málin. Var Eymundur jafnan fyrstur til að greiða úr flækjunum og óspar á að útskýra fyrir okkur hinum, og svona var hann alla tíð, reiðubúinn að aðstoða við hin ýmsu mál ef með þurfti. Í árganginum sem útskrifaðist árið 1960 frá MA var Eymundur öflugur liðsmaður í hinni svo- nefndu „Eilífðarnefnd“ sem hafði það hlutverk að undirbúa sam- komuhald og aðra viðburði fyrir árganginn og er þar skarð fyrir skildi. Eymundur glímdi við erfið veikindi síðastliðin þrjú ár, kvart- aði ekki en hafði fremur uppi spaugsyrði. Þegar hann er kominn á lend- ur eilífðarinnar, þangað sem leið Eymundur Þór Runólfsson SJÁ SÍÐU 22 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN SKARPHÉÐINSSON fyrrverandi sýslumaður, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi, 8. nóvember. Útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 16. nóvember klukkan 13. Ingibjörg Ingimarsdóttir Þórunn Erla Stefánsdóttir Jóhann Samsonarson Kristín María Stefánsdóttir Róbert Grétar Pétursson Ásgerður Inga Stefánsdóttir Arnar Þór Egilsson Stefán Einar Stefánsson Sara Lind Guðbergsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN TRYGGVASON verkstjóri, Rjúpufelli 29, Reykjavík, lést á Sóltúni hjúkrunarheimili miðvikudaginn 2. nóvember. Útför fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 18. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir. Margrét Pálsdóttir Ásta Hulda Kristinsdóttir Ögmundur Kristinsson Jónas Kristinsson Ásdís Eva Hannesdóttir Páll Kristinsson Guðlaug Halldórsdóttir Kristinn Kristinsson Guðný Ósk Ólafsdóttir Rúnar Kristinsson Erna María Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR ÁSGEIRSSON, Hörðukór 5, Kópavogi, áður búsettur í Bandaríkjunum, lést á Sóltúni 11. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 16. nóvember klukkan 15. Ásgeir Einarsson Ásgeirsson Patricia Ásgeirsson Valur Valtýsson Inga Dóra Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.