Morgunblaðið - 15.11.2022, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022
DÆGRADVÖL 25
Hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum
þessu tvennu saman, danshöfundi
og stjórnendastarfinu, en ég er búin
að læra mikið á þessu. Við erum
mjög fá á skrifstofunni og maður
fer úr einu í annað.“
Erna var útnefnd heiðurslista-
maður Kópavogs 2006 og hún hefur
hlotið fjölda Grímuverðlauna, bæði
fyrir listræna stjórnun og sem
dansari og menningarverðlaun
DV. Einnig hefur hún hlotið ýmsar
tilnefningar og verðlaun erlendis,
m.a. í Þýskalandi og á Norðurlönd-
um. Hún fékk einnig tilnefningu til
hinna virtu Faust verðlauna ásamt
Höllu Ólafsdóttir fyrir Rómeó og
Júlíu 2019.
Áhugamál Ernu eru nútímadans
og listir og tengingar við lífið og til-
veruna. „Á morgun hefst Reykjavík
Dans Festival og verður Íslenski
dansflokkurinn með tvær sýningar
á hátíðinni auk þess sem við Halla
verðum með sýninguna The Juliet
Duet. Afmælisvikan verður þvi
Reykjavík Dans Festival sem er
mjög góð leið til að halda upp á
afmælið að fara út um allan bæ
að skoða sýningar og vinnustofur.
Hugmyndin er að gera meira dæmi-
gert afmælislegt í desember af því
ég er að fara í sýningarferðalag með
Aion til Finnlands og Noregs.“
Fjölskylda
Eiginmaður Ernu er Valdimar Jó-
hannsson, f. 15.7. 1976, fjöllistamað-
ur. Þau eru búsett á Sólvallagötu
í Reykjavík. Foreldrar Valdimars
eru Jóhann Sigfússon, f. 21.8. 1951,
málarameistari og stýrimaður,
búsettur á Ísafirði, Svanfríður Arn-
órsdóttir f. 18.3. 1954, skólaritari og
blómaskreytingarmeistari, búsett
á Ísafirði.
Börn Ernu og Valdimars eru
Úlfur Óðinn Valdimarsson, f. 10.9.
2011, og Urður Æsa Valdimars-
dóttir, f. 30.7. 2013.
Bróðir Ernu er Geir Ómarsson,
f. 20.2. 1975, þríþrautarþjálfari og
verkfræðingur, búsettur í Reykja-
vík.
Foreldrar Ernu eru hjónin Kristín
Geirsdóttir, f. 25.8. 1948, mynd-
listarmaður og kennari, og Ómar
Kristinsson, f. 2.10. 1947, viðskipta-
fræðingur og kerfisfræðingur. Þau
bjuggu lengi í Kópavogi en eru nú
búsett í Reykjavík.
Erna
Ómarsdóttir
Vilborg Benediktsdóttir
húsfreyja í Neskaupstað
Sigfinnur Sigurðsson
útgerðarmaður í Neskaupstað
Sigurbjörg Sigfinnsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Geir Vilbogason
bryti í Reykjavík
Kristín Geirsdóttir
myndlistarmaður og
kennari í Reykjavík
Kristín Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Vilbogi Pétursson
vegagerðarmaður í Reykjavík
Guðbjörg J. Jónsdóttir
húsfreyja á Broddadalsá
Brynjólfur Jónsson
bóndi á Broddadalsá á Ströndum
Svava Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristinn Á. Guðjónsson
klæðskerameistari í Reykjavík
Kolfinna S. Jónsdóttir
saumakona á Hólmavík og í Reykjavík
Guðjón Jónsson
húsasmiður á Hólmavík
Ætt Ernu Ómarsdóttur
Ómar Kristinsson
viðskiptafræðingur
og kerfisfræðingur
í Reykjavík
Vísnahorn
Biblíuhestur og stuðlabögur
Ingólfur Ómar sendi mér póst:
„Heill og sæll Halldór. Ennþá
langar mig að slá á létta strengi,
ekki veitir af í skammdeginu, svo
mér datt í hug að lauma að þér
þessu vísukorni.
Gleymist öng við gleðisvall
gamansöng og hlátur.
Öls við föng og ástabrall
uni ég löngum kátur.“
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
um Grána á Boðnarmiði:
Gráni var gæðinga bestur.
Gráðugur át sá hestur
guðsorðabækur
og gerðist þá sprækur,
því hann var biblíuhestur.
Gunnar J. Straumland kveður:
Stórkostlegar stuðlabögur,
stílhreinar, ég yrki að vild.
Þjóðin afmér þylur sögur.
Þessi vísa er alger snilld!
Jón Atli Játvarðarson skrifar:
„Lognið mætti á Reykhóla í dag;
12.11. '22, eftir marga hvassviðr-
isdaga. Það blæs ekki mikið í
glæðurnar núna.“
Núna bregður logn á leik,
læðist eins og tófan smeyk.
Sauðakjötið sett í reyk,
sumtmá aldrei verða steik.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
yrkir:
Bágt ermeð stóðhrossið Blesa
semBenni keypti af Drésa.
Það var erfitt að temj' ann
án þess að lemj' ann.
Þar til hann lærði að lesa.
„Upp eða niður?“ spyr Pétur
Stefánsson:
Eru á himnum ágæt kjör
ýmsir prestar rita.
Sál hjá kölska verður vör
við voðalegan hita.
Áhvorn staðmín endar för
er ekki gott að vita.
Hallmundur Kristinsson
svarar:
Andaminn ég engum fel.
Aldrei viðhef brígsl.
Ýmsum reynist oftast vel
upp og niður á víxl.
Dagbjartur Dagbjartsson skrif-
ar: „Rifjast upp ein gömul. Sauð-
fjárbændur hafa lengi barið sér“:
Sauðfjárbænda víl og vol
verður bætt án tafar,
Öðlumst hærra hitaþol
hinumegin grafar.
Guðmundur skáld Kamban orti:
Þegar viðmér gröfin gín
og gengur sól að viði
láttu ekki, Drottinn, ljós til mín,
lof mér að sofa í friði.
„ÞETTA ER MÉR AÐ KENNA. ÉG SAGÐI
ÞEIM AÐ MÉR FYNDIST HANN EKKI
NÓGU VEL FARÐAÐUR HJÁ ÞEIM.“
„ÉG SKAL BÝTTA VIÐ ÞIG Á ÍSNUM OG
TVEIMUR EPLABITUM.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga gæðastundir
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞETTA ER HAMSTRA-
MATARÆÐIÐ
SJÁÐU ÞETTA! ÞETTA
ER SPEGILL SEM GERIR
MÉR KLEIFT AÐ SJÁ HVAÐ
ER BAK VIÐ MIG.
AH, FULLKOMIÐ
TIL AÐ SJÁ
FYRIR ÁRÁSIR ÚR
LAUNSÁTRI!
EINMITT!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is