Morgunblaðið - 15.11.2022, Síða 32
Í lausasölu 822 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími 569 1100
Ritstjórn ritstjorn@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is
Áskrift askrift@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 319. DAGUR ÁRSINS 2022
MENNING
Nína heldur einleikstónleika í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Nína Margrét Grímsdóttir píanó-
leikari heldur einleikstónleika í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
í kvöld, 15. nóvember, kl. 20.
Nína leikur efnisskrá sem hún
flutti á tónleikum á Ítalíu í ágúst
við góðar undirtektir. Á henni
voru píanóverk eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Jón Leifs og
Pál Ísólfsson og Prelúdíur eftir
J.S. Bach og Fr. Chopin. Á næsta ári verða liðin 130 ár
frá fæðingu Páls Ísólfssonar. Af því tilefni mun Nína
flytja erindi í safninu að vori um Pál sem hún byggir á
doktorsritgerð sinni. Nína hefur komið fram á Íslandi
og víðar í Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada, Japan og
Kína, sem einleikari með hljómsveitum og á kamm-
ertónleikum. Hún hefur leikið inn á fimm geisladiska
fyrir Naxos, BIS, Acte Pre’alable og Skref sem allir hafa
hlotið frábæra dóma í Gramophone Awards Issue, BBC
Music Magazine, Glasgow Herald, Crescendo-Magazine,
Xían Evening News og High Fidelity.
ÍÞRÓTTIR
Naumt tap gegn Úkraínu í Riga
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mátti þola naumt
72:79-tap fyrir Úkraínu í undankeppni heimsmeist-
aramótsins á Filippseyjum, Indónesíu og Japan, en
mótið fer fram á næsta ári. Tryggvi Snær Hlinason var
stigahæstur í íslenska liðinu með 24 stig og hann tók
einnig 13 fráköst. Jón Axel Guðmundsson gerði 14 stig
og þar á eftir kom Elvar Már Friðriksson með 10 stig.
Þrátt fyrir úrslitin er líklegt að Ísland leiki úrslitaleik
við Georgíu um sæti á lokamótinu í febrúar. » 27
Bókin Knattspyrnubærinn. 100 ára
knattspyrnusaga Akraness eftir
Björn Þór Björnsson sagnfræðing
er komin út hjá Bókaútgáfunni Hól-
um. Höfundurinn hófst handa við
verkið vorið 2020 og er að vonum
ánægður með árangurinn. „Það er
gaman að vera kominn með bókina
í hendur og finna og sjá að hún er
orðin að veruleika.“
Eftir að hafa útskrifast sem
sagnfræðingur frá Háskóla Íslands
2019 segist Björn Þór hafa lang-
að til þess að skrifa bók um efni
tengt Akranesi og knattspyrnan
hafi verið nærtækust enda helsta
áhugamálið. „100 ára afmæli
knattspyrnusögunnar var í augsýn
og ég vildi leggja mitt af mörkum til
að varðveita söguna.“
Knattspyrnufélagið Kári var
stofnað á Akranesi 26. maí 1922
og Björn Þór rekur knattspyrnu-
söguna frá þeim tímamótum. Hann
leitar víða fanga eins og sjá má í
viðamikilli skrá um tilvísanir og
heimildir aftast í bókinni auk þess
sem fjölmargar myndir prýða ritið.
Hann segir að margt hafi komið sér
á óvart við efnisöflunina og ekki síst
sú mikla vinna sem fólk hafi lagt á
sig knattspyrnunni til heilla. „Ekk-
ert stöðvaði menn í uppbyggingunni
og þeir fóru áfram á hnefanum með
félagsandann að leiðarljósi.“ Menn
hafi reist mannvirki í frítíma sínum
og hvergi gefið eftir. „Það er hollt
fyrir fólk í nútímanum að líta um
öxl og sjá hverju félagsandinn getur
áorkað, en ég held að almennt sé
mun minna um hann nú en áður.“
Frumheimildir
Björn Þór hefur grúskað í frum-
heimildum sem varðveittar eru á
skjalasöfnum, hjá Knattspyrnufé-
lagi ÍA og víðar. Margt hefur ekki
birst opinberlega áður og ýmislegt
forvitnilegt er borið á borð í fyrsta
sinn. Hann segir til dæmis gaman
að velta fyrir sér hvað hefði gerst ef
William Lewis, leikmaður Black-
pool, þá eins besta félagsliðs Eng-
lands, hefði orðið þjálfari ÍA 1947
eins og stefnt hafi verið að. Menn
hafi heldur ekki alltaf verið sam-
mála um leiðir. „Það var til dæmis
töluvert uppþot í klúbbnum, þegar
Ríkharður Jónsson hætti á miðju
tímabili 1960. Ákveðin kynslóða-
skipti áttu sér stað, Ríkharður var
mjög agaður og mörgum þótti hann
of harður við menn. Eftir að hann
hætti varð smá upplausn, sem erfitt
var að vinda ofan af, en hann kom
til baka.“ George Kirby hafi skilað
mörgum titlum og dýrðarljómi hafi
verið yfir honum en samband hans
við stjórn ÍA og leikmenn hafi ekki
alltaf verið gott. „Sambandið var
stormasamt að vissu leyti.“
Sennilega hefur aldrei verið
auðvelt að reka íslenskt íþróttafélag
og Björn Þór segir það vissulega
kosta blóð, svita og tár. Skaga-
menn hafi ekki þekkt harðan heim
atvinnumennskunnar fyrr en þeir
hafi staðið í deilum við sænska fé-
lagið IS Halmia vegna félagaskipta
Matthíasar Hallgrímssonar aftur í
ÍA. Um svipað leyti hafi Skagamenn
fengið nokkra bolta frá Jönköping
í Svíþjóð fyrir Teit Þórðarson en
þurft að borga af þeim vörugjald
og söluskatt. „Að sumu leyti er
knattspyrnusaga Íslands samofin
sögu Akraness og óhætt er að segja
að ég skyggnist á bak við tjöldin.“
lViðamikil bók umhundrað ára knattspyrnusögu
Skyggnst á bak við
tjöldin á Akranesi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Á Akranesi Björn Þór Björnsson sagnfræðingur kátur með nýju bókina.
Nýtt
Bragð
bannaðfullorðnum