Morgunblaðið - 29.11.2022, Side 1
PORTÚGAL
OG BRASILÍA
FARAÁFRAM
HM Í KNATTSPYRNU 26
NÝ SJÓBÖÐ
EIGAAÐ NÁ Í
FERÐAMENN
ÖNUNDARFJÖRÐUR 11
TÓNLEIKAR
TILEINKAÐIR
MINNINGUM
ERNAVALA Í HÖRPU 28
• Stofnað 1913 • 280. tölublað • 110. árgangur •
ÞR IÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022
Ljósin ljá lit sinn svörtu næturhúminu
Víða um land hefur mátt sjá norðurljós á
himni síðustu kvöld og nætur, þar á meðal á
Húsavík í gærkvöldi. Góð skilyrði hafa átt þar
hlut að máli, en staða tungls og skýjafar hafa
hvort tveggja áhrif. Á sama tíma hafa kraft-
miklir segulstormar geisað eftir blossa frá
sólu. Spár Veðurstofunnar gera ráð fyrir að í
nótt og á morgun verði áfram talsverð virkni
norðurljósa yfir landinu.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Reglugerðir um
sorp eru á leiðinni
Formaður
Sambands
íslenskra
sveitarfélaga
og formaður
Landverndar
segja slæmt
að ekki séu
komnar fram
reglugerðir
vegna laga um
hringrásarhagkerfi sem taka
gildi 1. janúar.
Hjá umhverfis-, orku- og lofts-
lagsráðuneytinu fengust þær
upplýsingar að reglugerðirnar
væru í smíðum og yrðu birtar
fljótlega í samráðsgáttinni.» 10
RuslMeiri flokkun.
Rigningar gagnast
Landsvirkjun vel
Rigningarnar í nóvember hafa
reynst mjög hagfelldar fyrir
vatnsbúskap Landsvirkjunar.
Suðaustanáttir með hlýindum og
úrkomu hafa aukið mjög rennsli
til miðlunarlóna á hálendinu.
Vatnsborð í Þórisvatni og Háls-
lóni hefur hækkað þannig að nú
eru þessi lón á svipuðum stað og í
upphafi mánaðarins. Mjög litlar
líkur eru taldar á því að grípa
þurfi til rafmagnsskerðinga eins
og síðasta vetur.» 6
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hálslón Rigningatíðin í nóvember-
mánuði hefur aukið rennsli í lónin.
frá okkur. Við ætlum að mæta á
fundinn á morgun [í dag] og tökum
stöðuna eftir þann fund. Við erum á
fullu að vinna okkar vinnu.“
Eiður segir að LÍV mæti ekki á
fundinn í dag með það að leiðarljósi
að slíta viðræðum. „Við mætum bara
inn hjá sáttasemjara með það verk-
efni að loka samningi. Svo verður
það bara að koma í ljós hvernig það
gengur,“ segir hann.
„Gerðist voðalega lítið“
Stíft var fundað í kjaraviðræðum í
gær en meðal annars fundaðu Efling
og samflot iðn- og tæknifólks með
SA sitt á hvorum fundinum.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður Rafiðnaðarsambandsins,
sagði eftir fundinn að viðræður þok-
uðust lítið áfram og að hann væri
hóflega bjartsýnn á framhaldið.
„Við sátum við og reyndum að ýta
málum áfram en það gerðist voða-
lega lítið,“ segir hann og bætir við
að helst hafi verið rædd áhersluat-
riði iðn- og tæknifólks sem snúa að
kjarasamningsákvæðum.
„Tilgangurinn með að mæta er að
reyna að ýta þessu eitthvað áfram,“
segir Eiður Stefánsson, varafor-
maður Landssambands íslenskra
verzlunarmanna (LÍV) og formaður
Félags verslunar- og skrifstofufólks
á Akureyri, um væntingar til fundar
í kjaraviðræðum LÍV, Starfsgreina-
sambandsins (SGS) og VR með
Samtökum atvinnulífsins (SA) hjá
ríkissáttasemjara í dag.
„Okkur fannst þetta svolítið rýrt
þannig að það þarf að ná að teygja
þetta aðeins upp, en það nást samn-
ingar á endanum,“ segir Eiður en
síðast var fundað á fimmtudag. Eftir
þann fund sleit VR viðræðum við
SA. Ragnar Þór Ingólfsson, formað-
ur VR, kveðst þó ætla að mæta á
fundinn í dag.
„Ríkissáttasemjari vildi boða okk-
ur á fundinn og ég verð að sjálfsögðu
við því,“ segir Ragnar. „Efnislega
hefur ekkert breyst. Þótt viðræður
fari í þennan farveg þá höldum við
áfram að reyna. Við erum áfram
boðuð á fundi og verkefnið fer ekki
lLÍV, SGS og VR funda aftur með SA í daglVRmætir aftur þrátt fyrir viðræðu-
slit eftir síðasta fundlEfnislega ekkert breystlHófleg bjartsýni á framhaldið
Viðræðurþokast lítið
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KjaraviðræðurMikið er um að vera í Karphúsinu um þessar mundir.
Stíft fundað í kjaraviðræðum» 2
Stóraukin
framlög til
lögreglu
lAuka fé til löggæslu
um 2,5 milljarða
„Við erum hér
vonandi að fá
aukin framlög,
sem við höfum
ekki séð í fjölda-
mörg ár,“ segir
Jón Gunnarsson
dómsmálaráð-
herra í samtali
við Morgunblað-
ið.
Ríkisstjórnin
hyggst auka fjárframlög til löggæslu
um 2,5 milljarða króna frá því sem
upphaflega var miðað við í fjárlaga-
frumvarpi. Þar munar mest um stór-
aukin framlög úr ríkissjóði til lög-
reglu, þar sem hækkunin mun nema
1,4 milljörðum króna, fallist Alþingi á
tillögurnar. » 4
Jón
Gunnarsson