Morgunblaðið - 29.11.2022, Síða 12
FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
til okkar. Þessu fólki þykir ekkert til-
tökumál að ganga þrjá kílómetra þótt
Íslendingarnir setji það kannski fyrir
sig.“
Sigríður segir í forgangi að tryggja
fjármögnun verkefnisins enda standi
vonir til þess að framkvæmdaleyfi
fáist öðruhvorumegin við áramótin
og þá sé ætlunin að hefja undirbún-
ing að grunni hótelsins en einnig
að heimreið sem stefnt er að því að
leggja yfir Pollinn, framan við böðin
og fyrirhugaða lóð að hótelinu.
Aðspurð segir hún aðsóknina í böð-
in hafa farið fram úr björtustu vonum.
Nú þegar hafi um 65 þúsund manns
lagt leið sína þangað en í áætlunum
hafi verið gert ráð fyrir að um 50 þús-
und manns myndu sækja böðin heim
á fyrsta rekstrarárinu. Í þeim áætlun-
um var gert ráð fyrir að starfsemin
hæfi göngu sína í febrúarmánuði en
raunin varð sú að opnað var 22. maí.
Hlutfall heimamanna hátt
„Nú hefur aðsóknin dregist saman
og hlutfall heimamanna er hátt. Þess
vegna höfum við opið til miðnættis
því margir í þeim hópi vilja koma
hingað eftir vinnu eða jafnvel eftir
kvöldmat. Við nýtum svo veturinn
í að markaðssetja okkur, m.a. gagn-
vart erlendum ferðaskrifstofum og
skemmtiferðaskipum sem hingað
koma. Þau voru um 260 á þessu ári.
Þar er algjörlega óplægður akur að
okkar mati,“ segir Sigríður.
Hið nýja fyrirtæki hefur, eins og
gengur og gerist, mætt ýmsum áskor-
unum á þeim stutta tíma sem það
hefur starfað. Bendir Sigríður á að
erfitt hafi reynst að panta leigubíla
til og frá Skógarböðunum, ekki síst
þegar skemmtiferðaskip eru í höfn.
„Þá eru bílarnir fastir í ferðum í
Mývatnssveit eða annars staðar. Við
brugðum því á það ráð að kaupa 19
manna Sprintger, Skógarbaðarút-
una eins og við köllum hana, og við
erum með hana á ferðinni á klukku-
tímafresti þegar mjög margt er um
manninn.“
Sigríður segir ekki áætlanir uppi
um að stækka böðin sjálf. Þau hafi
raunar stækkað meðan á fram-
kvæmdum stóð og geti tekið við tals-
vert meiri fjölda en nú sæki staðinn
heim. Hins vegar bjóði landnæði ekki
upp á frekari stækkun.
„Böðin sem slík eru nógu stór en
búningsklefar gætu orðið flöskuháls-
inn. En þar mun hótelið leysa mikinn
vanda. Hótelgestir munu notast við
aðstöðu á hótelinu sjálfu og rölta yfir
því það eru ekki nema 90 metrar hér
á milli.“
Fjölmörg stöðugildi
Sigríður sér því aðeins tækifæri
á komandi árum. Fyrirtækið sé vel
mannað og um 50 manns hafi verið
þar á launaskrá í sumar og 43 nú á
fyrstu mánuðum vetrar.
„Starfsmannafjöldinn er mun meiri
en við gerðum ráð fyrir en við viljum
veita góða þjónustu. Við höfum ekki
þurft að auglýsa störf heldur hefur
fólk komið til okkar og við erum mjög
heppin með starfsfólk. Ég halla ekki á
erlent starfsfólk þegar ég segi að það
komi mörgum okkar gesta á óvart að
hér tala nánast allir íslensku.“
Stofnendur Skógarbaðanna í Eyja-
firði, sem opnuðu dyr sínar fyrir gest-
um í maí síðastliðnum, stefna nú að
uppbyggingu 120 herbergja hótels
steinsnar frá núverandi starfsemi.
Sigríður María Hammer átti hug-
myndina að baðstaðnum nýja ásamt
manni sínum Finni Aðalbjörnssyni,
og eiga þau meirihluta í félaginu sem
heldur utan um verkefnið.
„Við búum vel að samstarfsfólki
í þessu verkefni og hluti þess hóps
hefur í hyggju að koma að hótelupp-
byggingunni með okkur. Þetta er hins
vegar verkefni af þeirri stærðargráðu
að við munum þurfa að fá fleiri að
borðinu,“ segir Sigríður.
Heildarfjárfesting í núverandi
starfsemi er um 1,2 milljarðar króna
en Sigríður segir ekki óvarlegt að
áætla að hótel af þessari stærð muni
kosta um 3,5 milljarða króna þegar
upp er staðið. Hún segir mikla þörf
fyrir hóteluppbyggingu í Eyjafirði og
að þau sjái tækifæri í þessu verkefni.
Ekkert byggt í meira
en áratug
„Það hefur ekkert verið byggt upp
í þessum efnum frá því að Icelanda- ir Hotels voru opnuð fyrir rúmum
áratug á Akureyri. Á sama tíma hafa
risið þrjú stór hótel í Mývatnssveit,”
segir hún.
Bendir hún á að þótt hótelið við
Skógarböðin verði aðeins 90 metra
frá þeim og inni í skógi þá verði það
aðeins þrjá kílómetra frá miðbæ Ak-
ureyrar.
„Þegar uppbyggingu hjóla- og
göngustíga verður lokið verður að-
gengið enn betra. Það kom okkur t.d.
á óvart að það var talsverður fjöldi
gesta í sumar sem komu í land á Ak-
ureyri úr skemmtiferðaskipum, sáu
böðin auglýst þar og gengu hreinlega
lSkógarböðin í Eyjafirði hafa slegið í gegnlYfir 65 þúsund gestir á fyrsta árinu, sem er yfir vænting-
umlHótel á teikniborðinu og hyggjast fá fleiri fjárfesta að borðinulSkapar fjölmörg heilsársstörf
Stefna á 3,5 milljarða uppbyggingu
BAKSVIÐ
Stefán Einar Stefánsso
ses@mbl.is
Aðsend mynd
Ferðaþjónusta Uppbygging Skógarbaðanna í Eyjafirði kostaði um 1,2 milljarða króna. Opnað var fyrir gesti sl. vor.
29. nóvember 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 141.2
Sterlingspund 170.58
Kanadadalur 105.67
Dönsk króna 19.7
Norsk króna 14.225
Sænsk króna 13.542
Svissn. franki 148.94
Japanskt jen 1.013
SDR 185.65
Evra 146.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.6725
Tekjur S.B. Heilsu ehf., sem rekur
veitingastaðina Gott og Pítsu-
gerðina í Vestamannaeyjum sem
og veisluþjónustu, námu í fyrra
um 283 milljónum króna og juk-
ust um rúmar 94 milljónir króna
á milli ára. Hagnaður félagsins
nam í fyrra um 20,3 milljónum
króna en nam aðeins 200 þúsund
krónum árið áður. Hagnaður fyr-
ir skatta nam um 25,3 milljónum
króna en aðeins um 400 þúsund
krónum árið áður.
Laun og annar starfsmanna-
kostnaður, sem er stærsti
útgjaldaliður félagsins, nam í
fyrra um 112,3 milljónum króna
og jókst um tæpar 20 milljónir á
milli ára. Meðalfjöldi stöðugilda
var 15 á árinu. Eigið fé félagsins
var í árslok um 37 milljónir króna
og eiginfjárhlutfallið um 34%.
Félagið er í eigu hjónanna Berg-
lindar Sigmarsdóttur og Sigurðar
Friðriks Gíslasonar.
Þó svo að áhrifa heimsfar-
aldursins hafi gætt á nær alla
veitingastaði landsins jukust
tekjur félagsins á árinu 2020 frá
árinu áður.
lGóður gangur hjá Gott í Eyjum
Mikil aukning á
tekjum á milli ára
Veitingastaðir Ráðist var í umtalsverða stækkun á Gott í Vestmannaeyjum
rétt áður en heimsfaraldur skall á á vormánuðum 2020.
n