Morgunblaðið - 29.11.2022, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.11.2022, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022 DÆGRADVÖL24 Margrét S. Höskuldsdóttir rithöfundur – 50 ára Rithöfundarferillinn hafinn M argrét Sigrún Höskuldsdóttir er fædd 29. nóvember 1972 á Þingeyri við Dýrafjörð og ólst þar upp. „Ég flutti með fjöl- skyldunni til Reykjavíkur 1987. Átti þá eitt ár eftir af grunnskóla og fór í Austurbæjarskóla. Bjó fyrst eftir flutninginn á Leifsgötu, þá á Laugaveginum og svo fluttum við í Vesturbæinn, á Kaplaskjólsveginn. Fluttist svo með foreldrunum á Sporðagrunn og bjó þar þangað til ég flutti að heiman.“ Margrét var í Grunnskóla Þing- eyrarhrepps þar til fjölskyldan flutti suður. Hún fór í Fjölbrauta- skólann í Breiðholti eftir grunn- skóla en kláraði stúdentinn ekki strax, tók frí frá námi og fór síðar í Fjölbraut í Ármúla til að klára. Eftir það fór Margrét í Kennarahá- skólann og útskrifaðist sem grunn- skólakennari árið 2002. Margrét vann sem kennari í tvö ár í Rimaskóla og eitt ár í Digra- nessskóla en ákvað svo að fara til Edinborgar að nema listfræði, árið 2006-2007. Hún útskrifaðist frá University of Edinburgh með Msc. í History of Art. „Við hjónin, ásamt eldri syninum, bjuggum þar í eitt ár. Það var mjög gott að búa í Edinborg og gaman að fá að nema við þennan flotta og virta háskóla. Þar fór ég líka í starfsnám í The Talbot Rice Gallery og fékk innsýn inn í listaheiminn þar í landi. Margrét vann á Listasafni Reykjavíkur í eitt ár þegar heim var komið, sem deildarfulltrúi á sýningardeild en fór svo í fæðingar- orlof. Eftir fæðingarorlofið fór hún að kenna í Álftamýrarskóla. „Ég kenndi þar á yngsta ári í 12 ár en tók mér svo leyfi fyrir tveimur árum frá því að kenna til að eltast við að verða rithöfundur og gaf út fyrstu skáldsöguna í sum- ar.“ Bókin heitir Dalurinn og var gefin út af Forlaginu. Dalurinn er spennusaga og hlaut góða dóma. „Ég er sjálfstætt starfandi í dag en tek þó að mér forfallakennslu endrum og eins. Er einnig að kenna ungmennum hugleiðslu og slökun hjá Hugarfrelsi. Ég hef unnið ýmis störf með skóla á lífsleiðinni; Bónusvídeó, sólbaðs- stofu, leikskóla, svo eitthvað sé nefnt. Ég átti einnig búð með móður minni og systur; Kirsuberið í Listhúsinu í Laugardal, rákum það í tvö ár. Áhugamál Margrétar eru samvera með fjölskyldu og vinum, útivera, náttúran, gönguferðir með hundinn, ritstörfin, myndlist og hverskyns skapandi viðfangsefni. „Ég stofnaði með systur minni fyr- irtækið Skeggi sem er okkar útrás fyrir sköpunarþörfina. Ferðalög eru líka ofarlega á blaði, utanlands sem innan. Ég elska að ferðast og sjá nýja staði. Bakstur, matseld og að njóta góðs matar eru líka meðal áhugamálanna. Ég hef líka mikinn áhuga á hug- leiðslu og slökun og slíkri gefandi vinnu með börnum. Vestfirðirnir eru líka hálfgert áhugamál, ég á sumarhús í Keldudal í Dýrafirði með fjölskyldunni og reynum við að eyða sem mestum hluta af sumrinu þar við að rækta landið og njóta dásamlegrar náttúrunn- ar. Við förum þangað nokkrum sinnum yfir sumarið og erum öll, systkini mín, börnin þeirra og mamma. Þar er búið að rækta upp heljarinnar skóg en foreldrar mínir byrjuðu á því fyrir u.þ.b. 40 árum og nú er þetta orðinn frumskógur. Keldudalur er einmitt sögusvið fyrstu skáldsögunnar minnar, Dalurinn.“ Fjölskylda Eiginmaður Margrétar er Arnar Sigurðsson, f. 2.7. 1975, flugumferð- arstjóri. Þau eru búsett í Voga- Fjölskyldan Margrét, Arnar, Elvar Orri og Haukur Máni stödd í bænum Ronda í Andalúsíu í október síðastliðnum. Til hamingju með daginn Stjörnuspá Elvar Már Arnþórsson 40 ÁRA Elvar ólst upp á Árskógssandi en býr á Akureyri. Hann er með skip- stjórnarpróf frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og er eigandi smábátaút- gerðarinnar Ágústu ehf. í Dalvíkurbyggð. Elvar starfar einnig sem stýrimaður hjá Arctic Prime Fisheries á Grænlandi, en það er dótturfyrirtæki Brims hf. Áhugamálin tengjast mest veiðum og sjómennsku, en í frístundum fer hann á kajak og stundar fjallahjól. FJÖLSKYLDA Eiginkona Elvars er Sigrún Ágústa Erlingsdóttir, f. 1984, grunnskólakennari. Börn þeirra eru Aron Vigri, f. 2010, Arnþór Ingi, f. 2013, Arney Lind, f. 2019, og Aríana Sif, f. 2020. Foreldrar Elvars eru hjónin Arnþór Elvar Hermannsson, f. 1964, sjómaður og útgerðarmaður, og Valdís Erla Eiríksdóttir, f. 1964, húsmóðir. Þau eru búsett á Árskógssandi. Nýr borgari Egilsstaðir Unnsteinn Liljar Guð- mundsson fæddist 2. maí 2021 kl. 11.16. Hann vó 4.415 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Guðmundur Birkir Jóhannsson og Björg Eyþórs- dóttir. 21. mars - 19. apríl A Hrútur Þú hefur fengið tækifæri til að fá yfirsýn yfir visst mál og nú er rétti tíminn til að rannsaka það nánar. Líttu á það sem gjöf frá alheimsvitundinni. 20. apríl - 20. maí B Naut Þetta er góður dagur til að kaupa eitthvað fallegt fyrir heimilið eða fjöl- skylduna. Gefðu þér tíma til útiveru því það hressir upp á sálarlífið. 21. maí - 20. júní C Tvíburar Hættu að reyna að sanna eitthvað fyrir umhverfinu eða hamra á viðhorfum þínum. Gefðu, seldu, hentu eða losaðu þig við það sem þú þarft ekki á að halda. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Þótt margir eigi sér sama takmark þá geta leiðirnar að því verið margvíslegar. Léttu af þér okinu og fáðu aðra til liðs við þig. Láttu drauminn rætast. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Láttu ekki áhyggjurnar ná tökum á þér í dag. Þér hættir til að leyna einhvern einhverju í dag til þess að fyrirbyggja vandræði. 23. ágúst - 22. september F Meyja Þú þarft að koma á jafnvægi milli starfs þíns og einkalífs því aðeins þannig geturðu ræktað og notið hvors um sig. 23. september - 22. október G Vog Þér munu berast fréttir sem koma þér skemmtilega á óvart. Góðir hlutir koma upp í hendurnar á þér án nokkurrar ástæðu. 23. október - 21. nóvember H Sporðdreki Þú vinnur af þolinmæði að markmiðum sem munu nást í framtíðinni. Þér er óhætt að treysta eðlisávísun þinni í bland við hæfilegan skammt af raunsæi. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Vitirðu ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga skaltu fara eftir því sem hjart- að segir þér, því það skrökvar aldrei. Láttu það ekki hindra þig í að koma áformum þínum í verk. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Dagleg rútína verður fyrir trufl- unum í dag. Það er hætt við að þú lendir í deilum við einhvern innan fjölskyldunnar. 20. janúar - 18. febrúar K Vatnsberi Við sérlega freistandi aðstæður breytirðu rétt og kemur sjálfum þér á óvart. Smá tafir kunna að ergja þig en niðurstaðan verður þér hagstæð. 19. febrúar - 20. mars L Fiskar Þegar taka þarf mikilvægar ákvarð- anir þarftu að vera ákveðinn og sterkur. Reyndu samt að halda ró þinni, þótt mikið gangi á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.