Morgunblaðið - 29.11.2022, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022
DÆGRADVÖL 25
hverfinu í Reykjavík. „Ég kynntist
manninum mínum á Tunglinu sem
var og hét fyrir 27 árum og erum
við búin að vera gift í 22 ár. Eigum
saman tvo unglingspilta, þá Elvar
og Hauk, sem eru báðir fæddir í
Indlandi. Við fórum að sækja þá
út árið 2004 og 2009 og eru það
minnisstæðustu og dýrmætustu
ferðalögin sem við höfum farið í.“
Foreldrar Arnars: Hjónin
Steinunn Árnadóttir, f. 29.10. 1945,
lífeindafræðingur, búsett í Reykja-
vík, og Sigurður Jónas Sigurðsson,
f. 5.3. 1939, d. 7.5. 2017, bílstjóri.
Börn Margrétar og Arnars eru
Elvar Orri Palash Arnarsson,
f. 21.6. 2003, tónlistarmaður, og
Haukur Máni Somdip Arnarsson, f.
2.10. 2007, grunnskólanemi.
Systkini Margrétar eru Kristín
Ragna Höskuldsdóttir, f. 5.3. 1970,
leikskólakennari, búsett í Reykja-
vík, og Ólafur Gunnþór Höskulds-
son, f. 15.7. 1976, málarameistari,
búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Margrétar: Hjónin
Höskuldur Ragnarsson, f. 26.4.
1942, d. 15.7. 2021, sjómaður í
Reykjavík, og Guðmunda Kristín
Guðmundsdóttir, f. 30.10. 1949,
sjúkraliði, búsett í Reykjavík.
HjóninMargrét og Arnar stödd á
Dynjandisheiði síðastliðið sumar.
Margrét Sigrún
Höskuldsdóttir
Guðrún Árnadóttir
húsmóðir í Reykjavík
Gunnar Ingiberg
Ingimundarson
verkamaður í Reykjavík
Kristín Gunnarsdóttir
húsmóðir á Brekku og Þingeyri
Guðmundur Sören Karvel Magnússon
bóndi á Brekku í Dýrafirði, síðar
búsettur á Þingeyri
Guðmunda Kristín Guðmundsdóttir
fv. sjúkraliði í Reykjavík
Valgerður Jónsdóttir
vinnukona í Arnarfirði
Sveinbjörn Egilsson
bóndi á Krosseyri í Arnarfirði
Kristín Sveinbjörnsdóttir
húsmóðir á Hrafnabjörgum í Arnarfirði
Guðbjartur Ragnar Guðmundsson
bóndi á Hrafnabjörgum í Arnarfirði
Margrét Guðmundsdóttir
húsmóðir á Hólum
Guðmundur Bjarnason
bóndi á Hólum í Dýrafirði
Ætt Margrétar Sigrúnar Höskuldsdóttur
Höskuldur Ragnarsson
útgerðarmaður og sjómaður á
Þingeyri og í Reykjavík
Magnús Helgi Guðmundsson
bóndi á Hrauni í Dýrafirði
Guðmunda Kristín
Guðmundsdóttir
húsmóðir á Hrauni
Vísnahorn
Ölkaup og snjöll nafnagáta
Baldur Hafstað sendi mér
góðan póst. Hér birtist fyrri
hlutinn en niðurlagið á morgun:
„Sigurður Sigmundsson í Ey í
Vestur-Landeyjum sendi mér
eftirfarandi gátu sem hann lærði
ungur austur undir Eyjafjöllum.
Þar er í hverri braglínu falið eitt
nafn: í fyrstu hendingunni leynist
nafn höfundar vísunnar, þeirri
næstu nafn föður hans, þá nafn
eiginkonunnar og í lokalínunni
er fólgið bæjarnafnið þar sem
fjölskyldan bjó.
Lesið vísuna vandlega og reynið
að finna nöfnin! (Þau eru gefin
upp hér að neðan.)
Unnin þraut og grjótin grá.
grimman föður átti sá.
Hengiflug fyrir húsfrú á,
heimilið yst á fjöllum lá.
Svör við gátu: Höfundurinn
var Sigurður Vigfússon bóndi á
Brúnumundir Vestur-Eyjafjöllum
(d. 1936), kennari, framámaður í
sveit sinni og vel hagmæltur. – Nú
er komið svar við fyrri tveimur
atriðunum (Sigurður, Vigfús). Í
þriðju braglínunni er síðan fólgið
nafn eiginkonu Sigurðar, Bjargar
Jónsdóttur, sem bjó yfir skáldgáfu
líkt og maður hennar. Og þá er að-
eins eftir að ráða lokahendinguna:
Bærinn þeirra hét Brúnir.
Þess má geta að hjónin Sigurð-
ur og Björg voru foreldrar hins
nafnkunna Jóns Sigurðssonar
(1925–1992) bankamanns sem
orti marga af okkar þekktustu
dægurlagatextum; hann samdi
einnig lög og lék í hljómsveitum.
Albróðir Jóns var Vigfús, en eftir
hann birtust nýlega í Vísnahorn-
inu tvær vísur um séra Sigurð
Einarsson í Holti.
Seinni maður Bjargar Jóns-
dóttur var Sigmundur Þorgilsson
kennari, og bjuggu þau í Ásólfs-
skála undir Eyjafjöllum. Sonur
þeirra er Sigurður Sigmundsson
sem sendi mér þessa bráðsnjöllu
gátu hér að ofan.“
Friðrik Steingrímsson yrkir á
Boðnarmiði:
Glórulaus er gæfan,mér
gengur fátt í haginn,
bjórinn allur búinn er,
ég byrja'of snemma'á daginn.
Karl Erik Halldórsson svaraði:
Ölkaupin svo endist þér,
án þess skorti bjóra.
Myrkra nú á milli er,
mátulegt að þjóra.
Kristján H. Theodórsson hélt
áfram:
Seint þó ég á fætur fari,
fæ ég hvergi næði í þjór.
En ágætt væri að eiga spari,
eina kippu af góðum bjór.
„ÞETTA ER EKKI LÆKNING – EN ÞÚ
GÆTIR REYNT AÐ VERA GÓÐUR OG SÉÐ
HVORT ÞAÐ BÆTI EKKI ÁSTANDIÐ.“
„OG ÞÁ SAGÐI ÉG „BAKAÐU FYRIR MIG
KÖKU MEÐ JÁRNSÖG Í“.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að flytja inn saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
DÆS… ÞÚ GLEYMIR ALDREI
FYRSTU ÁSTINNI…
OG ÞARNA ERTU,
GOÐUMLÍKA VERA
ÉG ER MJÖG HRIFINN AF
ÞESSARI STÚLKU!
FARÐU VARLEGA!
HAFÐU BÆÐI AUGUN OPIN!
ÉG ER ÞAÐ! HÚN
BLIKKAÐI MIG!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is