Morgunblaðið - 29.11.2022, Side 26

Morgunblaðið - 29.11.2022, Side 26
ÍÞRÓTTIR26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022 Valsmenn spila í Aix í kvöld Valsmenn leika í kvöld fjórða leik sinn í Evrópudeild karla í handbolta þegar þeir sækja heim franska liðið Aix. Eftir þrjár um- ferðir er Flensburg efst í riðlinum með 6 stig og síðan koma Valur og Aix með 4 stig en bæði lið hafa tapað fyrir Flensburg með fimm mörkum. Aix er í 8. sæti frönsku 1. deildarinnar, átta stigum á eftir toppliðum París SG og Montpelli- er. Kristján Örn Kristjánsson leikur með Aix en verður líklega ekki með í kvöld vegna meiðsla. Morgunblaðið / Kristinn Magnússon Evrópa Valsmenn hafa verið á flugi í Evrópudeildinni í vetur. Elís kominn aftur í Árbæinn Knattspyrnumaðurinn Elís Rafn Björnsson er genginn til liðs við Fylkismenn á nýjan leik eftir fjögurra ára fjarveru. Elís hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2019, auk þess að vera hluta tímabilsins 2019 í láni hjá Fjölni. Fram að því lék hann allan sinn feril með Fylki. Elís er þrítugur og hefur ýmist leikið sem miðju- maður eða varnarmaður. Hann á að baki 119 leiki í efstu deild, 75 með Fylki og 44 með Stjörnunni, og hefur skorað í þeim sex mörk. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Fylkir Elís Rafn Björnsson lék með Stjörnunni í fjögur ár. HM í Katar G-RIÐILL: Kamerún – Serbía ..................................... 3:3 Jean-Charles Castelletto 29., Vincent Abou- bakar 63., Eric Choupo-Moting 66. – Strahinja Pavlovic 45., Sergej Milinkovic-Savic 45., Aleksandar Mitrovic 53. Brasilía – Sviss ........................................... 1:0 Casemiro 83. Staðan: Brasilía 2 2 0 0 3:0 6 Sviss 2 1 0 1 1:1 3 Kamerún 2 0 1 1 3:4 1 Serbía 2 0 1 1 3:5 1 Í lokaumferðinni leikur Brasilía við Kamer- ún og Serbía við Sviss. H-RIÐILL: Suður-Kórea – Gana ................................. 2:3 Cho Gue-sung 58., 61. – Mohammed Salisu 24., Mohammed Kudus 34., 69. Portúgal – Úrúgvæ................................... 2:0 Bruno Fernandes 54., 90+3.(v) Staðan: Portúgal 2 2 0 0 5:2 6 Gana 2 1 0 1 5:5 3 Suður-Kórea 2 0 1 1 2:3 1 Úrúgvæ 2 0 1 1 0:2 1 Í lokaumferðinni leikur Portúgal við Suð- ur-Kóreu og Úrúgvæ við Gana. MARKAHÆSTIR Á HM: Kylian Mbappé, Frakklandi.......................... 3 Enner Valencia, Ekvador .............................. 3 Bruno Fernandes, Portúgal.......................... 2 Cody Gakpo, Hollandi.................................... 2 Olivier Giroud, Frakklandi ........................... 2 Cho Gue-sung, Suður-Kóreu ........................ 2 Andrej Kramaric, Króatíu............................ 2 Mohammed Kudus, Gana ............................. 2 Lionel Messi, Argentínu................................ 2 Álvaro Morata, Spáni .................................... 2 Richarlison, Brasilíu ...................................... 2 Bukayo Saka, Englandi ................................. 2 Mehdi Taremi, Íran........................................ 2 Ferran Torres, Spáni ..................................... 2 LEIKIR Í DAG: 15.00 A Holland – Katar 15.00 A Ekvador – Senegal 19.00 B Wales – England 19.00 B Íran – Bandaríkin Ítalía Parma – Inter Mílanó............................... 2:2 Anna Björk Kristjánsdóttir var ónotaður varamaður hjá Inter. „Portúgalinn Paulo Bento getur ekki stýrt liði Suður-Kóreu gegn löndum sínum í lokaumferð H-riðils heimsmeistaramótsins í fótbolta. Bento, sem þjálfaði portúgalska lands- liðið 2010-2014, fokreiddist í leikslok og fékk rauða spjaldið eftir ósigurinn gegn Gana, 2:3, í gær. Hann var ósáttur við að sínir menn fengju ekki að taka hornspyrnu sem þeir höfðu áunnið sér áður en leikurinn var flautaður af. „Dregið var í 3. umferð ensku bikar- keppninnar í knattspyrnu karla á An- field í Liverpool í gærkvöldi. Þar munu nokkrir afar athyglisverðir slagir fara fram og ber þar hæst að Manchester City fær Chelsea í heimsókn í risaslag. Ríkjandi bikarmeistarar Liverpool fá WolverhamptonWanderers í heimsókn á Anfield. Manchester United dróst gegn Everton og munu liðin mætast í grannaslag á Old Trafford. Fleiri úrvalsdeildarslagir munu fara fram þar sem Crystal Palace mætir Sout- hampton og Brentford færWest Ham United í heimsókn í Lundúnaslag. „Elín Jóna Þorsteinsdóttir, lands- liðsmarkvörður í handknattleik, sneri aftur í mark Ringköbing á sunnudag og varði 6 skot í 26:24-sigri á Skander- borg, liði Steinunnar Hansdóttur, í dönsku úrvalsdeildinni eftir að hafa verið frá í rúma sjö mánuði vegna meiðsla. Elín Jóna meiddist á mjöðm í verkefni með íslenska landsliðinu í apríl síðastliðnum og þurfti að gang- ast undir aðgerð vegna þeirra meiðsla. Þrjú lið örugg áfram AFP/Nelson Almeida Tvenna Bruno Fernandes fagnar seinna marki sínu og Portúgals í sigrin- um á Úrúgvæ, 2:0, en hann skoraði úr vítaspyrnu í uppbótartíma. AFP/Nelson Almeida Sigurmarkið Casemiro fagnar ásamt Vinícius Júnior eftir að hafa skorað seint í leiknum gegn Sviss og tryggt Brasilíu stigin þrjú. lBruno Fernandes skoraði bæði mörkin í sigri Portúgals á Úrúgvæ sem er enn án markalBrasilía knúði fram sigur á SvisslGana og Sviss í góðri stöðu HM Í KATAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Portúgal og Brasilía tryggðu sér í gær sæti í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta með sigrum á Úrúgvæ og Sviss í lykilleikjunum í annarri umferð G- og H-riðils mótsins. Þar með eru þrjú lið komin áfram þegar tveimur umferðum af þremur er lokið í riðlakeppninni en Frakkar voru áður komnir áfram. Bæði Portúgal og Brasilía eiga um leið alla möguleika á að gulltryggja sér sigur í sínum riðli í lokaumferðinni og sleppa þar með við að mæta hvort öðru í 16-liða úr- slitum en þar munu eigast við liðin í efstu tveimur sætum þessara riðla. Brasilía leikur þá við liðið í öðru sæti H-riðils og Portúgal við liðið í öðru sæti G-riðils. Bruno Fernandes var maðurinn á bak við sigur Portúgala á Úrúgvæ, 2:0, en hann skoraði bæði mörkin og var óheppinn að fullkomna ekki þrennuna í uppbótartíma leiksins þegar hann átti tvisvar skot í stöng úrúgvæska marksins. Úrúgvæjar hafa enn ekki náð að skora mark á mótinu en voru óheppnir að jafna ekki seint í leiknum þegar Maxi Gómez átti hörkuskot í stöng. Kudus hetja Ganamanna Mohammed Kudus, 22 ára gamall miðjumaður Ajax í Hollandi, var hetja Ganamanna þegar þeir lögðu Suður-Kóreu að velli, 3:2, og komu sér af fullum krafti í slaginn um sæti í sextán liða úrslitunum. Kudus, sem kom til Ajax frá Nord- sjælland í Danmörku fyrir tveimur árum, skoraði tvö markanna og sigurmarkið rétt eftir að Cho Gue-sung virtist ætla að eyðileggja allt fyrir Afríkubúunum með því að skora tvö glæsileg skallamörk á þremur mínútum og jafna metin í 2:2. Í lokaumferðinni leikur Gana við Úrúgvæ og Suður-Kórea mætir Portúgal. Ganamenn standa best að vígi og nægir jafntefli við Úrúgvæ, svo framarlega sem Suður-Kórea vinnur ekki tveggja marka sigur gegn Portúgal. Úrúgvæ fer hins vegar áfram með sigri, ef Suður-Kórea vinnur ekki Portúgal. Þá myndi Gana hirða efsta sætið af Portúgal með því að vinna Úrúg- væ ef Suður-Kórea vinnur Portúgal, ef annar leikurinn endar með meira en eins marks mun. Þrumufleygur frá Casemiro Varnartengiliðurinn Casemiro er ekki mesti markaskorarinn í röðum Brasilíumanna, langt í frá. En þegar sóknarmönnum liðsins tókst ekki að koma boltanum í netið var það hann sem skoraði sigurmarkið gegn Svisslendingum í gær, 1:0, með þrumufleyg seint í leiknum, og hann gulltryggði því Brasilíu sæti í sextán liða úrslitunum. Sigurinn var mjög sanngjarn en eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik voru Brassarnir, án Neymars, sókndjarf- ir í þeim síðari og uppskáru að lokum laun erfiðisins. Sjötta markið sem Casemiro skorar í 67 lands- leikjum fyrir Brasilíu. Brasilía hefur nú ekki tapað leik í riðlakeppni HM í 24 ár, eða frá árinu 1998, og er komin áfram úr riðlakeppni á fjórtánda mótinu í röð. Kamerún og Serbía eru með sitt stigið hvor þjóð eftir jafntefli í bráð- fjörugum og sveiflukenndum leik í gær, 3:3. Serbar virtust á sigur- braut eftir að Aleksandar Mitrovic kom þeim í 3:1 snemma í síðari hálfleik en varamaðurinn Vincent Aboubakar minnkaði muninn og lagði síðan upp jöfnunarmarkið þremur mínútum síðar fyrir Eric Choupo-Mouting, sóknarmann Bayern München. Sigur í riðlinum blasir við Brasilíumenn vinna því G-riðilinn, nema þeir taki upp á því að tapa illa fyrir Kamerún í lokaumferðinni. Sviss, Serbía og Kamerún slást hinsvegar um annað sæti G-riðils- ins í lokaumferðinni á föstudags- kvöldið. Sviss mætir Serbíu og þar nægir Svisslendingum jafntefli, svo framarlega sem Kamerún vinnur ekki Brasilíu. Serbar þurfa að vinna Sviss og treysta á að Kamerún vinni ekki en Kamerúnar verða hinsvegar að vinna Brasilíu og vonast eftir sigri Serba eða jafntefli í leiknum við Sviss. Breyttir leiktímar í dag Lokaumferð riðlakeppninnar hefst í dag þar sem leikið verður í A- og B-riðli. Nú breytast leiktím- arnir nokkuð því leikið er á sama tíma innan riðlanna. Klukkan 15 leikur Holland við Katar og Ekvador við Senegal í A-riðlin- um, þar sem Holland, Ekvador og Senegal eru í baráttu um tvö sæti í 16-liða úrslitum. Klukkan 19 leikur England við Wales og Bandaríkin við Íran í B-riðlinum þar sem öll liðin eru í baráttunni en England stendur langbest að vígi og staða Wales er erfiðust. AFP/Kirill Kudryavtsev Sigurmarkið Varamenn Gana fagna Mohammed Kudus eftir að hann skor- aði sitt annað mark og tryggði liðinu sigurinn á Suður-Kóreu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.