Morgunblaðið - 29.11.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.11.2022, Blaðsíða 27
NBA-deildin Brooklyn – Portland............................... 111:97 Minnesota – Golden State .................. 114:137 LA Clippers – Indiana ......................... 114:100 Atlanta – Miami..................................... 98:106 Boston – Washington........................... 130:121 Detroit – Cleveland ............................... 94:102 New York – Memphis........................... 123:127 Orlando – Philadelphia....................... 103:133 Milwaukee – Dallas .............................. 124:115 Olísdeild karla Haukar – ÍR ............................................. 30:26 FH – Afturelding ..................................... 38:33 Staðan: Valur 11 10 0 1 377:309 20 FH 11 7 2 2 329:318 16 Afturelding 11 6 2 3 334:313 14 ÍBV 11 6 2 3 368:334 14 Stjarnan 11 5 3 3 327:314 13 Fram 12 5 3 4 357:354 13 Selfoss 11 5 1 5 321:329 11 Haukar 11 4 1 6 320:310 9 Grótta 10 3 2 5 269:269 8 KA 11 3 2 6 313:331 8 ÍR 11 2 1 8 307:372 5 Hörður 11 0 1 10 317:386 1 Danmörk Ribe-Esbjerg - Kolding........................ 33:38 Elvar Ásgeirsson skoraði 5 mörk fyrir Ribe-Esbjerg en Arnar Birkir Hálfdánsson komst ekki á blað. Ágúst Elí Björgvinsson varði 5 skot í marki liðsins. Svíþjóð Helsingborg - Skövde .......................... 30:23 Ásgeir Snær Vignisson skoraði 2 mörk fyrir Helsingborg. Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 5 mörk fyrir Skövde. Þýskaland B-deild: Empor Rostock - Grosswallstadt..... 29:24 Sveinn Andri Sveinsson skoraði 5 mörk fyrir Empor Rostock og Hafþór Már Vignisson 3. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022 „Þetta er ótrúleg saga“ AFP/Ina Fassbender Markið Sóknarmaðurinn Niclas Füllkrug skorar jöfnunarmarkið dýr- mæta fyrir Þjóðverja gegn Spánverjum í fyrrakvöld. lNiclas Füllkrug lékmeðRúrik Gíslasyni hjá NürnberglGóður liðsfélagi HM Í KATAR Ólafur Pálsson oap@mbl.is Hetju Þýskalands í 1:1-jafntefli gegn Spáni á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu í Katar kannast líklega ekki allir íslenskir knattspyrnu- áhugamenn við. Eftir að Spánverjar höfðu komist yfir eftir um klukku- stundar leik setti Hansi Flick, þjálfari Þýskalands, hinn 29 ára sóknarmann, Niclas Füllkrug, inn á fyrir sóknar- manninn kunna ThomasMüller. Füllkrug þakkaði traustið 13 mínút- um síðar þegar hann komst inn fyrir vörn Spánverja og skoraði glæsilega hjá Unai Simon í marki Spánar og jafnaði metin fyrir Þýskaland. Þetta var þriðji landsleikur Füll- krugs, sem skoraði í frumraun sinni í vináttulandsleik gegn Óman ummiðj- an nóvember. Hann hefur alltaf komið inn af bekknum og samtals leikið innan við 90 mínútur fyrir A-landslið Þýskalands. Einn Íslendingur þekkir Niclas Füllkrug líklega betur en við hinir. Á keppnistímabilinu 2015-2016 lék Rúrik Gíslason með Füllkrug hjá Nürnberg en Rúrik hafði haft vista- skipti frá FC Köbenhavn um sumarið. Füllkrug átti flott tímabil 2015-2016 er hann skoraði 14 mörk og gaf 4 stoðsendingar að auki í þeim 30 leikj- um sem hans naut við og var keyptur til Hannover á rúmlega 2 milljónir evra eftir tímabilið. Opnar vonandi augu Þjóðverja „Þetta er ótrúleg saga, sérstaklega í ljósi þess að Þjóðverjar eru gjarnan fljótir að afskrifa leikmenn sem ann- aðhvort hafa verið mikið meiddir eða blómstra seint á sínum ferli. Hann var góður hjá Nürnberg og hann er einn af þessum góðu liðsfélögum sem ég hef átt,“ sagði Rúrik í samtali við Morgunblaðið. Rúrik segir að Füllkrug hafi alltaf verið kraftmikill og sterkur en að hann hafi greinilega bætt sig mikið undanfarið. „Ég fagna því að þessi saga eigi sér stað og ég vona að hún opni augu Þjóðverja fyrir því að gefa mönnum tækifæri þó þeir hafi verið í vand- ræðummeð sinn feril á einhverjum tímapunkti.“ Niclas Füllkrug er uppalinn hjá Werder Bremen. Hann braust inn í aðallið félagsins eftir vasklega fram- göngu með varaliði þess á seinni hluta ársins 2011. Hann þreytti frumraun sína með aðalliðinu í lok janúar 2012, þá rétt tæplega 19 ára gamall. Hann skoraði fyrsta mark sitt fyrir aðallið Bremen í sínum fyrsta og eina leik í byrjunarliðinu það keppnistímabilið í 1:1-jafntefli gegn Augsburg í mars sama ár. Mörkin urðu ekki fleiri á keppnistímabilinu en hann kom við sögu í 11 leikjum. Meiðsli sett svip á ferilinn Füllkrug kom við sögu í 12 leikjum á sínu öðru tímabili í þýsku 1. deildinni og skoraði eitt mark en hann var að- eins einu sinni í byrjunarliðinu. Hann missti af seinni hluta keppnistímabils- ins 2012-2013 vegna hnémeiðsla. Hann fór á lánssamningi til Greuther Fürth í þýsku B-deildinni og skoraði sex mörk í 21 leik fyrir liðið tímabilið 2013-2014. Nürnberg keypti hann afWerder Bremen sumarið 2014 en hann skoraði þrjú mörk og var með sjö stoðsendingar í 24 leikjum í þýsku B-deildinni keppn- istímabilið 2014-2015. Hannmissti af tæplega þriðjungi þess tímabils vegna hnémeiðsla. Eftir tímabilið góða með Nürnberg tók við enn eitt tímabilið þar sem Füllkrug var mikið á meiðslalistan- um, nú hjá Hannover. Hann skoraði þó fimmmörk og lagði upp þrjú til viðbótar fyrir liðsfélaga sína í 27 leikjum en hann byrjaði aðeins 13 leiki. Hannover hafnaði í öðru sæti og komst upp í 1. deild þar sem Füllkrug lét mikið að sér kveða á tímabilinu 2017-2018, skoraði 14 mörk og lagði upp þrjú mörk fyrir liðsfélaga sína í 34 leikjum. Úr leik í níu mánuði Þrátt fyrir að hafa aðeins skorað tvö mörk í 14 leikjum á keppnistímabilinu 2018-2019 og þurft að undirgangast aðgerð vegna hnémeiðsla keypti uppeldisfélagið, Werder Bremen, Füllkrug aftur í sínar raðir sumarið 2019. Hann þakkaði traustið og skor- aði tvö mörk í fyrstu fjórum leikjun- ummeð félaginu á keppnistímabilinu 2019-2020 áður en hann varð fyrir enn einum hnémeiðslunum en í þetta skiptið sleit hann krossband og var frá keppni í níu mánuði. Hann kom sterkur til baka og skoraði í sínum fyrsta leik eftir endur- komuna en alls skoraði hann fjögur mörk og lagði upp eitt til viðbótar í átta leikjum fyrir Werder Bremen það tímabilið. Meiðsli á bæði kálfa og ökkla héldu Füllkrug talsvert utan vallar á keppnistímabilinu 2020-2021 en honum tókst þó að skora sex mörk í 19 leikjum.Werder Bremen hafnaði í næstsíðasta sæti 1. deildarinnar og féll niður í B-deildina. Mikill sjarmi yfir þessu Füllkrug var frábær í B-deildinni á síðasta keppnistímabili en hann skor- aði 19 mörk og gaf átta stoðsendingar að auki í 33 leikjum í deildinni. Hann er meðal markahæstu leikmanna þýsku 1. deildarinnar á yfirstandandi keppnistímabili með 10 mörk í 14 leikj- um og tvær stoðsendingar að auki. Niclas Füllkrug hefur skorað 38 mörk í 112 leikjum í þýsku 1. deildinni og 47 mörk í 135 leikjum í B-deildinni. Þá hefur hann skorað tvö mörk fyrir A-landslið Þýskalands í þremur leikjum. „Eins og langflestir þýskir fót- boltamenn hefur hann greinilega lagt mikið á sig. Ég vona bara að hans frægðarsól muni rísa enn hærra. Það er mikill sjarmi yfir þessu öllu saman. Ég óska honum alls hins besta enda er hann frábær drengur,“ sagði Rúrik Gíslason um gamla liðsfélagann hjá Nürnberg. með fimm. Matas Pranckevicius varði níu skot í marki Hafnar- fjarðarliðsins. Markahæstir hjá ÍR voru Arnar Freyr Guðmundsson og Dagur Sverrir Kristjánsson, báðir með sex mörk, og skammt undan var Viktor Sigurðsson með fimm. Ólafur Rafn Gíslason varði þá 11 skot í marki liðsins. gunnaregill@mbl.is Með löngu millibili eru gerðar breytingar á regluverki fótboltans. Þær hafa oftast verið farsælar, eins og til dæmis þegar markverði var bannað að taka boltann með höndum eftir sendingu samherja. Þegar HM hófst í Katar á dögunum sást afgerandi breyting hvað varðar uppbótar- tíma leikjanna. Klassísku þrjár mínúturnar eru orðnar að klassískum átta mínútum, eða svo gott sem. Þetta var ekki gert að ástæðu- lausu. Annars vegar var nauðsyn- legt að bæta meiri tíma við leik- ina vegna óhóflegrar notkunar á myndbandadómgæslunni (VAR), og hins vegar var brýnt að finna leið til að minnka eins og mögu- legt væri tafir liða sem reyna að halda fengnum hlut með því að drepa leikinn niður. Nú sjáum við mikilvæg mörk skoruð á tíundu og elleftu mínútu uppbótartíma. Leikmenn sem áhorfendur eru fljótir að ganga á lagið og eru ósáttir ef bara fimm eða sex mínútum er bætt við leiktímann. Þetta er þó væntanlega bara áfangi á leiðinni að því sem koma skal. Leiktíminn verði 30 mínútur í hvorum hálfleik en klukkan stöðvuð þegar boltinn er úr leik. Eins og í körfuboltanum þar sem leiktíminn er alls 40 mínútur en samt tekur leikurinn hálfan annan tíma að jafnaði. Þegar að því kemur verður uppbótartíminn óþarfur. Barn síns tíma. Og þá verður VAR vonandi í leiðinni farið að snúast meira um að uppræta ljót brot en að eyða tímanum í að skoða hvort olnbogi eða nef séu fyrir innan rangstöðulínuna. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is stoðsendingar. Skammt undan var Þorsteinn Leó Gunnarsson með átta mörk. Jovan Kukobat varði svo tíu skot í marki Mosfellinga. Haukar unnu þá mikilvægan 30:26-sigur á nýliðum ÍR í fallbar- áttuslag á Ásvöllum í gærkvöldi. Með sigrinum spyrntu Haukar sér nokkuð frá fallbaráttunni þar sem liðið er nú í áttunda sæti deildarinn- ar með 9 stig, fjórum stigum fyrir ofan ÍR, sem er í 11. og næstneðsta sæti, fallsæti. Haukar stýrðu ferðinni stærst- an hluta leiksins en þó leiddu heimamenn aðeins með einu marki í upphafi síðari hálfleiks. Haukar náðu þó fljótt aftur vopnum sínum, hleyptu ÍR ekki of nálægt sér það sem eftir lifði leiks og niðurstaðan að lokum góður fjögurra marka sig- ur, sem er annar sigur liðsins undir stjórn Ásgeirs Arnar Hallgrímsson- ar í fjórum leikjum. Guðmundur Bragi Ástþórsson fór fyrir Haukum er hann skoraði níu mörk og gaf sex stoðsendingar að auki. Næstir á eftir honum voru Andri Már Rúnarsson með sex mörk og Stefán Rafn Sigurmanns- son og Heimir Óli Heimisson, báðir FH skákaðiAftur- eldingu í toppslag FH vann öruggan 38:33-sigur á Aftureldingu þegar liðin áttust við í toppslag í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, í Kaplakrika í gærkvöldi. Með sigrinum hafði FH sætaskipti við Aftureldingu og er nú í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Vals og tveimur stigum fyrir ofan Mosfellinga í þriðja sæti. Eftir mikið jafnræði með liðunum til að byrja með náði FH góðri stjórn á leiknum þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður. Leiddu heimamenn með sex mörk- um, 19:13, í hálfleik. Í síðari hálfleik hélt FH dampi og hleypti gestun- um úr Mosfellsbænum ekki nær sér en fjórum mörkum. Sanngjarn fimm marka sigur Hafnfirðinga því staðreynd. Ásbjörn Friðriksson fór á kostum í liði FH en hann skoraði 11 mörk og gaf fjórar stoðsendingar að auki. Liðsfélagi hans Jóhannes Berg Andrason átti sömuleiðis stórleik þar sem hann skoraði tíu mörk. Phil Döhler varði þá 13 skot í marki FH. Hjá Aftureldingu átti Blær Hinriksson einnig stórleik þegar hann skoraði níu mörk og gaf fimm Morgunblaðið/Kristinn Barátta Ásbjörn Friðriksson og Þorsteinn Leó Gunnarsson eigast við í gær. lHaukar komnir upp í áttunda sætið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.