Morgunblaðið - 29.11.2022, Qupperneq 28
MENNING28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022
Píanóleikarinn Erna Vala Arnar-
dóttir lýkur þriggja tónleika ferða-
lagi sínu um landið í Norðurljósa-
sal Hörpu í kvöld kl. 20 en hinir
viðkomustaðirnir voru Akureyri og
Egilsstaðir. Á tónleikunum flytur
hún verk eftir Ottorino Respig-
hi, Claude Debussy og Robert
Schumann og eru tónleikarnir
tileinkaðir minningum, góðum og
slæmum, hlýjum og kærum, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
henni.
Þegar blaðamaður ræðir við
Ernu Völu í síma er hún stödd á
Egilsstöðum og tónleikar framund-
an þar um kvöldið. Hún er fyrst
spurð að því hvað hafi komið til
að hún fór í þessa hringferð um
landið. „Mig langaði til að fara
hringinn og spila tónleika á stöðum
þar sem ég hef ekki spilað áður. Ég
hef líka aldrei áður keyrt hringinn
ein og það gera það ekki margir sér
til gamans en fyrir mér hljómaði
það eins og eitthvað sem ég myndi
njóta mjög mikið, að eiga þennan
tíma með sjálfri mér til að hlusta
á tónlist sem var búin að bíða á
hlustunarlistanum í langan tíma,“
segir Erna Vala kímin.
Atburðarás, kringumstæður
eða aðstæður
Hún er spurð út í efnisskrána og
segir hana tileinkaða minningum,
líkt og komið hefur fram. „Öll verk-
in eru tengd þannig einhverjum
atburðum í mínu lífi og ég get ekki
hugsað um þau án þess að hugsa
um ákveðna atburðarás, kringum-
stæður eða aðstæður. Ég held að
það gerist líka hjá mörgum með
tónlist, að hún tengist atburðum
eða minningum í kringum þann
tíma þegar maður kynnist henni,“
segir Erna Vala.
Blaðamaður spyr hvort nánar
megi fara út í þessar minningar.
„Ég ætlaði milli verka á tónleikun-
um að tala um þetta og segja frá til
að gefa innsýn í hvernig ég upplifi
þessa tónlist og hvað ég er að pæla
þegar ég spila hana. Ég held að
það gefi líka áhorfendum dálitla
innsýn í það sem ég er að gera og
líka nýjan vinkil á verkin. Það sem
ég er að hugsa er ekki endilega
það sem tónskáldið var að hugsa,“
svarar Erna Vala. Þegar hún sem
píanóleikari kynnist nýju verki og
fari að spila það verði það persónu-
legt, hún geri það að sínu og það
verði vinur hennar.
Greindist með berkla
Erna Vala segist kynna sér vel
þau verk sem hún æfi og flytji,
kynni sér oftast ævi tónskáldsins
og hvað var að gerast í lífi þess um
það leyti sem það samdi verkið.
Hún nefnir sem dæmi Schumann
og Píanósónötu hans nr. 2 í g-moll,
Op. 22, sem hún leikur á tónleik-
unum. „Ég tengi mikið við andann
í sónötunni út frá því á hvaða stað
ég var í lífinu þegar ég kynntist
þessari tónlist eftir Schumann.
Mér finnst ég tengja líka svo mikið
við hugarástand tónskáldsins á
þeim tíma sem hann var að semja
þessi verk.“
Hún er spurð að því af hverju
hún hafi valið verk eftir þessi
þrjú tónskáld og segir hún kímin
að þetta séu í fyrsta lagi geggj-
uð verk. „Verkin koma inn í líf
mitt í tímaröð. Respighi-verkinu
kynnist ég fyrir mörgum, mörg-
um árum á Spáni. Þar kynntist
ég mörgum og eignaðist rosalega
góða vinkonu sem var að spila
einmitt þetta verk,“ segir Erna
Vala. Debussy-verkinu kynntist
hún svo við allt aðrar aðstæður,
tveimur árum seinna, þegar hún
var smituð af berklum. „Ég var
flutt aftur til Íslands út af því, til
að fara í berklameðferð,“ segir
Erna Vala en þá var hún við nám í
Síbelíusarakademíunni í Helsinki í
Finnlandi sem hún lauk vorið 2019.
Seinna kom svo verk Schumann
við sögu.
Eins og flestir vita eru afar litlar
líkur á því að smitast af berklum á
okkar tímum og Erna Vala segir að
einmitt þess vegna hafi það tekið
lækna ansi langan tíma að finna
út úr því hvað hrjáði hana. „Það
dettur engum þetta í hug og það
var búið að testa mig fyrir öllu, lík-
legast þótti að ég væri með krabba-
mein,“ segir hún. Veikindunum hafi
fylgt mjög slæm lungnabólga, hún
hafi verið með hita í tvo mánuði og
léttist mjög mikið.
Schumann og Seigla
Erna Vala er 27 ára og hefur
vakið athygli fyrir hæfileika sína á
hljóðfærið. Hún hefur leikið víða,
í Evrópu og Bandaríkjunum og
unnið til verðlauna fyrir píanóleik
sinn og má af þeim nefna heiðurs-
orðuna Hvítu rósina frá forseta
Finnlands og fyrstu verðlaun í
efsta flokki EPTA-píanókeppninn-
ar á Íslandi.
Hún lauk M.Mus-gráðu frá
Síbelíusarakademíunni og hélt
þá til Los Angeles í doktorsnám í
píanóleik. „Þar var ég í raun bara
í eitt ár því Covid kom eftir fyrsta
árið sem varð til þess að ég ákvað
að fara heim og taka mér hlé frá
námi. Ég er búin að vera á Íslandi
síðan þá að vinna og spila en ætli
ég fari ekki aftur út og klári þenn-
an doktor einhvern tímann,“ segir
Erna Vala. Hún er líka stofnandi
og listrænn stjórnandi tónlistarhá-
tíðarinnar Seiglu sem haldin er
árlega í byrjun ágúst í Hörpu og
stofnaði menningarfélagið Íslenska
Schumannfélagið sumarið 2020 og
gegnir nú stöðu formanns í því.
Tveir ballettar í Tíbrá
Erna Vala hefur komið fram sem
einleikari með hljómsveitum, þ.á
m. Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
og í haust vakti hún mikla athygli
þegar hún kom fram sem einleikari
á sjónvarpstónleikum SÍ, Klassík-
inni okkar. Hún segir Schumann-
félagið standa fyrir hátíðinni
Seiglu og vonast til að starfsemi
félagsins aukist enn frekar. „Það er
stærsta verkefni félagsins en helsta
markmið þess fyrir mér er að búa
til eitthvað jákvætt fyrir listasam-
félagið á Íslandi þannig að vonandi,
með tíð og tíma, geta verkefnin
orðið fleiri og stærri og stuðlað að
frjósemi í menningarsamfélaginu,“
segir Erna Vala.
Hún er að lokum spurð að því
hvað sé næst á dagskrá. „Ég er
næst að spila í Tíbrá í Salnum,
dúótónleika með píanóleikaranum
Romain Þór Denuit. Við ætlum að
spila tvo balletta fyrir tvö píanó
í glæsilegum útsetningum. Þetta
er geggjað prógramm, Öskubuska
eftir Prokofiev og Hnotubrjótur-
inn eftir Tsjajkovskíj,“ segir Erna
Vala og heyra má að hún er full
eftirvæntingar. Erna Vala er með
vefsíðuna ernavala.is.
l ErnaVala leikur verk eftir Rsepighi, Debussy og Schumann íNorðurljósum í kvöld og lýkur
þarmeðhringferð um landiðl Verk sem tengjastminningumpíanóleikarans og atburðum
Innsýn í huga píanóleikarans
Fyrir norðan Erna Vala hæstánægð að loknum tónleikum í Hofi á Akureyri í síðustu viku.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma