Morgunblaðið - 30.11.2022, Page 13

Morgunblaðið - 30.11.2022, Page 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022 Mánaskin Tunglið varpar fölri birtu á Þingvallavatn og lætur sér fátt um finnast þótt geimfarið Orion sé á sveimi umhverfis það og von sé á fleiri gestum frá jörðinni á næstu árum. Kristinn Magnússon Þolinmæði kínversku þjóðarinnar gagnvart hörðum sóttvarnar- aðgerðum stjórnvalda í baráttu við Covid-19 virðist á þrotum. Eftir tæp þrjú ár af lokunum, sem fylgt hefur verið eftir af hörku af lög- reglu og heilu borg- irnar settar í sóttkví, er mælirinn loksins fullur. Mótmælin sem brotist hafa út síðustu daga eru líklega mesta áskorun sem Xi Jinping forseti hefur staðið frammi fyrir frá því að hann komst til valda árið 2012. Hrottaleg stefna í sóttvörnum hefur haft efnahagslegar og félagslegar af- leiðingar sem enginn í forystu Kommúnistaflokks Kína reiknaði með. Lokunarstefna Xi hefur ekki skilað árangri. Útbreiðsla Covid-19 er að aukast að nýju og efnahags- legur kostnaður er gríðarlegur. Mótmælin sem brutust út í kjölfar eldsvoða í borginni Urumqi, þar sem tíu manns fórust, eru sérstaklega hættuleg Xi af tveimur ástæðum, segir Ian Williams, dálkahöfundur tímaritsins The Spectator og sér- fræðingur í málefnum Kína. Annars vegar vegna þess hve útbreidd þau eru – frá Urumqi í vestri, til Guang- zhou í suðri, í gegnum Peking, Sjanghaí, Wuhan og marga fleiri bæi og borgir. Hins vegar vegna þess að námsmenn, efri millistéttin og verk- smiðju- og farandverkafólk hafa sam- einast í mótmælunum. Alræðisklíkan í Peking undir forystu Xi Jinping hef- ur greinilega vanmetið hve útbreidd og djúpstæð reiðin er í garð stjórnvalda. Verum hugrakkari „Kínverjar ættu að vera hugrakkari!“ hróp- aði ungi maðurinn með fangið fullt af gulum blómum um leið og hann hvatti til dáða fjölda fólks sem safn- aðist saman í miðborg Sjanghaí á sunnudag. „Er ég að brjóta lög með því að halda á þess- um blómum? Þeir þora ekki að hand- taka okkur!“ Augnabliki síðar var ungi maðurinn handtekinn af lög- reglu, honum hent upp í lögreglubíl. Með þessum orðum hefst fréttaskýr- ing Jamils Anderlinis, aðalritstjóra fréttaritsins Politico fyrir Evrópu, um ástandið í Kína. Hann starfaði í tvo áratugi sem blaðamaður í Kína. Leiðtogar kínverska kommúnista- flokksins hafa alltaf mætt andófi af mikilli hörku. Brotið mótmæli á bak aftur af grimmd alræðisherra. Á Torgi hins himneska friðar í Peking voru mótmæli undir forystu stúdenta brotin aftur með hervaldi í júní 1989. Þúsundir lágu í valnum og fjöldi var handtekinn. Hreinsanir hófust, er- lendir blaðamenn voru reknir úr landi, embættismönnum vikið úr starfi, ritskoðun hert og öryggis- lögreglan styrkt. Sérfræðingar halda því fram að kúgunin hafi náð nýjum hæðum í valdatíð Xi og að enginn leiðtogi kommúnistaflokksins hafi tekið sér meiri völd en hann frá tímum Mao Zedong. Í raun sé Xi orðinn alvaldur í fjölmennasta ríki jarðarinnar. Undir hans stjórn hafa uighur-múslimar sætt ofsóknum og börn verið aðskilin frá foreldrum. Talið er að allt að ein milljón sé í haldi í „endurmennt- unarbúðum“ þar sem stunduð er póli- tísk innræting. Trúarhefðir og tungu- mál eru skipulega brotin niður. Menningarlegt þjóðarmorð. Í Hong Kong hefur kommúnistaflokkurinn hert tökin, þvert á loforð. Sett hafa verið sérstök öryggislög til að kæfa andóf. Meira að segja barnabókahöf- undar eru ekki óhultir en nýlega voru fimm þeirra dæmdir fyrir samsæri og fundnir sekir um að æsa til uppreisn- ar með bókarskrifum. Hvergi í heim- inum hafa fleiri blaðamenn verið fangelsaðir en í Kína. Á hverjum degi eru almenn mannréttindi brotin á kínverskum borgurum. Fangelsi, rit- skoðun og útskúfun eru úrræði of- beldisstjórnar Xi. Hið rétta andlit birtist Hvort mótmælin síðustu daga skila einhverjum árangri á eftir að koma í ljós. Sagan er ekki hliðholl mótmæl- endum. En Xi er vissulega vandi á höndum. Reiðin vegna harkalegra sóttvarnaraðgerða getur snúist í ann- að og meira: Kröfu um aukið frelsi og lýðræði. Jamil Anderlini segir að það hafi verið ótrúlegt að heyra fólk hrópa eft- ir lýðræði, endalokum stjórnar kommúnistaflokksins og krefjast þess að Xi láti af völdum. „Gefðu mér frelsi eða gefðu mér dauða!“ hrópaði námsmaður við háskólann í Peking rétt áður en hann var fjarlægður af hrottum yfirvalda. Jamil segir greini- legt að eitthvað hafi breyst í þjóðarsál Kínverja og það lofi ekki góðu fyrir Xi eða kínverska kommúnistaflokk- inn. Það sé ekki aðeins innbyrð gremja yfir harkalegum sóttvarn- araðgerðum sem er að brjótast út heldur uppsöfnuð reiði vegna áratug- ar af stöðugt vaxandi kúgun undir stjórn Xi og fámennrar klíku hans. Hugsjónafólkið sem gengið hefur fram fyrir skjöldu í mótmælum síð- ustu daga í bæjum og borgum um allt Kína hefur ekki hugmynd um hvort og þá hvaða hryllingur bíður þess. Hugrekkið er svo sannarlega fyrir hendi. En óháð Covid munu stjórn- völd taka niður grímuna og kínversk- ur almenningur sér hið rétta andlit ógnar- og kúgunarstjórnar Xi Jinp- ing. Því miður er líklegt að vestræn stjórnvöld þegi þunnu hljóði þegar mótmæli verða barin niður af þeirri grimmd sem talin er nauðsynleg. Efnahagslegir hagsmunir sem eru undir ráða of miklu. Óli Björn Kárason »Hugsjónafólkið sem mótmælt hefur síð- ustu daga um allt Kína hefur ekki hugmynd um hvort og þá hvaða hryll- ingur bíður þess. Hug- rekkið er fyrir hendi. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Gríman fellur Mynd/Associated Press Mótmæli Ein frægasta fréttamynd allra tíma sýnir ótrúlegt hugrekki kín- versks mótmælanda sem gekk í veg fyrir skriðdrekana 1989. Enn í dag er ekki vitað um örlög mannsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.