Morgunblaðið - 30.11.2022, Blaðsíða 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO
KOMIN Í BÍÓ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
RALPH
FIENNES
NICHOLAS
HOULT
ANYA
TAYLOR-JOY
Painstakingly Prepared.
Brilliantly Executed.
SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD
REPORTER
91%
USA TODAY ENTERTAINMENT
WEEKLY
EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post
84%
N
ýlega sendi rithöfundur-
inn Berglind Ósk frá sér
sitt fyrsta smásagnasafn,
Breytt ástand, sem hefur
að geyma nítján beinskeyttar sögur
úr Reykjavík samtímans. Bókin hef-
ur hlotið mikið lof enda þykir hún
einstaklega sterkt og kraftmikið
byrjandaverk. Áður hefur Berglind
Ósk gefið út
ljóðabækurnar
Berorðað (2016)
og Loddaralíðan
(2021) auk þess
að hafa birt ljóð,
sögur og þýð-
ingar í ýmsum
tímaritum.
Breytt ástand
er áleitin og
eftirtektarverð
bók sem á sannarlega skilið það lof
sem hún hefur fengið. Hún dregur
upp djarfa mynd af íslenskum
veruleika en flestar sögurnar segja
frá ungu fólki í leit að sjálfu sér og
ástinni, tilbreytingu, næsta partíi
eða einfaldlega innri friði.
„Ég fékk mér í haus til að róa
hjartsláttinn. Óskaði einskis heitar
en að skriða aftur í blakkátið. Inn
í gatið á raunveruleikanum og
fela mig. Vildi ekki horfast í augu
við lífið. Djammið var á enda. Við
vorum helluð. Sjúskuð. Gegnsæ og
krumpuð. Tóm hylki. Týnd. Brotin
og beygluð.“
Sögupersónurnar eiga það
sameiginlegt að vera á skjön við
umhverfi sitt á einn eða annan
máta, sækjast eftir breyttu ástandi
og þrá að brjótast úr sama farinu.
Líf þeirra verður „völundarhús af
óskiljanlegum ákvörðunum“ eins og
segir svo snilldarlega á einum stað í
bókinni. Áfengi og aðrir vímugjafar
leika stórt hlutverk í flestum sögun-
um og fjallað er um neyslu og fíkn á
hispurslausan máta sem varpar ljósi
á þá kima samfélagsins sem mörgum
þykir óþægilegt að horfast í augu við.
Leiðin út á jaðar samfélagsins er oft
styttri en við gerum okkur grein fyr-
ir, líkt og bent er á í káputexta aftan
á bókinni og höfundi tekst afar vel að
draga þessi málefni fram í dagsljósið.
Sögurnar eru nokkuð margar
miðað við lengd smásagnasafnsins,
nítján talsins, og allar eru þær
mjög knappar og hnitmiðaðar. Við
fáum þannig snarpar svipmyndir
eða leiftur úr lífi sögupersónanna
án mikilla málalenginga en höfundi
tekst ákaflega vel að skapa hverri
sögu einstakt andrúmsloft og
soga lesandann samstundis inn í
atburðarásina. Líkt og oftast vill
verða þegar um smásagnasafn er
að ræða þá eru sögurnar misgóðar.
Þær sterkustu eru þó afar áhrifa-
miklar og sitja lengi eftir í lesand-
anum. Hægt er að finna tengingar
á milli sumra sagna en margar eru
líka áþekkar. Sögupersónurnar eru
keimlíkar í gegnum bókina og sama
dýnamíkin á milli þeirra er endur-
tekin nokkuð oft. Á köflum hjakkar
bókin þannig eilítið í sama farinu og
getur þetta orðið leiðigjarnt fyrir
lesandann. Ef til vill hefði heildin
orðið sterkari ef sögunum hefði
verið fækkað og þeim gefið meira
pláss í bókinni. Það væri þó einnig
forvitnilegt að sjá hvað höfundur
gæti gert við sama efnivið í lengri
sögu eða jafnvel skáldsögu.
Það sem er ef til vill hvað áhrifa-
mest við bókina eru lýsingar hennar
á andlegu ofbeldi og ofbeldissam-
böndum. Hér er ekkert dregið und-
an og höfundur er einstaklega fær í
að bregða upp raunsærri og sann-
færandi mynd af samskiptamynstri
ofbeldissambanda. Það er mikils-
vert að lesa svo sterka og lýsandi
umfjöllun um jafn erfitt málefni.
Í sögunum er almennt margt
óþægilegt að finna og sömuleiðis
margt sem kemur á óvart. Sumt
kann að skjóta lesandanum skelk í
bringu. Frásögnin er því á köflum
stuðandi og höfundi tekst yfirleitt
vel að halda lesandanum við efnið.
Eftir því sem líður á bókina færast
sögupersónur síðan í átt að meiri
sátt við sjálfar sig og umhverfi
sitt og finna jafnvel innri frið. Þær
verða sömuleiðis eldri eftir því sem
líður á og uppbyggingin líkir þannig
eftir línulegum þroska. Í síðustu
sögu bókarinnar er sögumaður
kominn á efri ár og sjónarhornið
því ólíkt fyrri sögum. Hún bregður
sömuleiðis út af því mynstri sem
flestar aðrar sögurnar finna sig í og
höfundur sýnir því fram á marg-
hæfni sína sem hefði ef til vill mátt
skína betur í í bókinni.
Breytt ástand er sterkt og áhrifa-
mikið verk, stuðandi á köflum en
afar heillandi og skemmtilegt að
lesa. Hér er spennandi ný rödd á
ferð sem gaman verður að fylgjast
með í framtíðinni.
Ljósmynd/Steinar Bragi
FærAðmati rýnis er Beglind Ósk einstaklega fær í að bregða upp raun-
særri og sannfærandi mynd af samskiptamynstri ofbeldissambanda.
BÆKUR
SNÆDÍS
BJÖRNSDÓTTIR
Smásagnasafn
Breytt ástand
Eftir Berglindi Ósk.
Sögur útgáfa 2022. 160 bls. kilja.
Líf sögupersóna völundarhús
óskiljanlegra ákvarðana
Erik og sendiboðar
djassa á Múlanum
Jazzklúbburinn
Múlinn stendur
fyrir tónleikum
í kvöld kl. 20 á
Björtuloftum í
Hörpu. Á þeim
kemur fram
hljómsveit
trommuleik-
arans Eriks
Qvicks, Jazz-
sendiboðarnir, og tekur ofan
hattinn fyrir goðsögnum „hard
bop“-tímabilsins, skv. tilkynn-
ingu. Leikin verða lög eftir Curtis
Fuller, Freddie Hubbard, Cedar
Walton o.fl. Með Erik koma fram
Snorri Sigurðarson á trompet,
Ólafur Jónsson á saxófón,
Sigrún K. Jónsdóttir á básúnu,
Kjartan Valdemarsson á píanó
og Þorgrímur Jónsson á bassa.
Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni
Múla Árnasyni sem jafnframt
var heiðursfélagi og verndari
Múlans.
Jón Múli Árnason
Uppsöfnuð og ólg-
andi reiði braust út
Bandaríski leikarinnWill Smith
var gestur í spjallþætti Trevors
Noahs í fyrrakvöld og ræddu þeir
m.a. löðrunginn á Óskarsverð-
laununum fyrr á árinu, þegar
Smith gekk upp á svið og sló
kynninn Chris Rock fast í andlitið
eftir að Rock henti gaman að út-
liti eiginkonu Smiths. Smith sagð-
ist í viðtalinu hafa verið „farinn“,
eins og hann orðaði það, og þarna
hefði uppsöfnuð og ólgandi reiði
losnað úr læðingi. Sagðist hann
ekki geta réttlætt hegðun sína
þó svo hann hafi glímt við mikla
erfiðleika um þetta leyti. Smith
táraðist í þættinum og reyndi
Noah að hughreysta hann, að því
er fram kemur á vefDeadline.
AFP/Robyn Beck
Iðrun Smith segist fullur iðrunar yfir
því að hafa löðrungað Chris Rock.