Morgunblaðið - 30.11.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.11.2022, Blaðsíða 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022 Vorum að fá nýjar vörur www.rumfot.is Nýbýlavegur 28 - sími 565 1025 - rumfot@rumfot.is - Opið frá 12-17.30 alla virka daga og 11-15 laugardaga Landsins mesta úrval af hágæða rúmfötum. Einnig sængur og koddar. 300tc - 600tc - 900tc - 1400tc Hinn 3. nóvember sl. hélt Sinfóníuhljómsveit Íslands frábæra tón- leika til heiðurs og minningar um Bohdan Wodiczko sem var hljómsveitarstjóri og aðgerðasinni og var virkur í íslensku tón- listarlífi á sjöunda og áttunda áratugnum. Þessi fjölhæfi atorku- maður færði báðum þjóðum hina gleymdu tónlist 20. aldar en sú tónlist átti að hans mati að hafa haft áhrif á hlustendur, ekki einungis á fagurfræðilegan hátt heldur einnig siðfræðilegan. Tilgangur með þeirri tónlist var að virkja áhorfendur og gera það að verkum að sífellt fleiri gengju inn í þann hóp fegurðar og þar með breyttu sínu lífi. Við skulum rifja upp nokkrar staðreyndir úr við- burðaríkri ævi hans. „Ég tel þörf á að gefa áheyrend- um tónlist sem kemur nær hug- arfari nútímamann- eskju og jafnframt þörf á að minna pólska áheyrendur á afrek tónlistartímabils okkar,“ sagði lista- maðurinn. Bohdan fæddist 5. júlí 1911 í Varsjá og lést 12. maí 1985 í sömu borg. Hann var af tékkneskum ættum. Fjölskylda hans var búsett í litla bænum Wołomin, rétt hjá Varsjá, þar sem nú er staðsett lítið safn Wodiczko-fjölskyldunnar. Hinn tékkneski þáttur í lista- persónu Bohdans Wodiczkos kemur til sögunnar vegna háskólanáms sem hann stundaði í Tónlistarhá- skólanum í Prag (1932-1935) en nánar tiltekið vegna tónsmíða hjá Jaroslav Kricki, nemanda Nikolajs Rimskij-Korsakovs, og tónlistar- stjórnar hjá Metod Doleil. En það sem hefur mest áhrif á hann er þátttaka hans í alhliða námskeiði hjá einum mest framúrskarandi hljómsveitarstjóra 20. aldar – Vac- láv Talich. Í Prag – borg með áber- andi framúrstefnu – kynnist Bohd- an Wodiczko hinni þýsku tónlistar- stefnu eftir tíma Wagners ásamt expressjónisma, hinni frönsku og þýsku nýklassík og einnig hinni nýju tékknesku og rússnesku tón- list (hinni vélrænu tónlist og líf- hyggju), örtónlist og tónlist sem innblásin er af djassi og íþróttum. Hér fæst hann einnig við módern- íska tónleiklist sem mun síðar skipta sköpum varðandi hugmynda- fræði hans fram undan (með því að fylgjast með starfsemi Otakars Ostrcils, óperustjóra í Þjóðleikhús- inu Narodni Divadlo). Á árunum 1936-1939 heldur hann áfram í há- skólanámi í Þjóðartónlistarháskól- anum í Varsjá, þ.á m. í hljómsveit- arstjórn hjá Walerian Bierdiajew sem nýtur mikillar virðingar og hefur haft áhrif á þróun allmargra pólskra framúrskarandi hljómsveit- arstjóra. Í júní 1939 kemur hann fram á tónleikum kandídata tónlist- arháskólans á sviði Pólsku þjóðar- fílharmóníunnar í Varsjá og stjórn- ar fyrsta og níunda kafla sinfóníu eftir Beethoven. Á árum þýska hernámsins er Bohdan Wodiczko neyddur til að leika dægurtónlist (sem fiðlu-, píanó- og harmónikuleikari) á veit- inga- og skemmtistaðnum Adria í Varsjá sem eru heimkynni rjóma listasamfélagsins í Póllandi, en nú „nur für Deutsche“ – bara fyrir Þjóðverja. Jafnframt verndar hann eiginkonu sína sem er af gyðinga- ættum. Í september 1944 er hann handtekinn í skyndiárás í útjaðri Varsjár, fluttur út í vinnubúðir í Stutthofie og síðar í Pennemünde til nauðungarvinnu við framleiðslu V-2-eldflauga. Árið 1945 snýr Bohdan aftur til Póllands og þar nær hann að fóta sig ásamt fjölskyldu sinni. Þegar hann er nýkominn aftur tekur hann við starfi aðalhljómsveitarstjóra ný- stofnaðrar Eystrasaltsfílharmóníu í Gdansk, Gdyniu og Sopot. Hér stíg- ur hann sín fyrstu skref í átt að umbótum í nútímatónlist en hann kynnir hlustendum marga tónlistar- dýrgripi 20. aldar. En mikil tíma- mót í ævi hans eiga sér stað þegar hann tekur við starfi forstjóra Krakárfílharmóníunnar (1951-1955). Gagnrýnendur skilgreina þetta tímabil sem „stefnu að hinni nýju pólsku tónlist“ en umrætt tímabil nær yfir hið djúpa myrkur Stalíns- tímans. Fram að dögun myndast biðraðir eftir aðgangsmiðum á tón- leika með tónverk eftir Debussy, Ravel, Scriabin, de Falla, Janacek, Martinu, Kodaly, Bartók, Honegger og Messiaën ásamt hinni pólsku nú- tímatónlist sem er oft og tíðum bönnuð af hálfu yfirvalda. Tímabil hljómsveitarstjórans í Pólsku þjóðarfílharmóníunni í Varsjá (1955-1958) og jafnframt hinn frægi ágreiningur við eig- inlegan stofnanda fílharmóníunnar, Witold Rowicki, byrjaði á þeirri kærulausu spurningu „gætir þú ekki stofnað fílharmóníu í Varsjá?“ sem menningar- og listaráðherra beindi í símtali til Bohdans Wodicz- kos. Þjóðarfílharmónían hafði fyrir liðlega tíu dögum einmitt verið vígð í sinni nýju veglegu byggingu eftir tíu ára viðleitni af hálfu Rowickis. Frammistaða hljómsveitarinnar sem lék undir í Chopin-keppninni fyrir unga tónlistarmenn var því miður ekki ásættanleg og því kvart- aði Arturo Benedetti-Michelangeli, sem hafði komið fram í keppninni, undan henni við ráðherrann. Witold Rowicki var tafarlaust sagt upp störfum og í hans stöðu var ráðinn Wodiczko sem tók strax til hend- inni. Hann yngdi upp í hljómsveit- inni og kórnum og lyfti þeim á hærra plan. Nú á þröskuldi „póli- tískrar þíðu“ sem Pólverjar höfðu lengi beðið eftir kaus hann fremur nútímaverk á efnisskrá (því til stuðnings var þátttaka hljómsveit- arstjóra í hátíðlegri athöfn þegar fyrsta alþjóðakeppni í nútímatónlist var hafin en sú keppni bar heitið Varsjárhaustið). Hlustendur í Varsjá hlýddu á hrífandi flutning fjölda tónverka í tónlistarstíl 20. Bohdan Wodiczko – hljómsveitarstjóri nútímans Michal Klubinski Michal Klubinski » Það sem einkennir þennan markverða listamann í pólsku og ís- lensku tónlistarlífi eru nútímahugmyndafræði, trú á ungmennum, sannfæring um að hin móderníska tónlist hafi sérstök áhrif með sið- ferðilegum hætti á sam- félagið, virkni aðferða, ástríða og hugsjón. Morgunblaðið/Kristján Magnússon Hljómsveitarstjórinn Bohdan Wodiczko mundar tónsprotann á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.