Morgunblaðið - 30.11.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.11.2022, Qupperneq 28
Í lausasölu 822 kr. Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr. PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr. Sími 569 1100 Ritstjórn ritstjorn@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is Áskrift askrift@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 334. DAGUR ÁRSINS 2022 MENNING Efnisskrá Guðnýjar á Orgelhátíð innblásin af aðventu og jólum Guðný Einarsdóttir organisti heldur tónleika á Orgelhátíð í Akureyrarkirkju í dag, miðvikudaginn 30. nóvember, kl. 20. Á efnisskránni verða verk eftir J.S. Bach, Arngerði Maríu Árnadóttur, Niels W. Gade, César Franck og Charles Ives og er hún innblásin af aðventu og jólum. Guðný hefur komið fram víða, bæði hér á landi og erlendis, sem einleikari, meðleikari og kórstjóri og hefur einnig kennt orgel- og píanóleik. Hún hefur gefið út tvo geisladiska með orgelverkum, samdi söguna Lítil saga úr orgelhúsi sem er tónlistarævintýri fyrir börn um undraheima pípuorgelsins og gegnir nú stöðu organista við Háteigskirkju og er stjórnandi Kordíu sem er kór þeirrar kirkju. ÍÞRÓTTIR Naumt tap Valsmanna í Frakklandi Íslands- og bikarmeistarar Vals máttu þola 29:32-tap gegn franska liðinu Aix í B-riðli Evrópudeildar karla í handbolta í gærkvöldi. Valsmenn voru yfir stóran hluta leiks, en franska liðið var sterkara á lokakaflanum. Valur náði mest fjögurra marka forskoti í seinni hálfleik, en slæmur kafli í blálokin varð liðinu að falli. Stiven Tobar Valencia og Arnór Snær Óskarsson skor- uðu sex mörk hvor fyrir Val og Björgvin Páll Gústavs- son varði tólf skot í markinu. » 23 RAFRÆNT ÓSKASKRÍN BEINT Í SÍMANN Það hefur aldrei verið einfaldara að gleðja starfsfólkið! 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is Óskaskrín í öskju eða Óskaskrín beint í símann Rafræn Óskaskrín eru send með tölvupósti til viðtakanda. Getum sérhannað tölvupóstinn og rafræna gjafakortið. Bjóðum líka sérmerktar öskjur fyrir fyrirtækjagjafir með merki, lit og persónulegri kveðju frá fyrirtækinu. Ævintýrasagan Jólasveinarnir í Esjunni er komin út en fræjunum var sáð fyrir síðustu aldamót. Bíla- málarinn fyrrverandi, Lárus Hauk- ur Jónsson, jafnan kallaður Lalli ljóshraði, átti hugmyndina, Guðjón Ingi Eiríksson, eigandi Bókaútgáf- unnar Hóla, skráði þær og bætti inn í hér og þar en Haraldur Pétursson myndskreytti verkið. Fyrir um aldarfjórðungi sagði Lalli vini sínum Guðjóni Inga frá hugmynd að sögu, sem hann vildi koma frá sér, þar sem MS-sjúk- dómurinn, sem hann greindist með 1978, ágerðist hjá honum og hann átti æ erfiðara með að skrifa. Ekki var rætt um útgáfu á þessum tíma, en sagan blundaði í höfði Guðjóns Inga og í fyrra ákvað hann að skrifa hugmyndir Lalla, „mann hinna mörgu andlita“, niður eftir minni og fylla í eyðurnar. „Sagan lét mig ekki í friði,“ segir hann. „Hún slær í gegn,“ segir Lalli um bókina. Hann segist hafa verið í leikfélaginu í Mosfellsbæ, þegar hann hafi fengið hugmyndina um ævintýrið á Esjunni og reynt að koma efninu á svið en það hafi ekki tekist. „Ég sagði Guðjóni, vini mín- um, frá efninu og vandræðum mín- um, og svo 26 árum síðar rauk hann til og skrifaði söguna. Hún er með stóru letri og fellur í góðan jarðveg. Ég get ekki verið ánægðari.“ Öflugur á ýmsum sviðum Bókin fjallar um fótboltastrákinn Lalla og kynni hans af jólasveinun- um í helli í Esjunni. Sjálfur var Lalli öflugur miðherji í fótboltan- um á yngri árum, sterk nía eins og sérfræðingarnir segja, og lék með þremur liðum í öllum fjórum deildunum á ferlinum, Aftureldingu í Mosfellsbæ, Víkingi í Reykjavík og Haukum í Hafnarfirði. „Ég skoraði í öllum deildum, meðal annars fyrir Víking á móti KR á Laugardals- vellinum,“ rifjar hann upp. „Ég var lykilmaður í Aftureldingu en lét plata mig í sterkari lið, þar sem ég átti ekki fast sæti,“ segir hann um félagaskiptin, en hann spilaði líka handbolta með Aftureldingu og Gróttu. Lalli byrjaði að láta til sín taka í leiklistinni fyrir um 40 árum. Hann segir að sérstaklega hafi verið gaman að leika í Þið munið hann Jörund og Deleríum Búbónis. Hann eigi líka ánægjulegar minningar frá þátttöku í kvikmyndum. Karlakór- inn Hekla, Ungfrúin góða og húsið og Djöflaeyjan komi þar fyrst upp í hugann. „Svo var ég líka í auglýs- ingum,“ minnir hann á og segist hafa borið skarðan hlut frá borði vegna tiltekinnar sjónvarpsauglýs- ingar um bandaríska neysluvöru. Hann hafi fengið tíu þúsund krónur fyrir sinn hlut en auglýsingin hafi verið sýnd í nokkur ár án þess að greiðsla kæmi fyrir. „Hefði þetta verið í Bandaríkjunum hefði ég fengið greitt fyrir hverja birtingu og orðið ríkur.“ Lalli segist ekki hafa haft sjálfan sig í huga, þegar hann hafi fengið hugmyndina að bókinni. „Guðjón setti Lallann inn án þess að ég hefði hugmynd um það,“ staðhæfir hann. Bætir við að það komi samt ekki að sök heldur þvert á móti, því Lalli sé alltaf bestur, ekki síst í fótboltanum. „Hérna í Mosfellsbænum segjum við áfram Afturelding. Það er líka alltaf gaman þegar vel tekst til og ég er með nóg af hugmyndum. Vandamálið er bara að koma þeim frá mér.“ lHugmyndum jólasveinana í Esjunni kominút í bók Lalli maður hinna mörgu andlita Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Stoltur Lárus Haukur Jónsson hefur borið marga hatta og númeð bók.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.