Morgunblaðið - 30.11.2022, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.11.2022, Qupperneq 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022 ✝ Ásta Björk Friðberts- dóttir fæddist í Botni í Súg- andafirði 8. júlí 1947. Hún lést á Landspítalanum 12. nóvember 2022. Foreldrar henn- ar voru Kristjana Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 1909, d. 2000, og Friðbert Pétursson bóndi, f. 1909, d. 1994. Systkini Ástu: Svavar, f. 1933, d. 1969, Birkir, f. 1936, d. 2017, Kristjana, f. 1939, d. 2021, og Kristín, f. 1943. Hinn 8. mars 1969 giftist Ásta Björk Kjartani Þór Kjartanssyni, f. 18. maí 1947. Börn þeirra eru: Ægir, f. 14. september 1968, og Sandra, f. 11. maí 1972. Sandra er gift Halldóri Karli Þór- issyni og börn þeirra eru fjög- ur: Rósborg, f. 11. apríl 1997, Hilmir Berg, f. 19. mars 2000, Huldar Þór, f. 16. mars 2002, og Rakel, f. 18. október 2011. Ásta Björk ólst upp í Botni í Súgandafirði, yngst fimm systkina. Hún gekk í Barna- skólann á Suðureyri, lauk gagnfræðaprófi frá Núpi í Dýrafirði og fór svo í Hús- mæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði. Ásta Björk kynntist eiginmanni sínum, Kjartani Þór sjómanni, ung að aldri. Þau bjuggu í Sætúni 5, Suður- eyri nær alla sína búskapartíð. Ásta Björk vann ýmis störf en lengst af starfaði hún sem for- stöðukona á dagdeild aldraðra, Sunnuhlíð, á Suðureyri. Hún var mikil hannyrða- og lista- kona og liggja mörg listaverk eftir hana. Útför Ástu Bjarkar fer fram frá Guðríðarkirkju í dag, 30. nóvember 2022, klukkan 13 og svo verður minningarathöfn í Ísafjarðarkirkju 3. desember 2022, klukkan 12. Á mér skellur sorgin sár, hún litla systir mín hún Ásta Björk lést skyndilega, hjartaáfall og mikil heilablæðing. Við ólumst upp saman í sveitinni hjá foreldr- um okkar, við leik og störf og hún alltaf svo dugleg. Svo tók skóla- gangan við og lengra varð á milli okkar, en alltaf ljúft að hittast. Þegar hún trúlofuð byrjar að búa í Reykjavík og frumburður- inn Ægir kom í heiminn fékk ég þann heiður að passa stundum strákinn, svo Ásta gæti stundað vinnu. Eftir að dóttirin Sandra fæddist fluttu þau Kjartan vestur aftur og lengra varð á milli heim- sókna. Þegar eldri systir okkar (Systa og Haddi) flytja suður, þá kaupa Ásta og Kjartan þeirra hús á Suðureyri og við gátum þá áfram gist í fríum okkar á „Hótel Sætúni“ og vorum alsæl með það. Ásta tók mikinn þátt í félagsstarfi, var dugleg og hjálpsöm og átti erfitt með að neita beiðni og fræg- ar eru marsipan- og brauðtert- urnar hennar fyrir öll möguleg til- efni. Alltaf var hún að læra nýtt handverk, þurfti að prufa allt mögulegt, t.d. að gera listaverk úr mannshári, og sýndi það á mörg- um handverkssýningum og gerði meðal annars hárskraut sem Björk Guðmundsdóttir skartaði á plötunni „Medúllu“. Við náðum að fara nokkrar ferðir saman innan- lands og erlendis allar þrjár, svona systra- og makaferðir, og var ég að vona að um meiri sam- vistir yrði að ræða nú þegar þau hjón væru farin að vera hér fyrir sunnan nokkra vetrarmánuði, t.d. að koma með mér í prjónakaffi, en þar naut hún sín vel og gat sýnt okkur listaverk. Ásta var dugleg, gestrisin, greiðvikin og vandvirk. Hún var foreldrum okkar mikil hjálparhella og eftir að pabbi dó tóku þau Kjartan mömmu að sér áður en hún fór á öldrunardeild- ina á Ísafirði og verður þeim aldr- ei fullþakkað fyrir það. Við elsk- um aðalbláber og ef ég komst ekki vestur til að tína sjálf, þá sendi Ásta mér ber, sem runnu ljúflega niður. Ásta var forstöðukona dag- deildar aldraðra á Suðureyri og gerði margt fyrir eldra fólkið, meira en skyldan bauð. Á milli okkar var kært og nutum við að hittast hvenær sem hægt var, ég var stolt af litlu systur, hún virtist geta allt. Elsku Kjartan Þór, Ægir, Sandra og fjölskylda, þetta er mikið áfall og mikil sorg fyrir okk- ur öll, við Baldur og okkar fjöl- skylda sendum ykkur samúðar- kveðjur og biðjum Guð að vera með ykkur. Við geymum öll góðar minning- ar um hana Ástu okkar og læt ég hér fylgja stöku eftir pabba okk- ar, Friðbert Pétursson: Kaldur stormur kinnar mínar ber, kuldinn að brjóstinu þrýstir sér. Hlýjan frá sumrinu horfin er, haustið er komið og fylgir mér. Kristín Friðbertsdóttir. Hún Ásta er farin frá okkur svo alltof snemma. Þrátt fyrir að árin hafi verið orðin þónokkur var hún alltaf ungleg og við góða heilsu. Hún fór daglega í göngur og lifði alla tíð heilsusamlegu lífi. Við Ásta áttum samleið frá æsku. Hún ólst upp í Botni í Súganda- firði, en þar var myndarlegt bú og gestrisið heimili. Í barnaskólan- um skaraði Ásta fram úr í handa- vinnu og áttu aðrir erfitt með að komast með tærnar þar sem hún hafði hælana. Hún varð fljótt ábyrg og var henni treyst fyrir formennsku í skátunum og barna- stúkunni. Þegar grunnskólanum lauk fórum við á Héraðsskólann að Núpi. Þar vorum við fimm ung- lingsstúlkur frá Suðureyri í sama herbergi á heimavistinni. Her- bergið var kallað Rússland og þar var oft pískrað og skrafað eftir að ljósin voru slökkt kl. 11. Oft voru rifjaðar upp sögur frá Núpi eins og þegar nemendur veiktust flestallir af endurtekinni matareitrun eftir sunnudags- steikina. Þá varð hver að bjarga sér sem best hann gat þar sem að- eins tvö klósett voru á allri heima- vist stúlkna. Ásta var glaðlynd, vinnusöm og greiðvikin. Seinna lágu leiðir okk- ar saman í Sætúninu í Súganda- firði, þar sem Ásta og Kjartan bjuggu með börnum sínum tveim- ur. Þá var hún formaður í Kven- félaginu Ársól, virk í félagsmálum eins og leikfélaginu og vann þar að auki í frystihúsinu. Ég held að Ásta hafi aldrei sagt nei við neinni beiðni, hafi hún haft möguleika á að verða við henni. Ég gat leitað til hennar með heimanám dóttur minnar sem strögglaði við stærð- fræðina. Hún taldi það nú ekki eftir sér og hjálpaði dóttur minni með sérstakri þolinmæði. Ásta gat gert það ómögulega. Sem dæmi um það frétti hún með eng- um fyrirvara að hún ætti að sjá um veitingar fyrir einhvern fé- lagsskap það sama kvöld. Hún notaði því hádegishléið í frysti- húsinu til að baka kökurnar og kaffitímann til að skreyta og setja saman kökurnar. Sem formaður Kvenfélagsins gerði hún sér grein fyrir vandanum við gjafir til þeirra sem áttu í erfiðleikum. Gæta að stolti fólks og sjálfsvirð- ingu. Hæfileikar Ástu í handavinnu nýttust vel þegar hún sótti sér þekkingu til Noregs til að læra að vinna skrautmuni úr mannshári. Þessi iðn er ævagömul en á þess- um tíma voru mjög fáir á Íslandi sem höfðu vald á henni. Síðan kom fólk með hár til Ástu og hún útbjó þá muni sem fólk óskaði eftir. Heimilisiðnaðarfélag Íslands hef- ur nýtt sér þekkingu hennar og hefur Ásta haldið árviss námskeið þar. Að leiðarlokum vil ég þakka samfylgdina öll árin og Kjartani, Söndru og Ægi sendum við Hann- es okkar dýpstu samúðarkveðjur. Kristín Valgerður Ólafsdóttir. Þegar einstaklingur kveður þessa jarðvist veltir maður fyrir sér hvað hann skilji eftir sig hjá þeim sem voru honum samferða. Hvað lifir í huga og hjörtum okkar sem þekktum Ástu Björk? Hún mætti fólki af einlægni og hjarta- hlýju, þér fannst þú skipta máli. Þegar ég kveð mína kæru vin- konu koma upp margar minning- ar tengdar samveru okkar í rúma hálfa öld. Við vorum fimmtán og sextán ára þegar leiðir okkar lágu saman fyrst í Héraðsskólanum á Núpi í Dýrafirði, þangað fóru ungmenni af Vestfjörðunum í framhaldsskóla, hún frá Súganda- firði ég frá Bíldudal. Vinátta okk- ar hófst þó ekki fyrir alvöru fyrr en á húsmæðraskólanum að Laugalandi í Eyjafirði þegar við deildum herbergi. Eftir það áttum við eftir að búa saman fyrst í Reykjavík og síðan í Vín í Aust- urríki, þangað fórum við í ársbyrj- un 1967, Ásta þá nýtrúlofuð Kjartani Þór, æskuástinni sinni. Dvölin þarna mótaði okkur báðar því þar upplifðum við menningu og umhverfi sem var í engu líkt því sem stelpurnar úr sjávarþorpunum þekktu. Í sambúð kemur í ljós hvaða mann maður hefur að geyma og get ég sagt að Ásta er ein heil- steyptasta manneskja sem ég hef kynnst. Ásta og Kjartan stofnuðu heimili í Reykjavík þar sem frum- burðurinn Ægir fæddist en flutt- ust síðan vestur á Suðureyri þar sem dóttirin Sandra kom í heim- inn. Eins og gengur í litlum sam- félögum leggja margir hönd á plóg til að halda uppi menningu og mannlífi, þar lá Ásta ekki á liði sínu, m.a. með starfi sínu fyrir leikfélagið. Í mörg ár sá hún um tómstund- ir fyrir eldri borgarana og fór hún ófáar ferðir suður til að kynna sér helstu nýjungar til að hafa starfið sem fjölbreyttast. Þar nutu list- rænir hæfileikar hennar sín vel. Það sýnir hug hennar til skjól- stæðinga sinna þegar við eftir langan dag í aðalbláberjalandinu í Súgandafirði litum yfir afrakstur- inn, ég glöð yfir vetrarforðanum, en nei hún ætlaði að færa þeim sem ekki komust sjálfir í berjamó sinn feng. Þannig manneskja var Ásta Björk. Fyrir nokkrum árum fluttu Ásta og Kjartan suður yfir vetr- armánuðina og urðu samveru- stundir fleiri, þá fundum við að andleg málefni voru okkur báðum hugleikin, sem dýpkaði vináttuna enn frekar. Ég kveð þig, kæra vinkona, í bili sannfærð um að við hittumst aftur í „aðalbláberjabrekkunni“, hafðu þökk fyrir allt og allt. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar, elsku Kjartan, Ægir, Sandra og fjölskylda, megi minn- ingarnar um yndislega konu lýsa ykkur áfram veginn. Anna (Lóló). Ásta Björk Friðbertsdóttir Móðir mín, dóttir okkar, systir og unnusta, GUÐMUNDA HELGADÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Bláskógum 14, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítala, Borgarspítala, af slysförum sunnudaginn 20. nóvember. Útförin fór fram í kyrrþey. Sigurdór Helgi Eggertsson Helgi Jón Davíðsson Margrét Ingólfsdóttir Hildur Lív Helgadóttir Íris Fanney Friðriksdóttir Svavar Stefánsson Föðurbróðir okkar og mágur, EIRÍKUR GÍSLASON frá Stað í Hrútafirði, lést 20. nóvember. Útför hans fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Staðarkirkju í Hrútafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á taugadeild B2 á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í Fossvogi. Edda Björk Karlsdóttir Vilborg Magnúsdóttir Elín Elísabet Magnúsdóttir Magnea Torfhildur Magnúsd. Guðmundur Magnússon Ingibjörg Magnúsdóttir Gísli Jón Magnússon Bára Guðmundsdóttir Okkar ástkæra SILJA KJARTANSDÓTTIR, Stakkahlíð 17a, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 25. nóvember. Útför hennar verður auglýst síðar. Gísli Óskarsson Kjartan Magnússon Magnús Ingi Kjartansson Erla María Sveinsdóttir María Ósk Beck Jakub Biegaj Hildur Petersen Halldór Kolbeinsson Elskulegur eiginmaður minn, bróðir og mágur, KETILL RÚNAR TRYGGVASON húsasmíðameistari, Maríubakka 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. nóvember. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 5. desember klukkan 13. Laugheiður Bjarnadóttir Þorsteinn G. Tryggvason Ósk Sigurrós Ágústsdóttir Sigurður S. Tryggvason Jóhanna S. Hermannsdóttir Erlendur V. Tryggvason Harpa Arnþórsdóttir Lilja B. Tryggvadóttir Tryggvi T. Tryggvason Anna Sch. Hansdóttir Ástkær bróðir okkar og mágur, GUÐJÓN ERLENDSSON, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, lést miðvikudaginn 23. nóvember. Útför hans fer fram frá Stórólfshvolskirkju, Hvolsvelli, mánudaginn 5. desember klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni: https://vimeo.com/event/2653788 Hlekk á steymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat Þórunn K. Erlendsdóttir Guðmundur Kristinsson Olgeir Erlendsson Anna Kr. Ívarsdóttir Pálína K. Erlendsdóttir Elsku móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, KAROLÍNA SMITH listakona, Snorrabraut 87, lést á hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 20. nóvember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 1. desember klukkan 15. Hjartans þakkir til starfsfólksins á Grund. Óli Kári Ólason Þuríður Elín Sigurðardóttir Eggert Páll Ólason Sveindís Ýr SigríðarSveinsd. Óskar Smith Grímsson og barnabörn Látin er móður- systir mín, Svava Davíðsdóttir, sú eina sem eftir lifði af fimm systrum sem ólust upp við Njarðargötu 35 í Reykjavík fyrir miðja síðustu öld. Svava var næstyngst þeirra systra, bar nafn móður sinnar, Svövu Ásdísar Jónsdóttur, sem í mínum huga hefur öðlast eins konar ásjónu dýrlings. Þurfti að sjá á bak manni sínum, Davíð J. Gíslasyni, þegar Dettifossi var sökkt af þýskum kafbáti á Ír- landshafi 23. febrúar 1945 og stóð þá eftir ein með fimm stúlkubörn á aldrinum þriggja til tólf ára. Hún Svava frænka mátti líka mæta áskorunum í sínu lífi. Sjálf stóð hún eftir með tvær ungar dætur þegar hennar eiginmaður, Þór Halldórsson viðskiptafræð- ingur, dó fyrirvaralaust í maí 1970. Þær Guðrún og Inga Jóna voru átta og fimm ára og harmur þeirra eins og Svövu mikill. Pabbi minn, Sigurður Eiríks- son, þekkti Þór úr Landsbank- anum og Svava var samstarfs- kona hans þar um árabil, auk þess að vera tengd honum fjöl- skylduböndum. Vænt þykir mér um það nú að lesa hversu fallega Svava Ásdís Davíðsdóttir ✝ Svava Ásdís Davíðsdóttir fæddist 20. febrúar 1939. Hún lést 16. nóvember 2022. Útför Svövu Ás- dísar fór fram 23. nóvember 2022. hann pabbi minn heitinn skrifaði um Þór vin sinn í minn- ingargrein hér í Morgunblaðinu á sínum tíma og hversu fallega þær Guðrún og Inga Jóna skrifuðu svo um hann pabba minn þegar hann dó, fyrir að hafa reynst þeim og Svövu vel eftir andlát Þórs. Vænt þykir mér líka um að hafa auðnast að heimsækja Svövu fyrir rúmu ári, áður en ég hélt til starfa erlendis. Það var engin tilviljun, ég gerði mér grein fyrir að ekki væri víst að við sæjumst aftur og ég þakka fyrir að ég fékk þá stund með henni. Hún Svava hafði á sínum tíma gaukað að mér gögnum um hann pabba sinn, þegar ég var að reyna að skrifa bók um örlög hans og skipverja og farþega á Dettifossi, og ég veit að henni þótti gaman að því að ég kíkti til hennar í Grafarvoginn og grennslaðist fyrir um þessa löngu liðnu atburði yfir kaffi- bolla. Elín, móðir mín, kvaddi fyrir rúmum tveimur árum og nú eru þær allar farnar, systurnar Lísa, Sísí, Ella, Svava og Björg og það er sjónarsviptir að þeim en þann- ig fer víst um okkur öll. Ég votta frænkum mínum, Guðrúnu og Ingu Jónu, samúð mína og þeirra fjölskyldum öllum. Davíð Logi Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.