Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.10. 2022 Með því að kaupa Omega-3 forte+D&E styrkir þú Bleiku Slaufuna um 300 kr. M ikið álag hefur verið á bráðamóttöku Land- spítalans í Fossvogi, að- allega vegna skorts á hjúkrunar- fræðingum. Hugsanlega þarf að grípa til þess að forgangsraða fólki, sem þangað leitar, og vísa í önnur úrræði ef við á. Hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæð- isins var tekið upp nýtt vaktakerfi vegna vinnutímastyttingar og þurfti að bæta við 24 nýliðum við liðið, sem mögulega mun kosta meira en hin- um talnaglögga borgarstjóra taldist til, en ein helsta forsenda styttingar- innar var að hún yrði ekki til þess að auka útgjöld borgarinnar. Mygla fannst í nýbyggingu Voga- skóla, sem virtist ekki koma neinum á óvart. Flensborgarskóli í Hafnarfirði fagnaði hins vegar 140 ára afmæli, öldungis laus við myglu. - - - Kolmunnastofninn hefur styrkst og hefur Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráðlagt 81% meiri veiði á honum. Hins vegar er samdráttur í norsk-íslenskri síld og makríl. Þingmenn sjö þingflokka lögðu fram þingsályktunartillögu um að heimila tilraunir með hugvíkkandi efninu sílósíbín, sem finna má í fjölda sveppategunda, en það kann að nýt- ast við meðhöndlun á geðröskunum. . . . Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir utanríkisráðherra boðaði aukinn stuðning Íslands við Úkra- ínu. Um fimmtungur embættisskipana á árunum 2009-2020 varð með flutningi embættismanna án aug- lýsinga. Landsbankinn gekkst fyrir fræðslu- fundi um netglæpi, en mjög hefur færst í vöxt að eldra fólk sé féflett með þeim hætti, jafnvel um tugmillj- ónir króna. Landsbankinn var sjálf- ur í fréttum í liðinni viku þegar bankinn sýndi viðskiptaóvild í garð aldraðs viðskiptavinar. Ríkissáttasemjari boðar ný vinnu- brögð við kjaraviðræður. Ekki er seinna vænna, því senn verða um 300 kjarasamningar lausir og ekki mikill samhljómur meðal aðila vinnumarkaðarins eða stjórnvalda. Versluninni Brynju við Laugaveg 24 verður lokað einhvern næstu mán- aða eftir liðlega 103 ára rekstur, en búðin var boðin til sölu í vor án ár- angurs. Húsnæðið hefur nú verið selt og verður afhent í janúar. Þór, nýtt björgunarskip, kom til Vestmannaeyja um liðna helgi. Alexandra Briem, fulltrúi Reykja- víkurborgar í stjórn Strætó, segir að umdeild gjaldskrárhækkun hafi verið óumflýjanleg, ella hefði félagið getað farið í þrot. Í sáttmála meiri- hlutans var boðað að grunnskóla- börn skyldu fá frítt í strætó. . . . Karlmaður á fimmtugsaldri var drep- inn í heimahúsi í Ólafsfirði og voru þrjú úrskurðuð í gæsluvarðhald, þar á meðal kona hins látna. Samtals eru 8.113 íbúðir í byggingu á landinu öllu, þar af 2.433 í Reykja- vík. 3.263 íbúðir eru í byggingu ann- ars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Sprengjusérfræðingar frá 14 aðild- arríkjum Atlantshafsbandalagsins (NATO) komu hingað til lands til að æfa hryðjuverkaviðbrögð. Alvarleg tjón vegna óveðursins í september reyndust um 90 talsins, en þar á meðal var kornuppskera í Eyjafirði. Tryggingafélög tryggja ekki gegn áföllum í kornrækt og finnst bændum því að skattgreið- endur allir eigi að gera það. Halla Gunnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands (ASÍ) sagði valdabaráttu í verkalýðshreyfingunni aðeins snú- ast um persónuleg völd og yfirráð, ekki málefni. Metsala er í nýjum rafbílum, en á fyrstu níu mánuðum ársins seldust þeir fleiri en allt árið í fyrra. Erla Þorsteinsdóttir söngkona lést í Danmörku 89 ára gömul. . . . Hafrannsóknarstofnun lagði til að loðnuafli á næstu vertíð yrði 75% minni en á hinni síðustu. Á haustfundi Landsvirkjunar kom fram að forgangsraða yrði kaup- endum að nýrri orku hjá fyrir- tækinu. Þá væri óhjákvæmilegt að virkja meira ef áform um orkuskipti ættu að ganga eftir. Fjöldahjálparmiðstöð var opnuð í Borgartúni á vegum Rauða krossins til þess að mæta stórauknum straumi flóttafólks til landsins. Ekki er gert ráð fyrir að fólk dveljist þar lengur en þrjá daga eftir komuna. Markaðsvirði hlutabréfa í Kauphöll- inni hefur lækkað um 260 milljarða króna síðustu vikur. Borgarfulltrúi sjálfstæðismanna sakaði meirihlutann í borginni um að vilja ekki leysa húsnæðiskreppuna í borginni. Skýrt hefði komið fram hjá fulltrúum hans að ekki mætti leysa vandann á framboðshliðinni of hratt og tillaga um uppbyggingu á Geld- inganesi felld. Eiríkur Bergmann prófessor segir að öfgar grafi síður um sig á Íslandi en í öðrum vestrænum ríkjum. Það megi m.a. rekja til fámennis, en eins hafi hófstillt þjóðerniskennd sjálf- stæðisbaráttunnar komið í veg fyrir að þjóðernisöfgar næðu festu. Til stendur að strengja tvær sviflín- ur frá Kömbunum niður í Reykjadal inn af Hveragerði, en fullhugar munu geta rennt sér niður þær á allt að 120 km hraða. Sameinað sveitarfélag Langanes- byggðar og Svalbarðshrepps er aft- ur nafnlaust, þar sem fundur sveitar- stjórnarinnar, þar sem fjallað var um nafnið, var ólöglega boðaður. . . . Seðlabankinn ákvað að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans á sjö daga bundnum innlánum, verða því 5,75%. Dr. Ásgeir Jónsson kvaðst vona að þetta yrði síðasta vaxtahækkunin í bili, verðbólga hefði lækkað ögn og dregið hefði úr húsnæðiskaupum. Allra leiða er leitað til þess að finna húsnæði fyrir flóttafólk, en það má heita uppurið og húsnæðismarkaður í járnum. M.a. er athugað hvort fá megi gáma eða breyta atvinnu- húsnæði í þessu skyni. Sveitarfélög hafa ekki undirritað samningsdrög við ríkið um móttöku flóttamanna og þjónustu við þá, sem legið hafa fyrir síðan í júní. Drögin eru víða til skoðunar og bú- ist við að einhverjar athugasemdir komi fram. Landsbankinn hefur auglýst stór- hýsi sitt við Ráðhústorg á Akureyri til sölu og hyggst koma sér fyrir í minna og hentugra húsnæði. Umhverfisstofnun telur að áhrif stórfelldra vikurflutninga frá Haf- ursey á Mýrdalssandi á loftgæði í byggð á leiðinni verði ekki óveruleg eins og þýska fyrirtækið EP Power Minerals hefur haldið fram. Skólastjórnendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð harma að nemendur hafi fundið til vanlíðunar vegna kyn- ferðisbrotamála sem þar hafa komið upp. Mikil ólga var meðal nemenda vegna þeirra. . . . Dómsmálaráðherra lagði til breyt- ingar á lögum um alþjóðlega vernd til samræmis við lagaum- gjörð annarra Evrópuríkja, einkum annarra Norðurlanda. Fram kom að fjöldi umsókna um vernd hér, frá fólki sem þegar hefur fengið vernd í öðru Evrópuríki, ætti sér ekki hliðstæðu. Tveir karlmenn, sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverka, voru úr- skurðaðir í áframhaldandi gæslu- varðhald og einangrun í tvær vikur. Einum var sleppt úr haldi lögreglu vegna morðsins í Ólafsfirði en karli og konu haldið áfram föngnum. Rannsókn málsins stendur enn yfir. Gamli Herjólfur var ræstur út með- an sá nýi fór í slipp, en þarf að leggja að og frá Landeyjahöfn eftir sjávarföllum, þar sem hann ristir dýpra. Umhverfisstofnun og Skotvís greinir vægast sagt á um dagafjölda í kom- andi rjúpnatímabili. Jólabörn lands- ins fylgjast með í ofvæni. Kristján Þórður Snæbjarnarson, starfandi forseti ASÍ, hlakkar til komandi Alþýðusambandsþings sem hefst á mánudag, en þar verður kjörin ný forysta. Kristján kvaðst vonast til að nýrri forystu fylgi sátt í ASÍ, sem bendir til þess að oss sé fæddur nýr konungur gríns og gam- anmála. Grátt gaman Mörgum þótti sumarið á Íslandi fremur endasleppt þetta árið, hafi það þá á annað borð komið. Vetur konungur lætur hins vegar ekki eftir sér bíða, en hinn 6. október snjóaði víða nyrst á landinu, þar á meðal á Siglufirði eins og hér sést. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson 1.10.-6.10. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.