Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Qupperneq 23
Kollar, kertastjakar og skálar eru til sölu heima hjá Sigmundi. Allt leikur í höndunum á honum.
segir hann og segist leika sér við
að prófa nýjar og nýjar viðarteg-
undir.
„Ég geri svo kolla með geita-
skinni og jólatré sem hafa alveg
slegið í gegn,“ segir Sigmundur og
segist smíða allt eftir eigin hönn-
un.
Einn í ævintýraheimi
Sigmundur gerir einnig jólakúlur
úr tré og segist eingöngu skreyta
eigið jólatré með sínum kúlum.
„Toppurinn er líka úr tré en
hann er eftirgerð af toppi sem var
til heima hjá mér í minni æsku, en
löngu brotinn. Ég gerði hann eftir
minni og systkini mín segja hann
alveg eins,“ segir hann.
„Nýjasta nýtt eru lítil skart-
gripaskrín úr maðkétnum rekavið
en ég steypi í þetta með plastefni.
Ég er að gera þetta sérstaklega
fyrir stelpurnar, barnabörnin, í
fermingargjöf og set í það háls-
men sem ég tálga úr hvaltönn.
Strákarnir fá þverslaufu.“
Þér fellur ekki verk úr hendi?
„Æ, ég á erfitt með að vera
kyrr,“ segir Sigmundur og sýnir
blaðamanni lítið horn þar sem
hann dvelur á kvöldin við hand-
verkið.
„Vinnuaðstaðan hér er ekki
stór, en þarna sit ég og tálga allt-
af eina, tvær skeiðar á dag eftir
vinnu á meðan ég hlusta á Story-
tel. Ég hlusta mest á ævintýrasög-
ur eins og Game of Thrones og
Harry Potter. Ég fer þá inn í
ævintýraheim á meðan ég tálga.
Mér leiðist aldrei!“
Sigmundur er þúsundþjala-
smiður sem er alltaf að. Hann
fær ekki nóg af smíði, því eftir
vinnu tálgar hann og rennir.
Morgunblaðið/Ásdís
Jólatrén hafa slegið í gegn. Jólakúlur úr tré eru málið!
Sigmundur býr einnig til kaffibolla úr ýmsum viðartegundum.
9.10. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
FINNA.is
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt