Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.10. 2022
LESBÓK
VIRÐING Tvö ár eru síðan Eddie Van Halen féll frá en
enn hefur ekki verið hlaðið í formlega minningar-
tónleika um gítargoðið. Ólíklegt er að af því verði úr
þessu, ef marka má orð sonar hans, Wolfgangs, í tíma-
ritinu Classic Rock. Fram kemur í viðtalinu að hann hafi
leitað hófanna en eftirlifandi meðlimir Van Halen séu á
hinn bóginn svo undarlega innréttaðir að ekki hafi náðst
samkomulag. Þess vegna kláraði Wolfgang málið á
minningartónleikunum um Taylor Hawkins, trymbil
Foo Fighters, austan hafs og vestan í síðasta mánuði.
„Ég finn fyrir lúkningu vegna þess að minn hluti í tón-
leikunum var virðingarvottur við föður minn,“ segir
Wolfgang en með honum léku Dave Grohl á bassa, Josh
Freese á trommur og Justin Hawkins sá um sönginn.
Engir minningartónleikar
Eddie Van
Halen í ham.
AFP/Kevin Winter
SPENNA Myndaflokkar sem Ryan Murphy og lið hans
hafa gert fyrir Netflix hafa fengið misjafnar viðtökur,
svo sem Ratched, Hollywood og The Politician. Það
breytir ekki því að margir bíða spenntir eftir næsta
skammti, The Watcher eða Gláparanum, sem kemur
inn á streymisveituna á fimmtudaginn. Hann byggist á
sönnum atburðum um hjón sem eru ekki fyrr flutt
inn í draumahúsið í úthverfi New Jersey en
þeim fara að berast óhugnanleg bréf sem
„Gláparinn“ ritar undir. Naomi Watts
og Bobby Cannavale leika hjónin og
Mia Farrow, Jennifer Coolidge og
Noma Dumezweni koma einnig
við sögu.
Naomi Watts
er í aðal-
hlutverki í
Gláparanum.
AFP/Hippolyte Petit
Chloë Grace Moretz er á jaðrinum.
Í Lundúnum
framtíðar
VÍSK The Peripheral eða Á jaðr-
inum nefnast nýir framhaldsþættir
úr smiðju Scotts Smiths sem koma
inn á efnisveituna Amazon Prime
21. þessa mánaðar. Um er að ræða
vísindaskáldskap eða „vísk“ en
byggt er á samnefndri bók eftir
William Gibson. Sýndarveruleiki
eða hvað? Chloë Grace Moretz leik-
ur vansæla unga konu í smábæ í
Bandaríkjunum sem finnur flótta-
leið frá eymd eigin tilveru gegnum
höfuðtól sem flytja hana í sviphend-
ingu yfir til Lundúna í óskilgreindri
framtíð. Jack Reynor, Gary Carr,
Charlotte Riley og Eli Goree eru
meðal leikara í aukahlutverki.
S
jónvarp Símans Premium hóf
fyrir skemmstu sýningar á
bandaríska myndaflokknum
American Gigolo. Eins og allar al-
mennilegar efnisveitur dustaði það
um leið rykið af samnefndri kvik-
mynd frá árinu 1980 en á henni bygg-
ist einmitt téður flokkur. Með fullri
virðingu fyrir hinum nýja þætti höfð-
aði myndin meira til mín og ég keyrði
hana í gang í vikunni. Ég hef ábyggi-
lega verið of ungur til að sjá hana á
sínum tíma enda dálítið þarna um ber
brjóst og annan óhugnað sem vernda
þarf sakleysingja þessa heims fyrir í
lengstu lög. Að ekki sé talað um jafn-
aldra Richards Geres sem treður
þarna upp er á líður; í svona kameó-
hlutverki. Það hefur ábyggilega sett
hálfa bandarísku þjóðina á hliðina á
þeim tíma, alla vega hin syðstu og við-
kvæmustu ríki.
Nú átt þú, lesandi góður, sennilega
eftir að sjá myndina, hvort sem er í
fyrsta sinn á ævinni eða í fyrsta skipti
í langan tíma, þannig að ég er ekkert
að eyða púðri í söguþráðinn hér. Á
hinn bóginn langar mig að fjalla svo-
lítið um helstu leikarana sem koma
við sögu enda ekki verið hugsað til
sumra þeirra lengi. Richard Gere er
vitaskuld ekki í þeim hópi enda hefur
stjarna hans verið hátt á himni allar
götur síðan og þið vitið allt um ævi
hans og athafnir. Hann er einn af höf-
uðspöðunum í Hollywood undanfarna
fjóra áratugi eða svo; gott ef gígóló-
inn festi hann ekki hreinlega í sessi.
Frægari sem fyrirsæta
Muniði hver lék aðalkvenhlutverkið á
móti Gerinu? Jú, laukrétt. Lauren
Hutton. Langt síðan maður hefur séð
hana á skjánum. Hutton er líklega
frægari sem fyrirsæta en leikkona en
hefur eigi að síður leikið í fjölmörgum
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
enda þótt American Gigolo standi án
efa upp úr á þeim ferli.
Hutton var á hinn bóginn ein vin-
sælasta fyrirsæta heims á áttunda
áratugnum og skrifaði árið 1973 und-
ir stærsta samning í sögu bransans
við snyrtivöruframleiðandann Rev-
lon. Engin kona hefur heldur setið
oftar fyrir á forsíðu tískutímaritsins
fræga Vogue en hún, 26 sinnum í það
heila.
Hutton verður 79 ára í næsta mán-
uði en er fráleitt sest í helgan stein. Á
seinasta ári birtist hún á forsíðu tíma-
ritsins Harper’s Bazaar og hefur
greinilega engu gleymt.
Það sem færri vita er að Hutton er
Gere sem ég
segi, drengur!
Gamli góði ameríski gígólóinn er aftur kominn
upp á dekk en í Sjónvarpi Símans Premium má
bæði finna kvikmyndina frægu með Richard Gere
og flunkunýja þætti sem byggjast á henni.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Þegar okkur áhorfendur ber að garði í myndaflokknum American
Gigolo hefur söguhetjan, Julian Kaye, setið saklaus í fangelsi í hálfan
annan áratug. Ný gögn koma fram í máli hans sem verður til þess
að hann er látinn laus. Þá þarf gamli gígólóinn að fóta sig í breytt-
um heimi. Og hvað gerir hann? Snýr við blaðinu eða fer í sama far-
ið? Bandaríski leikarinn Jon Bernthal fær það
vandasama verkefni að feta í fótspor Richards
Geres en Gabriel LaBelle leikur Julian ungan.
Gretchen Mol fer með hlutverk Michelle
Stratton sem Lauren Hutton lék í myndinni. Af
öðrum leikurum má nefna Lizzie Brocheré og
Rosie O’Donnell.
Höfundar þáttanna sækjast um margt eftir
sömu áferð og í myndinni og leita sem fyrr í
smiðju pönkgoðanna í Blondie eftir burð-
arlaginu, Call Me. Julian brunar þá fjall-
brattur um hraðbrautina á blæjubílnum
sínum svo golan gælir við liðaða lokk-
ana.
Snýr gígólóinn við blaðinu?
Jon Bernthal
leikur aðal-
hlutverkið.
Hættu að glápa eins og eldgömul sápa!
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.