Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11.2022
FRÉTTIR VIKUNNAR
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Það styttist í jólin og víða er farið að skreyta og gera fínt. Og ekki vantar – af fréttum að dæma – jólasveinana í þetta
land jólasveinsins, hvort heldur er í Karphúsinu, háskólasamfélaginu, Ríkisendurskoðun, Strætó eða fangageymslum.
Hnífarnir brýndir
fyrir jólin
Lögregla gerði ákafa leit að
hópi manna sem ruddust inn
á skemmtistaðinn Banka-
stræti Club á fimmtudagskvöld
og veittu þremur karlmönnum þar
stungusár. Átta voru handteknir og
húsleit gerð á sex stöðum, en a.m.k.
13 annarra leitað.
Jólaþorpið í Hafnarfirði var opnað
á Thorsplani þegar ljós voru tendruð
á Cuxhaven-trénu.
Kjaraviðræður gengu að sögn
almennt vel á milli Samtaka
atvinnulífsins, VR, Starfsgreina-
sambandsins og Landssambands
verslunarmanna. Þar var helst til
ráða að gera skamman samning í
ljósi ótryggra efnahagsaðstæðna.
Veitur eru farnar að leita að hita
á nýjum slóðum, en þar er m.a.
horft til lághitasvæða í Reykja-
hlíð, á Kjalarnesi og Geldinganesi.
Áhyggjur hafa aukist að undanförnu
um að hitaveita anni ekki vaxandi
eftirspurn.
Undirbúin er útgáfa nafnskírteina á
stærð við kreditkort, en þau eiga að
standast nýjustu öryggiskröfur og
vera gild skilríki til ferðalaga innan
Schengen-svæðisins. Enn er gefið út
lítilræði af gömlu nafnskírteinunum.
Vinnuhópur um heilsueflandi vinnu-
umhverfi hvetur til þess að boðinn
verði stuðningur á vinnustað vegna
breytingaskeiðs kvenna.
Tólf til viðbótar voru handteknir í
tengslum við stunguárás í Banka-
stræti Club, svo þá voru alls 20 í
haldi lögreglu vegna málsins, sem
spratt af deilum tveggja gengja. Í
framhaldinu gekk á með hótunum,
rúðubrotum á heimilum og jafnvel
íkveikjusprengju.
Helgi Gunnlaugsson afbrota-
fræðiprófessor taldi að best væri að
vitundarvakning yrði innan gengj-
anna um hættuna af ofbeldi, egg-
vopnum og eitraðri karlmennsku,
sem hann taldi rót ódæðisins (þó
meðal hinna handteknu væru víst
þrjár konur). Meðlimir mættu ekki
verða viðsklla við stofnanir samfé-
lagsins, sagði prófessorinn og átti
þar ekki við fangelsi.
Ríkisvaldið samdi við borgina um
viðtöku 1.500 flóttamanna.
Eftir meira en þúsund ára umsátur
er síðasta vígið fallið og hagamúsin
hefur numið land í Vestmannaeyj-
um. Húsamús hefur þar hins vegar
verið frá landnámi.
Fórnarlamba umferðarslysa var
minnst með athöfn við þyrlupall
Landspítalans í Fossvogi, þar sem
GuðniTh. Jóhannesson, forseti
Íslands, ogWillum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra fluttu ávörp.
Gæsluvarðhaldsfangar hafa aldrei
verið fleiri en í vikunni, en þá voru
þeir 60 talsins. Yfirleitt eru þeir um
20 talsins. Stærsti hópurinn tengist
stunguárásinni í Bankastræti, en
eins hafa nokkur stór mál önnur
komið upp undanfarnar vikur.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Gallup horfðu nú fleiri á opnunar-
leik heimsmeistaramótsins í
fótbolta í Katar en það gerðu fyrir
fjórum árum, þegar mótið fór fram
í Rússlandi. Hins vegar er kostnað-
ur af útsendingum Ríkisútvarpsins
minni nú en þá.
Mikil hagræðing og aðhald er
framundan í Árborg vegna rekstr-
arörðugleika, en hallinn það sem af
er ári nemur 2,4 milljörðum króna.
Fjárhagurinn hefur lengi verið
þungur þar, en verðbólgan hefur
ekki bætt um betur.
Fjölmenn samninganefnd Eflingar
kom til fundar með tveimur full-
trúum Samtaka atvinnulífisins á
skrifstofum ríkissáttasemjara.
Eldur kom upp í steinullarverk-
smiðju Steinullar hf. á Sauðár-
króki, en niðurlögum eldsins var
skjótt ráðið og tjón í minna lagi.
Í ljós kom að forseti Íslands
hefur lítið við innsigli að gera, því
hann afhjúpaði sjálfan sig sem
taggara þegar 300. rampurinn (flái
fyrir hjólastóla) var settur upp í
Mjóddinni. Þar dró forsetinn upp
úðabrúsa, útmálaði skoðanir sínar
og bætti svo við taggi. Tagg forset-
ans er broskall.
15 lágu á spítala veikir af kórónu-
veirunni, en 30-40 smit koma nú í
ljós á hverjum degi.
Þriðjungur bænda, sem fengust við
blóðmerahald, er hættur því.
Óhugnanleg skilaboð gengu manna
á milli í netheimum um yfirvofandi
hefndarárásir vegna stungu-
árásarinnar í Bankastræti. Var
þar eindregið varað við því að fara
í miðbæ Reykjavíkur og haft fyrir
satt að þar yrði almennum borg-
urum ekki þyrmt. Lögregla sagði
ekki ástæðu til ótta og jók gæslu í
miðbænum til muna.
Íbúafjöldi Íslands var endurmetinn
eftirmanntal, en samkvæmt því
búa tíu þúsund færri í landinu en
talið var. Það kann að hafa áhrif á
áætlanir um húsnæðisþörf.
Guðmundur Björgvin Helgason
ríkisendurskoðandi vill ekki hleypa
neinum í bækurnar hjá embætti
sínu og neitaði að gefa upp á hvaða
kjörum Jón Þór Sturluson var
fenginn til þess að leggja gjörva
sérfræðihönd á margfræga skýrslu
um sölu á hlut ríkisins í Íslands-
banka.
Maður hlaut 3½ árs fangelsisdóm
fyrir tilraun tilmanndráps og
stórfelldar líkamsmeiðingar 17. júní
sl. Hann réðst á tvo vinnufélaga
sína á Seltjarnarnesi.
Reynt verður að bæta samgöngur
milli Ísafjarðar og Flateyrar á
nýju ári, meðal annars með því að
taka niðurgreiddan leigubíl þegar
ekki er völ á strætisvagni.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti
um 25 punkta í 6%.
Aðilar vinnumarkaðarins, sem
setið hafa að samningum, brugð-
ust ókvæða við og fannst bankinn
reyna að spilla fyrir þeim.
Vopnaburður fanga hefur stórauk-
ist undanfarin ár og hafa fanga-
verðir gert alls kyns heimagerð
vopn fanga upptæk.
Svokallaðir Klapp-skannar Strætó,
sem notaðir eru til greiðslu far-
gjalds í vögnum fyrirtækisins, eru
ónothæfir og stendur til að skipta
þeim öllum út. Strætó bs. rambar
á barmi gjaldþrots, en það hlýtur
að leysast þegar borgarlínan kemur
til kasta sömu snillinga í rekstri
almenningssamgangna.
Jarðeðlisfræðingar segja óvenju-
mörg eldfjöll virðast tilbúin í gos,
þó menn séu ófúsir að spá um
framhaldið. Hekla er fullþanin,
Öræfajökull bærir á sér, skjálfta-
virkni í grennd við Kötlu, land rís
við Öskju og Grímsvötn gætu gosið
hvenær sem er.
Lífeyrissjóðir hafa látið smíða fyrir
sig lögfræðiálit um að ráðagerðir
fjármálaráðherra vegna ÍL-sjóðs
standist ekki eignarréttarákvæði
stjórnarskrár.
Ungt fólk í miðbænum hefur fagnað
nýjumyntþvottahúsi á Grettis-
götu og hafa foreldrar þeirra um
alla borg fagnað því mjög.
Svörtudagurinn langi rann upp og
náði einkaneyslan nýjum hæð-
um, rétt eins og til þess að storka
Seðlabankanum og aðilum vinnu-
markaðarins.
Forsætisráðherra boðaði aðila
að kjaraviðræðum á sinn fund
í Múrnum og virtist ná að leggja
klæði á vopnin um stund.
Adam var þó ekki lengi í Para-
dís, því Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR, heyrði á skotspónum
að Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra hefði á fundi úti í bæ
sagt kröfur verkalýðsforystunnar
óraunhæfar. Ragnar er viðkvæmur
maður og sleit hann því kjaravið-
ræðum við svo búið.
Jón Gunnarsson dómsmálaráð-
herra gerði ráðstafanir til þess að
bæta aðbúnað fangavarða, m.a.
vegna aukins vopnaburðar fanga.
Gæsluvarðhald yfir tveimur mönn-
um, sem sakaðir eru um undirbún-
ing hryðjuverka, var framlengt
um tvær vikur. Rannsóknin er sögð
á lokastigi.
Bandaríska sendirráðið varaði
bandaríska borgara við því að fara
í miðbæinn. Íslenskir borgarar hafa
hins vegar ekki verið varaðir við
því að fara til nokkurrar borgar
vestra.
19.11-25.11
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Parapró 200 mg/500 mg filmuhúðaðar töfur. Inniheldur íbúprófen og parasetamól.Markaðsleyfishafi:Acare ehf, info@acare.is.Til skammtíma verkjastillingar fyrir svefn,
til dæmis verks vegna kvefs og flensu, gigtar- og vöðvaverkja, bakverkjar, tannverkjar, höfuðverkjar og tíðaverkjar sem valda svefnerfiðleikum. Frábendingar: ofnæmi fyrir
íbúprófeni, parasetamóli eða einhverju hjálparefna lyfsins, saga um ofnæmisviðbrögð í tengslum við asetýlsalisýlsýru eða önnur bólgueyðandi gigtarlyf, saga um eða
sár/rof eða blæðingu í meltingarvegi, storkugalli, alvarleg lifrarbilun, alvarleg nýrnabilun eða alvarleg hjartabilun, samhliða notkun annarra NSAID-lyfja, samhliða notkun
annarra lyfja sem innihalda parasetamól, notkun á síðasta þriðjungi meðgöngu. Parapró er ætlað til notkunar hjá fullorðnum,18 ára og eldri. Sjá nánari upplýsingar um
lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Parapró
Inniheldur bæði parasetamól
og íbúprófen
Verkjastillandi
og bólgu-
eyðandi
Parapró vinnur gegn mígreni, höfuðverk, bakverk, tíðaverk, tannverk, gigtar- og
vöðvaverkjum, verkjum vegna vægrar bólgu í liðum, einkennum kvefs og flensu,
særindum í hálsi og hita.Parapró hentar þeim vel sem þurfa meiri verkja-
stillingu en parasetamól og íbúprófen veita ein og sér.