Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11.2022 VETTVANGUR Holtagörðum | Sími 568 0708 | www.fako.is Sófi Chesham 199x90 h:80cm Verð 369.000kr Sófaborð Riber 150x60 h:36cm Verð 120.000 kr. AFP/UGC Stúdentar við Azad-háskóla í Teheran sýna rauðmálaða lófa í andófi vegna dauða Möshu Amini í haldi siðgæðislögreglu. Rauði liturinn táknar blóð. Landamæralaus mál- staður mannréttinda Getum við sem þjóð skipt okkur af því sem gerist innan landamæra annarra ríkja eða teljast slík afskipti íhlutun í innanríkismál? Hrokafull inngrip forréttindablindra Vesturlandabúa í málefni sem þeir hafa engan skilning á? Eða er til málstaður sem er hafinn yfir mörk og mæri? Um þessar grundvallarspurningar var rætt í mannréttindaráði Sam- einuðu þjóðanna í vikunni þar sem þýðingarmikil ályktun Íslands og Þýskalands um mannréttindamál í Íran var samþykkt með yfirgnæfandi stuðningi. Ályktunin kveður á um að stofnuð verði sjálfstæð og óháð rann- sóknarnefnd sem safna á upplýs- ingum og gögnum sem nýst geta til að draga þá til ábyrgðar sem ofsótt hafa friðsama mótmælendur í Íran undanfarnar vikur. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það hörmungarástand sem ríkt hefur í Íran í kjölfar dauða Jina Mahsa Amini, ungrar konu af kúrdískum upp- runa sem lést í haldi siðgæðislög- reglunnar í haust. Yfirvöld í landinu hafa tekið á friðsömummótmælend- um af fádæma hrottaskap. Talið er að á fjórða hundrað hafi látið lífið síðan mótmælahrinan hófst, þar af um fjörutíu börn, og þúsundir sitja í varðhaldi. Ísland og Þýskaland fóru því fram á við mannréttindaráðið að sérstakur aukafundur yrði haldinn á vettvangi ráðsins. Tilefnið var sannarlega ærið. Rafmagnað andrúmsloft Rafmagnað andrúmsloft var í sal mannréttindaráðsins þegar umræðan hófst á fimmtudags- morguninn. Ég ræddi við fulltrúa fjölmargra ríkja í aðdragandanum og varð þess strax áskynja að mikil samstaða væri innan ráðsins um að framgöngu klerkastjórnarinnar væri ekki með nokkru móti hægt að líða. Þetta kom enn betur í ljós í sjálfum umræðunum þar sem hvert ríkið á fætur öðru lýsti því yfir að standa yrði vörð um rétt fólks til grundvallarmannréttinda og andæfa því skefjalausa ofbeldi sem írönsk yfirvöld hafa gerst sek um. Þvert á þessi sjónarmið var ræða sem Khadijeh Karimi flutti fyrir hönd Írans, en hún er næstráðandi í því ráðuneyti sem fer með málefni kvenna og fjölskyldna í írönsku ríkis- stjórninni. Hún sakaði þau vestrænu ríki sem fóru fram á umræðuna um hrokafulla framgöngu og misnotkun á mannréttindaráðinu. Það væri hræsnisfull afstaða að benda á Íran en láta mannréttindabrot víða annars staðar átölulaus. Málflutningur íranska fulltrúans rataði sums staðar í fjölmiðla, meðal annars hér á landi. Um slíka orðræðu hef ég þetta að segja: Málafylgja Íslands og Þýskalands vegna Írans hefur ekkert með það gera að Vesturlönd séu að þröngva sínum gildum upp á írönsku þjóðina. Hún snýst um að virðing sé borin fyrir grundvallarmannréttindum og ríki heims – öll sem eitt – standi við skuldbindingar sínar í þeim efnum. Skylda til að bregðast við Mannréttindi eru einn af hornstein- um íslenskrar ut- anríkisstefnu. Það er í samræmi við stofnsáttmála Sam- einuðu þjóðanna um skuldbindingu aðildarríkjanna til aðgerða sem stuðla að og efla viðurkenningu á mannréttindum og grundvallarfrelsi án nokkurrar mismununar. Ísland vinnur að vernd og eflingu mann- réttinda í heiminum fyrst og fremst á vettvangi viðkomandi alþjóðastofn- ana. Kannanir sýna að almenningur er sammála þessari stefnu. Í könnun semMaskína gerði fyrir utanríkis- ráðuneytið í vor sögðu 83 prósent aðspurðra að það skipti miklu máli að Ísland talaði máli mannréttinda á alþjóðavettvangi. Aðeins fimm prósent telja það litlu máli skipta. Grundvallarmannréttindi eru nefnilega hafin yfir landamæri ríkja. Í því felst að við getum ekki sett kíkinn yfir blinda augað þegar brotið er svo gróflega á fólki. Okkur ber þvert á móti skylda til að bregðast við með afgerandi hætti. Ekki aðeins með yfirlýsingum heldur raunveru- legum aðgerðum. Það hefur mann- réttindaráð Sameinuðu þjóðanna nú gert með því mikilvæga skrefi sem aðildarríkin hafa samþykkt að stíga. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@althingi.is Málafylgja Ís- lands og Þýska- lands vegna Írans hefur ekkert með það gera aðVestur- lönd séu að þröngva sínum gildum upp á írönsku þjóðina.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.