Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Síða 19
1927.11.2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR MOSSLEY Ekta „street food“ Dagmar Rós Svövudóttir segir blaðamanni frá staðnum Mossley sem sérhæfir sig í taco, vængjum og trufflufrönskum, en annan og stærri stað má finna í Kópavogi. „Þetta er ekta „street food“- matur og er taco-ið vinsælast,“ segir Dagmar, en hægt er að fá taco með kjúklingi, grís, tempura-blómkáli og önd. „Það eru margir í taco en vængirnir eru líka vinsælir,“ segir Dagmar og segir fólk afar ánægt með matinn. „Um síðustu helgi var hér mikið af Íslendingum að kíkja á nýju mathöllina. Við erum á góðum stað hér niðri í bæ.“ DRYKK Háklassakokteilar Hann kann á drykkina hann Heimir Morthens, eigandi staðarins Drykks. „Hér er boðið upp á allt sem fólk drekkur.VIð erum með flotta kaffivél og keyrum á kaffi og te á daginn.Við færum okkur svo yfir í bjór og vín þegar líður á daginn og erum líka með hrikalega flottan kokteilseðil.Við leggjum áherslu á háklassakokteila,“ segir Heimir og segir mikla vinnu fara í undirbúning kokteilanna, enda allt unnið frá grunni. Heimir segir staðinn fara vel af stað. „Þetta er hrikalega gaman,“ segir Heimir sem er menntaður frá Sviss í hótel- og veitingarekstri. „Ég er mjög bjartsýnn. Ekki er ég svartsýnn!“ segir hann og hlær. ENOTECA Allir elska ítalskt! „Þetta er ítalskur vín- og matarbar,“ segir meistarakokkurinn Siggi Hall sem kokkar ofan í gesti og gangandi á Enoteca. „Hér er sérlagað pasta frá Ítalíu, sérvaldar áleggsskinkur frá Ítalíu og Spáni og svo er hér mjög mikið úrval af ítölsku víni. Hér myndast skemmti- leg vínstemning á kvöldin og fólk fær sér vín og platta með alls kyns ostum, hráskinku og pylsum. Svo erum við með pastarétti sem eru mjög vinsælir, sérstaklega er ravíólí með sveppum búið að slá í gegn. Það eru nokkrir búnir að koma daglega og panta þann rétt,“ segir Siggi. „Það eru allir hrifnir af ítalskri matargerð!“ Guðmundur fær góða hjálp frá ítölunum Mimo og Enrico. PIZZA POPOLARE Pítsur eins og í Napólí Guðmundur Pétursson ræður ríkjum á pítsustaðnum nýja, Pizza Popolare. Þar eru pítsurnar bakað- ar í sérstökum ofni sem er sá eini sinni tegundar á landinu. Pítsurnar bakast á einni og hálfri mínútu og færist botn ofnsins upp og niður til að ná jöfnum bakstri. Guð- mundur segir að þeir noti sérstakt deig og er undirbúningurinn langur. „Við erum þeir einu á landinu sem notum bica-deig en það er látið gerjast í 72 tíma, en pítsurnar eru eins og þær í Napólí.Allt hrá- efnið er sérinnflutt frá Ítalíu, hveiti, skinkur og ostar.Við ætlum svo síðar að bjóða upp á pítsur með ostum frá Erpsstöðum líka,“ segir Guðmundur og segir pítsurnar hafa rokið út í fyrstu vikunni. Hann segist bjartsýnn á að vel gangi. „Við erum í flottasta húsi í bænum sem er fullkomið fyrir mathöll.“ DJÚSÍ SUSHI Fæ ekki leið á sushi Lúðvík Þór Leósson er einn af eigendum og yfirkokkur á Djúsí Sushi. „Hér er boðið upp á sushi, smárétti og poke-skálar. Maturinn hér er undir áhrif- um frá Japan en einnig Suður-Ameríku. Þetta er samspil milli þessara kúltúra,“ segir Lúðvík og segir gesti staðarins sérstaklega sólgna í djúpsteikta rétti. „Poke-skálarnar eru líka vinsælar, og mjög hollar og eins fersku rúllurnar okkar,“ segir Lúðvík, en hann hefur verið sushi-kokkur í yfir áratug og kann sitt fag. „Ég hef haft brennandi áhuga á þessu og er því enn að. Ég hef ekki enn fengið leið á sushi,“ segir hann og brosir. Lúðvík segir staðinn hafa fengið góðar viðtökur frá því mathöllin opnaði. „Húsið fyllist hér öll kvöld og hér er frábær stemning.“ Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdótir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.