Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Síða 24
24 TÍMAVÉLIN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11.2022 LÁTTU FAGFÓLK SELJA ÞÍNA EIGN FAGLEG RÁÐGJÖF VIÐ KAUPOG SÖLU HLÍÐASMÁRA 4 KÓPAVOGI - AUSTURVEGI 6 SELFOSSI & ESJUBRAUT 49 AKRANESI - SÍMI 527 1717 - WWW.DOMUSNOVA.IS Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Sigríður Geirsdóttir bjó um tíma og starf- aði í Hollywood. Viðstödd slagsmál í Hollywood Seint í nóvember 1962 voru fréttir af því í heimspressunni að komið hefði til slagsmála milli tveggja málsmetandi kvik- myndaframleiðenda, Sidney Lufts og Charles Strauss, á veitingahúsi einu í Hollywood. Svo harkalega flugust þeir víst á að kvenfólk flúði salinn, hafði Morgunblaðið eftir breska blaðinu Daily Express. Hafi þetta ekki verið nóg til að vekja áhuga landans þá kom einnig fram í heimsfréttunum að íslenska kvikmyndaleikkonan og fyrirsæt- an Sigríður Geirsdóttir, eða Sirrý Geirs, hefði verið við borð Lufts þegar skarst í odda. Blaðið bjó svo vel að hafa símanúmer hennar í Hollywood og var ekki lengi að slá á þráðinn. Lét móðgandi orð falla „Þetta var þannig að ég var búin að þekkja Strauss í meira en ár. Þegar hann vissi að ég þekkti Luft, þá hringdi hann hingað seint um kvöld,“ sagði Sigríður um aðdraganda áfloganna. Hún var hins vegar ekki heima og Anna Geirsdóttir, systir hennar, sem einnig var fyrirsæta, kom í símann. Lét Strauss þá falla mjög móðg- andi orð um Luft. „Önnu féll þetta illa og þegar ég kom heim hálf- tíma seinna úr kvöldverðarboði með Luft vildi hún tala við mig einslega. Hún sagðist ekki geta sagt mér hvað það væri svo Luft heyrði til. Ég sagði henni þá að ef ég gæti heyrt það gæti Luft það líka. Þá sagði hún að Strauss hefði hringt og sagt ýmislegt um Luft, – sem var eintómur þvættingur auðvitað.“ – Hvað sagði hann? spurði blaða- maður. „Það veit enginn, það hefur ekki verið birt.“ Að sögn Sigríðar reyndi Luft að hringja til Strauss næsta dag til þess að krefja hann um afsökun, en þá skellti Strauss á hann og vildi ekki tala við hann. „Nú er það af til- viljun að sama kvöld og hann hafði reynt að hringja, að við sitjum við nærliggjandi borð í veitingahúsinu Slate-Brother’s Night Spot, við Luft á öðru borðinu en Strauss við hitt. Luft fór þá yfir að borði Strauss og krafðist þess að hann bæði sig afsökunar. Vildi hann að þeir færu út og töluðu saman, en það vildi Strauss ekki. Og svo vissi maður ekki fyrri til en borðin fóru um koll, og ég sá að þeir voru í slagsmálum. Svo var þetta stöðvað og lögreglan kom ekki.“ Í máli Sigríðar kom fram að Luft hefði daginn eftir farið til Noregs í viðskiptaerindum, en það var víst ákveðið löngu áður og tengdist því ekki hanaatinu í Hollywood. Luft var á þessum tíma giftur leikkonunni Judy Garland en einhver uppstytta var víst komin í samband þeirra. Samkvæmt heim- ildum skildu þau þó ekki að borði og sæng fyrr en 1963. Garland mun af því tilefni hafa sakað hann um drykkjuskap og ofbeldi. Þeim varð tveggja barna auðið, annað þeirra er leikkonan Lorna Luft. Áður var Luft kvæntur leikkonunni Lynn Bari, sem sérhæfði sig í að leika morðkvendi á hvíta tjaldinu. Sidney Luft lést árið 2005. Strauss var meðal annars fram- leiðandi og annar handritshöfunda kvikmyndarinnar Hitler, sem Sig- ríður hafði skömmu áður leikið í, að því er fram kom í Morgunblaðinu. „Já, við erum góðir vinir, en ég er nú alveg hætt að sjá hann,“ upplýsti hún í samtalinu. Með svarta hárkollu Þegar þetta hitamál var frá notaði blaðamaður að vonum tækifærið til að spyrja frétta af þeim systrum. „Ég er um þessar mundir að leika í nýjum framhaldssjónvarpsþætti hjá CBS, Beverly Hillbillies. Þetta fjallar um sveitafjölskyldu, sem flyzt til Hollywood, eftir að olía finnst í landi hennar. Ég leik franska þjón- ustustúlku hjá fjölskyldunni, og er með svarta hárkollu.“ Þið veitið því athygli hve orðið flyzt lítur miklu betur út á prenti en orðið flyst. – Er þetta góður samningur? „Já, ágætur. Myndatökur fara fram þrjá daga í viku og fyrir þær fæ ég rúma 400 dollara á viku.“ Morgunblaðið spurði einnig frétta af Önnu. „Hún er að fara til Las Vegas til þess að syngja og dansa í South Pacific, sem þar á að setja upp,“ svaraði Sigríður. „Hún fer þangað 3. desember og hefur þannig samning að hún getur hætt hvenær sem er. Þetta er vel borgað, hún hefur 250 dollara á viku,“ sagði Sigríður að lokum. Kaup manna greinilega ekkert feimnismál á þessum árum. Ferðaðist víða Sigríður var valin fegurðardrottn- ing Íslands 1959. Ári síðar tók hún þátt í fegurðarsamkeppninni Miss International, sem þá var haldin í fyrsta skipti og fór fram á Langasandi í Kaliforníu. Hún varð í þriðja sæti og vann titilinn Ungfrú fótógen. Í kjölfar sigursins ferðaðist hún víða og hóf kvikmyndaleik og kom fram í nokkrum kvikmynd- um og sjónvarpsþáttum vestra undir nafninu Sirry Steffen. Hún er líklega þekktust fyrir leik sinn í Beverly Hillbillies en af öðrum hlutverkum má nefna sænskan skiptinema í hrollvekjunni The Crawling Hand árið árið 1963 og „partístúlku“ í kvikmyndinni Bedtime Story með goðsögnunum Marlon Brando og David Niven árið 1964. Eftir nokkur ár í Hollywood fluttist hún aftur heim til Íslands árið 1970. Hún kom fram sem söngkona með dægurlagahljóm- sveitum, t.d. með KK sextett og hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Hún lék einnig í kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Okkar á milli, árið 1982. Árið 1981 lauk hún BA-prófi í ensku frá Háskóla Íslands og ári síðar einnig námi í kennsluréttind- um. Hún kenndi ensku um árabil við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Menntaskólann á Laugarvatni. Sig- ríður lést árið 2020, 81 árs að aldri. Anna systir hennar féll frá fyrr á þessu ári, 79 ára að aldri. Sigríður Geirsdóttir, fyrirsæta og leikkona, átti ásamt fleirum fótum sínum fjör að launa þegar kvikmyndaframleiðendurnir Sidney Luft, sem þá var eiginmaður Judyjar Garland, og Charles Strauss tóku hvor annan miðaldatökum á veitingahúsi í Hollywood árið 1962. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Wikimedia Sydney Luft stóð í stór- ræðum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.