Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11.2022 ÚTVARP OG SJÓNVARP Casablanca.AFP. | Ferðamenn hópast um þessar mundir á bar í Marokkó í leit að andanum á næturklúbbi Humphreys Bogarts eins og hann kemur fyrir í klassísku myndinni Casablanca, sem gerist á stríðsárunum og fyrst var sýnd á hvíta tjaldinu fyrir 80 árum. Hafnarborgin Casablanca öðlaðist sess í menningarvitund Banda- ríkjamanna á örlagastundu í síðari heimsstyrjöld vegna ástarmyndar- innar þar sem Ingrid Bergman lék Ilsu Lund og Bogart var í hlutverki Ricks Blaines. Aðeins nokkrir dagar liðu frá því hún var fyrst sýnd 26. nóvem- ber 1942 þar til bandaríski herinn hrifsaði Casablanca úr höndum Vichy-stjórnarinnar í Frakklandi. Það gerðist í aðgerð, sem nefndist kyndill og fólst í því að bandamenn réðust á land á nokkrum stöðum í Norður-Afríku. Varð það til þess að breyta gangi stríðsins. Marokkó var hins vegar enn undir stjórn Vichy þegar verið var að gera myndina þannig að Michael Curtiz leikstjóri tók meistaraverkið eins og það lagði sig í kvikmyndaveri Warner Brothers í Kaliforníu. Mörgum áratugum síðar opnaði Kathy Kriger, sem hafði verið í bandarísku utanríkisþjónustunni, stað með nafninu Rick’s Cafe í Casablanca. Fyrirmyndin er sam- nefndur bar Blaines í myndinni og píanóið var ekki látið vanta. Staður- inn sló þegar í gegn hjá ferðamönn- um þegar hann var opnaður 2004. „Ég varð að koma hingað þó að ég vissi að myndin hefði ekki verið tek- in hérna,“ sagði Wendy, ferðamaður frá Vancouver í Kanada. „Staðurinn er einstakur, rómantískur og vekur fortíðarþrá. Maður verður að koma hingað alla vega einu sinni á ævinni.“ Með henni var Alexandra frá Spáni, sem sagðist ekki hafa séð myndina en væri heilluð af staðn- um. „Í mínum huga tengist borgin Casablanca staðnum Rick's Cafe.“ Það er eins og að fara aftur í tíma að stíga inn í barinn, sem er við gamla bæinn í Casablanca. Lagt er á borð á tveimur hæðum innan um um súlur í marokkóskum stíl. „Þetta er ekki nákvæm eftirlíking af kaffihúsinu í myndinni,“ sagði Issam Chabaa, framkvæmdastjóri veitingastaðarins og píanóleikari. „Það eina sem náðist að endurskapa fullkomlega var andinn.“ Margt minnir á staðinn í myndinni og þar eru plaköt og leikinn blús og djass frá þeim tíma sem myndin var gerð. Píanóið er svipað því sem Dooley Wilson lék á í hlutverki Sams lagið As Time Goes By, sem var einkennissöngur ástarsambands Ricks og Ilsu. „Það eina sem vantar er rúllettan og reykfyllt, dramatískt andrúmsloft þessara tíma,“ sagði Tony frá Ír- landi. Hann og félagar hans sögðust ekki vera forfallnir kvikmynda- áhugamenn, en gátu þó vitnað í myndina. „Við munum alltaf hafa París,“ sagði einn og vísaði í ástarævintýri Blaines og Lund rétt áður en þýskir nasistar réðust inn í Frakkland 1940. Setninguna segir Blaine við Lund þegar hann sannfærir hana um að leiðir þeirra eigi að skiljast og fórnar sambandi þeirra til að hjálpa manni hennar, sem er í tékknesku andspyrnuhreyfingunni, að komast undan nasistum. Casablanca veitti bandamönnum vind í seglin þegar þeir voru að ná fótfestu í Norður-Afríku, sem varð síðan stökkpallurinn þegar Vest- ur-Evrópa var frelsuð. Myndin fór í sýningar í Banda- ríkjunum í janúar 1943 þegar Franklin Roosevelt forseti sat Casablanca-ráðstefnuna til að undir- búa þá sókn. Meredith Hindley sagnfræðing- ur, sem skrifað hefur bók um Casablanca í stríðinu, sagði að myndin væri orðin hluti af reynslu- heimi Bandaríkjamanna úr stríðinu með hætti sem aldrei hefði verið ætlunin. Casablanca er enn ein af ástælu- stu myndum Hollywood. Bandaríski trommuleikarinn Najib Salim, sem hefur komið fram í Rick’s Cafe í 15 ár, sagði að myndin væri „tímalaus“ og hefði öðlast nánast þjóðsagna- kenndan sess. Gestir streyma enn í Rick’s Cafe AFP/Fadel Senna Maður gengur inn í Rick’s Cafe í Casablanca. Staðurinn er í anda bars Humphreys Bogarts í einni frægustu mynd kvikmyndasögunnar, Casablanca. 80ÁR FRÁ GERÐ CASABLANCA RÚV Stöð 2 Hringbraut Omega N4 Sjónvarp Símans Rás 1 92,4 • 93,5 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Góð tónlist og létt spjall. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring hækkar í gleðinni og fylgir hlustendum K100 síðustu metrana í fríi helgarinnar eftir hádegi á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp 40 Ásgeir Páll Ásgeirsson fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljómplötuframleiðenda. Danskir bræður í heimsmetabókina Tveir bræður hafa nú komist í Heims- metabók Guinness vegna fjölda Poké- mon-spjalda sem þeir hafa safnað en saman eiga þeir 32.809 spjöld. Bræðurnir, sem heita Jens Ishoy Prehm og Per Ishoy Nielsen, segjast, í samtali við Heimsmetabók Guinness, hafa eytt fúlgu fjár í Pokémon-spjöldin en verðmætasta spilið í safninu er tæplega þriggja milljóna króna virði. Þeir segjast einnig vera með góða tilfinningu fyrir því hvort Pokémon-spjald sé ekta eða ekki en þeir eru handvissir um að aðeins ekta spjöld sé að finna í safninu. Nánar á K100.is. 07.50 Úmísúmí 08.13 Rán og Sævar 08.24 Stuðboltarnir 08.35 HæSámur 08.42 Eðlukrúttin 08.53 Sjóræningjarnir í næsta húsi 09.04 Hvolpasveitin 09.26 Strumparnir 09.37 Bréfabær 09.48 Millý spyr 09.55 Rán - Rún 10.00 Stórfljót heimsins - Níl 10.50 Landakort 11.00 Silfrið 12.10 Menningarvikan 12.30 HM stofan 12.50 Belgía - Marokkó 14.50 HM stofan 15.15 Leiðin á HM - liðin 15.30 HM stofan 15.50 Króatía - Kanada 17.50 HM stofan 18.10 Sögur frá Listahátíð 18.15 KrakkaRÚV 18.16 Stundin okkar 18.43 Hrúturinn Hreinn 18.50 Jólalag dagsins 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Landinn 20.15 Grund 21.05 Carmenrúllur 22.00 Evrópskir kvikmynda- dagar: Stúlka 23.45 HMkvöld 11.20 Dr. Phil 12.00 Dr. Phil 12.40 Bachelor in Paradise 14.00 Bachelor in Paradise 15.20 Top Chef 16.00 The Block 17.10 90210 17.55 Amazing Hotels: Life Beyond the Lobby 18.55 Kenan 19.25 Heima 19.50 Jólastjarnan 2022 20.25 Venjulegt fólk 21.00 Law andOrder: Organized Crime 21.50 Yellowstone 22.40 The Handmaid's Tale 23.40 From 00.40 Law andOrder: Speci- al Victims Unit 01.25 ChicagoMed 02.10 The Rookie 15.30 Charles Stanley 16.00Trúarlíf 17.00Times Square Church 18.00Tónlist 18.30 Ísrael í dag 18.30 Mannamál (e) 19.00 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 19.30 Útkall (e) 20.00 Matur og heimili (e) Endurt. allan sólarhr. 08.15 Danspartýmeð Skoppu og Skrítlu 08.35 Elli og Lóa 08.50 Gus, riddarinn pínu- pons 09.00 Monsurnar 09.10 Mæja býfluga 09.20 Tappimús 09.30 Angry BirdsToons 09.35 Lína langsokkur 09.55 Angelo ræður 10.05 Mia og ég 10.30 Denver síðasta risa- eðlan 10.40 Hér er Foli 11.00 K3 11.15 Soggi 11.40 Náttúruöfl 11.50 BPositive 12.10 Nágrannar 14.00 Jamie's Easy Christmas Count- down 14.45 Home Economics 15.20 The Good Doctor 16.00 Um land allt 16.20 60Minutes 16.40 Kviss 18.20 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 19.00 Leitin að upprunanum 19.40 LegoMasters USA 20.25 MagpieMurders 21.10 Gasmamman 21.55 Blinded 22.40 The Drowning 23.30 Afbrigði 23.55 Karen Pirie 20.00Að sunnan (e) - 13. þ. 20.30Að vestan (e) - 9. þ. 21.00Að austan (e) - 13. þ. 21.30 Frá landsbyggðunum (e) - 4. Þáttur Endurt. allan sólarhr. 06.55 Bæn og orð dagsins 07.00 Fréttir 07.03 Hringsól 08.00 Morgunfréttir 08.05 Á tónsviðinu 09.00 Fréttir 09.03 Upp á nýtt 10.00 Fréttir og veðurfregnir 10.15 Orð umbækur 11.00 Guðsþjónusta í Hall- grímskirkju 12.00 Hádegisútvarp 12.10 Síðasta lag fyrir fréttir 12.20 Hádegisfréttir 13.00 Sögur af landi 14.00 Víðsjá 15.00 Lestin 16.00 Síðdegisfréttir 16.05 Úr tónlistarlífinu: Bryndís Halla og Jane Ade í Kammermúsík- klúbbnum 17.25 Orð af orði 18.00 Kvöldfréttir 18.10 Húsmæður Íslands 18.50 Veðurfregnir 19.00 Óskastundin 19.40 Dagar í Búkarest 20.50 Fólk og fræði 21.20 Í sjónhending 21.30 Man ég það sem löngu leið 22.00 Fréttir 22.05 Veðurfregnir 22.10 Árekimeð KK 23.10 Frjálsar hendur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.