Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2022
Nýtt merki Gianni Chiarini
Vandaðar leðurtöskur
Ítölsk hönnun og ítölsk framleiðsla
Hafnartorg Gallery | Kringlan | Glerártorg | casa.is
ÞRÍFARARVIKUNNAR
Gerald Depardieu
leikari
Benedikt Jóhannesson
tryggingarstærðfræðingur
Jay Leno
spjallþáttakóngur
GAMLA FRÉTTIN
Til óhróðurs í
eftirtíðinni
„Aðvörun“ var yfirskrift bréfs
sem Jón Þorkelsson þjóð-
skjalavörður sendi Morgun-
blaðinu fyrir réttum hundrað
árum, í lok nóvember 1922.
Þar kom fram að stöku menn
hefðu afhent til geymslu í Þjóð-
skjalasafninu innsiglaða böggla,
„er ekki mætti opna fyrri en
eftir langan tíma, stundum ekki
fyrri en eftir allra þeirra dag,
sem nú eru lífs“.
Jón tók fram að alla jafna
væru það heiðvirðir menn
sem bæðu fyrir slíka böggla en
eigi að síður gæti þetta verið
varasamt. „Þeir menn kunna
að vera til, sem svo eru gerðir,
að þeir noti slíka geymslu af
ásetningi, ef hún er eftirlits-
laus, til óhróðurs og mann-
skemda í eftirtíðinni einhverj-
um samtíðarmönnum sínum,
sem þeim er illa við, og þar
með stilt svo til, að láta mann-
orðsdrepið þá fyrst gjósa upp,
– líkt og drepsóttirnar gömlu,
– þegar raktir eru sundur
strangarnir, og allir þeir eru
dauðir, er fyrir mannskemdun-
um verða, svo og allir aðrir, er
til gátu munað og vitað rjett
sannindi, og til nokkurra varna
máttu vera.“
Til að fyrirbyggja þetta setti
Jón sem skilyrði að safninu yrði
gerð grein fyrir innihaldi böggl-
anna gegn þagnarskyldu.
Morgunblaðið/Ómar
Menn urðu að gera góða grein fyrir skjölum sínum fyrir hundrað árum.
Tók síðbúna markasótt
Slær Olivier Giroud markametið í franska landsliðinu gegn Dönum á HM?
Hefði einhver sagt við franska knattspyrnumanninn Olivier
Giroud þegar hann fagnaði 25 ára afmæli sínu árið 2011 að hann
ætti eftir að verða markahæsti leikmaðurinn í sögu landsliðs
þjóðar sinnar hefði hann ábyggilega brosað kurteislega og
ráðlagt viðkomandi að hafa skoðanir á einhverju allt öðru en
knattspynu. Giroud hafði á þeim tíma ekki leikið einn einasta
landsleik, hvorki með aðalliðinu né á yngri stigum.
Skömmu síðar kom kallið og fyrsta markið datt inn ári
síðar. Síðan hafa þau komið jafnt og þétt og í vikunni jafnaði
Giroud markamet goðsagnarinnar Thierrys Henrys, 51 mark, í
öruggum sigri á Áströlum á HM í Katar. Orðinn 36 ára gamall.
Í dag, laugardag, gefst honum síðan tækifæri til að bæta metið,
þegar Frakkar mæta Dönum. Sem frægt er þá tókst Giroud
ekki að skora á HM fyrir fjórum árum, þegar Frakkar urðu
heimsmeistarar, en lagði þó sitt tvímælalaust af mörkum. Eina
mark hans á lokamóti HM þangað til í vikunni kom gegn Sviss í
Brasilíu 2014.
AFP/Jewel Samad
Olivier Giroud fagnar öðru
marka sinna gegn Ástralíu.
Reuters/Oleg Popov
Thierry Henry deilir markametinu með Giroud.
Hann er í þjálfarateymi Belga á HM í Katar.