Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.12.2022 FRÉTTIR VIKUNNAR Morgunblaðið/Árni Sæberg Þrátt fyrir að mikil vandræði hlytust af fannfergi í Reykjavík, þar sem tiltæk voru jafnmörg snjóðruðningstæki og í langtum fámennari nágrannasveitarfélögum, var gatnamoksturinn við heimili borgarstjóra til háborinnar fyrirmyndar. Snjókoma á Íslandi! Liðin vika bar vitaskuld mikið mark af jólaundirbúningi, en það dró ekki úr jólastemn- ingunni þegar Vetur konungur gekk í garð með látum og snjó kyngdi niður eftir annars tíðindalítið og milt haust og vetrarbyrjun. Þrátt fyrir viðvaranir Veðurstofu virtist fannfergið koma bæði borgarstjórn Reykjavíkur og Vegagerðinni í opna skjöldu. Allt sat pikkfast í Reykjavík og Reykjanes- braut var lokað með þeirri afleið- ingu að fjöldi ferðamanna kúldr- aðist í Leifsstöð við illan kost. Einar Þorsteinsson, staðgengill borgarstjóra (Dagur B. Eggerts- son var að sóla sig í Suður-Afríku), sagði það óásættanlegt að Reykja- víkurborg hefði einungis náð að koma níu snjómoksturstækjum á götur borgarinnar um síðustu helgi. Stalla hans, Alexandra Briem, borgarfulltrúa Pírata og formaður umhverfis- og skipulagsráðs, sagði hins vegar að snjómoksturinn hefði gengið vel, enda væri stýrihópur að endurskoða þjónustuhandbók vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar. Svissnesk orkufyrirtæki vilja reisa metangasverksmiðju við Reykjanesvirkjun, þar sem fyrst yrði rafgreint vetni og það síðan notað ásamt koltvíoxíði frá jarð- varmavirkjun HS orku til að búa til metangas, sem svo yrði flutt til Sviss. Birgir Þórarinsson alþingismaður fór á vegum Evrópuráðsins og hitti flóttamannaráðherra talíbana í Afganistan þar sem hann ræddi flóttamannavandann, stöðu kvenna í landinu og fleira. Frumvarp um breytta háttu leigubílaaksturs var samþykkt frá Alþingi. Þau taka gildi 1. apríl. Alþingi afgreiddi fjárlög með útgjöld á 1.400. milljarð króna. Við svo búið héldu þingmenn í jólafrí. Héraðsdómur hafnaði endurtekinni kröfu um gæsluvarðhald tveggja manna í hryðjuverkamálinu svonefnda. Áfram var illfært og Reykjanes- braut lokuð, svo aflýsa þurfti millilandaflugi og mörgum flug- ferðum seinkað. 300 ferðamenn voru strandaglópar í Bláa lóninu og fjöldahjálparmiðstöðvar opnaðar á Suðurlandi og Suðurnesjum. 3,8 stiga skjálfti varð í Kötlu, sem verið hefur óróleg að undanförnu. Leigubílstjórar voru margir óhress- ir með ný lög um leigubílaakstur og efndu til mótmælaverkfalls. Þátttakan var hins vegar misjöfn og fór það út um þúfur. Ríkisstjórn og Samtök íslenskra sveitarfélaga undirrituðu samning um breytta fjármögnun þjónustu við fatlað fólk. Reykjavíkurborg hækkaði leik- skólagjöld í annað sinn á aðeins þremur mánuðum. Hækkunin nú nam 4,9% en var 4,5% í september. Ljósleiðarinn, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur (OR), lét undan Sýn og keypti grunnnetið af henni fyrir 3 milljarða króna, frekar en að eiga á hættu að missa stærsta viðskiptavininn annað. Hvorki Ljósleiðarinn né OR vildu nokkuð láta uppi um samninginn og borgarstjórnarmeirihlutinn bannaði að um hann yrði rætt í borgarstjórn. Þarf Ljósleiðarinn þó að slá 4-5 milljarða lán á hæstu vöxtum. Brynhildur Davíðsdóttir stjórn- arformaður OR hyggst láta af störfum, þó hún segði að þessi leyndarhyggja og pukur væru fullkomlega eðlileg og að viðskiptin kæmu eigendunum ekkert við. Starfsgreinasambandið (SGS) samþykkti kjarasamning við Samtök atvinnulífsins (SA) með afgerandi hætti í öllum aðildarfé- lögum. Ekki þó Eflingar sem reynir að semja upp á eigin spýtur. Nú eða að fá fram verkfall, sem virðist alls ekki vera forystu Eflingar á móti skapi. Ýmis opinber gjöld eiga að hækka um áramótin, þar á meðal á áfengi, eldsneyti og sorphirðugjald. 63% landsmanna sáu úrslitaleik í heimsmeistaramótinu í fótbolta þar sem Argentínumenn báru sig- urorð af Frökkum. 37% landsmanna virtust hins vegar halda fast við að sniðganga Katara. Reykjanesbraut var loks opnuð aft- ur á þriðjudag, en flugfélögin höfðu gripið til þess ráðs að fljúga milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar með strandaglópa, vistir og áhafnir. Ekkert var að veðri eða færð, svo millilandaflugvöllurinn hefði vel getað verið opinn ef Reykjanes- braut hefði ekki verið lokuð. Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað mikið í landinu og eru þeir nú um 17,7% íbúa landsins. Lang- flestir eða um 36% eru frá Póllandi, en næst koma Litháen, Rúmenía, Lettland og Úkraína. Fjölgun Úkra- ínumanna á árinu nemur 862%. Mikil breyting verður á afgreiðslu olíufélaganna í borginni á næstu árum, en þau fengu þar byggingar- rétt fyrir a.m.k. 700-800 íbúðir og um 8 milljarða króna á silfurfati frá fjárvana borg. Nær fjögur þúsund manns mót- mæltu þeim fyrirætlunum Reykja- víkurborgar að loka Vin, dagsetri fyrir fólk með geðraskanir, aðeins ári eftir að borgin tók við rekstrin- um. Vetrarveðrin höfðu mikil áhrif á þá sem bágast eiga í landinu, einkum þá í Reykjavík. Það átti ekki síst við heimilislaust fólk, en ásókn í kaffi- stofu Samhjálpar er mjög mikil. Um 500 manns koma í mat hjá góð- gerðarsamtökum á borð við hana og Hjálpræðisherinn dag hvern. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur samið við Hríseyj- arbúðina um afhendingu á áfengi, sem keypt er í vefverslun ÁTVR. Ríkið hefur gengið frá kaupum á nýjum hlutum í Betri samgöngum með því að afhenda mikið land við Keldur og Keldnaholt undir sér- sniðið hverfi fyrir Borgarlínuna. Reykjavíkurborg telur óraunhæft að flýta gerð Sundabrautar. Meirihlutinn neitar því að hann leitist við að tefja málið. Icelandair segir að lokun Reykja- nesbrautar hafi raskað ferðum um 24 þúsunda manna á vegum félagsins. Beint tjón fyrir flugfélög sé mikið og óbeint kunni orðspor íslenskrar ferðaþjónustu að hafa beðið hnekki. Þrátt fyrir alla verðbólgu hefur matvöruverð hækkað minna hér en í löndum Evrópusambandsins (ESB). Hér á landi er það aðeins ket, sem hefur hækkað meira en ytra. Hagstofan kynnti mannfjöldaspá og telur íbúa landsins verða 400 þúsund árið 2027 samkvæmt mið- spá. Er Hagstofan þó alræmd fyrir íhaldssamar spár um mannfjölda. Fjölgunin undanfarin ár hefur verið í samræmi við háspá hennar. Samkvæmt stofnmælingum Hag- stofu eru fiskistofnar við landið að styrkjast. Löggilding 16 iðngreina var felld niður eða þær sameinaðar öðrum, skyldum greinum. Þar á meðal er feldskurður, glerslípun, hattasaum- ur, leturgröftur og fleira. Félagsmenn VR, Landssamband verslunarmanna og samflots iðn- og tæknifólks, samþykkti með afger- andi hætti samninga við SA. Það er nokkurt áfall fyrir Ragnar Þór Ingólfsson formann VR, sem ekki mælti með samþykktinni. Samtök atvimnnulífsins (SA) höfn- uðu kjaratilboði Eflingar, sem var mjög á aðra lund en aðrir samn- ingar. Þar var gert ráð fyrir tvöfalt meiru en samið var um við SGS. Efling vildi 57.500 kr. lágmarks- hækkun upp í 66 þúsund. Snjómokstur í Reykjavík, eða öllu heldur skortur á honum, var áfram í fréttum, en á daginn kom að borgin lætur vera að ryðja götur við einkalóðir. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra samdi við Erlu Bolladóttur um að hún fengi 32 milljónir króna í miskabætur vegna gæsluvarðhalds hennar í Geirfinnsmálinu. 17.12-23.12. Andrés Magnússon andres@mbl.is Holtagörðum | Sími 568 0708 | www.fako.is Kampavínsskál úr aluminium Ø39cm h:29cm 10 lítra Verð 31.995 kr

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.