Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Blaðsíða 18
18
JÓL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.12.2022
Byggðu
á gæðum
KLETTAGÖRÐUM 8–10 – 104 REYKJAVÍK – 590 5100 – KLETTUR.IS
Jól víðsvegar um ból
Jólin, jólin alls staðar, kvað skáldið. Kannski ekki alveg rétt en býsna víða
eru þau samt haldin hátíðleg á byggðu bóli. Þá gleðjast háir sem lágir og
gera sér glaðan dag og daga. Skrýtnir, skeggjaðir karlar koma til byggða,
skammdegið er lýst upp og allir fá víst eitthvað fallegt.
AFP/Valery Hache
Af mörgu mikilvægu fyrir jólin skiptir ekkert eins miklu máli og blessað jólabaðið. Það vita þessir eldhressu strandfar-
endur í Nice í Frakklandi manna best. Löng hefð er fyrir gjörningnum og því fleiri sem mæta þeim mun betra.
AFP/Vano Shlamov
Georgíumenn eru ljósaglaðir í ár ef marka má þessa mynd sem tekin var í
miðbæ höfuðborgarinnar Tbilisi í vikunni. Bílarnir létu ekki truflast.
AFP/Sujit Jaiswal
Jólastjarnan var komin á sinn stað á toppi trésins í Mumbai þegar heima-
menn flykktust á jólahátíð og húllumhæ í indversku borginni fyrr í vikunni.
AFP/Joseph Prezioso
Þau stóðu stóreyg hjá og störðu jólaljósin á þessi börn í
bænum Canton í Massachusetts í Bandaríkjunum.
AFP/ Orlando Estrada
Ekki má gleyma blessuðum málleysingjunum og jólaveinn
kom færandi hendi í dýragarðinn í Gvatemalaborg.