Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.12.2022 ÚTVARP OG SJÓNVARP RÚV Stöð 2 Hringbraut Omega N4 Sjónvarp Símans Rás 1 92,4 • 93,5 10 til 14 Stefán Valmundar – Stefán er þægilegur að vanda og í jólaskapi. 14 til 18 Þór Bæring Jólabarnið – Þór Bæring hækkar í gleðinni með vangaveltum og frábærri tónlist. 18 til 24 Betri blanda af tónlist. Hringlaga tík bjargar geðheilsu netverja 07.05 KrakkaRÚV 07.06 Sögur snjómannsins 07.33 Hvolpasveitin 07.55 Vinabær Danna tígurs 08.09 Molang 08.16 Kúlugúbbarnir 08.39 Hvolpasveitin 09.01 Mímí og bergdrekinn - Jólasaga 09.26 Snjókarlinn og snjó- hundurinn 09.50 Rauðhetta 10.55 Ný skammarstrik Emils í Kattholti 12.30 Hátíðarmessa bisk- ups Íslands á jóladag 13.25 Norskir jólatónar með Kurt Nilsen 14.55 All IWant for Christmas 16.25 Randalín ogMundi: Dagar í desember 16.40 Klukkur um jól 17.35 Dýrin í Hálsaskógi 18.50 JÓL 19.00 Fréttir 19.20 Veður 19.25 Jólastundin 20.00 Jólalag dagsins 20.10 VelkominnÁrni 21.15 Þorpið í bakgarðinum 22.50 Gone Girl 01.10 Dagskrárlok 08.00 Grami Göldrótti - ísl. tal 09.30 Skrímslafjölskyldan - ísl. tal 11.00 Rumble - ísl. tal 12.30 Ávaxtakarfan 14.30 Hotel for Dogs 16.30 Birta 16.55 JólmeðJóhönnu 2021 18.45 Jólagestir Björgvins 2021 21.00 Venjulegt fólk 21.30 Pitch Perfect 3 23.05 Blacklight 00.50 Hunter Killer 02.50 Wild Card 07.30 Með kveðju frá Kanada 08.30 United Reykjavík 09.30 Tomorrow´sWorld 10.00 Máttarstundin 11.00 LetMy PeopleThink 11.30 Tónlist 13.00 Catch the Fire 14.00 Omega 15.00 Joel Osteen 15.30 Charles Stanley 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 24.00 JoyceMeyer 18.30 Mannamál (e) 19.00 Halli og Laddi (e) 19.30 Tónleikar (e) 20.00 Tónleikar (e) Endurt. allan sólarhr. 08.00 Hvítatá 08.03 Rita og krókódíll 08.05 Tappimús 08.10 Greppibarnið 08.40 Lína langsokkur 09.05 Gnomeo andJuliet 10.25 Jólasýning Skoppu og Skrítlu 10.40 Jólasýning Skoppu og Skrítlu 10.55 Náttúruöfl 11.00 Garfield 12.20 Storks 13.45 TheNeverEnding Story 15.15 Tónlistarmennirnir okkar 15.55 Steinda Con: Heims- ins furðulegustu hátíðir 16.35 Jamie's One Pan at Christmas 17.20 ABerry Royal Christmas 18.20 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Vegarottan 19.05 Klandri 20.35 Allra síðasta veiði- ferðin 22.10 Everest 00.05 Volcano 01.45 Bombshell 20.00 Jónas Sig tónleikar (e) 1/2 20.30 Jónas Sig tónleikar (e) 2/2 21.00 Gísli á Uppsölum Endurt. allan sólarhr. 08.00 Klukknahringing 08.10 Tónlist aðmorgni 09.00 Römmer sú taug 10.00 Fréttir 10.03 Veðurfregnir 10.15 Joe Grimson: Saga af svikum 11.00 Guðsþjónusta í Graf- arvogskirkju 12.00 Jólalag Ríkisútvarps- ins 12.10 Síðasta lag fyrir fréttir 12.20 Hádegisfréttir 13.00 Þungur er þegjandi róður 14.00 Moliére í 400 ár 15.00 Dansfrumkvöðlar 16.00 Síðdegisfréttir 16.05 Enginnmódernismi án lesbía 16.55 ÓratoríanMessías: Fyrri hluti 18.00 Kvöldfréttir 18.10 Góði hirðirinn 18.50 Veðurfregnir 19.00 ÓratoríanMessías: Seinni hluti 20.25 Í dag er glatt í döprum hjörtum 21.10 Jólanótt 1876 21.36 Hvít jól: Jóladansleik- ur: Smásaga 22.00 Fréttir 22.05 Veðurfregnir 22.10 Heilög Birgitta og jólin 23.10 Frjálsar hendur RAPYD.NET Innblástur frá náttúrunni París.AFP. | Dýraríkið veitir iðu- lega óvæntan innblástur í vísindum. „Náttúran hefur varið mörg hundr- uð milljón árum í að fullkomna fágaðar lausnir á sérlega flóknum vandamálum,“ sagði Alon Gorodet- sky, heilbrigðisverkfræðingur við Kaliforníuháskóla í Irvine, við AFP. „Þannig að með því að horfa til náttúrunnar getum við stytt okkur leið í þróun og fundið dýrmætar lausnir hratt og örugglega.“ Hér er listi yfir nokkur dæmi frá þessu ári um að náttúran hafi veitt innblástur, allt frá slefi kúa til húðarinnar á smokkfiskum. Okrugel fyrir blæðandi hjörtu Verið getur að hægt verði að stoppa blæðingar í hjörtum og lifrum hunda og kanína án þess að sauma með því að nota lífrænt gifs, sem búið er til úr geli úr okru, sem er hávaxin jurt af stokkrósa- ætt, en belgirnir eru notaðir til matar. Áferð belgjanna er slím- kennd og fékk Malcolm Xing við Manitoba-háskóla þá hugmynd að nota jurtina til lækninga. Í júlí birtist grein um rannsókn hans í tímaritinu Advanced Healthcare Mater- ials. Með því að mauka okra og þurrka verður til duft, sem er hægt að nota sem lífrænt lím. Efnið myndar nokkurs konar vegg og kemur blóðstorknun af stað. Fyrirhugað er að prófa efnið á mönnum á næstu árum. Smyrsl úr kúaslefi Rannsókn á tilraunastofu sýnir að slef úr kúm gæti nýst til að stöðva útbreiðslu ákveðinna kynsjúk- dóma. Greint var frá rannsókninni í tímaritinu Advanced Science í september. Efnið hefur ekki verið prófað á mönnum og var tekið fram að það myndi ekki koma í staðinn fyrir hefðbundnar varnir á borð við smokka. Eldfluguróbótar Eldflugur sem lýsa upp nóttina urðu vísindamönnum við Massachusetts Institute of Technology innblástur til að búa til litla róbóta á stærð við hunangs- flugur, sem gefa frá sér ljós þegar þeir fljúga. Vonast er til þess að þessi fljúgandi vélskordýr geti einhvern tímann í framtíðinni hjálpað til í leitar- og björgunaraðgerðum, en enn sem komið er hafa þau ekki hætt sér út úr rannsóknarstof- unni. Maurar sem þefa uppi krabbamein Talið er að maurar í heiminum séu þúsund milljón milljónir og tegundirnar eru margar. Vísinda- menn hafa fundið eina tegund sem verið getur að geti þefað uppi krabbamein. Vísindamenn við Sorbonne Paris Nord-háskóla gerðu rannsókn á maurunum, sem birt var á forútgáfuvefþjón- inum bioRxiv. Maurarnir voru látnir greina á milli músaþvags, sem ýmist hafði verið blandað í æxlisfrumum úr mönnum eða var óblandað. Var músunum umbunað með sykurlausn. Hægt er að þjálfa þefskyn hunda til að greina krabbamein, en það er dýrt og tímafrekt. Þessi aðferð gæti verið fljótlegri, þótt hún sé kannski ekki geðslegri. Smokk- fiskahúð heldur heitu Undarleg húð smokkfiska kveikti hugmynd að efni, sem nota má til að halda kaffi og mat heitum í stuttan eða skamman tíma. Greint var frá þessu í Nature Sustainability í mars. Í smokkfiskum eru litfrumur, sem geta breytt um stærð svo um munar og einnig skipt litum. Alon Gorodetsky við Kaliforníu- háskóla í Irvine sagði að tekist hefði að þróa efni úr litlum málmein- ingum, sem geta þanist út eða skroppið saman. „Ef það er sett utan um eitthvað heitt – til dæmis kaffibolla eða heita samloku – er hægt að stjórna hversu hratt það kólnar,“ sagði hann. „Í náttúrunni er í raun að finna fullkomnun nýsköpunar og verkfræði.“ AFP/Aris Messinis Kýrnar búa yfir margvíslegum mætti. Nú skoða vísindamenn hvort nota megi slefið úr þeim til að verjast kynsjúkdómum. Smokkurinn heldur þó enn velli. SMOKKFISKAR,MAURAR OG KÝR HJÁLPA ÍVÍSINDUM AFP/AnthonyWallace Toy poodle-tík frá Japan nýtur þess að hafa fengið óformlega titilinn „sætasti hundur í heimi“. Titilinn hlaut hún meðal annars vegna hringlaga forms síns. Tíkin heitir Mohu og er sex ára gömul, býr í Osaka og skilur ekki hvers vegna fólk hefur svonamikinn áhuga á henni, að sögn eiganda hennar,Nanae. „Ég veit ekki hvers vegna hún er svona vinsæl,“ sagði Nanae í samtali við SWNS. „Fólk glápir alltaf á hana úti á götu og ég er alltaf spurð vaða tegund hún sé,“ sagði hún.Nánar á K100.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.